Fréttablaðið - 11.03.2006, Blaðsíða 66
ÞAU SEM SITJA Á FREMSTA BEKK
Því fleiri stjörnur sem mæta á tískusýningu, því meiri athygli fær hönn-
uðurinn, og ljósmyndir frá viðburðinum birtast um
allan heim.
FASTAGESTIRNIR Það er alltaf stóll merktur þeim
fremst við pallinn þar sem ljósmyndarar geta tekið
ódauðlegar myndir. Eftir sýninguna fara þær baksviðs
til að ræða um tjull og chiffon við stílistana sína. Cath-
erine Deneuve, Madonna, Lauren Hutton, Nicole Kid-
man og Elizabeth Hurley eru iðulega á fremsta bekk.
MÚSURNAR Fallegar og hæfileika-
ríkar og eru alltaf boðnar í partí hjá
John eða Karl. Þær fá ókeypis föt
gegn því að sýna sig í öllu lúkkinu og
sumsé, auglýsa hönnuðinn. Lou Doill-
on, Gwyneth Paltrow og Monica Bell-
uci eru meðal þeirra sýnilegustu.
AÐSKOTADÝRIN Fólk eins og dauð-
arokkarinn Marilyn Manson og
kona hans, fatafellan Dita von Teese
sem þykir hafa afburðafallegan
smekk.
DITA VON TEESE Í
PARÍS
LOU DOILLON Á
TÍSKUVIKU Í NEW
YORK
CATHERINE DENEU-
VE Í PARÍS
11. mars 2006 LAUGARDAGUR34
ÞEIR SEM KOKKA UPP TÍSKUUPPSKRIFTIRNAR
Það eru ritstjórar tískublaða, innkaupastjórar hjá tískuverslunum eða
stílistar stórstjarnanna. Þetta fólk er ástæðan fyrir því að allir taka til
dæmis upp á því að girða gallabuxurnar ofan í stígvélin. Tískustraumar
heita „tendances“ á frönsku og þetta orð er vert að kunna ef maður vill
komast inn í tískulingóið.
CARINE ROITFELD. Ritstýra franska Vogue og besta vinkona Toms Ford.
Þau bjuggu saman til það sem kallað hefur verið „porno-chic“ (ber-
brjósta stúlka í Gucci-fötum). Þessi tískustraumur hafði yfirgnæfandi
áhrif á auglýsingar og hönnun í lok síðasta áratugar. Eftir þetta hefur
Roitfeld verið einn áhrifamesti tískuritstjóri í heimi: ef flík birtist í
franska Vogue mun hún seljast í hundruðum eintaka.
ANNA PIAGGI. Hún hefur unnið í bransanum í fjörutíu
ár (af þeim var hún í átján ár hjá ítalska Vogue) og þar
með skrifað 6.500 blaðsíður um tísku. Hún er Babels-
turn tískupallanna, ber alltaf brjálæðislega hatta og
málar sig eins og postulínsdúkku. Hún er 75 ára gömul
og er gangandi tískubiblía.
JEFFERSON HACK. Jú, þessi spjá-
trungslegi piltur í Hedi Slimane-
lúkkinu er enginn annar en fyrrver-
andi kærasti og barnsfaðir Kate
Moss. Honum er þó ýmislegt annað
til lista lagt: hann er ritstjóri breska
blaðsins Dazed and Confused, sem
er eitt það svalasta í heiminum, og
stofnaði tímaritið Another Magazine
í fyrra sem þykir meistaralega flott.
SUZY MENKES. Hún mundar eitur-
penna Herald Tribune og slátrar
hverri tískusýningunni á fætur ann-
arri. Þessi kona mætir á 600 tísku-
sýningar á hverju ári og án hennar byrjar engin sýn-
ing. Hún lætur ekki múta sér með dýrum gjöfum frá
tískuhönnuðum, og dreifir þeim í staðinn á spítala eða
sendir þær aftur tilbaka. Hún er auðþekkjanleg á ban-
ana-hárgreiðslunni sem hún hefur verið með til fjölda
ára.
ANNA WINTOUR. Býflugnadrottningin sjálf er ritstjóri
bandaríska Vogue, og þegar hún mætir á sýningu eins
og Darth Vader hætta allir að tala saman. Hún er dáð
og dýrkuð fyrir óaðfinnanlegan smekk, og hefur ótrú-
leg völd í tískuheiminum. Auðkennd á klassískri klipp-
ingu sem hún hefur borið í áratugi, ásamt svörtum sól-
gleraugum. Bráðum kemur bíómynd um hana á hvíta
tjaldið sem heitir Djöfullinn klæðist Prada og er með
Meryl Streep í aðalhlutverki.
Hverjir móta tískuna?
Ritstjórar, ljósmyndarar, tískuþrælar, stjörnur og fyrirsætur: allt þetta fólk hefur völdin til að skapa
nýjustu straumana. Anna Margrét Björnsson skoðar helstu gúrúa tískunnar.
● Fashion week Þetta orð er notað á
ensku hvarvetna í heiminum um tvær
vikur á ári þegar tískusýningar eiga
sér stað - sem er í febrúar-mars eða
september-október í borgunum New
York, París, London og Mílanó.
● Fitting Fyrirsætur mæta í „fitting“
eða mátun hjá hönnuðum til þess
að sjá hvaða flíkur fara best á hvaða
stúlku. Föt eru löguð til og sniðin utan
á fyrirsæturnar.
● Sitting Þetta er aðalhöfuðverkurinn
hjá skipuleggjendum sýninganna. Þeir
verða að ákveða hvar allir boðsgest-
irnir eiga að sitja án þess að eiga á
hættu að brjóta niður viðkvæm egó.
● Standings Jú, fólkið sem er ekki í
æðstu kreðsunum verður að standa
meðan á sýningu stendur. Fyrsta
regla þeirra sem sitja er að tala aldrei,
aldrei við þetta fólk.
● La New Face Þetta gæti verið 14
ára fyrirsæta sem var að uppgötvast í
Búdapest og er að sýna fyrir þekktan
hönnuð. Ef henni gengur vel munu
allir tala um hana.
● Look Book Þetta er einskonar sýn-
ingarskrá yfir allar flíkurnar í línu hvers
hönnuðar. Ritstjórar tískublaðanna líta
ekki upp úr þessu.
Orðabók tískuheimsins
RITSTJÓRI FRANSKA VOGUE Carine Roitfeld, ritstjóri franska Vogue, sést hér á sýningu Zac
Posen fyrir haustið 2006 á tískuvikunni í New York.
JEFFERSON HACK
í útgáfuteiti tíma-
ritsins „Another
Magazine“ í New
York síðastliðið
haust.
ANNA WINTOUR
Ritstjóri bandaríska
Vogue.
ANNA PIAGGI Á
opnun sýningarinn-
ar „Fashion-ology“
í safninu Victoria &
Albert í London í
lok janúar. Sýningin
fjallar um hana
sjálfa og sýnir
teikningar, hönnun
og föt.
SUZY MENKES
Tískupenni Herald
Tribune.
TÍSKULJÓSMYNDARINN Ellen Von Unwerth
mætir í Golden Globe-partí í Los Angeles.
í janúar.
MARIO TESTINO Mætir á tískusýningu Bur-
berrys á síðustu tískuviku í Mílanó.
CAROLINE TRENTINI Sýnir fyrir Reem Akra á
tískuvikunni í New York.
LIZ HURLEY SÉST HÉR Á SÝNINGU VERSACE Á TÍSKUVIKUNNI Í MÍLANÓ
ÞAU SEM FESTA TÍSKUNA
Á FILMU
Heitustu ljósmyndarar tísku-
bransans mæta á allar sýningar í
leit að hinni nýju Kate Moss. Þetta
fólk býr til nýju andlitin.
MARIO TESTINO. Hann er með
númerin hjá Naomi, Gisele og
Gwyneth í símanum. Stærstu
afrek hans eru síðustu ljósmynd-
irnar af Díönu prinsessu í Vanity
Fair, eða Versace-auglýsingin með
Madonnu. Ef þessi maður myndar
nýja fyrirsætu á forsíðu Vogue
nær hún toppnum strax.
ELLEN VON UNWERTH. Hún tekur
mjög stelpulegar og sexí myndir
fyrir forsíður blaða eins og Elle og
Glamour og stóð fyrir mörgum
auglýsingaherferðum hjá Guess.
Er víst virkilega indæl manneskja
og súpermódelin slást um að sitja
fyrir hjá henni.
TERRORISTARNIR Það er ljótt að drepa dýr til þess eins að búa til úr
þeim rándýra pelsa. Það segja að minnsta kosti dýraverndunarsamtökin
PETA sem eru samviska og samfélagsleg vitund tískubransans. Með-
limir mæta reglulega á tískusýningar með stór plaköt eða þakin blóði.
Nokkrum tókst meira að segja að henda tófú-böku á pelsvestið hennar
Önnu Wintour.
FYRIRSÆTURNAR Súpermódelið
varð útdauð dýrategund í byrjun
þessa áratugar, en á hverju ári eru
nýjar og skærar
stjörnur á tísku-
pöllunum sem
þykja bera af og
hafa lúkkið sem
táknar tískutíð-
arandann. Þær
eru ekki jafn
miklar stjörnur
og Naomi Camp-
bell og Claudia
Schiffer, en eru
afar eftirsóttar
af hönnuðum.
Heitustu andlitin á þessu ári eru
MARIACARLA BOSCONO, sem tók
við af Kate Moss í H&M herferð-
inni, danska unglambið FREYA
BEHA sem sýnir hjá Chanel, Dior
og YSL og ofurbomban CAROLINE
TRENTINI sem sýnir meðal annars
hjá Victoria‘s Secret.
MARIACARLA BOS-
CONI Í tímaritaaug-
lýsingu.