Fréttablaðið - 11.03.2006, Page 4
4 11. mars 2006 LAUGARDAGUR
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR, AP Starfs-
mannafélag Sameinuðu þjóðanna
lýsti á fimmtudag yfir vantrausti
á Kofi Annan, framkvæmdastjóra
SÞ, og nánustu samstarfsmenn
hans vegna áætlana um að stokka
upp rekstur SÞ. Félagið telur að
breytingarnar geti leitt til
umfangsmiklis niðurskurðar, og
sérstaklega sögðust félagsmenn
óttast áætlanir um fækkun starfs-
manna og um að bjóða út verk svo
sem þýðingar og reikningshald.
Þetta er eitt af mörgum áföll-
um sem Annan hefur þurft að þola
undanfarna mánuði, en meðal
annars hefur hann og stjórn SÞ
sætt ádeilum vegna matarúthlut-
unar í Írak, kynferðisglæpa frið-
argæsluliða SÞ og gruns um spill-
ingu í úthlutun á starfssamningum
SÞ.
Annan lagði tillögur sínar fyrir
allsherjarþing SÞ á þriðjudag og
bað þingið að fara yfir þær. Hann
hvatti meðlimi þess, 191 talsins,
að styðja stjórnunarumbæturnar
svo hægt væri að eyða því fé sem
sparaðist til hjálpar þeim sem eru
í nauðum staddir vegna hungur-
sneyðar, sjúkdóma, ofbeldis og
hryðjuverka.
Tillögunum um uppstokkunina
var upphaflega vel tekið af Banda-
ríkjunum og Evrópusambandinu,
en starfsfólk SÞ mótmælti þeim
harðlega á fundi sem haldinn var
á þriðjudag.
Alls starfa yfir 30.000 manns
hjá SÞ, en í starfsmannafélaginu
eru um 5.000 starfsmenn höfuð-
stöðva SÞ í New York. Tíundi hluti
þeirra mætti á háværan fund á
þriðjudag og var vantraustsyfir-
lýsingin samþykkt af öllum við-
stöddum nema tveim, en tæplega
tíu tóku ekki afstöðu.
Talsmaður samtakanna segir
yfirlýsinguna ekki endurspegla
skoðanir meirihluta starfsmanna
SÞ, því flestir styðji Annan og
telji að breytingarnar leiði að
lokum til bættra vinnuskilyrða og
minni hættu á spillingu. Jafn-
framt sagði hann óbreytt starfs-
fólk SÞ sem ekki er staðsett í New
York hafa sýnt Annan mikinn
stuðning á fjarfundi sem hann
hélt með þeim í gær með aðstoð
myndavéla, en meðal annars legg-
ur Annan til að laun óbreytts
starfsfólks verði hækkuð. Step-
hane Dujarric, yfirmaður hjá SÞ,
sagði mikinn skilning vera meðal
stjórnenda á öryggisleysi starfs-
fólks og að fundir væru fyrirhug-
aðir um breytingarnar.
Vantraustsyfirlýsing starfs-
mannafélagsins hefur engin áhrif
á uppstokkunaráætlunina, þar
hefur allsherjarþingið úrslita-
vald. smk@frettabladid.is
Starfsmenn Sþ lýsa
vantrausti á Annan
Starfsfólk Sameinuðu þjóðanna hefur lýst yfir vantrausti á Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóra SÞ, vegna breytinga innan samtakanna. Annan vill nota féð sem
sparast til að hjálpa nauðstöddum, en starfsfólkið óttast um störf sín.
Húnvetningar kjósa Íbúar Húna-
vatns- og Áshrepps kjósa í dag um
sameiningu sveitarfélaganna. Íbúafjöldi
hreppanna er liðlega 470 manns. Lagt
er til að nýtt sveitarfélag kallist Húna-
vatnshreppur.
SVEITARFÉLÖG
LÖGREGLA „Við höfum ekki heyrt
um neina þurrð á fíkniefnamark-
aðnum,“ segir Þórarinn Tyrfings-
son forstöðumaður á Vogi, spurð-
ur um hvort fíkniefnaneytendur
sem komið hafa að undanförnu í
meðferð þar tjái sig um áhrif
árangursríkra aðgerða lögreglu
og tollgæslu við að stöðva tilraun-
ir til fíkniefnasmygls.
Fram kom í Fréttablaðinu í
gær, að samtals 23,5 kíló af fíkni-
efnum hafa verið gerð upptæk það
sem liðið er af þessu ári. Saman-
burðartölur frá sama tímabili í
fyrra eru 6,3 kíló. „Við erum alveg
hissa á því hversu lítil áhrif það
virðist hafa í þjóðfélaginu að
svona mikið magn fíkniefna er
tekið,“ segir Þórarinn. „Það er
undrunarefni hve þessi markaður
er stöðugur og sterkur. Engu lík-
ara er en að hann reikni með því
að eitthvert magn sé gert upptækt
á hverjum tíma. Þessi neysla er
orðin hluti af þjóðfélaginu.“
Þórarinn segir starfsfólk Vogs
ekki undrandi á því mikla magni
amfetamíns, á níunda kíló, sem
tekið hefur verið að undanförnu,
það fari saman við það sem starfs-
fólkið sér og tölur til benda til frá
ári til árs. Örvandi vímuefna-
neysla sé að aukast hér. Þótt kóka-
ín hafi sótt á sé amfetamín enn
mest notaða vímuefnið. - jss
Enginn hörgull á eiturlyfjum þó að lögregla finni stórar sendingar:
Nóg framboð af fíkniefnum
ÞÓRARINN TYRFINGSSON Undrast hversu
stöðugur og sterkur íslenski fíkniefnamark-
aðurinn er. Engu líkara sé en að reiknað sé
með að ákveðið magn sé gert upptækt á
hverjum tíma.
DEILT Á ANNAN Starfsmannafélag Sameinuðu þjóðanna hefur lýst yfir vantrausti á fram-
kvæmdastjóra SÞ, Kofi Annan, vegna tillagna hans um uppstokkun og endurskipulagingu á
rekstri samtakanna. NORDICPHOTOS/AFP
Í Fréttablaðinu 2. mars birtist pistill
undir yfirskriftinni „Skemmdur matur
eða hollustuvara.“ Pistillinn var sagður
eftir Hólmfríði Þorgeirsdóttur matvæla-
og næringarfræðing en það er rangt.
Pistilinn skrifaði Sigurgeir Höskuldsson
matvælafræðingur. Beðist er velvirðingar
á þessum mistökum.
LEIÐRÉTTING
SVÍÞJÓÐ Helmingur allra þeirra
sem þjást af lystarstoli væri ekki
með hann ef ekki kæmu til erfða-
fræðilegir þættir.
Þetta er niðurstaða vísinda-
manna við Karólínsku stofnunina í
Svíþjóð eftir ítarlega rannsókn á
yfir 30 þúsund tvíburum. Þykja
niðurstöðurnar benda til að áhrif
umhverfis séu mun minni áhættu-
þáttur en áður hefur verið haldið
og fullyrða vísindamennirnir að
56 prósent allra tilfella séu ein-
göngu vegna erfðaþátta. - aöe
LYSTARSTOL Rannsóknir sýna að fleira liggi
að baki lystarstoli en eingöngu lífsstíll og
umhverfisáhrif. AFP.NORDICPHOTOS
Ný rannsókn í Svíþjóð:
Lystarstol
er arfgengt
BRUSSEL Atvinnuleysi innan landa
Evrópusambandsins er langverst í
Póllandi og Slóvakíu samkvæmt
nýjustu tölum tölfræðideildarnnar
Eurostat.
Tæp 20 prósent vinnufærra
kvenna í Póllandi eru án atvinnu
og tæp 17 prósent kvenna í Sló-
vakíu og rúm 15 prósent karl-
manna í báðum löndum eru
atvinnulaus. Best er ástandið í
Danmörku og Írlandi en atvinnu-
leysi beggja kynja er innan við
fimm prósent í báðum löndunum.
- aöe
Atvinnuleysi innan ESB:
Mest í Póllandi
og Slóvakíu
LÖGREGLUMÁL Mikil fjölgun fíkni-
efnamála hefur orðið í umdæmi
lögreglunnar í Kópavogi en á síð-
asta ári komu upp 123 slík á móti
aðeins 39 málum árið 2003.
Fjölgun mála hefur haldist í
hendur við meira magn haldlagðra
fíkniefna. Árið 2003 var lagt hald
á 12 alsælupillur en 225 stykki á
síðasta ári. Einnig jókst til muna
magn haldlagðs hass og kókaíns á
sama tímabili. - aöe
Lögreglan í Kópavogi:
Fjölgun fíkni-
efnamála
SVÍÞJÓÐ Nýfætt barn fannst yfir-
gefið í mosku í hverfinu Söder-
malm í Stokkhólmi á miðvikudag.
Barninu fylgdi, að sögn vefútgáfu
Aftonbladet, bréf með ósk um að
einhver tæki barnið að sér.
Í bréfinu kom fram að bréfrit-
arinn hefði hitt móðurina fyrir
utan moskuna. Hún hefði beðið sig
um að halda á barninu meðan hún
skryppi aðeins frá. Hún hefði hins
vegar ekki komið til baka og því
hefði bréfritarinn farið inn með
barnið og skilið það þar eftir. „Ég
kann ekkert á börn,“ sagði í bréf-
inu.
Lögreglan leitar nú að foreldr-
um barnsins. ■
Barn fannst í mosku:
Móðirin skildi
barnið eftir
BLINDRAFÉLAGIÐ Félagsmenn
Blindrafélagsins skora á heil-
brigðis- og trygginganefnd
Alþingis að afgreiða ekki frum-
varp um sameiningu Heyrnar- og
talmeinastöðvar Íslands og Sjón-
stöðvar Íslands úr nefndinni í and-
stöðu við félög notenda.
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis-
ráðherra kom á fund í Blindrafé-
laginu sem samþykkti ályktun til
að mótmæla vinnubrögðum við
gerð frumvarpsins. Blindir telja
ekkert tillit tekið til athugasemda
stjórnar Blindrafélagsins og segja
mikla andstöðu við frumvarpið í
sínum röðum enda engar nýjung-
ar í þjónustu í því. - ghs
Blindrafélag Íslands:
Mótmælir
frumvarpi
Bandaríkjadalur 70,24 70,58
Sterlingspund 121,98 122,58
Evra 83,7 84,16
Dönsk króna 11,219 11,285
Norsk króna 10,51 10,572
Sænsk króna 8,916 8,968
Japanskt jen 0,5935 0,5969
SDR 100,82 101,42
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 10.3.2006
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
Gengisvísitala krónunnar
117,6202