Fréttablaðið - 11.03.2006, Blaðsíða 38
2
Rósastellið hennar ömmu er komið
úr tísku. Þó svo að það valdi nost-
algíu og með hverjum bita sem
hverfur af diskinum rifjist upp ljúf
æskuminning er það einfaldleikinn
sem nú ræður ríkjum. Hvít stell með
látlausri platínu eða gullskreytingu
seljast best.
Það er í forminu sem ferskleik-
inn fær að njóta sín. Diskar eru fer-
kantaðir, mitt á milli þess að vera
ferkantaðir og hringlaga eða bara
hvernig sem er. Flæðandi línur,
uppbrot í köntum og allt þar á milli
er að finna í matarstellum í dag.
Það er auðvitað enn hægt að fá
gömlu góðu ömmustellin og ný lit-
rík stell sem grípa augað en látleysi
á upp á pallborðið, eða öllu heldur
matarborðið, í dag.
Fréttablaðið fékk þrjár búðir,
sem sérhæfa sig í postulíni og gleri,
til að sýna brot af því besta og
kynna það sem nýjast er. Búðirnar
eru Villeroy og Boch, Hjörtur Niel-
sen og Kristall og Postulín.
Pen hvít stell
vinsælust
Einfaldleikinn er allsráðandi í postulínstískunni í dögun
nýrrar aldar.
Villeroy og Boch: Flæðandi línur eru allsráðandi í New Wave-stellinu. Skeiðin er einkar
skemmtileg. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Villeroy og Boch: Skemmtilegur diskur í New Wave-línunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hjörtur Nielsen: Suomi-matarstellið er glæsilegt.
Kristall og Postulín: Couture Platinum. Eins
og nafnið gefur til kynna er skreytingin
úr platínu en stellið sjálft er úr hágæða
beinapostulíni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Kristall og Postulín: Caprice platinum-sett.
Þetta sett er einnig hægt að fá með gylltri
skreytingu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
■■■■ { vor í lofti } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Hjörtur Niel-
sen: Kampa-
vínsglas sem
sómar sér vel í
hverri veislu.
Hönnuðurinn Jasper Morrison
er fæddur í London árið 1959.
Hann útskrifaðist af hönnunar-
braut Kingston Polytechnic Design
School árið 1982 og lauk meist-
araprófi í hönnun frá Konunglega
listaháskólanum í London þremur
árum síðar. Hann eyddi einu ári í
Berlín á námsstyrk en tveimur árum
seinna opnaði hann hönnunarstofu
sína í London. Verk hans voru
sýnd á Documenta 8 listsýningunni
í Kassel árið 1987, þar sem hann
hafði hannað fréttastofu Reuters.
Í framhaldi af því var hann mjög
áberandi í heimi lista og hönnunar
í Evrópu og hannaði fyrir fjölmörg
þekkt fyrirtæki, eins og SCP í Lond-
on, Vitra og Cappellini.
Árið 1994 var hann orðinn einn
virtasti hönnuður Evrópu, búið var
að gefa út bækur um verk hans og
var hann sérstakur heiðursgestur á
Interiuer-sýningunni í Berlín árið
1994, þar sem verk hans voru til
sýnis.
Ári seinni var hann ráðinn til að
hanna sporvagna í Hannover, sem
var eitt stærsta verkefni og viða-
mesta hönnunarverkefni í Evrópu á
þeim tíma. Hann hlaut sérstök verð-
laun fyrir verkið, bæði fyrir hönnun
og umhverfisverðlaun.
Fjöldi spennandi verkefna hafa
fallið honum í skaut, eins og ljós-
hönnun fyrir Tate Modern í Lond-
on og fleira. Hann starfar nú bæði
í París og London og hannar að
mestu fyrir fyrirtæki eins og Alessi,
FBS, Canon, Sony, Rosenthal og
Rowenta. Árið 2004 kom hann fram
með línu af heimilistækjum fyrir
Rowenta sem fengu mörg af helstu
hönnunarverðlaununum það árið.
Fæddur til að hanna
Ferill hönnuðarins Jaspers Morrison hefur verið ein frægðar-
ganga nánast frá útskrift hans úr listaskóla.
Stóll hugsuðarins frá árinu 1988.
Rowenta-kaffikanna, hitakanna og brauð-
rist sem unnið hafa til margra hönnunar-
verðlauna.
Þrír samsettir skápar lakkaðir með háglans,
sem Jasper hannaði fyrir fyrirtækið Capp-
ellini.
Einfalt matarborð á stálfótum.
Skemmtilega samsettar hillur úr jöfnum
kassalaga einingum.
gamla mublu með því að sprautu-
lakka hana í fallegum lit. Einnig
getur verið fallegt að verða sér
úti um stensla og mála mynstur á
gamla kommóður eða skápa, skipta
um höldur og hjarir á gömlum
skápum og mublan er eins og ný.
Einnig er hægt að setja nýtt gler í
gamla glerskápa og láta þá jafnvel
skera út mynstur í límfilmu sem
límd er innan á glerið.
lífgaðu upp á ...
N† VÖRU- OG fiJÓNUSTU-
SKRÁ Á VISIR.IS/ALLT
... sem flig vantar í
n‡ja húsnæ›i›