Fréttablaðið - 16.03.2006, Blaðsíða 32
16. mars 2006 FIMMTUDAGUR16
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Traustið er
mikilvægast
„Vandi bankanna á Íslandi
er ekki ímyndarvandi heldur
spurning um traust.“
STAKSTEINAR MORGUNBLAÐSINS
Í GÆR
Upplýsingaflæðið
mikilvægast
„Traust skiptir miklu máli
á fjármálamarkaðnum en
upplýsingaflæði jafnvel enn
meira máli.“
LEIÐARI MORGUNBLAÐSINS Í GÆR
„Það hefur verið svolítið kropp hérna, eða
eiginlega bara ágætt,“ segir Sigfús Vilhjálmsson,
oddviti og útgerðarmaður í Mjóafirði, sem var
að koma af sjó þegar Fréttablaðið náði tali af
honum í gær. Hann kveðst hafa verið að fá
500 kíló og allt upp í tvö tonn í róðri. Hann er
ekki nema fimm mínútur að stíma á miðin, svo
nærri landi er fiskurinn.
„Þetta er stór og fallegur þorskur, fullur af
loðnu, sem ekki á að vera til,“ segir Sigfús. „Það
er góðs viti að fiskurinn skuli vera svona stór og
loðnan líka. Kannski er meira af þorski í sjónum
en menn grunar. Svo er hann fullur af hrognum,
þannig að allt útlit er fyrir að hann hrygni hér
inni á fjörðum. Það eru mörg ár síðan svona
stór fiskur hefur veiðst hér.
Þá höfum við fengið dálítið af rauðmaga í
þorskanetin, svona 10-12 stykki, sem er mjög
óalgengt.“
Spurður um stöðu laxeldisins í Mjóafirði segir
Sigfús að þar sé nú verið að slátra og mjög gott
verð fáist fyrir laxinn.
Um yfirvofandi sameiningu Fjarðabyggðar og
Austurbyggðar segir Sigfús það verst að ekki skuli
vera komin göng frá Eskifirði yfir á Seyðisfjörð
þannig að hægt hefði verið að taka hann með í
sameininguna.
Góugleði skellur á í Mjóafirði um þar-
næstu helgi.
„Þá dubba menn sig upp, gera
sér eitthvað til skemmtunar með því
að skjóta á náungann og svona,“
segir Sigfús. „Sumir fá sér lítillega
í staupinu, sem er gott ef í hófi
er gert.“
„Mér finnst glæpsamlegt ef ríkir
fá að borga fyrir forgang á sjúkra-
húsum landsins,“ segir Anna Marta
Guðmundsdóttir, bóndi á Hesteyri
í Mjóafirði. Hún hefur fylgst með
umræðum þess efnis í fjölmiðlum
síðustu daga og er mikið niðri fyrir.
Anna Marta hefur enda alla tíð látið
sig jöfnuð miklu varða auk þess sem
hún er áhugasöm um heilbrigðismál.
„Sá sem er lasnastur á alltaf að sitja
fyrir, ekki sá sem á mestu peningana,“
segir hún og bætir við: „Ef við látum
aurinn ráða er samfélagið komið niður
á ákaflega lágt plan.“
Önnu Mörtu finnst þó koma til greina
að aðkoma auðmanna að heilbrigðis-
þjónustu verði með öðrum hætti en
almennings. „Ef þeir vilja brúka afl sitt
í þágu eigin heilbrigðis mættu þeir
byggja sjúkrahús handa sjálfum sér
og reka það fyrir sína eigin peninga.
Og ef þeir væru almennilegir gætu
þeir svo tekið inn einstaka fátækling.
En í þetta mætti ekki fara króna af
almannafé.“
HVAÐ SEGIR
ANNA Á HESTEYRI?
Glæpsamlegt
Friðrik Ólafsson stórmeistari og
Sveinbjörn Einarsson kennari
mættust við taflborðið á tuttugu
ára afmælisskákmóti Félags
eldri borgara í Reykjavík á
þriðjudag. Við það tilefni var
rifjað upp að 59 ár eru liðin síðan
þeir tefldu fyrst saman.
„Sveinbjörn var einn af þeim
sem ég tefldi við í fyrsta mótinu
sem ég tók þátt í á sínum tíma. Þá
var ég tólf ára,“ segir Friðrik. Það
var árið 1947 og fór Sveinbjörn
með sigur af hólmi. „Nú náði ég að
jafna stöðuna,“ segir Friðrik hlæj-
andi en hann sigraði í viðureign-
inni á þriðjudag.
Sveinbjörn segir það hafa verið
ánægjulegt að tefla við Friðrik á
ný. „Ég fyrtist ekkert við þó hann
ynni mig,“ segir hann og gerir lítið
úr því að hafa lagt Friðrik að velli
á sínum tíma. „Þá var hann nú
bara strákur en ég fullorðinn
maður svo að það er ekkert að
marka.“ - bþs
BISKUP BJARNI FIMM Friðrik beitti Spænska leiknum í skákinni gegn Sveinbirni.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Metin jöfnuð 59 árum síðar
Blað var brotið í sögu
Alþingis á þriðjudag þegar
Valdimar Leó Friðriksson,
þingmaður Samfylkingar-
innar, gerði hlé á ræðu sinni
og fór á klósettið.
Aldrei áður í aldalangri sögu
þingsins hefur það gerst að þing-
manni sé veitt leyfi til að gera hlé
á máli sínu til að fara á klósettið.
Og ólíklegt er að það gerist aftur í
bráð. Ástæðan er einföld; klósett-
ferðir í miðjum ræðum rúmast
ekki innan þingskapalaga.
Greinilega er ekki gert ráð
fyrir að þingmenn tali svo lengi í
einu að þeir þurfi að fá hlé til að
fara á klósett.
Það má reyndar virða Valdimar
Leó Friðrikssyni það til vorkunnar
að hann hafði leyfi þingforseta
fyrir klósettferðinni. Þuríður
Backman, Vinstri grænum, sat í
forsetastóli og varð góðfúslega
við bón Valdimars. Og sjálfur
vissi hann ekki betur en að þetta
væri allt í lagi, að ekkert væri
sjálfsagðara en að menn fengju
að gera hlé á máli sínu til að pissa.
„Þetta var nýliðabrek hjá mér.
Ég hélt að þetta væri heimilt og
það var í þeirri trú sem ég gerði
þetta,“ segir Valdimar Leó um
klósettferðina.
Það má heita sérstakt, jafnvel
kaldhæðni örlaganna, að þetta
skuli gerast í umræðunni um hin
umdeildu vatnalög. Í henni miðri
þarf þingmaður að kasta af sér
vatni og gerir. Í umræðum um
vatn er sumsé vatni kastað í miðri
ræðu í fyrsta sinn í sögu Alþing-
is.
Valdimar Leó hafði talað í þrjár
klukkustundir þegar honum varð
mál. „Röddin var þannig að ég
þurfti að vökva hana nokkrum
sinnum. Þegar ég áttaði mig á að
enn væri klukkutími í kvöldmat
óskaði ég eftir þessu leyfi og fékk
það,“ segir Valdimar Leó og er
Þuríði afar þakklátur fyrir að fá
að fara á klósettið.
Á leiðinni af salerninu rak
Valdimar Leó augun í sjónvarps-
skjá og sá hvar þingvörður kíkti í
ræðustólinn, sjálfsagt til að athuga
hvort þar væri nægt vatn. „Það
var eins og hann væri að leita að
ræðumanninum,“ segir Valdimar
Leó og hlær.
Hann lætur þennan sögulega
viðburð ekki slá sig út af laginu og
heldur sínu striki í þinginu, hér
eftir sem hingað til. En gætir sín á
vatnsþambinu í ræðustólnum.
bjorn@frettabladid.is
Pissað í miðri ræðu í
fyrsta sinn í sögu Alþingis
VIÐ SALERNIÐ Valdimar Leó Friðriksson er fyrsti alþingismaður sögunnar sem fær leyfi til
að kasta af sér vatni í miðri þingræðu. Það gerðist í umræðum um vatnalög á þriðjudag.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
FORGANGUR RÍKRA Í
HEILBRIGÐISKERFINU
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? SIGFÚS VILHJÁLMSSON ODDVITI Í MJÓAFIRÐI:
Hér hefur verið svolítið kropp
MÖMMURNAR Í ÍRABAKKA ERU BÚNAR AÐ FÁ NÓG
HEIMTA BARNANÍÐING
BURT ÚR BLOKKINNI
„VIÐ VILJUM ÞENNAN MANN BUR
T,“ SEGIR
EIN AF FJÖLDAMÖRGUM ÁHYGGJ
UFULLUM
MÆÐRUM SEM BÚA Í ÍRABAKKA.
DV 2x15 15.3.2006 20:41 Page 1