Fréttablaðið - 16.03.2006, Blaðsíða 22
6 16. mars 2006 FIMMTUDAGUR
��������
���������������������
F
A
B
R
IK
A
N
2
0
0
6
������������������������������������������������������������
����������������������������� �����
�������������������������������������������������������
����� ������� ���������������������������������������
��������������������������������������
BÚLGARÍA, AP Mikið vatnsveður
hefur gengið yfir Búlgaríu, Tyrk-
land og Grikkland síðustu daga.
Ár flæddu yfir bakka sína svo
akrar og götur fóru í kaf og víða
urðu miklar vatnsskemmdir á
húsum.
Mikið hefur snjóað og rignt og
hafa flóðgarðar meðal annars
brostið. Yfirvöld í Búlgaríu lýstu
yfir neyðarástandi vegna flóð-
anna, en óttast er að þetta verði
þau verstu í fimmtán ár. Í Grikk-
landi rýmdu her- og björgunar-
menn borgir og bæi og voru yfir-
völd í Tyrklandi í viðbragðsstöðu
vegna flóðanna. - smk
Úrhelli í Suðaustur-Evrópu:
Mikið tjón á
mannvirkjum
FLÓÐ Rigningar hafa valdið miklum flóðum
í Búlgaríu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Fimm handteknir Fimm menn voru
handteknir í Bretlandi í gær fyrir að
kynda undir kynþáttahatri í tengslum við
mótmælagöngu í London gegn dönsku
skopmyndunum af Múhameð. Fjórir
þeirra eru að auki sagðir hafa hvatt til
morða.
BRETLAND
ENGLAND, AP Í gær hófust réttar-
höld í Bretlandi yfir breskum her-
manni, Malcolm Kendall-Smith,
sem neitaði að gegna herþjónustu
í Írak á þeim forsendum að stríðið
væri ólöglegt.
„Við munum færa þau rök að
hann hafi ekki fyrir neinar sakir
að svara,“ sagði lögmaður her-
mannsins í yfirlýsingu, „vegna
þess að án umboðs frá Sameinuðu
þjóðunum var innrásin í Írak aug-
ljóslega ólögleg“.
Kendall-Smith er fyrsti breski
hermaðurinn sem kærður hefur
verið fyrir að neita að gegna her-
þjónustu í Írak.
- gb
Réttarhöld yfir hermanni:
Neitaði að
berjast í Írak
KJÖRKASSINN
Er staða íslensku bankanna veik-
ari en talið hefur verið?
Já 54%
Nei 46%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Á að hefja hvalveiðar í atvinnu-
skyni?
Segðu þína skoðun á visir.is
BANASLYS Fram kom í vitnisburði
verkefnisstjóra VIJV við aðalmeð-
ferð í Héraðsdómi Austurlands í
gær að VIJV hefði gert athuga-
semdir við áhættumat sem Impreg-
ilo lagði lagði fram í október 2003
og janúar 2004.
Í báðum tilfellum hefði ekki
verið tekið nægilega vel tillit til
hættu á grjóthruni á svæðinu, og
því hefðu starfsmenn VIJV „gert
athugasemdir við áhættumatið þar
sem ekki hefði verið tekið á grjót-
hruni í gljúfrinu með fullnægjandi
hætti,“ eins og túlkur verkefnis-
stjórans hafði eftir honum í dóms-
sal.
Fram kom við vitnaleiðslur í
gær að hættuástand hefði skapast í
Hafrahvammsgljúfri, þar sem Árni
Þór Bjarnason lést af slysförum,
þegar hlýna tók eftir kuldatíð.
Nokkrum vikum áður en slysið
varð, hinn 15. mars 2004, breyttust
aðstæður til hins verra á svæðinu
og var því miðlað til verktaka á
svæðinu að þungavinnuvélar gætu
aðeins verið að störfum í gljúfrinu.
Verkefnisstjórinn, sem meðal
annars hefur reynslu af virkjunar-
vinnu í Indlandi og Argentínu, sagði
ávallt mikla hættu skapast í
gljúfrum þegar veðurfar breyttist
snögglega og „því hefði verið sett
fram krafa um að öryggi í gljúfrun-
um yrði aukið“.
Hróbjartur Jónatansson og Þór-
arinn V. Þórarinsson, lögmenn
tveggja starfsmanna Impregilo,
spurðu verkefnistjóra VIJV
nákvæmlega út í verksvið VIJV á
virkjunarsvæðinu. Hann svaraði
því til að Impregilo færi með stjórn
öryggismála á svæðinu og hefði
yfirumsjón með áhættumati. Þetta
staðfesti einnig annar verkefnis-
stjóri VIJV, sem einnig er meðal
ákærðu í málinu.
Dómarar í málinu beindu því til
lögmanna tveggja starfsmanna
Impregilo að þeir „reyndu að halda
sig við aðalatriði málsins,“ en Þór-
arinn V. Þórarinsson, lögmaður
yfirmanns öryggis- og heilbrigðis-
mála hjá Impregilo, var að mati
dómaranna helst til langorður í
sínum málflutningi.
Jónas Frímannsson, verkfræð-
ingur og sérdómari í fjölskipuðum
dómi í málinu, brýndi það sérstak-
lega fyrir lögmönnum að „fara nú
ekki um víðan völl“ þegar rætt
væri um málsatvik.
Verkefnisstjóri Impregilo, sem
Hróbjartur Jónatansson ver, var
einnig yfirheyrður í gær og var
áfram deilt um það hver hefði átt
að bera ábyrgð á því að öryggis-
málum hefði ekki verið háttað með
eðlilegum hætti á virkjunarsvæð-
inu þegar slysið varð.
Aðalmeðferð verður framhaldið
í Héraðsdómi Austurlands á Egils-
stöðum í dag.
magnush@frettabladid.is
Áhættumat Impregilo
sagt ófullnægjandi
Ekki var tekið tillit til mikillar hættu á grjóthruni í Hafrahvammsgljúfri í
áhættumati Impregilo. Þetta sagði ríkissaksóknari við aðalmeðferð málsins
gegn þeim fimm sem ákærðir eru vegna banaslyss við Kárahnjúka.
ÚR DÓMSAL Í GÆR Lögmennirnir Helgi Jóhannesson, Kristín Edvald og Hróbjartur Jónatansson, sjást hér ræða málin áður aðalmeðferð í
málinu hófst í gær. Einn sakborninga í málinu stendur fyrir aftan þau. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SAKBORNINGAR Í DÓMSAL Aðalmeðferð í
málinu hefur staðið fram á kvöld tvo daga í
röð en henni verður áframhaldið í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BANASLYS Eyjólfur Sæmundsson,
forstjóri Vinnueftirlits ríkisins,
segir töluvert hafa verið um
vinnuslys á vinnusvæðinu við
Kárahnjúka, en öryggismál hafi
verið tekin fastari tökum eftir
banaslysið fyrir tveimur árum.
„Menn hafa leitast við að taka
öryggismálin föstum tökum en
það er vitanlega erfitt að koma
alfarið í veg fyrir slys á svona
fjölmennu vinnusvæði. Við hjá
Vinnueftirlitinu teljum öryggis-
málin vera í betri farvegi nú en í
upphafi framkvæmdana. Það tók
langan tíma að ná upp ásættan-
legu innra eftirliti en það er í
ágætu lagi núna.“ - mh
Öryggismál á vinnusvæðinu:
Í betra horfi
BANASLYS Helgi Jensson, sem
sækir málið fyrir hönd ríkissak-
sóknara, lagði til við upphaf
aðalmeðferðar málsins í gær að
fimm vitni, meðal annars fyrr-
verandi starfsmenn á Kára-
hnjúkasvæðinu, þyrftu ekki að
bera vitni fyrir dómi.
Ekki var talin þörf á því að
spyrja fleiri en þá sem þegar
höfðu komið fram. Fimm vitni
voru tekin af málaskrá í upp-
hafi aðalmeðferðar, þar sem
framburður vitna sem þegar
höfðu tjáð sig leiddu í ljós þær
niðurstöður sem sækjandi sótt-
ist eftir. - mh
Vitnaskrá stytt:
Ekki fleiri vitni
BAGDAD, AP Réttarhöldunum yfir
Saddam Hussein var í gær frestað
til 5. apríl. Sjálfur var Saddam
Hussein yfirheyrður við réttar-
höldin í gær, síðastur af átta sak-
borningum.
Saddam notaði tækifærið til
þess að lesa upp skrifaða ræðu,
þrátt fyrir að dómarinn reyndi
ítrekað að stöðva hann.
Saddam ávarpaði „hina miklu
írösku þjóð“ og hvatti Íraka til
þess að berjast ekki innbyrðis
heldur standa saman. „Í mínum
augum eruð þið andspyrnuhreyf-
ing gegn bandarísku innrás-
inni.“
Raouf Abdul-Rahman, aðal-
dómari í réttarhöldunum, greip
fram í fyrir Saddam og sagði að
hann mætti ekki halda stjórn-
málaræður við réttarhöldin.
„Ég er æðstráðandi í ríkinu,“
svaraði Saddam.
„Þú varst æðstráðandi. Núna
ert þú sakborningur,“ svaraði þá
dómarinn.
Á endanum ákvað dómarinn
að réttarhöldunum skyldi haldið
áfram bak við luktar dyr og var
sjónvarpsútsendingu frá þeim
samstundis hætt. Tveimur stund-
um síðar tilkynnti dómarinn að
réttarhöldunum yrði frestað til 5.
apríl.
Í gær var einnig yfirheyrður
hálfbróðir Saddams, Bazran Ibra-
him, sem var yfirmaður írösku
leyniþjónustunnar. - gb
Réttarhöldunum yfir Saddam Hussein frestað:
Orðaskak við dómarann
ELDSVOÐI „Okkar starfi lauk um
áttaleytið en þá var búið að slökkva
allan eld og öll hætta liðin hjá,“
segir Sigmundur Eyþórsson,
slökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum
Suðurnesja.
Talsvert tjón varð þegar eldur
kviknaði í gömlu atvinnuhúsnæði í
Garði í fyrrinótt en snör viðbrögð
slökkviliðs komu í veg fyrir að allt
húsið brann. Tjón var einskorðað
við annan enda þess þar sem
keramikverkstæði var til húsa og
brann sá hluti til kaldra kola en
fyrir utan smávægilegar reyk-
skemmdir tókst að forða því að eld-
urinn bærist í bygginguna alla.
Þrjár erlendar konur sem búa í
húsinu urðu eldsins varar og létu
slökkvilið vita en þær komust heilu
og höldnu út og ekkert tjón varð á
vistarverum þeirra.
Sigmundur segir rannsókn
standa yfir á eldsupptökum en lík-
legt sé að eldurinn hafi komið upp í
keramikofni sem var í gangi þessa
nótt. „Það var vel af sér vikið að
hefta útbreiðslu eldsins og með því
bjargað því sem bjargað varð.“ - aöe
AF VETTVANGI Í GARÐI Vel gekk að hefta
útbreiðslu eldsins í listasmiðjunni Ársól en
talið er líklegt að kviknað hafi í út frá ker-
amikofni sem var í fullum gangi umrædda
nótt. VÍKURFRÉTTIR/HILMAR BRAGI
Eldsvoði í húsnæði listasmiðju í Garði í fyrrinótt:
Brann til kaldra kola
SADDAM FYRIR RÉTTI Notaði réttarhöldin
í gær til þess að flytja pólitíska ræðu.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP