Fréttablaðið - 11.03.2006, Page 6
6 11. mars 2006 LAUGARDAGUR
FINNLAND Bandaríska utanríkis-
ráðuneytið gagnrýnir finnsk
stjórnvöld fyrir að vinna ekki
nógu vel gegn mansali frá ríkjum
fyrrum Sovétríkjanna, sérstak-
lega Rússlandi og Eystrasaltsríkj-
unum. Þetta kemur fram í árlegri
mannréttindaskýrslu bandarískra
stjórnvalda.
Finnskum stjórnvöldum hefur
ekki tekist að spyrna nógu vel
gegn mansali, sem fram fer í gegn-
um Finnland og í Finnlandi. Talið
er að hundruð tilvika eigi sér stað
í landinu á hverju ári, að sögn Huf-
vudstadsbladet, en Finnum hefur
ekki tekist að upplýsa eitt einasta
tilfelli. - ghs
Mansal í Finnlandi:
Gagnrýni frá
Bandaríkjunum
KJÖRKASSINN
Ætlarðu að fjárfesta í hlutabréf-
um á næstu vikum?
Já 29,7%
Nei 70,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Eiga Íslendingar að taka upp
evruna?
Segðu þína skoðun á Vísir.is
SVEITARSTJÓRNARMÁL Framsóknar-
flokkur, Samfylking og óflokks-
bundnir munu bjóða fram samein-
aðir í sveitarstjórnarkosningum í
Garðabæ í vor og er þetta í fyrsta
skipti sem þessir hópar sameinast
um framboð. Um algjöra endur-
nýjun er að ræða þar sem fráfar-
andi bæjarfulltrúar eru í neðstu
sætum.
Steinþór Einarsson skipar efsta
sæti listans og þar á eftir koma
Sigrún Aspelund, Hjördís Eva
Þórðardóttir og Þorgeir Pálsson.
- sdg
Bæjarmál í Garðabæ:
Minnihlutinn
sameinast
GARÐABÆR Minnihlutinn býður sameigin-
lega fram í fyrsta sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Fíkniefnamisferli í Keflavík Einn
ökumaður var stöðvaður í Keflavík við
eftirlit lögreglu og fannst lítið magn tób-
aksblandaðs hass í fórum hans. Annar
ökumaður var handtekinn skömmu
síðar vegna gruns um ölvun við akstur.
LÖGREGLUFRÉTTIR
DÓMSMÁL „Þetta er að mörgu leyti
svolítið Bubba-leg fyrirsögn,“
sagði Eiríkur Jónsson, blaðamaður
á DV, í dómssal en aðalmeðferð í
máli Bubba Morthens gegn Garð-
ari Erni Úlfarssyni, fyrrverandi
ritstjóra Hér og nú, og 365-prent-
miðlum fór fram í gær.
Þess er krafist af hálfu Bubba
Morthens og lögmanns hans, Sig-
ríðar Rutar Júlíusdóttur, að
ummælin „Bubbi fallinn!“, sem
birtust á forsíðu blaðsins Hér og
nú hinn 16. júní 2005, verði dæmd
dauð og ómerk.
Að auki er krafist tuttugu millj-
óna króna í miskabætur vegna þess
tjóns sem Bubbi varð fyrir vegna
fyrirsagnarinnar og mynda sem
birtust með fréttinni.
Bubbi bar því við að mannsorð
sitt hefði beðið hnekki vegna fyrir-
sagnarinnar og að hann hefði þurft
að ganga á fund viðsemjanda sinna,
til dæmis forsvarsmanna Íslands-
banka og Idol-stjörnuleitar, og
greina þeim frá því að hann væri
ekki byrjaður að neyta fíkniefna að
nýju, eins og skilja hefði mátt af
fyrirsögninni. „Dóttir mín varð
fyrir aðkasti vegna þessa máls og
þetta reyndi mikið á mína fjöl-
skyldu,“ sagði Bubbi meðal annars
fyrir dómi.
Garðar Örn Úlfarsson sagði fyr-
irsögnina ekki hafa verið setta
fram til að skapa misskilning.
„Okkur datt það ekki í hug að fólk
myndi misskilja þessa fyrirsögn,
þar sem myndin af honum með
sígarettu í munnvikinu gaf ekki til-
efni til annars en að Bubbi væri
byrjaður að reykja,“ sagði Garðar
fyrir dómi.
Garðar sagði enn fremur að
þetta dómsmál væri mikilvægt
mál fyrir blaðamannastéttina. „Ég
held að það sé ekki nokkur vafi á
því að þetta mál er mikilvægt fyrir
blaðamannastéttina í heild sinni.
Þetta er spurning um eðlilegt tján-
ingarfrelsi fjölmiðla og ef dómur-
inn félli okkur í óhag í starfi þá
yrði væntanlega að hætta að nota
íslensku sem tungumál í blaða-
mennsku.“
Eiríkur Jónsson sagði í dómssal
að „Bubbi Morthens væri fyrir
Reykjavík það sem Brad Pitt væri
fyrir Hollywood,“ og vitnaði þar til
bandaríska leikarans góðkunna.
Eiríkur sagði Bubba lengi hafa
verið einn vinsælasta mann lands-
ins og því væri það eðlilegt að fjall-
að væri um það í blöðum ef hann
byrjaði að neyta tóbaks, þar sem
hann hefði lengi verið „frægur
fyrir að vera hættur eiturlyfja-
notkun, drykkju og tóbaksnotkun.“
Fyrirsögnin „Bubbi fallinn!“ hefði
því verið eðlileg í samhengi við
fréttina og myndina sem fylgdi
með. magnush@frettabladid.is
Bubbi vill tuttugu
milljónir í bætur
Bubbi Morthens krefst þess að ummælin „Bubbi fallinn!“, sem prýddu forsíðu
tímaritsins Hér og nú á síðasta ári, verði dæmd dauð og ómerk. Garðar Örn
Úlfarsson segir málið mikilvægt fyrir blaðamannastéttina í heild sinni.
EIRÍKUR JÓNSSON Sagði Bubba Morthens
vera það fyrir Reykjavík sem Brad Pitt væri
fyrir HollywoodFRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BUBBI MORTHENS ÁSAMT
VERJANDA SÍNUM Bubbi
Morthens ræðir hér málin
við verjanda sinn, Sigríði Rut
Júlíusdóttur, í dómssal í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær..
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
RAFORKUMÁL Sameiginlegt smásölu-
fyrirtæki Landsvirkjunar, Orkubús
Vestfjarða og RARIK er lykilatriði
þess að samkeppni
myndist á raf-
orkumarkaði,
segir Valgerður
Sverrisdóttir, iðn-
aðar- og viðskipta-
ráðherra.
„Með smásölu-
fyrirtækinu er
brugðist við
nýjum aðstæðum
á raforkumarkaði
og fyrirtækjunum
gert kleift að taka þátt í samkeppnis-
umhverfinu sem orðið er til.“
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, segir að vel
kunni að vera að smásölufyrirtækið
komi til skoðunar eftirlitsins. Val-
gerður segir það ekki valda sér
áhyggjum að Samkeppniseftirlitið
hafi augastað á áformunum: „Sam-
keppniseftirlitið hlýtur þá einnig að
skoða hvort Reykjavíkurborg geti
átt 45 prósent í Landsvirkjun á sama
tíma og hún á Orkuveitu Reykjavík-
ur, því fyrirtækin keppa á mark-
aði.“
Páll Gunnar segir eignartengslin
á sama hátt geta komið til skoðunar
Samkeppniseftirlitsins.
Smásölufyrirtækið var stofnað í
gær. RARIK og Orkubúið eiga 36
prósenta hlut í fyrirtækinu og Lands-
virkjun 28 prósent. - gag
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra sáttur við smásölu raforkufyrirtækja ríkisins:
Lykill að samkeppni orkuveitna
Bankaræningi fangelsaður David
Alexander Toska, höfuðpaurinn að
baki bankaráninu í Stavangri í Noregi
fyrir tveimur árum, var í gær dæmdur
í nítján ára fangelsi fyrir ránið. Toska
játaði aðild sína að ráninu, en í því var
lögreglumaður skotinn til bana. Tólf aðrir
ákærðir voru dæmdir í allt að sautján
ára fangelsi.
NOREGUR
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR Iðnaðar- og
viðskiptaráðherra.
PÁLL GUNNAR
PÁLSSON
Forstjóri Sam-
keppniseftirlitsins.
LÓÐAÚTHLUTUN Framkvæmdasvið
Reykjavíkurborgar hefur farið í
gegnum tilboð tíu hæstbjóðenda í
einbýlis- og parhúsalóðirnar í
Úlfarsfelli. Byggingaverktakinn
Benedikt Jósepsson, systir hans
og faðir hafa þegar valið sér lóð.
Benedikt, sem átti hæsta tilboð
í 39 af 40 einbýlishúsalóðum, segir
að hann hafi enn ekki gert upp við
sig hvort hann skoði réttarstöðu
sína en útilokar það ekki. Hann
hafi sitthvað út á lóðamál í borg-
inni að setja, hann hafi ætlað að
hætta við öll tilboðin en svo ákveð-
ið að standa við eitt.
Bjarni Tómasson og félagi
hans, Gunnar Jónasson, sem áttu
flest hæstu tilboðin í parhúsalóð-
irnar hafa valið eina. Þeir hyggj-
ast ekki stefna borginni.
- gag
Útboð á umtöluðum lóðum í Úlfarsfelli:
Tíu einbýlis- og parhús seld
ÚLFARSFELL Borgin opnaði kauptilboðin 17.
febrúar og er búin að ganga frá tilboðum í
10 af 83 par- og einbýlishúsalóðum.
Brúðkaupsgestir týna lífi Sprengja
sem sprakk í gærmorgun í suðvestur-
hluta Pakistans varð minnst 26 manns
að bana og særði sjö. Fólkið, aðallega
konur og börn, var á leið í brúðkaup
þegar rútan sem það ferðaðist í ók yfir
sprengju ætlaða skriðdrekum með
fyrrgreindum afleiðingum. Lögreglunni
hefur ekki tekist að finna út hver stóð
að baki árásinni.
PAKISTAN