Fréttablaðið - 13.03.2006, Qupperneq 12
13. mars 2006 MÁNUDAGUR12
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Byrjendur
30 kennslustunda byrjendanám-
skeið. Engin undirstaða nauð-
synleg, hæg yfirferð með reglu-
legum endurtekningum í umsjá
þolinmóðra kennara.
Aðalmarkmið námskeiðsins er að
gera þátttakendur færa að nota
tölvuna sjálfstætt, m.a. til að
skrifa texta og prenta, nota Inter-
netið sér til gagns og gamans,
taka á móti og senda tölvupóst.
Kennsla hefst 16. mars og lýkur 6. apríl.
Kennt er þriðjudaga og fimmtudaga kl. 13 - 16.
Verð kr. 19.500,- Vegleg kennslubók innifalin
Framhald I
30 kennslustundir. Hentar þeim sem lokið hafa byrjendanámskeiðinu
eða hafa sambærilega undirstöðu. Byrjað er á upprifjun áður en haldið
er lengra í ritvinnslu í Word. Framhaldsæfingar á Internetinu og í allri
meðferð tölvupósts.
Kennsla hefst 15. mars og lýkur 5. apríl.
Kennt er mánudaga og miðvikudaga kl. 13 - 16.
Verð kr. 19.500,- Vegleg kennslubók innifalin.
ELDRI BORGARAR 60+
Faxafen 10 • 108 Reykjavík • Sími: 544 2210 • www.tsk.is • skoli@tsk.is
„Það er allt ljómandi gott að frétta af mér. Ég
er verkum hlaðin og þannig finnst mér lífið
skemmtilegast,“ segir Akureyringurinn Lára
Stefánsdóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar
í Norðausturkjördæmi, þegar blaðamaður sló á
þráðinn til hennar.
„Störf dagsins hófust klukkan hálf sjö að vanda
með gönguferð niður í fjöru með hundinn minn.
Þar stunda ég mína líkamsrækt líkt og Þórbergur
en ólíkt skáldinu er ég alklædd og Müllersæfing-
ar kann ég ekki.“
Málefnavinna Samfylkingarinnar á Akureyri
vegna sveitarstjórnarkosninganna í vor tekur
drjúgan tíma hjá Láru þessa dagana en hún
telur þeim tíma vel varið. „Við göngum í
fyrirtæki og stofnanir í bænum og hlustum á
fólk. Þannig finnum við út hvað helst brennur
á fólki og nú eru það atvinnumálin, skipulags-
málin, öldrunarmálin og málefni fjölskyldnanna
almennt.“
Helstu áhugmál Láru eru ljósmyndun, lagasmíð
og lestur og sinnir hún þeim eins og tími gefst
til. „Ég hef nýlokið við að semja baráttulag og
texta fyrir unga jafnaðarmenn á Akureyri og er
að fara í spennandi ljósmyndaferð með áhuga-
ljósmyndurum á Mývatn.“
Lára hefur tekið þátt í mörgum ljósmyndakeppn-
um á ljosmyndakeppni.is og í siðustu viku vann
hún gullverðlaun fyrir mynd sem hún tók á
fjölmenningarhátíð í gamla Blómavalshúsinu við
Sigtún í Reykjavík.
Komandi sunnudagur verður stór dagur hjá Láru
en þá á að skíra þriðja barnabarnið hennar.
„Litla prinsessan verður skírð í Akureyrarkirkju og
á eftir verður fjölskylduboð,“ segir Lára og stoltið
og tilhlökkunin leynir sér ekki í röddinni.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? LÁRA STEFÁNSDÓTTIR VARAÞINGMAÐUR
Gerir æfingar í fjöruborðinu
LÁRA STEFÁNSDÓTTIR
Á HLAUPUM Í árlegu Iditarot-hundasleðakeppninni í Alaska þurfa hundar og menn að sýna
útsjónarsemi, styrk og þol til að komast í mark. Keppnin stendur í nokkra daga og er sú
þekktasta af nokkrum sem haldnar eru á norðlægum slóðum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Hjálparsíma Rauða
krossins bárust um 16.000
símtöl á síðasta ári. Símtöl
frá börnum og unglingum
voru um 2.500.
Hjálparsíminn 1717 hefur starfað
frá 2002 og þar er leitast við að
ráða fram úr hvers kyns vanda-
málum fólks. Sumir hringja til að
leita sér upplýsinga um hvar
aðstoð er að finna en aðrir þurfa
einhvern til að tala við.
Elfa Dögg S. Leifsdóttir, verk-
efnisstjóri Hjálparsímans, segir
flesta hringja vegna einmana-
leika, þunglyndis og kvíða. „Marg-
ir leita til okkar með þessi sál-
rænu vandamál en aðrir þurfa að
tala við einhvern sem hlustar.“
Flestir sem hringja eru mið-
aldra og eldra fólk og næstfjöl-
mennasti hópurinn er unglingar.
„Sá yngsti sem hefur hringt var
tíu ára og þetta nær upp í nírætt,“
segir Elfa Dögg.
Svarað er í Hjálparsímann
allan sólarhringinn, allan ársins
hring. Að sögn Elfu Daggar er
oftast hringt seinnipart dags og á
kvöldin og mest er að gera um
helgar. Nýliðnir janúar- og febrú-
armánuðir voru annasamir hjá
starfsfólki Hjálparsímans og það
kom Elfu Dögg á óvart hve marg-
ir hringdu yfir jólahátíðina. „Þá
bárust um 200 símtöl,“ segir hún
en að meðaltali hringja um fjöru-
tíu manns á dag. Sumir hringja
einu sinni en aðrir oftar, jafnvel
nokkrum sinnum í viku. Á það við
um fólk sem er einmana og félags-
lega einangrað og finnst gott að
heyra í einhverjum. Vill jafnvel
deila sínu daglega lífi með ein-
hverjum sem virkilega hlustar og
sýnir áhuga. Öllum er tekið vel í
Hjálparsímanum og ekki er skellt
á neinn.
Elfa Dögg segir helstu mál
þjóðfélagsumræðunnar hverju
sinni oft bera á góma í símtölum
sem berast Hjálparsímanum. „Við
finnum vel fyrir því ef heit mál
eru umræðunni. Þá vill fólk ræða
um þau og jafnvel hringir fólk
sem tengist málunum með ein-
hverjum hætti.“
Hátt í eitt hundrað manns svara
í Hjálparsímann árið um kring og
vinnur stór hluti störf sín í sjálf-
boðavinnu. Það fólk kemur víða að
úr samfélaginu en þarf að upp-
fylla tilteknar kröfur og sitja nám-
skeið áður en það sest við símann.
„Það kemur mér á óvart hversu
margt vel menntað og stætt fólk í
þjóðfélaginu sinnir þessu og hefur
áhuga á að gefa eitthvað til baka
til samfélagsins,“ segir Elfa
Dögg.
Þrátt fyrir að flestir starfs-
menn Hjálparsímans séu sjálf-
boðaliðar er þjónustan kostnaðar-
söm. Því kom nýlegur styrkur frá
SPRON sér vel en sparisjóðurinn
veitti Hjálparsímanum þriggja
milljóna króna styrk á aðalfundi
sínum á dögunum.
bjorn@frettabladid.is
Allt niður í tíu ára börn
hringja í Hjálparsímann
Verið er að grafa fyrir grunni
íbúðarhúss á lóð við Tryggvagötu í
Reykjavík. Lóðin er á milli Nausts-
ins við Vesturgötu og Hafnarhvols
við Tryggvagötu en hús sem þar
stóð var rifið fyrir fáum misser-
um. Í því var ýmis starfsemi í
gegnum árin en síðast var þar
kráin Skipperinn.
26 íbúðir verða í nýja húsinu,
sem áætlað er að verði risið á
næsta ári.
Íbúðum í miðborginni mun
fjölga á næstu árum en víða er
byggt eða stendur til að byggja. Er
það enda draumur margra að búa í
miðborginni, ekki síst þegar hún
fær á sig enn ríkari borgarsvip
þegar tónlistar- og ráðstefnuhúsið
verður risið við höfnina innan
nokkurra ára.
GRUNNURINN GRAFINN Fornfrægi veitingastaðurinn Naustið gnæfir yfir grunninum við
Tryggvagötuna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Íbúðarhús í bakgarði Naustsins
ÖLLUM ER TEKIÐ VEL Í HJÁLPARSÍMANUM Elfa Dögg S.
Leifsdóttir, verkefnisstjóri Hjálparsíma Rauða krossins,
segir flesta hringja vegna einmannaleika, þunglyndis
og kvíða. Svo þurfa sumir bara einhvern til að tala við.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HVÍLDINNI FEGINN Líkt og mönnum finnst hundum gott að leggja sig eftir erfiðan og
annasaman dag. Þessi hvutti fékk ábreiðu yfir sig þegar hann blundaði eftir átök dagsins í
hundasleðakeppninni. Það mun annars heldur sjaldgæft að hundar leggi sig undir teppi.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Framsókn í hnotskurn
„Við hvetjum til umræðu en
leggjum ekkert til.“
JÓNÍNA BJARTMARZ ÞINGMAÐUR
FRAMSÓKNARFLOKKSINS Í FRÉTTA-
BLAÐINU UM SKÝRSLU NEFNDAR
UM HEILBRIGÐISKERFIÐ.
Á ekki að renna sér
niður?
„Ég vona auðvitað að ég
komist ofar og hef trú á því.“
DAGNÝ LINDA KRISTJÁNSDÓTTIR
SKÍÐAKONA Í FRÉTTABLAÐINU.