Fréttablaðið - 13.03.2006, Blaðsíða 35
MÁNUDAGUR 13. mars 2006 17
Arkitekt: Kristín Jónsdóttir
KRISTÍN JÓNSDÓTTIR ER ARKITEKT Á TEIKNISTOFUNNI OK ARKI-
TEKTAR.
„Ég hef unnið mikið við hönnun íbúðarhúsa og vil að híbýlin
skapi góðan ramma utan um um fjölskylduna í leik og starfi,
að skipulag rýmanna sé gott og henti fólkinu vel sem þar býr.
Tengslin við garðinn og önnur útirými eru líka mjög mikilvæg því
þegar veðrið er gott á fjölskyldan auðveldlega að geta notið sam-
verunnar úti við. Við notum mikið steypu í okkar hús og þar er
ég fylgjandi því að einangra útveggi að utan verði því við komið.
Það er orkusparandi og kallar á minna viðhald. Notkun timburs
er líka alltaf töluverð og ég hef mikla ánægju af að hanna hús úr
timbri. Það jákvæða við timbur frá umhverfislegu sjónarmiði er
að það er endurnýjanleg auðlind og þótt flytja þurfi það inn álít
ég að við munum snúa okkur meira að notkun þess í framtíðinni.
Umhverfismálin eru mér hugleikin enda hef ég stundað meist-
aranám á því sviði undanfarið með vinnu.
Íslendingar byggja vönduð hús og vita vel hvað þeir vilja. Það
er einmitt gott og mikið samráð við húsbyggjendurna gefur mér
hvað mesta ánægju við hönnun húsa. Slíkt tryggir líka að allir eru
ánægðir þegar upp er staðið og húsið er risið.
Rammi utan um fjölskylduna
Fjölbýlishús við Melalind í Kópavogi. Einbýlishús við Bollagarða á Seltjarnarnesi. Annað einbýlishús við Bollagarða á Seltjarnarnesi.
Timburhús við Skipastíg í Grindavík.
Bragi Björnsson
lögmaður
og löggiltur
fasteignasali
Úlfar Þ. Davíðsson
sölustjóri
Börkur Hrafnsson
lögmaður
og löggiltur
fasteignasali
HÁTÚN 6A
SÍMI
5 12 12 12
FAX
5 12 12 13
Netfang:
foss@foss.is
FASTEIGNASALA
Foss fasteignasala, Hátúni 6a, sími 512 12 12, Fax 512 12 13, Netfang foss@foss.is
FROSTAFOLD-3JA HERBERGJA
Góð 3ja herb. 95,6 fm íbúð á annari hæð
ásamt stæði í bílskýli. Útgengt er á svalir
frá stofu. Í stofu við svalir er flísalagt rými
sem nýtist sem lítil sólstofa. Tvö svefnerb.
eru í íbúðinni. Hjónah. með dúk á gólfi og góðu skápaplássi og barnah. með
ljósu parketi. Á svefnherbergisg. er einnig skápur. Húsið var tekið í gegn í sum-
ar, var m.a gafl klæddur og hús málað. Stæði í bílskýli fylgir eigninni. V. 18,5 m.
ÁLFKONUHVARF - 4RA HERB.
Stórglæsileg 120 fm 4ja herbergja íbúð í
fallegu fjölbýli, með sérinngangi af svölum
og stæði í bílskýli. Vönduð gólfefni og inn-
réttingar. Rúmgóðar svalir. Gott útsýni.
Þrjú stór og björt parketlögð svefnherbergi
með skápum. Þvottahús í íbúð. Verð 30,5
millj.
GVENDARGEISLI-RAÐHÚS
Erum með í sölu glæsileg raðhús á einni
hæð. Húsin skiptast í um 140 fm íbúð og
um 28 fm bílskúr. Garðar snúa í suður. Hús-
in afh. fullbuin að utan. Lóð er afhent með
hellulögðum stéttum og er aðalinngangur með hitalöng. Íbúðirnar skilast full-
búnar að innan, án gólfefna. Anddyri, bað og þvottahús skilast þó með flísalögn
á gólfi. Vönduð tæki og innréttingar. Verð 38,7-39,8 milljónir.
MIÐTÚN-3JA HERBERGJA
Mjög góð 71,3 fm íbúð í kjallara við. Hús og
íbúð eru nýlega standsett. Hol, flísar á
gólfi. Stofa og borðstofa í alrými. Tvö
svefnh. Baðh. með sturtuklefa, flísalagt
hólf í gólf. Eldhús er flísalagt, nýleg innrétt-
ing. Geymsla er í íbúð. Nýlegur 20 fm sólp-
allur. Bæði hús og íbúð eru í toppástandi. V. 16,9 m.
HRINGBRAUT-VESTURBÆ TIL LEIGU.
Erum með 460 fm atvinnuhúsnæði á jarð-
hæð á eftirsóttum stað í vesturbænum.
Húsnæðið hentar vel fyrir t.d verslun.
Staðsetningin er góð og hefur mikið aug-
lýsingagildi. Næg bílastæði. Allar nánari
upplýsingar á Foss fasteignasölu.
FAGRIHJALLI-RAÐHÚS
Vel skipulagt 228,3 fm (þar af 46,3 fm bíl-
skúr) á þremur hæðum á góðum stað í
Kópavogi. Vönduð gólfefni og innréttingar.
Tvö baðherb. Falleg 46 fm viðarverönd.
Fimm svefnherbergi. Hiti er í hluta af plani.
Góð eign á eftirsóttum. Verð 44,9 milljónir.
SKRIFSTOFUHERBERGI
TIL LEIGU
Tvö rúmgóð skrifstofuherbergi til leigu. Herbergin eru
með aðgang að símavörslu, fundarherbergi og eldhúsi.
Næg bílastæði. Allar nánari upplýsingar hjá Foss.
SELJAVEGUR-ATVINNUHÚSNÆÐI
Mjög gott atvinnuhúsnæði í Héðinshúsinu.
Húsnæðið er á 2. hæð og er alls 223,7 fm
Hátt til lofts og mjög bjart. Góð aðkoma er
að húsnæðinu og næg bílastæði. Lyfta er
í húsinu. Frábær staðsetning í vesturbæ
Reykjavíkur. Í húsnæðinu er í dag starf-
rækt sjúkraþjálfun. Verð 29 milljónir.
VANTAR = VANTAR = VANTAR = VANTAR = VANTAR = VANTAR = VANTAR = VANTAR = VANTAR
VEGNA MIKILLAR SÖLU UPP Á SÍÐKASTIÐ VANTAR OKKUR
ALLAR GERÐIR EIGNA Á SKRÁ. ENDILEGA HAFIÐ
SAMBAND VIÐ SÖLUMENN OKKAR Í SIMA 512 1212
Fr
um
TJARNARMÝRI-4RA HERBERGJA
Mjög góð 111,7 fm íbúð, ásamt stæði í bíl-
skýli á vinsælum stað. Íbúðin er á jarðhæð
í fjölbýli byggðu 1992. Þvottahús í íbúð og
einnig stór geymsla. Útgengt í garð frá
hjónaherbergi. Eldhús með hvíri snyrtilegri
innréttingu. Stofa og borðstofa í alrými. Útgengt í hellulagðan afgirtan garð frá
stofu. Verð 32 milljónir.
HRAUNBÆR-5 HERBERGJA
Rúmgóð 120,1 fm, fimm herbergja íbúð á
efstu hæð í þriggja hæða fjölbýlishúsi byg-
gðu 1968. Rúmgott eldhús. Þvottahús og
geymsla í íbúð. Stofa og borðstofa í stóru
alrýmí. Tvennar svalir í íbúð. Fjögur svefn-
herbergi. Verð 21,2 millj.
STRANDASEL-3JA HERBERGJA
Vel skipulögð 80,1 fm, 3ja herbergja íbúð á
jarðhæð. Ca 30 fm sérgarður fylgir eign-
inni. Gangur með gegnheilu stafaparketi á
gólfi. Tvö rúmgóð parketlögð svefnher-
bergi. Baðherbergi er flísalagt hólf í gólf,
tengi fyrir þvottavél. Eldhús með parketi á gólfi, snyrtileg eldhúsinnrétting. Verð
17,2 milljónir.
KLEIFARSEL-EINBÝLISHÚS
Gott og vel skipulagt einbýlishús á tveimur
hæðum á eftirsóttum stað í Seljahverfi í
Reykjavík. Stofa og borðstofa í alrými.
Hellulögð verönd frá stofu. Stórt eldhús.
Fjögur svefnherbergi. Tvö baðherbergi.
Nýlegar rúmgóðar svalir. Stór bílskúr. Hiti í
innkeyrslu.Verð 42,5 milljónir.
FUNALIND-3JA HERBERGJA
Rúmgóð 3ja her. íbúð með góðu útsýni á
efstu hæð í fjögurra hæða fjölbýli á eftirsótt-
um stað í Kópavogi. Tvö rúmgóð parketlögð
svefnh. Baðherbergi er flísalagt á veggjum
og gólfi. Stofa og borðstofa í alrými, dökkt
parket á gólfi, útgengt á góðar svalir frá
stofu. Eldhús er rúmgott. Verð 21,5 milljónir.