Fréttablaðið - 13.03.2006, Blaðsíða 25
Eldhúsinnréttinguna smíðaði Thorsten úr
eik. Með tækjum kostaði hún um 200.000,
sem er tuttugu prósent af verði innréttinga
sem þau höfðu skoðað áður. Fætur innrétt-
ingarinnar eru úr samlímdum parkettborð-
um sem voru slípuð og skorin í rétta stærð.
Við innréttinguna er náttúrusteinn á gólfinu
en gegnheilt eikarparkett þar fyrir utan.
Fyrir miðri fyrstu hæð er gamli skorsteinninn sem skiptir rýminu í stofu og eldhús. Allar
snúrur fyrir sjónvarp, útvarp og hátalara eru dregnar í veggi frekar en að láta þær liggja á
gólfinu.
Baðherbergið er lítið en nýtist vel. Hurðin
var flutt á milli veggja til að bæta feng shui
herbergisins. Gólf- og veggefni eru í bland
eikarparkett og náttúrusteinn en gráar
mósaíkflísar prýða sturtubotninn. Vírbundið
öryggisgler við sturtuna hleypir ljósi í
gegnum sig.
MÁNUDAGUR 13. mars 2006 7
Í stúdíóinu eru engin húsgögn, ef frá eru
taldar hillur fyrir tæki og eitt tölvuborð.
Hæðin er því mjög rúmgóð og ekki skemm-
ir tæplega fjögurra metra lofthæð fyrir.
Risinu var bætt við húsið í vetur. Þar er viðarpanill á veggjum sem málaður er hvítur. Sem
fyrr er eikarparkett á gólfinu.
Endurbætur á
húsinu standa
enn yfir og hér
hafa fjörusteinar
tekið að sér hlut-
verk gluggakistu
til skamms tíma.
Eldhúsið er eins og annað í
húsinu - úthugsað og laust við
allan óþarfa.
Frá skorsteininum á fyrstu
hæð liggja þessar litlu hillur.
Í stúdíóinu í risinu eru fá en úthugsuð
húsgögn. Í sömu tvöföldu hillunni geymir
Thorsten myndavélar, hljómflutningstæki
og fleira smálegt.
Þegar gamalt hús er gert
upp er ekki verra að hafa
næmt auga fyrir hinu
sjónræna. Þá eru dæmigerð
íslensk bárujárnshús þekkt
fyrir allt annað en að vera
rúmgóð og því ekki úr vegi
að hafa skipulagið í lagi og
nýta hvern fersentimetra
eins og best verður á kosið.
Þau Thorsten og Lóa virðast
hafa erft nokkra náðar-
gáfu í hvoru tveggja. Auga
fyrir hinu smáa og góða
tilfinningu fyrir skipulagi.
Hver hlutur hefur sinn
stað á heimilinu og litlir
skrautmunir prýða heimilið
og undirstrika fallegan ein-
faldleika.
Hið næma og skipulagða
auga fyrir smáatriðum
Forstofan er lítil en með skóhillu og geymslu sem
er lokað með álgardínu nýtist hún vel.
KOMDU HLUTUNUM Í VERK
ALLT er n‡ vöru- og fljónustuskrá á visir.is. Ef flú stendur í stórræ›um er gott a› hafa ALLT
vi› höndina flví flar finnur flú me›al annars i›na›armenn, fljónustua›ila, umbo›, verslanir
og ALLT hitt sem flig vanhagar um. ALLT er líka a› finna í fljónustunúmerinu 1850 og í vor
ver›ur ALLT bókinni dreift til allra landsmanna. fiú finnur ALLT á visir.is!
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
N† VÖRU- OG fiJÓNUSTUSKRÁ Á VISIR.IS/ALLT
... sem flig vantar í
n‡ja húsnæ›i›