Fréttablaðið - 11.03.2006, Blaðsíða 78
11. mars 2006 LAUGARDAGUR46
utlit@frettabladid.is
SMEKKURINN GYÐA BERGS VERSLUNARSTJÓRI RETRO Í SMÁRALIND
Veikust fyrir fegurð og gleði
MÓÐUR VIKUNNAR
> MARTA MARÍA FER YFIR MÁLIN
SMÁRALIND • ESSO ÁRTÚNSHÖFÐA • ESSO FOSSVOGI
ÞITT ER VALIÐ
WHOPPER!
Ummmm ...
Ekta eldsteiktur hamborgari úr fyrsta flokks
hráefni með brakandi fersku grænmeti.
Vortískan iðar af rómantík. Ljósir litir á borð við ferskju-litaðan og kampavínslitað-
an verða áberandi þegar hlýnar í
veðri. Þessir litir eru óvenjulega
fallegir við húðlitinn, sérstaklega
þegar sólin hefur fengið að leika
við okkur. Svo má alltaf setja á sig
smá kinnalit og örlítið sólarpúður
og þá er málinu reddað. Það verð-
ur mikið um blúndur, pallíettur og
annað nostur sem hressir upp á
vorflíkurnar. Pilsin verða með
mikilli vídd að neðan sem gaman
er að sveifla til og frá. Topparnir
verða ýmist úr 100 prósent silki og
þá frekar laussniðnir eða með kor-
silett sniði sem ýtir barminum
upp. Einnig verður mikið um
aðsniðnar skyrtur þar sem áhersl-
an verður lögð á mittislínuna. Við
alla þessa rómantík má líka vera í
í rokkaðri fatnaði eins og ferskju-
lituðum gallabuxum, hvítum galla-
buxum eða stuttum gallapilsum.
Munið þó að ef þið eruð í ljósu pilsi
er alveg á bannlista að klæðast
húðlituðum sokkabuxum. Það er
langt þangað til þær komast aftur
í tísku. martamaria@frettabladid.is
Rjúkandi rómantík
Spáir þú mikið í tískuna?
Ég er ekki með hana á heilanum allan
daginn en jú vissulega spái ég og
spekúlera í tískunni örugglega miklu
meira en margir aðrir.
Hvernig myndirðu lýsa stílnum
þínum?
Hann er klassískur, kvenlegur og svo
blanda ég sprelli við það. Hann er bara
alveg óborganlegur!
Uppáhaldshönnuðir eða fatamerki?
Roberto Cavalli og svo finnst mér
minni hönnuðir rosalega hressandi
eins og Surly og Aftur systur.
Flottustu litirnir?
Blár.
Hverju ertu veikust fyrir?
Fegurð og gleði.
Hvaða flík keyptir þú þér síðast?
Hvítar hnébuxur sem ég elska.
Hvað finnst þér flottast í tískunni
núna?
Kvenleikinn. Til dæmis mittisbelti,
hærri og þrengri buxur og pilsin
þrengri og síðari.
Hvað ætlarðu að kaupa þér fyrir
sumarið?
Allt sem mig langar í!
Uppáhaldsverslun?
Nú Retró að sjálfsögðu!
Hvað eyðir þú miklum peningum í
föt á mánuði?
Held ekki bókhald.
Hvaða flíkur gætir þú ekki verið án?
Uppáhaldshattsins míns.
Uppáhaldsflík?
Roberto Cavalli buxurnar mínar.
Hvert myndir þú fara í verslunar-
ferð?
New York alveg pottþétt.
Ljótasta flík sem þú hefur keypt
þér
Eftirlíking af buffalo skóm, hvítir og
svartir, alger hroðbjóður!!
GAMALDAGS TOPPUR
Úr versluninni Oasis.
BÓLERÓ PEYSA
Hægt að nota yfir
kjóla eða boli.
Peysan er úr
Karen Millen.
PRJÓNAVESTI Þau verða málið í sumar.
Þau eru bæði smart og hlý og fást í
versluninni Oasis.
RÓMAN-
TÍSK
PEYSA Frá
verslun-
inni Oasis.
SUMARLEGT PILS Úr Karen Millen. SKRAUTLEGT Pallíettuskreytt pils frá Oasis.
FERSKJULITAÐUR Passar
vel með gallafatnaði og
hvítu. Ekki er verra
að vera með
smá gloss við
til að hressa
almennilega
upp á útlitið.
Skyrtan er úr Oasis.
FLESTAR KONUR ELSKA SILKI Þessi toppur
er úr Karen Millen og passar nánast við allt,
bæði gallabuxur og við sparipils.
PRINSESSU-
KJÓLL Hæfir vel
fyrir brúðkaup
sumarsins eða
bara á árshátíð-
ina. Kjóllinn er
úr versluninni
Karen Millen.
SATÍN OG BÓMULL
Skemmtilega blandað
saman í þessum
fagra bol. Hann fæst í
versluninni Oasis.
> Svartar
sokkabuxur
...voru úti um allt
á nýafstöðnum
tískuvikum og
langflottast er
að vera í svörtum
hælaskóm við.
Myndin er úr
sýningu Marc by
Marc Jacobs.
Það fer drúgur tími í það að huga að því hverju skal klæðast á árshátíð.
Í gær spruttu upp stórar og miklar umræður um tilvonandi árshátíð-
arkjóla í vinnunni minni, hvernig þeir ættu að vera og hvað ætti að
varast. Mitt innlegg í þessa umræðu var að kaupa ekkert sem viðkom-
andi myndi bara nota einu sinni, Það er engin réttlæting í því að kaupa
rándýran árshátíðarkjól því það eru afar litlar líkur á því að þig langi
til að klæðast honum aftur á næsta ári. Eina réttlætingin er sú að hægt
sé að nota árshátíðarkjólinn í brúðkaup seinna á árinu en þá er líka oft
líklegra að mann langi til að vera í einhverju allt öðru. Þetta getur því
verið frekar snúið og ég mæli með því að þið púslið einhverju saman
af því sem til er heima og bætið einhverju smotteríi við eins og nýjum
skóm, bóleróermum, pallíettuvestum eða fjöðrum í hárið.
Í fyrra var ég í kampavínslituðum sparikjól á árshátíðinni, engum
sokkabuxum og berfætt í skónum. Kvöldið byrjaði vel, ég hellti ekki
niður á mig rauðvíni yfir forréttinum og ekki braut ég hælinn af skón-
um. Það versnaði þó í því yfir desertinum, missti súkkulaðistöng ofan
á kampavínslitaða kjólinn og þá var ekkert annað í stöðunni en að fara
niður á bað, reyna að sápa súkkulaðið á brott og þurrka kjólinn aftur í
handþurrku kvennaklósettsins. Eins og lög gera ráð fyrir var þetta
dálítill „partíkiller“ en ég lét það ekki á mig fá. Á miðnætti fór ég þó
að finna fyrir öðrum kvilla. Mig var farið að verkja í fæturnar af
sokkaleysinu. Það hefur heldur aldrei þótt sérlega hollt fyrir fæturnar
að ganga í pinnahælum sem eru í orðsins fyllstu merkingu reimaðir
utan um ökklann. Ég lét mig þó hafa það að vera á árshátíðinni til hálf-
tvö, þá gafst ég upp og fór heim að hvíla lúnar tásur.
Í kvöld verð ég hvorki í kampavínslituðum kjól né sokkabuxnalaus.
Það verða engar pallíettur, bara einfaldur svartur kjóll og slatti af
góðu skapi.
Árshátíðarkjólakrísa...