Fréttablaðið - 13.03.2006, Blaðsíða 2
2 13. mars 2006 MÁNUDAGUR
AR
G
U
S
06
-0
05
2
Við leggjum áherslu á
langtímasamband og
sérhæfðar lausnir sem taka
mið af sérstökum
aðstæðum og starfsumhverfi
viðskiptavina okkar.
SPH – fyrir þig og fyrirtækið!
Vildarþjónusta fyrirtækja
Greiðsluþjónusta – frí fyrsta árið
Hærri innlánsvextir
SPH innkaupakort þér að kostnaðarlausu
SPARISJÓÐIR Allmiklar breytingar
voru gerðar á samþykktum Spari-
sjóðs vélstjóra á 45. aðalfundi
félagsins sem fram fór á föstudag-
inn. Stjórn fékk heimild til að auka
stofnfé allt að þrjátíufalt þannig
að það gæti orðið tæpir fjórir
milljarðar króna.
Jón Þorsteinn Jónsson, stjórn-
arformaður SPV, greindi frá því
að stjórnin myndi kanna mögu-
leika til stækkunar og eflingar
sparisjóðsins jafnt innan- sem
utanlands og yrði þessi heimild
nýtt til slíkra verkefna auk þess
að styrkja eiginfjárstöðu hans.
Jafnframt voru reglur um tak-
markanir atkvæðisréttar sem ein-
stakur hluthafi má fara með felld-
ar niður, þó þannig að hver og einn
fari aldrei með meira en fimm
prósent atkvæða. Annars konar
breytingar voru samþykktar er
lúta að því að auðvelda viðskipti
með stofnfé en undirbúningur er
hafinn að því að koma á fót stofn-
fjármarkaði í samvinnu við Fjár-
málaeftirlitið.
Fyrri stjórn var endurkjörin
fyrir utan Sigríði Smith, sem gaf
ekki kost á sér eftir ellefu ára
starf, en í hennar stað kom Ásgeir
Þór Árnason lögmaður.
Methagnaður varð á rekstri
SPV í fyrra, upp á 1,1 miljarð
króna. Hver starfsmaður fékk 200
þúsund króna kaupauka fyrir gott
starf á síðasta ári.
- eþa
VÉLSTJÓRAR Í STARTHOLUM FYRIR ÚTRÁS
Jón Þorsteinn Jónsson, stjórnarformaður
SPV, og Ragnar Z. Guðjónsson sparisjóðs-
stjóri á aðalfundi sparisjóðsins.
Stjórn Sparisjóðs vélstjóra fær umboð til að margfalda stofnfé sparisjóðsins:
SPV skoðar útrásartækifæri
Slagsmál á Ísafirði Lögreglan á
Ísafirði þurfti að skilja að tvo menn í
slagsmálum aðfaranótt laugardagsins.
Mönnunum var sleppt í kjölfarið.
LÖGREGLUFRÉTTIR
LÖGREGLUMÁL Lögreglan var
kölluð út um klukkan ellefu á
laugardagsmorgun að húsi á Sel-
fossi vegna skemmdarverka á
bifreið sem stóð fyrir framan
húsið.
Þeir sem voru að verki höfðu
stungið á öll dekk bifreiðarinnar
og útbúið bensínsprengju, kveikt
í henni og hent undir bifreiðina
með þeim afleiðingum að önnur
hlið bílsins er mikið skemmd.
Tveir voru handteknir vegna
málsins, sem telst upplýst. - jóa
Skemmdarverk á Selfossi:
Stungið á dekk
og kveikt í bíl
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Selfossi
handtók karlmann sem er grunað-
ur um kynferðisbrot. Atburðurinn
átti sér stað á skemmtistað í
bænum aðfaranótt laugardagsins.
Ung kona var flutt á Neyðar-
móttöku Landspítalans, þar sem
hún fékk aðhlynningu og gekkst
undir rannsókn. Skömmu eftir að
hún gaf sig fram var maðurinn
handtekinn. Hann var tekinn til
yfirheyrslu en látinn laus síðdegis
á laugardag.
Lögregla vildi ekki upplýsa
hvort maðurinn hefði játað á sig
verknaðinn né hvort konan hefði
lagt fram kæru.
- jóa
Handtekinn á Selfossi:
Grunaður um
nauðgun
DANMÖRK Starfsmanni hjá dönsku
verslunarkeðjunni Coop var sagt
upp störfum fyrir að kalla sam-
starfsmann sinn, unga íslamska
stúlku, hettumáv. Lét starfsmaður-
inn ummælin falla er hann sá stúlk-
una með höfuðklút í vinnunni.
Haft er eftir talsmanni fyrirtæk-
isins í dagblaðinu Politiken í gær að
hann telji ummælin niðrandi og að
þau hafi beinst gegn manneskju
sem tilheyri minnihlutahópi. Slíkt
sé ekki umborið hjá fyrirtækinu.
Verkalýðsfélags starfsmannsins
hefur kært brottreksturinn. - ks
Sagt upp vegna uppnefnis:
Kallaði mús-
lima hettumáv
KAIRÓ, AP Hópur egypskra og
þýskra fornleifafræðinga hefur
fundið sautján styttur af gyðjunni
Sekhmet vestur af borginni Luxor
í Egyptalandi. Menningarmálaráð-
herra Egyptalands, Farouk Hosni,
tilkynnti fundinn í gær.
Sekhmet, sem var stríðsgyðja,
hefur ljónshöfuð og kvenlíkama.
Stytturnar, sem eru í fullri manns-
stærð, fundust við hof kennt við
Amenhotep III sem var uppi á 14.
öld fyrir Krists burð.
Ekki var greint nánar frá
ástandi þeirra annað en að þær
yrðu fjarlægðar til frekari skoð-
unar. ■
Merkilegur fornleifafundur:
Með ljónshöfuð
og kvenlíkama
SVEITARSTJÓRNARMÁL Guðbrandur
Einarsson, formaður Verslunar-
mannafélags Suðurnesja og bæjar-
fulltrúi, skipar fyrsta sæti A-list-
ans í Reykjanesbæ
í sveitastjórnakosn-
ingunum í vor. A-
listinn er sameigin-
legt framboð
Framsóknarflokks,
Samfylkingarinnar
og óflokksbund-
inna.
Eysteinn Jóns-
son, aðstoðarmaður
landbúnaðarráð-
herra, er í öðru sæti, Sveindís Valdi-
marsdóttir, kennari og bæjarfull-
trúi, í þriðja, Ólafur Thordersen,
framkvæmdastjóri og bæjarfull-
trúi, í fjórða, Guðný Kristjánsdótt-
ir stuðningsfulltrúi í fimmta og
Reynir Valbergsson fjármálastjóri
er í sjötta sætinu. - bþs
A-listinn í Reykjanesbæ:
Guðbrandur í
fyrsta sæti
GUÐBRANDUR
EINARSSON Leiðir
A-listann í Reykja-
nesbæ.
BRETLAND, AP Verkamannaflokkur-
inn í Bretlandi segir ekkert rangt
við að þiggja 1,5 milljóna punda
lán frá Chai Patel kaupsýslu-
manni, sem Tony Blair forsætis-
ráðherra tilnefndi til setu í
lávarðadeild breska þingsins.
Nefnd sem samþykkir tilnefn-
ingar til lávarðadeildarinnar hefur
neitað að samþykkja þrjár tilnefn-
ingar Verkamannaflokksins á
mönnum sem hafa lánað Verka-
mannaflokknum fjármuni.
„Það er ekkert rangt við að
styrkja eða lána stjórnmálaflokki
svo lengi sem reglum er fylgt,“
segir talsmaður Verkamanna-
flokksins. Ólíkt fjárframlögum
þarf ekki að upplýsa opinberlega
um lán til stjórnmálaflokka.
Að sögn Patel var honum aldrei
boðið neitt í skiptum fyrir lánið og
hefði hann gengið út ef slíkt hefði
komið til tals. Patel er ósáttur við
að nefndin neiti að samþykkja til-
nefninguna og segir umræðu um
að ríkisstjórn Blairs sé að veita til-
nefningar gegn fjárframlögum
skaða orðstír sinn.
Skrifstofa forsætisráðherra
hefur neitað að tjá sig um málið og
segir ekki hæfa að ræða tilnefn-
ingar meðan þær séu til meðferð-
ar hjá nefndinni. - sdg
TONY BLAIR FORSÆTISRÁÐHERRA BRETLANDS Vill ekki tjá sig um málið að svo stöddu.
FRÉTTABLAÐIÐ/REUTERS
Talsmaður Verkamannaflokksins segir ekki rangt að þiggja lán frá Chai Patel:
Segjast ekki selja tilnefningar
STYTTAN Forngripirnir verða teknir til nánari
skoðunar.
SPURNING DAGSINS
Guðmundur, er verkalýðsbar-
áttan orðin gamaldags?
„Já, að vissu marki. Stöndum enn í
gömlu skónum.”
Guðmundur Gunnarsson er formaður
Rafiðnaðarsambands Íslands. Á heimasíðu
sambandsins kom fram að færa þyrfti hátíð-
arhöldin 1. maí nær nútímanum.
HEILBRIGÐISMÁL Skýrsla nefndar
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra um endurskipulagningu
verksviða innan heilbrigðisþjón-
ustunnar er of sjúkrahúsmiðuð að
mati Sigurbjargar Sigurgeirsdótt-
ur stjórnsýslufræðings, sem skrif-
aði doktorsritgerð sína um heil-
brigðisstefnu og sameiningu
sjúkrahúsanna í Reykjavík.
„Það sem þessi skýrsla segir
okkur um heilbrigðiskerfið er tak-
markað við það sem miðast við
sjúkrahúsin. Ef fólk heldur að það
sé að fá heildarmynd af íslenska
heilbrigðiskerfinu er það ekki
svo,“ segir Sigurbjörg. „Það krefst
mun almennari nálgunar að segja
eitthvað í heild sinni um kerfið.“
Sigurbjörg fagnar því að í
skýrslunni sé boðið upp á umræð-
ur um það hvernig skuli fjár-
magna heilbrigðiskerfið í framtíð-
inni enda sé ljóst að
kostnaður við það fari
sívaxandi með hækkandi
aldri þjóðarinnar. „Þetta
snýst hins vegar ekki bara
um aldur,“ segir Sigur-
björg. „Íslendingar eru
töluvert yngri en hinar
Norðurlandaþjóðirnar en
samt sem áður erum við
með meiri útgjöld til heil-
brigðismála miðað við hlutfall af
vergri þjóðarframleiðslu. Þetta
snýst líka um hvernig við komum
þjónustunni fyrir hjá okkur.“
Sigurbjörg segir umræðuna
um hvort taka skuli upp einka-
greiðslur, það er aukagreiðslur
fyrir forgang, eða hækka þjónustu-
gjöld vera mál sem snúi að eftir-
spurnarhlið kerfisins. „Það er
hins vegar ekki nærri nóg búið að
vinna með framboðshlið-
ina. Þar má ýmislegt skoða
betur.“
Að mati Sigurbjargar er
umræðan um þessi mál
nauðsynleg en hún hefur
þó sínar skoðanir á þessum
leiðum. „Mín afstaða er sú,
og ég byggi hana á erlend-
um rannsóknum, að einka-
greiðslur eru ávísun á
ójöfnuð. Með því að hleypa þeim
inn í kerfið myndum við skapa
ákveðið hættuástand fyrir þá þjóð-
félagslegu samstöðu sem er undir-
staða heilbrigðrar þjóðar. Með
samanburði sést að dýrustu kerfin
eru fjármögnuð með einkagreiðsl-
um, samanber Bandaríkin og
Sviss. Þau sem reynast best eru
fjármögnuð með sköttum.“ Hún
hefur einnig efasemdir um þjón-
ustugjöld. „Þjónustugjöld geta
haft tvíeggja áhrif. Til eru rann-
sóknir frá Kanada sem sýna að
álögur á þjónustugjöld urðu til
þess að aldraðir og efnaminni leit-
uðu mun síður til læknis. Í kjölfar-
ið jókst svo heildarkostnaður við
heilbrigðiskerfið.“
Í meginatriðum er Sigurbjörg
þó sátt við skýrsluna. „Mér finnst
þetta jákvætt plagg sem býður
upp á opna og uppbyggilega
umræðu, sem mér finnst sárvanta
í íslensku samfélagi, og ég held að
það leggi grunn að umbótum og
framförum. Ég hefði hins vegar
viljað sjá þessa ágætu skýrslu
þýdda yfir á ensku og við fengjum
hingað sérfræðinga sem eru þjálf-
aðir í því að skoða heilbrigðiskerfi
í heild sinni út frá öllum þáttum
þeirra.“ stigur@frettabladid.is
Einkagreiðslur eru
ávísun á ójöfnuð
Skýrsla svokallaðrar Jónínunefndar er of sjúkrahúsmiðuð að mati Sigurbjargar
Sigurgeirsdóttur stjórnsýslufræðings. Hún hefur einnig miklar efasemdir um
þær fjármögnunarleiðir sem hvatt er til umræðu um í skýrslunni.
SIGURBJÖRG SIG-
URGEIRSDÓTTIR
HEILBRIGÐISÞJÓNUSTA Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir segir skýrslu nefndarinnar ekki gefa heild-
armynd af íslenska heilbrigðiskerfinu. Myndin tengist efni greinarinnar ekki með beinum hætti.