Fréttablaðið - 16.03.2006, Síða 2
[ ]
Barbara í Gongini er færeysk-
ur fatahönnuður sem sýnir nú
hönnun sína á sameiginlegri
hönnunarsýningu Grænlands,
Færeyja og Íslands. Hún segir
að vest-norræn hönnun sé vel
samkeppnishæf við aðra ,,há-
tísku“ hönnun.
Sýningin, sem ber nafnið Transform,
varð til að frumkvæði Norðurlanda-
ráðs á síðasta ári. Á sýningunni má
meðal annars finna skartgripi frá
íslenskum hönnuðum, fatahönnun
frá Færeyjum og handverk frá
Grænlandi. Að sögn Barböru er
markmið sýningarinnar að hönnuðir
nýti sér þjóðlegar hefðir og umbreyti
þeim til þess að tjá hefðirnar á ann-
ars konar hátt en venjulega. ,,Hönn-
uðir eru margir hverjir að reyna að
brjótast frá þessari hefðbundnari,
þjóðlegri hönnun og færa sig yfir í
meiri alþjóðlegri hönnun, án þess að
gleyma rótum sínum.“
Sýningin var opnuð um síðustu
helgi, á neðri hæð Norræna hússins,
og stendur hún í mánuð. Sýningin
hefur ferðast víðs vegar um Norður-
löndin og seinna mun hún fara til enn
fleiri staða í Evrópu og jafnvel víðar.
,,Enda er tilgangur sýningarinnar að
breiða út boðskap okkar vest-nor-
rænnu ríkja,“ segir Barbara með
bros á vör. Hún bætir því við að
hönnunin á sýningunni eigi fullt
erindi inn á fleiri markaði. Barbara
velkist heldur ekki í vafa um að ef
þeir hönnuðir sem sýna verk sín á
sýningunni hefðu fæðst í til dæmis
Frakklandi hefðu þeir átt mun auð-
veldara með að njóta meiri vel-
gengni. ,,Við erum langt frá þess-
um hönnunarhring, ef svo mætti
kalla, en hann er þó alltaf á hreyf-
ingu. Hér eru miklir hæfileikar og
það má alveg koma vest-norrænni
hönnun inn í þennan hring. Slíkt
gerist hins vegar ekki akkúrat núna
heldur frekar í framtíðinni. Hönn-
uðir þurfa þó meiri stuðning frá
opinberum aðilum því annars er
synd að allir þessir hæfileikar fari
til spillis,“ segir Barbara í Gongini
að lokum. steinthor@frettabladid.is
Fermingarkjóla má líka finna í öllum skemmtilegu „second
hand“-verslununum sem finna má víðs vegar um bæinn. Slíkir kjólar eru
flottir og þar að auki oftast í ódýrari kantinum.
Í hönnun sinni hefur Barbara notast meðal
annars við þjóðlegar, færeyskar hefðir.
Hönnun Barböru verður brátt fáanleg í
versluninni Trilogiu á Laugaveginum.
Flott norræn hönnun
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
3
16
93
0
3/
20
06
hönnuði
í Debenhams
Uppgötvaðu
yfir
4
2
3
1
Antony & Alison (1)
BDL eftir Ben De Lisi (3)
Butterfly eftir Matthew Williamson (2)
EB eftir Erickson Beamon
J eftir Jasper Conran
Pearce Il Fionda (4)
Reger eftir Janet Reger
Rocha eftir John Rocha
Star eftir Julien Macdonald
St George eftir Duffer
Debenhams hefur fengið
til liðs við sig heimsþekkta
hönnuði til að sérhanna
fata- og húsbúnaðarlínur
einungis fyrir Debenhams.
Gríptu tækifærið og tryggðu þér
einstaka hönnun á einstaklega
góðu verði, - aðeins í Debenhams.
Glæsilegt úrval af
handsmíðuðum
íslenskum
skartgripum
Barbara í Gongini við hönnun sína sem sjá má á vest-norrænni hönnunarsýningu, Transform, sem nú fer fram í Norræna húsinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Hágæða húð- og hárvörur fyrir börn