Fréttablaðið - 11.03.2006, Síða 76
11. mars 2006 LAUGARDAGUR44
Sunnudagur 12. mars kl. 14.00
Afmælissýning hjá Snúð og Snældu í Iðnó, Glæpir og
góðverk Dansleikur í Stangarhyl kl. 20.00
Mánudagur 13. mars kl. 13.00
Afmælisbridsmót á vegum bridsdeildarinnar í
Stangarhyl 4.
Þriðjudagur 14. mars kl. 13.00 (mæting kl. 12.30)
Afmælisskákmót á vegum skákdeildarinnar í
Stangarhyl 4.
Miðvikudagur 15. mars - afmælisdagurinn kl. 14.00 – 16.00
Opið hús í Stangarhyl 4 Stjórn félagsins tekur á móti
gestum. Avörp, danssýning, leikfimissýning, Kór Félags
eldri borgara ofl.
Fimmtudagur 16. mars kl. 10.00 og kl. 13.00
Skoðunarferð frá Stangarhyl 4 um nýju hverfin í Reykjavík
í boði Guðmundar Tyrfingssonar og Strætó b.s.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á skrifstofu félagsins í
síma 588 2111 fyrir 15. mars.
Fimmtudagur 16. mars kl. 20.00
Söngskemmtun kórs Félags eldri borgara í
Grafarvogskirkju kl. 20.00. Gestir kórsins verða Sigrún
Hjálmtýsdóttir, Þóra Gréta Þórisdóttir og Ingibjörg Þorbergs.
Föstudagur 17. mars kl. 10.00 – 16.00
Ókeypis aðgangur að eftirtöldum söfnum:
Þjóðminjasafni Íslands, Ásmundarsafni, frá kl. 13.00,
Kjarvalsstöðum, Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu
frá kl. 10.00-16.00.
Föstudagur 17. mars kl. 20.00
Skemmtikvöld með þjóðlegu ívafi í
Stangarhyl 4 kl. 20.00. Samkomunni lýkur með dansi
Laugardagur 18. mars kl. 14.00 – 16.00
Bókmenntaveisla í Stangarhyl 4
Guðrún Helgadóttir, Matthías Johannessen, Njörður P.
Njarðvík, Ragnar Arnalds, Þorsteinn frá Hamri og Þóra
Jónsdóttir lesa úr verkum sínum.
Sunnudagur 19. mars kl. 14.00 – 16.00
Hátíðarsamkoma á Hótel Sögu kl. 14.00 - 16.00
Margrét Margeirsdóttir formaður félagsins setur hátíðina
Ávarp: borgarstjóri frú Steinunn Valdís Óskarsdóttir
Hátíðarræða: Forseti Íslands Hr. Ólafur Ragnar Grímsson
Einsöngur: Egill Páll Árnason Heiðursviðurkenning
Fjöldasöngur, afmælisljóð (höf. texta Helgi Seljan) við
undirleik Sigurðar Jónssonar Upplestur: Arnar Jónsson
leikari Danssýning: nemendur frá dansskóla Jóns Péturs og Köru.
Heildsölu lagersala
Listaverð Utsöluverð frá
Utivistarjakki 29,990 11,900
Hlaupajakki 8,990 3,900
Flíspeysa 12,990 5,900
HiTec Golfskór 12,990 5,900
Fótboltaskór 13,990 5,900
Einnig mikið úrval af:
Skíðafatnaði, Utivistarfatnaði, Golffatnaði,
Iþróttafatnaði, Brettafatnaði
Barna-, unglinga- og fullorðinsstærðir
50-90% afsláttur!!
Við rýmum til á lagernum vegna sumarlínu
okkar sem kemur fljótlega til landsins.
Við seljum því eldri lager og sýnishorn á ótrúlegu verði!
www.zo-on.com
ZO-ON Iceland
Nýbýlavegur 18
(gengið inn Dalbrekku megin)
Opnunartími
Fimmtud. 14-20
Föstud. 14-20
Laugard. 10-18
Sunnud. 11-17
Mánud. 14-20
9-13 mars 2006
Fyrstur kemur,
fyrstur fær!
Komið tímanlega
því takmarkað magn er
til af öllum vörum
Í dag frumsýnir Halaleik-
hópurinn leikritið Pókók
eftir Jökul Jakobsson í
leikstjórn Vilhjálms Hjálm-
arssonar.
Vilhjálmur hefur verið sérlegur
„ljósálfur Halans“ undanfarin tíu
ár en hann kom fyrst að starfi
hópsins sem ljósamaður. Nú hefur
hann söðlað um og tekið að sér að
stýra leikhópnum í ádeilukennd-
um ærslaleik þar sem m.a. koma
við sögu jarmandi börn og angist-
arfullur efnafræðingur.
Halaleikhópurinn er skipaður
fötluðum og ófötluðum leikurum
og hefur starfað undanfarin fjór-
tán ár. Vilhjálmur segist hafa
„labbað inn alveg blákaldur fyrir
tíu árum“ og haldið að hann væri
alveg fordómalaus. „Þetta var
dálítið skrítið fyrst en svo reynd-
ist þetta vera alveg einstaklega
skemmtilegur hópur,“ segir Vil-
hjálmur. „Við fáumst við hefð-
bundin leikverk, sum snúast um
fötlun – önnur ekki, og stundum er
snúið upp á fötlunina. Það er eitt-
hvað svo skemmtilegt sem gerist í
hópnum. Það er mikið hlegið – sér-
staklega undanfarna mánuði.“
Leikhópurinn var stofnaður með
það markmið að „iðka leiklist fyrir
alla“ og hefur hópurinn lagt sitt af
mörkum til þess að eyða fordóm-
um í garð fatlaðra og opna augu
almennings fyrir því að fatlaðir
geti einnig, þrátt fyrir ýmsar hind-
anir, leikið á sviði eins og aðrir. Að
sögn leikhópsins hefur skortur á
hefðbundinni fötlun samt aldrei
verið fyrirstaða innan hópsins.
Efnisval leikhópsins hefur alla
tíð verið fjölbreytt, á síðasta ári
setti hópurinn upp Kirsuberja-
garðinn eftir Tsjekhov en áður
hefur Halaleikhópurinn m.a. sýnt
Túskildingsóperu Brechts og
Gullna hliðið eftir Davíð Stefáns-
son.
Íslendingar ennþá rollur
Vilhjálmur segir að leikritið Pókók
eigi brýnt erindi við íslenskan
samtíma. „Verkið var skrifað árið
1961 en gæti allt eins hafa gerst í
gær. Jökull hefur lag á því að
pikka í íslensku þjóðarsálina –
hvort sem hann gerir það á alvar-
legum nótum eða ekki. Hann bend-
ir okkur Íslendingum á það sem
við erum innst inni – rollur.“ Við-
fangsefni verksins er stöðug eftir-
sókn mannfólksins eftir vindi en
Vilhjálmur segir að undir farsa-
kenndum ærslum leynist gallhörð
ádeila og „Jökull glottandi út í
eitt“. Að sögn Vilhjálms gætu per-
sónur verksins fundið sér fyrir-
myndir í íslenskum fjármálaheimi
nútímans. „Íslenska þjóðin hefur
sjálf séð til þess að atburðir verks-
ins eiga sér tilvísun nú sem fyrr,“
segir Vilhjálmur.
Alls koma 18 leikarar fram í
sýningunni en um 30 manns koma
að uppfærslunni með einum eða
öðrum hætti. Áætlað er að sýna
Pókók fram í aprílmánuð eða eftir
því sem aðsókn leyfir. Sýningarn-
ar fara fram í húsnæði leikhópsins
í Hátúni 12.
Pikkað í þjóðarsálina
HALALEIKHÓPURINN FRUMSÝNIR PÓKÓK
Leiðrétting
Í frétt um lok ljósmyndasýningar
Blaðaljósmyndarafélags Íslands í
Fréttablaðinu í gær var ranglega
sagt að sýningin væri í Gerðu-
bergi. Hið rétta er að sýningin er í
Gerðarsafni í Kópavogi. Sýning-
unni lýkur á morgun.