Fréttablaðið - 11.03.2006, Qupperneq 24
11. mars 2006 LAUGARDAGUR24
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis-
atburði, stórafmæli,
andlát og jarðarfarir í
smáletursdálkinn hér að
ofan má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
550 5000.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa
Þráins Jónssonar
Ekrusíðu 9, Akureyri.
Sérstakar þakkir til Friðriks Yngvasonar læknis,
starfsfólks Heimahlynningar á Akureyri og
Oddfellowreglunnar á Akureyri.
Halla Gunnlaugsdóttir
Ásta Þórunn Þráinsdóttir
Gunnlaugur Þráinsson Erla Margrét Haraldsdóttir
Halla Sjöfn Ágústsdóttir Friðrik Már Steinþórsson
Anna Rut Ágústsdóttir Gunnar Pétur Hauksson
Ágúst Orri Ágústsson
Gauti Gunnlaugsson
Sandra Ýr Gunnlaugsdóttir
Birkir Már Friðriksson
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Kristín Sigurðardóttir
Hólmgarði 64, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli mánudaginn 6. mars.
Útför verður frá Fossvogskirkju mánudaginn 13. mars
kl. 15.00.
Örn Edvaldsson Lena Anderssen
Sigrún M. Guðnadóttir
Sesselja I. Guðnadóttir Markús Þorvaldsson
Sigurður Guðnason María Lilja Ialfante
Sverrir Ó. Guðnason Steinunn Jensdóttir
50 ára afmæli
„Litla“ systir er 50 ára í dag.
Hún verður með heitt á könnunni
í dag hjá mömmu að Höfðagrund 2,
Akranesi.
Innilegar hamingjuóskir,
systkinin.
AFMÆLI
Markús Þór Andr-
ésson listamaður er
31 árs.
Sophia Hansen
baráttukona er 47 ára.
Sólveig Pétursdóttir
forseti Alþingis er
54 ára.
Kristín Steinsdóttir
rithöfundur er 60 ára.
Þuríður Pálsdóttir
söngkona er 79 ára.
ANDLÁT
Sesar Þór Viðarsson, Brakanda
II, Hörgárbyggð, lést af slysförum
laugardaginn 4. mars.
Ögmundur Helgason, Tóm-
asarhaga 12, Reykjavík, lést á
Landspítalanum við Hringbraut
miðvikudaginn 8. mars.
Böðvar G. Baldursson, Smára-
rima 74, Reykjavík, lést á heimili
sínu miðvikudaginn 8. mars.
Vilhjálmur Árnason, hæstaréttar-
lögmaður, lést á Landspítala
Fossvogi miðvikudaginn 8. mars.
Helgi Pálsson, fyrrverandi leigu-
bílstjóri, Hólmgarði 56, Reykjavík,
lést á heimili sínu miðvikudaginn
8. mars.
María Kristjana Angantýsdóttir,
Öldustíg 3, Sauðárkróki, lést á
JARÐARFARIR
13.30 Halldór Guðmundsson,
fyrrv. rafvirkjameistari Pósts
og síma, Suðurengi 30,
Selfossi, verður jarðsunginn
frá Selfosskirkju.
14.00 Guðmundur Guðmunds-
son, Hlíf II á Ísafirði, verður
jarðsunginn frá Ísafjarðar-
kirkju.
14.00 Bára Signý Sigurvinsdóttir,
Fjarðarstræti 55, Ísafirði,
verður jarðsungin frá Suður-
eyrarkirkju.
14.00 Jóhann Kristinn Gunnars-
son, frá Flatey á Skjálfanda,
Garðarsbraut 57, Húsavík,
verður jarðsunginn frá
Húsavíkurkirkju.
14.00 Sigríður Hallgrímsdóttir,
Reykhúsum, Eyjafjarðar-
MERKISATBURÐIR
1702 Fyrsta dagblaðið á ensku,
The Daily Courant, er gefið
út í London.
1941 Þýskur kafbátur gerir árás á
línuveiðarann Fróða suður
af Vestmannaeyjum. Fimm
menn farast.
1961 Deilum við Breta um
útfærslu landhelginnar í tólf
sjómílur lýkur með sam-
komulagi um viðurkenn-
ingu þeirra.
1984 Guðlaugur Friðþórsson, 22
ára stýrimaður, syndir í land
um fimm kílómetra leið
þegar vélbáturinn Hellisey
ferst austur af Heimaey.
1985 Mikhaíl Gorbatsjov tekur við
leiðtogasæti í Sóvétríkjun-
um.
2004 Sprengingar á lestarstöð í
Madríd verða 191 að bana.
ALEXANDER FLEMMING (1881-
1955) LÉST ÞENNAN DAG
„Góður sopi af heitu viskí
fyrir svefninn – það er
ekki mjög vísindalegt, en
hjálpar engu að síður.“
Skoski vísindamaðurinn Alexander
Flemming fékk nóbelsverðlaun og
riddaratign fyrir framlag sitt til
læknavísindanna.
Á þessum degi árið 1990
lýsti Litháen yfir sjálfstæði
frá Sóvétríkjunum. Ekki vakti
ákvörðunin kátínu hjá stjórn
Sovétríkjanna og hún svaraði
yfirlýsingunni með því að setja
viðskiptabann á olíu og önnur
efnahagsbönd á ríkið.
Saga Litháens er löng og
að mörgu leyti merkileg en
upphaf búsetu má rekja aftur
til þúsund fyrir krist. Á miðöld-
um var ríkið eitt það stærsta
í Evrópu en það sameinaðist
Póllandi seint á fimmtándu öld. Árið 1795 gekk svo
Litháen inn í Rússland við þriðju skiptingu Póllands.
Á tuttugustu öld urðu raddir um menningarlega
sérstöðu Litháen háværari og í samningum Rússa og
Þjóðverja 1918 öðlaðist Litháen sjálfstæði. Landinu
tókst þó ekki að halda sér
óháðu og á næstu tveimur
áratugum skiptu Pólverjar,
Þjóðverjar og Sóvétmenn
sér ítrekað af innanríkis-
málum Litháa. 1940 réðust
Sóvétríkin síðan inn í
landið en töpuðu því árið
eftir til Þjóðverja. Þegar
stríðinu lauk var landið
frelsað og ríkisstjórn sem
var höll undir Sóvétríkin
komið fyrir.
Sjálfstæðið hélst þó
ekki lengi því í janúar 1991 réðust sóvéskir skrið-
drekar inn í Vilníus, höfuðborg Litháen. Stjórn þeirra
hélst þó ekki lengur en til sjötta september sama
ár þegar Sóvétríkin samþykktu að veita Litháen og
hinum Balkanskagalöndunum tveimur sjálfstæði.
ÞETTA GERÐIST> 11. MARS 1990
Litháen brýst undan Sóvétríkjunum
FRÁ VILNÍUS Í LITHÁEN
Tréskurður hefur kannski ekki farið
hátt hér á landi undanfarin ár. Engu að
síður er um að ræða vaxandi listgrein
hér á landi sem fjöldi manns ræktar í
tómstundum sínum. Félag áhuga-
manna um tréskurð er tíu ára á þessu
ári í tilefni að þeim tímamótum opnar
félagið sýningu í Tjarnarsal Ráðhúss
Reykjavíkur klukkan eitt.
„Sýningin er yfirlitssýning á verk-
um félagsmanna og annarra á þessu
tíu ára tímabili,“ segir Friðgeir H. Guð-
mundsson sem er formaður félags
áhugamanna um tréskurð. Fjöldi þátt-
takenda á sýningunni gefur vísbend-
ingu um hversu ríkt landið er af tré-
skurðarfólki en um fjörutíu listamenn
sýna þar það sem í þeim býr. „Sýningin
er haldin til að vekja athygli á þessari
listgrein,“ segir Friðgeir en hann er
sjálfur tréskurðarmaður og með verk
á sýningunni.
En hvað er tréskurður, spyr sá sem
ekki veit. „Við erum að vinna í alls
konar munum,“ segir Friðgeir og nefn-
ir sem dæmi þekkta stíla eins og bar-
okk og endurreisnina sem tréskurðar-
fólk sækir innblástur í. „Svo erum við í
lágmyndum sem við köllum en þær eru
hengdar á vegg og í rauninni af hverju
sem er. Myndin getur verið bara úr
sveitinni eða af ákveðnum hlut,“ segir
Friðgeir. Einnig er mikið unnið með
þriðju víddina og skornar út stand-
myndir. „Svo erum við með ýmsar nýj-
ungar sem hafa gefið þessu skemmti-
legan svip,“ segir Friðgeir en hann
hefur með nemendum sínum lagt
áherslu á að skapa ákveðinn grunn á
bak við skurðinn. „Við notum dálítið
mikið málverkið á bak við og svo höfum
við líka verið með spegla, litað gler og
ýmislegt fleira.“
Hann þakkar félaginu að meiri sam-
gangur er nú á milli tréskurðarmanna
og þeir ekki lengur að vinna hver í sínu
horni. „Félagið hefur skapað þann
grundvöll að menn eru farnir að hittast
miklu meira og sjá hvað hinir og þessir
eru að gera. Þannig er hægt að fylgjast
með nýjungum og menn eru að prófa
sig áfram,“ segir Friðgeir. Hann bætir
við að mikil gróska sé líka í tréskurðin-
um núna ekki síst vegna þess að nú er
auðvelt að sækja sér kennslu. „Aðstæð-
urnar skapa grundvöll fyrir því að fólk
geti lært þetta af einhverri skynsemi.
Við erum einir fjórir sem erum að
kenna af fullri alvöru,“ segir hann.
„Þetta smitar allt út frá sér og að það
verður meiri áhugi fyrir starfinu.“
Og áhuginn leynir sér ekki í félag-
inu þar sem Friðgeir segir að komi
saman fólk af öllum stærðum og gerð-
um. „Karlar eru kannski í meirihluta
en konur eru líka mikið í þessu,“ segir
hann og bætir við að félagsmenn séu
líka alls staðar að af landinu. „Svo er
þetta alls konar fólk, bæði ungir og
gamlir og allt frá því að vera verkafólk
upp í framkvæmdastjóra,“ bætir hann
við.
FÉLAG ÁHUGAMANNA UM TRÉSKURÐ: TÍU ÁRA
Áhuginn smitar út frá sér
FRIÐGEIR H. GUÐMUNDSSON Formaður félags áhugamanna um tréskurð segir að mikil gróska sé í listinni. Áhugasamir geta skoðað yfirlit síðustu tíu ára á
sýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma
Ragnheiður Gísladóttir
Helgamagrastræti 42, Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fimmtudaginn
9. mars. Útför auglýst síðar.
Pálmi B. Aðalbergsson Björk Lind Óskarsdóttir
Andrés V. Aðalbergsson Ólöf Konráðsdóttir
Stefán Aðalbergsson
Guðmundur Páll Pálmason
Snorri Pálmason Kristín Sesselja Kristinsdóttir
og langömmubörn.
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
þriðjudaginn 7. mars.
Sigrún Gréta Guðráðsdóttir,
Dalbraut 16, Reykjavík, lést á
Landspítalanum við Hringbraut
aðfaranótt 9. mars.
sveit, áður til heimilis á
Miklubraut 58, Reykjavík,
verður jarðsungin frá
Grundarkirkju.
14.00 Elín Sigríður Gústafs-
dóttir, frá Borgarholti,
Djúpavogi, síðast til heimilis
í Gullsmára 7, Kópavogi,
verður jarðsungin frá
Djúpavogskirkju.
FÆDDIST ÞENNAN DAG
1899 Friðrik XI Dana-
konungur.