Fréttablaðið - 11.03.2006, Blaðsíða 61
LAUGARDAGUR 11. mars 2006 29
Meistaranám
við verkfræðideild HÍ
- markvisst og öflugt nám á traustum grunni
• Um 100 námskeið í boði.
• Kennarar í fremstu röð á sínum sviðum.
• Nálægð stúdenta við kennara
auðveldar námið.
• Góð vinnuaðstaða, þráðlaust net og
aðgangur að sérhæfðum hugbúnaði.
• Ýmsir möguleikar á styrkjum.
• Sterk tengsl við atvinnulífið.
• Einfalt að taka hluta námsins erlendis hjá
virtum samstarfsskólum.
www.verk.hi.is
Hægt er að hefja meistaranám hvort sem er á vor- eða
haustmisseri. Umsóknarfrestur er 15. mars fyrir haust-
misseri og 15. september fyrir vormisseri.
Umsóknareyðublöð á netinu:
http://www.hi.is/page/verkfr-umsokn
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
20
88
2
Ég valdi meistaranám við verkfræði-
deild HÍ þar sem það hefur marga
kosti sem mér þykja eftirsóknarverðir.
Námið er krefjandi og skemmtilegt,
verkefnin fjölbreytt og kennararnir
hæfir. Námið er í samræmi við
íslenskar aðstæður og sá möguleiki
að vinna lokaverkefni í tengslum við
atvinnulífið er fyrir hendi.
Helga Þórunn
Gunnlaugsdóttir
Meistaranemi í umhverfis- og
byggingarverkfræði
... sem flig vantar til
a› hefja n‡tt líf
N† VÖRU- OG fiJÓNUSTUSKRÁ Á VISIR.IS/ALLT
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Á fyrstu sekúndubrotunum eftir
Miklahvell var ekkert efni í
alheiminum. Núna er hins vegar
heilmikið af efni í honum. Magn
efnisins hlýtur því að hafa breyst
og þar með er svarið við spurning-
unni: Nei, efnið er ekki varðveitt.
Ekkert lögmál um varðveislu
efnisins
Í eðlisfræði segjum við um stærð
sem breytist ekki í neinum ferlum
að hún sé varðveitt. Eitt af helstu
lögmálum eðlisfræðinnar er til
dæmis lögmálið um varðveislu
orkunnar sem segir að heildarork-
an í alheiminum breytist aldrei og
sé því alltaf sú sama. Orkan er
einnig varðveitt í mikilvægum
ferlum sem eru einangruð frá
umhverfinu. Hins vegar er ekki til
neitt lögmál um varðveislu efnis-
ins því að „magn efnis“ getur
breyst, hvort sem átt er við fjölda
efnisagna eða heildarmassa efnis-
ins.
Í flestum ferlum í daglega líf-
inu er efnið reyndar varðveitt.
Þegar varðeldur brennur þá hverf-
ur ekki efnið sem bálkösturinn
var gerður úr, heldur breytist það
í ösku og reyk. Það eru hins vegar
til flóknari ferli í náttúrunni þar
sem efnið varðveitist ekki.
Orkan óbreytt
Venjulega er talað um að efni sé
samsett úr frumeindum eða atóm-
um en þau eru svo aftur gerð úr
öreindum. Í svokölluðum kjarna-
hvörfum getur fjöldi frumeind-
anna breyst, til dæmis við kjarna-
klofnun í kjarnorkuverum þar
sem þungur frumefniskjarni
klofnar í tvo léttari, eða við kjarna-
samruna inni í sólinni þar sem
tveir kjarnar sameinast í einn
þyngri. Heildarfjöldi öreindanna
er þó varðveittur í slíkum hvörf-
um en í öreindahvörfum breytast
öreindir hver í aðra. Heildarfjöldi
þeirra er þá ekkert endilega varð-
veittur þó að fjöldi ákveðinna teg-
unda hlíti tilteknum reglum sem
takmarka hvers konar hvörf geti
orðið og hve ört. Dæmi um þetta
er rakið hér á eftir þar sem rætt
er um efni og andefni og um þun-
geindir.
Samanlagður massi nýrra
frumeindakjarna eða öreinda er
yfirleitt minni eftir hvörf en áður
svo það er ekki nóg með að fjöldi
efnisagnanna hafi breyst heldur
massi þeirra líka. Samkvæmt
frægustu eðlisfræðijöfnu allra
tíma,
E = mc2
jafngildir massi orku en heildar-
orkan í þessum ferlum er hins
vegar óbreytt, í samræmi við lög-
málið um varðveislu orkunnar.
Orkan sem losnar við kjarnaklofn-
un eða -samruna kemur því frá
massanum sem „hvarf“.
Efni og andefni
Í öreindafræði er ekki litið svo á
að efnið sé sett saman úr frum-
eindum heldur úr enn minni eind-
um sem eru kallaðar þungeindir
(e. baryons), en hver þungeind er
aftur samsett úr þremur kvörkum.
Í öllum þekktum ferlum í náttúr-
unni er svokölluð þungeindatala
varðveitt stærð.
Þegar efni og andefni rekast
saman eyðast þau upp og ekkert
situr eftir nema orkan. Í slíku ferli
gæti maður haldið að heildarfjöldi
þungeinda hafi minnkað, en svo er
ekki. Andefni er nefnilega talið
með neikvæðu formerki í
þungeindatölu, B = 1 fyrir hverja
þungeind og B = -1 fyrir hverja
and-þungeind, og því breytist
þungeindatalan ekkert þegar efni
og andefni eyða hvort öðru.
Stóra ráðgátan
Við Miklahvell í upphafi alheims
var ekkert efni til. Hvaðan kom þá
efnið sem við erum öll gerð úr?
Það er ekki vitað fyrir víst og ein
af stóru ráðgátunum í stjarneðlis-
fræði er einmitt hvers vegna það
er svona miklu meira af efni en
andefni í alheiminum.
Kristján Rúnar Kristjánsson,
doktor í eðlisfræði
Er það satt að líkur sæki líkan
heim?
Já, rannsóknir sýna að menn drag-
ast að jafnaði fremur að þeim sem
svipar til þeirra sjálfra. Fólki
líkar best við aðra á sama aldri, af
sama kynþætti og með svipaða
hæfileika og það sjálft í listum,
íþróttum og bóknámi. Sömuleiðis
er fólk líklegra til að velja sér
maka sem er svipaður í útliti og
það sjálft, af sama kynþætti, jafn-
menntaður, í sömu þjóðfélags-
stöðu, með álíka há laun, sem
kemur úr svipaðri fjölskyldu, með
sömu trúarafstöðu, sem er jafn
félagslyndur og hefur svipaða
afstöðu til stjórnmála, reykinga
og áfengisdrykkju.
Sameiginlegir eiginleikar treysta
sambönd
Fólk hefur ekki einungis tilhneig-
ingu til að velja sér maka sem lík-
ist því heldur bendir margt til
þess að því lengur sem pör eru
saman því líkari verði þau. Þetta
er kannski ekki sérlega skrýtið
því að sjálfsögðu verður fólk fyrir
áhrifum af þeim sem það umgengst
mest.
Hvers vegna sækir líkur líkan
heim? Makaval á þessum forsend-
um er ekki með öllu tilgangslaust
því margt bendir til þess að hjón
sem líkjast hvort öðru skilji síður
en önnur hjón. Það verður líka að
teljast sennilegt að sameiginlegir
eiginleikar treysti sambönd fólks;
hafi fólk til að mynda sömu við-
horf minnkar það líkur á alvar-
legu ósætti sem leitt gæti til hjóna-
skilnaðar, og sameiginleg
áhugamál ýta undir að hjón geri
eitthvað saman og leggi þannig
rækt við hjónabandið.
Líklegra að hitta líka
Svo má auðvitað ekki gleyma
þeirri augljósu staðreynd að fólk
er einfaldlega líklegra til að hitta
þá sem svipar til þeirra sjálfra
heldur en aðra, þar sem líkt fólk
sækir gjarnan í sömu aðstæður.
Þannig má gera ráð fyrir að lista-
spírur hitti oft aðrar listaspírur,
að íþróttafólk hitti annað íþrótta-
fólk og svo framvegis. Að auki er
vitað að mönnum líkar best við
það sem þeir þekkja vel, hvort
sem það eru auglýsingar, popplög
– eða annað fólk. Það fólk sem
maður hittir dagslaglega er því
það fólk sem manni líkar best við,
og svo vill til að það er yfirleitt
það fólk sem einnig líkist manni
hvað mest.
Heiða María Sigurðardóttir,
B.A. í sálfræði og starfsmaður Vís-
indavefsins
Er alltaf jafn mikið af
efni í alheiminum?
VÍSINDAVEFUR
HÁSKÓLA ÍSLANDS
Vísindi á verði bíóferðar! Í stað þess að fara með börnunum í bíó á laugardegi er tilvalið
að leiða þau inn í heim vísindanna. - Þann 11. mars hefjast Undur vísindanna sem
er röð fimm námskeiða um vísindi handa fjölskyldum á vegum Vísindavefsins, Endur-
menntunar og Orkuveitunnar. Í fyrsta námskeiðinu verður fjallað um undur örtækninnar
og þar verður ýmsum spurningum svarað, meðal annars: Geta tölvur orðið óendan-
lega hraðvirkar? Mun iPod komast fyrir í eyrnalokk? Munu vélmenni öðlast meðvitund?
Verður hægt að hala niður DVD-mynd af netinu á einni sekúndu? Hægt er að skrá sig á
vefslóðinni http://www.endurmenntun.is