Fréttablaðið - 11.03.2006, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 11.03.2006, Blaðsíða 64
Alþýðuflokkurinn og Alþýðu-samband Íslands, tvær greinar af sama meiði, spruttu úr jarðvegi djúpstæðra átaka í upphafi síðustu aldar. Hið gamla bændasamfélag sem haldið hafði eignalausri alþýðu í viðjum fátæktar var í fjörbrotum. Djarfir einstaklingar hófust ótrauðir handa við uppbyggingu verslunar og iðnaðar og tóku í sína þjónustu stórvirk atvinnutæki sem veitt gátu íbúum ört vaxandi þéttbýlis atvinnu og sköpuðu eigendum sínum mikinn auð og pólitísk völd. Kjör hinna vinnandi stétta voru ákveðin einhliða af atvinnurek- endum, atvinnuöryggi var ekkert, vinnutíminn ómanneskjulegur, vinnuslys tíð og félagslegt öryggi ekkert. Á þessum umbrotatímum fór ekki hjá því að mikil átök yrðu um skiptingu þess auðs sem ný tækni og atvinnuhættir sköpuðu. Ferskir vindar hugsjóna frelsis, jafnréttis og bræðralags léku um þjóðir Evrópu og bárust hingað heim með eldhugum sem settu mark sitt á þróun íslenskra stjórn- mála og samtaka alþýðu. Þrjú sjónarhorn Margt hefur verið skrifað um þetta tímabil en ég geri ekki ráð fyrir því að það hafi verið sameiginleg ætlun þeirra Matthíasar Viðars Sæmunds- sonar heitins, Guðjóns Friðriksson- ar og Guðmundar Magnússonar að lýsa þessum umbrotum frá þremur afskaplega ólíkum sjónarhornum í jafnmörgum tiltölulega nýútkomn- um bókum. Í ævisögu Thorsaranna sem út kom fyrir síðustu jól lýsir Guð- mundur Magnússon á myndrænan hátt stórframkvæmdum Thorsar- anna, m.a. á Hjalteyri þar sem þeir reistu verksmiðju en auk þess mörg hundruð fermetra hýbýli undir eigendur sína sem setið gátu í kvöldkyrrðinni þá mánuði sem vinnsla stóð yfir og virt fyrir sér athafnasvæði sitt. Saga þess verkafólks sem stritaði langan vinnudag fyrir lítil laun við bágar aðstæður, slasaðist eða lést í vinnuslysum í þessari sömu verk- smiðju er ekki rakin enda ekki hluti þess verkefnis sem Guð- mundur tók að sér við ritun þess- arar ágætu bókar. Hún er saga stórbrotinna athafnamanna sem vildu, gátu og svifust einskis til þess að láta drauma sína og vonir um framtíð áa sinna rætast og veitir innsýn í samfélag þar sem hagsmunir einstaklinga og stjórn- málaflokka gengu framar hags- munum almennings. Högum alþýðu lýsir Matthías Viðar Sæmundsson hins vegar á ógleymanlegan hátt í bók sinni Héðinn, Bríet, Valdimar og Laufey sem út kom á árinu 2004. Lýsingar hans eru ofnar úr aragrúa sam- tímaheimilda. Þar er að finna lýs- ingar á högum og aðbúnaði þess daglaunafólks sem bjó við kröpp kjör og illan aðbúnað í torfkofum og hreysum þeirrar Reykjavíkur sem á sama tíma var athafnasvæði þeirra sem töglum og högldum náðu í efnahags- og athafnalífi þjóðarinnar í upphafi síðustu aldar. Meginviðfangsefni Matthí- asar er hins vegar Héðinn Valdi- marsson, samtími hans og fjöl- skylda og þá ekki síst saga móður hans, baráttukonunnar Bríetar Héðinsdóttur. Einnig kynnumst við ungum hugsjónamönnum sem síðar settu mark sitt á íslenskt samfélag m.a. Jónasi frá Hriflu. Ómetanlegt hlutverk Söguefni Matthíasar vefst að hluta saman við ævisögu Hannesar Haf- stein sem Guðjón Friðriksson sendi frá sér fyrir síðustu jól en þar er lýst samfélagi embættis- og menntamanna í Reykjavík í upp- hafi 20. aldar auk þess sem ógleymanleg mynd er dregin upp af hugsjónamanninum og húman- istanum Hannesi Hafstein. Úr þeirri deiglu sem framan- greindir höfundar lýsa í ritum sínum urðu með tímanum til þrír stjórnmálaflokkar. Alþýðuflokkur- inn sem stjórnmálaarmur Alþýðu- sambandsins, Framsóknarflokkur- inn og Sjálfstæðisflokkurinn. Héðin Valdimarsson og félagar hans urðu talsmenn Jafnaðarstefn- unnar, Hannes Hafstein gekk í far- arbroddi hinna borgaralegu afla og Jónas frá Hriflu skipaði sér í for- ystu á miðju íslenskra stjórnmála. Stofnendur Alþýðusambandsins sem í senn var heildarsamband verkalýðsfélaganna á Íslandi og stjórnmálaflokkur sem bauð fram undir merkjum Alþýðuflokksins, hrundu úr vör stærstu og öflugustu hreyfingu íslenskrar alþýðu. Hreyf- ingu sem enn lifir góðu lífi og gegn- ir ómetanlegu hlutverki í samfélagi nútímans. Það er skylda okkar sem nú lifum að minnast með virðingu og þökk þeirra ötulu hugsjóna- manna sem reistu merki Jafnaðar- stefnunnar á Íslandi undir merkj- um Alþýðusambandsins og Alþýðuflokksins. Þar komu margir að en þó tel ég að á engan sé hallað þó fremst verði talin þau Ottó N. Þorláksson, fyrsti forseti ASÍ, Jón Baldvinsson prentari, annar forseti ASÍ og óskoraður leiðtogi íslenskra Jafnaðarmanna frá 1916 til 1938, Ólafur Friðriksson, Guðleifur Hjör- leifsson, Jónas frá Hriflu, Jónína Jónatansdóttir, Karólína Siemsen, Þorleifur Gunnarsson, Gísli Guð- mundsson, Guðjón Einarsson, Jón Þórðarson og Sveinn Auðunsson. Lóð á vogarskálarnar Þegar hvorutveggja stóð traustum fótum, heildarsamtök launafólks og sterkur Jafnaðarmannaflokkur skyldu leiðir milli ASÍ og Alþýðu- flokksins. Frá þeim slitum, nokkru fyrir miðja síðustu öld og allt til þessa dags hafa heildarsamtök launafólks, hvar í flokki sem félagsmenn standa, eflst og dafn- að. Söm urðu ekki örlög stjórn- málaarmsins. Alþýðuflokkurinn var áfram til en klofnaði og Jafn- aðarmenn dreifðu sér eftir það og allt fram til síðustu aldamóta í fjölmarga flokka og flokksbrot. Af þeim ástæðum varð Framsóknar- flokkurinn meiri gerandi í íslensk- um stjórnmálum en hann hefur nokkru sinni haft kjörfylgi til og Sjálfstæðisflokkurinn náð þeim tökum á samfélaginu að vart er ásættanlegt. Taktlausri göngu Jafnaðarmanna er nú lokið. Alþýðuflokkurinn lagði niður pólitískan gunnfána sinn þegar sá dagur kom að Jafnaðarmenn báru gæfu til þess að ganga fylktu liði undir merki Samfylkingarinnar. Alþýðuflokkurinn lagði þung lóð á þær vogarskálar og þar göngum við í fylkingarbrjósti með félög- um okkar úr Alþýðubandalagi, Samtökum um Kvennalista og öllu því góða og dugmikla fólki sem gengið hefur til liðs við Samfylk- inguna frá stofnun hennar. Umbúð- irnar hafa breyst en innihaldið er það sama. Samfélagið hefur breyst en verkefnin eru þau sömu. Frjáls- lyndur alþjóðahyggjuflokkur sem sér stöðu Íslands og Íslendinga í samhengi við síbreytilegan veru- leika allra jarðarbúa og skipar sér í fylkingarbrjóst þeirra stjórn- málaafla sem trúa á og vinna að réttlátu samfélagi. Samfélagi sem byggt er á frelsi sem allir menn eru réttbornir til, jöfnun rétti allra til að njóta þess frelsis og samfé- lagslegri ábyrgð þegar í hlut eiga þeir bræður okkar og systur sem ekki geta notið þess frelsis og þeirra tækifæra sem okkur hinum gefast. Við fögnum því af heilum hug 90 ára afmæli Jafnaðarstefn- unnar á Íslandi. ■ 11. mars 2006 LAUGARDAGUR32 Að vinna að réttlátu samfélagi Alþýðusamband Ísland og Alþýðuflokkurinn eiga níutíu ára afmæli á morgun. Magnús M. Norðdahl, lögfræðingur ASÍ og formaður framkvæmdastjórnar Alþýðuflokksins, stiklar á stóru í sögu flokksins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.