Fréttablaðið - 16.03.2006, Síða 20
4 16. mars 2006 FIMMTUDAGUR
Bandaríkjadalur 69,91 70,25
Sterlingspund 122 122,6
Evra 84,05 84,53
Dönsk króna 11,264 11,33
Norsk króna 10,558 10,62
Sænsk króna 8,964 9,016
Japanskt jen 0,5944 0,5978
SDR 100,56 101,16
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 15.3.2006
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
Gengisvísitala krónunnar
117,8102
BAUGSMÁL „Það er of snemmt að
segja til um hvort og þá að hve
miklu leyti málinu verður áfrýjað
til Hæstaréttar. Ákæruvaldið
hefur átta vikur til þess að taka
slíka ákvörðun,“ sagði Sigurður
Tómas Magnússon, settur sak-
sóknari í Baugsmálinu, eftir að
hafa kynnt sér sýknudóm Héraðs-
dóms Reykjavíkur í Baugsmálinu
í gær. Aðspurður um það hvort
dómurinn hefði áhrif á það hvort
efni væri til þess að ákæra á ný á
grundvelli ákæruliðanna 32 í
Baugsmálinu sem vísað var frá
dómi segir hann að það eigi eftir
að skoða. „Þetta verður allt mátað
og skoðað saman og athugað hvort
þessi niðurstaða hefur áhrif að
svo miklu leyti sem ákæruvaldið
telur hana rétta. Þetta verður
metið í tengslum við mögulega
áfrýjun.“
Sigurður Tómas vill ekki orða
það svo að niðurstaða dómsins
valdi honum vonbrigðum en vissu-
lega sé hún ekki í samræmi við það
sem ákæruvaldið hafi lagt upp
með. „Mitt hlutverk er að reyna að
sannfæra dóminn um sekt. Að það
skyldi ekki takast er ekki í sam-
ræmi við það sem ég ætlaði. Hvort
um var að ræða lán eða ekki er lög-
fræðilegt atriði en hinn þáttur
málsins snerist um sönnunarmat.
„Niðurstaðan er ekki í samræmi
við áherslur ákæruvaldsins,“ segir
Sigurður Tómas. - jh
Sigurður Tómas Magnússon, settur saksóknari:
Ekki áherslur
ákæruvalds
DÓMSMÁL „Niðurstaðan sýnir að sá
rúmi milljarður sem Baugsmenn
hafa eytt í vörnina sýnir að hægt er
að kaupa ýmis-
legt á Íslandi,“
segir Jón Gerald
Sullenberger,
aðalvitni ákæru-
valdsins.
Hann segir
útkomuna ekki
koma á óvart.
„Miðað við að
héraðsdómur
vísaði málinu frá upphaflega hafa
þeir greinilega ekki getað tekið
efnislega á þessu. Ég vona að mál-
inu verði áfrýjað.“ - aöe
Jón Gerald Sullenberger:
Niðurstaðan
í málinu keypt
DÓMSUPPKVAÐNING Sigurður Tómas
Magnússon, sérstakur saksóknari í
Baugsmálinu, sagði niðurstöðuna ekki í
samræmi við áherslur ákæruvaldsins.
BAUGSMÁLIÐ „Ég er í sjöunda himni
fyrir mína hönd, fjölskyldunnar,
fyrirtækisins og allra starfsmann-
anna,“ segir Jóhannes Jónsson,
stofnandi Baugs og faðir Jóns
Ásgeirs og Kristínar sem voru
ásamt honum, framkvæmdastjóra
og endurskoðendum sýknuð af átta
ákæruliðum sem eftir stóðu af
Baugsmálinu.
Jóhannes segir lögmenn þeirra
athuga hvort farið verði í
skaðabótamál við ríkið: „Við erum
bara í hamingjuvímu og erum
ekkert þannig þenkjandi að svo
komnu máli.“
Jóhannes segir að fjölskylda
hans hafi búið við kvíða þann tíma
sem málið stóð. Honum hafi fundist
hann vera glæpamaður hvar sem
hann kom og hafi þurft að lifa með
því. Öldruð móðir hans hafi fylgst
með málinu en ekki skilið. Hún hafi
haldið að þau hafi brotið af sér:
„Það er ekkert grín þegar ráðist er
á fjölskyldu til að kafkeyra hana.“
Um framhaldsrannsókn á þeim
32 ákæruliðum sem felldir voru út
úr ákærunni í héraðsdómi og hugs-
anleg málaferli vegna þeirra segir
Jóhannes: „Ég trúi því ekki að
til sé meiri mannvonska
sem á að beita á okkur.“
Hann vildi ekki segja
hvaðan mannvonskan
kæmi en sagði málið
spunnið af þeim
rótum. - gag
Jóhannes Jónsson í Bónus um sýknun hans og fjölskyldunnar:
Mistókst að kafkeyra fjölskylduna
JÓHANNES JÓNSSON VIÐ RÉTTAR-
HÖLDIN Í FEBRÚAR Jóhannes segir
Baugsmálið búið að taka sinn toll en
almenningur og starfsmenn fyrirtækja
fjölskyldunnar hafi staðið við bakið á
henni eins og klettur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BAUGSMÁL „Þetta er áfellisdómur
yfir lögreglunni. Hún á ekki að
höfða mál nema hún hafi til þess
haldbær og traust gögn og líkur á
sakfellingu séu meiri en minni,“
sagði Jón Ásgeir Jóhannsson, for-
stjóri Baugs, í samtali við Frétta-
blaðið í gærkvöldi.
Jón Ásgeir segir að frá upphafi
hafi verið bent á það aftur og
aftur að menn skyldu stíga var-
lega til jarðar þegar hatursfullur
maður kæmi inn af götunni með
kæru. Hann kveðst gleðjast yfir
sýknudómi Héraðsdóms Reykja-
víkur. „Um leið er maður reiður
yfir því hvernig gengið hefur
verið að okkur í nærri fjögur ár.
Þetta hefur fylgt okkur allan
þennan tíma í fjölmiðlum og við-
skiptum okkar og verið afar
íþyngjandi. Það er gríðarlega
mikilvægt fyrir okkur og líklega
þjóðina alla að þetta mál komist á
hreint og verði úr sögunni. Við
höfum verið áberandi í útrás í
Bretlandi og Danmörku og skoða
má þetta í því ljósi einnig. Í þetta
mál hefur verið ausið fjármunum
og svo er ekki hægt að koma einni
þyrlu í loftið sem heyrir undir
sama ráðuneyti og embætti ríkis-
lögreglustjóra. Það er athugunar-
efni hvort mönnum hafi áður
verið flogið yfir hafið vegna hugs-
anlegra brota við innflutning á
fáeinum bílum,“ segir Jón Ásgeir
Jóhannesson. - jh
Jón Ásgeir Jóhannesson fagnar sýknudómi:
Áfellisdómur
yfir lögregunni
BAUGS M Á L I Ð
BAUGSMÁL Gestur Jónsson, verj-
andi Jóns Ásgeirs Jóhannessoar,
fagnar niðurstöðu Héraðsdóms
Reykjavíkur í Baugsmálnu. „Nið-
urstaða dómsins um lánin er byggð
á lögskýringum á 43. grein laga
um ársreikninga, sem er sú sama
og verjendur héldu fram og
Pricewaterhouse Coopers byggði
á í sinni greinargerð. Ég upplifi
það þannig að ákæruvaldið hljóti
að staldra við og haldi ekki áfram
á grundvelli sömu lagatúlkana og
ákæran byggðist á.“
Gestur segir að það hafi ekki
komið á óvart að dómurinn
véfengdi trúverðugleika Jóns Ger-
alds Sullenberger. „Þannig að
ákvarðanir um framhald málsins
á grundvelli þess sem frá honum
kemur hljóta einnig að standa í
Sigurði Tómasi Magnússyni, sett-
um saksóknara,“ segir Gestur.
Einn stærsti þáttur upphaflegr-
ar kæru snerti meintan fjárdrátt
og umboðssvik varðandi lysti-
snekkju sakborninganna á Flór-
ída. „Sá hluti byggist á framburði
Jóns Geralds. Mér þykir líklegt að
saksóknari staldri einnig við þetta
í vinnu sinni við ákæruliðina sem
vísað var frá dómi.“
Gestur segir að stór hluti þeirra
ákæra hafi verið reistur á öðrum
lagatúlkunum en gert sé í dómi
Héraðsdóms Reykjavíkur. - jh
Gestur Jónsson verjandi:
Hefur áhrif á
framhald máls
GESTUR JÓNSSON VERJANDI JÓNS ÁSGEIRS
Ákæruvaldið getur vart haldið málinu
áfram á grundvelli sömu lagatúlkana og
ákæran byggðist á, segir Gestur.
JÓN GERALD
JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON Mætti fyrir
dóminn í febrúar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R