Fréttablaðið - 16.03.2006, Page 1
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Kristín Dögg Höskuldsdóttir á yfir 100
skópör. Flest pörin notar hún mikið þótt
það komi fyrir að hún kaupi sér skó
sem passa ekki á hana.,
,Mamma mín orðaði það þannig að ég hefði
fæðst á hælum,“ segir Kristín Dögg
Höskuldsdóttir stílisti og forfallinn skó-
safnari. Hún hefur týnt tölu á fjölda skópar-
anna en veit þó að þau eru komin yfir hundr-
að. Skórnir eru í öllum regnbogans litum og
öllum verðflokkum. ,,Ég er ekkert endilega
að fara eftir merkjum. Ég kaupi skó í Kola-
portinu og GK og allt þar á milli,“ segir
Kristín og bætir því við að stórt hlutfall
skónna séu stígvél. ,,Þau eru ábyggilega um
50 talsins. Síðan eru lang flestir skórnir
háhæla,“ segir Kristín en hún byrjaði að
ganga á hælum tólf ára gömul.
Fjölskylda Kristínar er meðvituð um
söfnunaráráttuna. Eiginmaður hennar tjáir
sig yfirleitt lítið um málið en hefur þó oft
sagt að hún ætti að fara í meðferð eins og
hinir fíklarnir. Synir hennar tveir, tæplega
tveggja og fimm ára, eru einnig búnir að
átta sig á þessu. ,,Yngri sonur minn segir
oft ,,mamma gó“ og þegar ég fór með eldri
syni mínum í bæinn um daginn spurði hann
mig hvort ég ætlaði ekki að kaupa skó,“
segir Kristín hlæjandi.
Það liggur beinast við að spyrja hvar
Kristín geymir allan þennan skófjölda.
,,Maðurinn minn keypti stórar lagerhillur
fyrir tveimur árum. Þær hanga inni í þvotta-
húsi og þar eru allir skórnir mínir,“ segir
hún. Þó fyrir komi að Kristín kaupi sér skó
sem passi ekki á hana notar hún flest pörin
mjög mikið. Enn fremur hendir hún engum
skóm og var bara fyrir stuttu að gefa frá
sér fermingarskóna. ,,Sumum finnst þetta
bilun, öðrum finnst þetta fyndið,“ segir skó-
safnarinn að lokum.
mariathora@frettabladid.is
Skósafnari með meiru
Flestir skórnir hennar Kristínar eru háhæla. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
GÓÐAN DAG!
Í dag er fimmtudagurinn
16. mars, 75. dagur ársins
2006.
Verslunin Kronkron er flutt í
stærra og betra húsnæði við
Laugaveg þar sem gengið er inn
frá Vitastíg. Einnig hefur verið
bætt við mörgum nýjum og
flottum merkjum.
Upplýsingar um muninn á LCD
og Plasma sjónvarpsskjám má
nálgast á síðunni men.style.
com/gear/flattvs. Þar er einnig
hægt að fá fleiri upplýsingar um
flata sjónvarpsskjái.
Golfurum sem vilja undirbúa sig
fyrir komandi sumar er bent á
sérstakt undirbúningsnámskeið
sem hefst hjá Hreyfingu mánu-
daginn 20. mars. Þjálfari er
Árni Þóroddur Guðmunds-
son og er skráning í síma
861 7378.
ALLT HITT
[TÍSKA, HEIMILI OG HEILSA]
AUSTURLENSKAR
MOTTUR
Mikill munur er á handhnýttum
teppum og fjöldaframleiddum.
Ný verslun í Kópavegi býður upp
á þau fyrrnefndu.
HEIMILI 6
ÁRSHÁTÍÐARKJÓLAR
Árshátíðirnar eru í algleymingi. Nú
er fjölbreytnin í fyrirrúmi í kjóla-
tískunni og um að gera að nota
hugmyndaflugið.
TÍSKA 4
Reykjavík 7.43 13.36 19.31
Akureyri 7.28 13.21 19.15
Sólarupprás Hádegi Sólarlag