Fréttablaðið - 16.03.2006, Qupperneq 48
16. mars 2006 FIMMTUDAGUR32
timamot@frettabladid.is
CHARLES DARWIN (1809-1881)
LÉST ÞENNAN DAG
„Vísindamaður á ekki að
eiga sér neinar óskir,
enga ástríðu – einungis
ómengað hjarta úr
steini.“
Charles Darwin þekkja flestir enda
höfundur þróunarkenningunnar.
Þennan dag árið 1983 náðust
samningar milli eigenda
Viðeyjar og Reykjavíkur-
borgar um kaup borgarinnar
á eyjunni. Frá 1959 hafði
enginn ábúandi verið í Viðey
en saga eyjarinnar er mjög
samofin sögu þjóðarinnar og
Reykjavíkurborgar.
Líklegt er talið að fólk
hafi sest að í Viðey stuttu
eftir landnám. Klaustur prýddi eyjuna frá 1225 til 1550
þegar það lagðist af eftir átök í kring um siðaskiptin.
Ráðist var í smíði Viðeyjarstofu og Viðeyjarkirkju um
miðja átjándu öld þegar efla átti íslenskan atvinnuveg.
Árið 1817 keypti svo Magnús Stephensen Viðey og rak
þar myndarlegan búskap. Hann var stórhuga, enda
einn mesti valdamaður þjóðarinnar á þessum tíma, og
flutti meðal annars prent-
smiðju til eyjarinnar.
Frá upphafi síðustu aldar
var rekinn stórbúskapur
og í Viðey síðar var þar
umfangsmikil uppskipunar-
höfn. Þá hafði myndast allt
að hundrað manna þorp
í eynni en eftir að atvinnu
hætti að finna þar árið 1931
fækkaði fólki mjög og þorpið
komst í eyði árið 1943. Síðasti ábúandinn, sá er bjó í
Viðeyjarstofu, yfirgaf Viðey árið 1959.
Endurbótum á Viðeyjarstofu og Viðeyjarkirkju lauk
árið 1988 en tveimur árum áður hafði Íslenska ríkið
hafði gefið borginni húsin í Viðey á tvö hundruð ára
afmæli hennar. Nú hefur Borgarminjavörður - Minja-
safn Reykjavíkur umsjón með Viðey.
ÞETTA GERÐIST > 16. MARS 1983
Reykvíkingar eignast Viðey
VIÐEYJARKIRKJA OG VIÐEYJARSTOFA
Í vikunni bárust fréttir um að íslenskt
lyfjainnflutningsfyrirtæki hygðist fá
leyfi til að setja á markað nýtt bóluefni
gegn leghálskrabbameini. Bóluefnið
ver fólk gegn algengustu tegundum af
svokallaðri hpv-veirusýkingu sem er
talin valda um sjötíu prósentum leg-
hálskrabbameins.
„Ég held að það sem er að gerast séu
tímamót í sambandi við krabbamein
hjá konum,“ segir Reynir Tómas, próf-
essor og yfirlæknir á kvennasviði
Landspítalans. Að hans sögn er legháls-
krabbamein eitt af algengustu krabba-
meinum kvenna á heimsvísu en hérna
heima hefur tekist að halda því niðri
með vel skipulagðri krabbameinsleit.
„Örfáar konur fá leghálskrabbamein
hér á Íslandi en þær sem deyja má telja
á fingrum annarrar handar. Það eru
oftast konur sem hafa ekki farið í
krabbameinsleit,“ segir Reynir Tómas.
Á Íslandi greinist þó mikill fjöldi
kvenna með forstigsbreytingar leg-
hálskrabbameins og um þrjú hundruð
þurfa að fara í svokallaðan keiluskurð
á ári til að fá þær fjarlægðar.
„Ef okkur tekst að bólusetja fyrir
helstu stofnum þessarar vörtuveiru
sem virðist vera meginorsakavaldar í
leghálskrabbameini þá kemur krabba-
meinsskoðun til með að breytast,“
segir Reynir Tómas. „Við munum geta
gert færri skoðanir með lengra milli-
bili á fyrstu árum eftir að kona hefur
hafið samfarir og við munum geta
hætt að taka sýni og gera krabba-
meinsskoðanir fyrr en hefur verið
gert til þessa,“ bætir hann við. „Bólu-
efnið er það gott að það mun hugsan-
lega koma í veg fyrir yfir 70 prósent
tilvika af leghálskrabbameini. Veiran
mun einfaldlega ekki ná að smita kon-
urnar. Í framtíðinni verða því mun
færri konur með forstigsbreytingar
og ífarandi krabbamein og við eyðum
minna af því sem þjóðfélagið setur í
heilbrigðismálin í þessar forvarnir,“
segir hann.
„Þar að auki er ný tækni að ryðja
sér til rúms í greiningu veirusýking-
anna,“ segir Reynir Tómas en sú tækni
miðar að því að finna kjarnaeggja-
hvítuefni veirunnar í stað þess að leita
aðeins að frumubreytingum eins og
verið hefur hingað til. „Ef við getum
byrjað á því að bólusetja og gert svo
eina krabbameinsskoðun um tuttugu
ára aldur getum við valið út meiripart
kvenna sem eru ekki sýktar og þær
geta farið í eftirlit mun sjaldnar en
verið er að gera í dag,“ bætir hann við.
„Þá stöndum við eftir með minnihluta-
hóp kvenna sem ekki hafa verið bólu-
settar eða hafa sýkst af þeim HPV-
veirutegundum sem bóluefnið nær
ekki til og aðeins þeim konum þarf að
fylgja betur eftir með hefðbundnum
frumusýnum úr krabbameinsskoðun.“
Bóluefnið verður því mikil bylting
ef vel tekst til með útbreiðslu þess.
„Ekki má gleyma að bólusetja strák-
ana líka því þeir eru líka með veiruna
og smita hana við kynmök til
stelpnanna,“ segir Reynir Tómas.
Hann slær þó varnagla við of mikilli
bjartsýni og segir að ólíklegt sé að
hægt verði að finna mótefni gegn
öllum tegundum veirunnar. „Við verð-
um aldrei með hundrað prósent mögu-
leika á að útrýma leghálskrabba-
meini,“ segir Sigurður, „en bóluefnið
þýðir að þorri kvenna verður nokkuð
vel varður.“ Það gæti þó tekið fimm til
tíu ár þar til gagnsemi bóluefnisins er
komin endanlega í ljós og breytinga
má vænta á krabbameinsskoðuninni.
REYNIR TÓMAS GEIRSSON PRÓFESSOR: BÓLUEFNI GEGN LEGHÁLSKRABBAMEINI
Kollvarpar krabbameinsleit
REYNIR TÓMAS GEIRSSON Fagnar mjög nýju bóluefni gegn leghálskrabbameini sem hann telur vera mikil tímamót í krabbameinsleit kvenna. Í framtíðinni
vonast hann til að þorri kvenna þurfi ekki að fara eins oft í leghálsskoðun og áður hefur verið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ANDLÁT
Jón Ólafur Halldórsson, Birkiholti
4, Bessastaðahreppi, lést þriðju-
daginn 14. mars.
Guðmundur Kr. Björnsson
(Deddi) lést í Kaupmannahöfn
mánudaginn 13. febrúar.
Guðrún Guðmundsdóttir,
Kirkjubraut 58, Akranesi, lést á
Landspítalanum í Fossvogi laugar-
daginn 11. mars.
Einar Loftson, frá Neðra-Seli,
Landsveit, síðast til heimilis á
Hrafnistu í Reykjavík, lést á Land-
spítala Fossvogi laugardaginn 25.
febrúar.
JARÐARFARIR
13.00 Unnur Þórðardóttir,
Bröttuhlíð 4, Hveragerði,
verður jarðsunginn frá
Grafarvogskirkju.
13.00 Ágúst Helgason, húsgagna-
bólstrari, síðast til heimilis
á hjúkrunarheimilinu Eir,
verður jarðsunginn frá Lága-
fellskirkju, Mosfellsbæ.
15.00 Sigríður Erlendsdóttir,
Hæðargarði 33, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík.
15.00 Kolbrún Diego, Bergþóru-
götu 3, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Fríkirkjunni í
Reykjavík.
Umhyggja, félag til stuðn-
ings langveikum börnum,
fékk kennsluforritið Stærð-
fræðisnillingar – Tívolítölur
að gjöf frá KB banka. Gaf
bankinn tvö hundruð eintök
af forritinu sem Umhyggja
hyggst dreifa til veikra
barna sem tengjast félag-
inu.
Tölvuleikurinn er spánýr
og ætlaður börnum eldri en
fimm ára til að þau geti á
skemmtilegan hátt kynnst
grundvallarþáttum stærð-
fræðinnar. Að sögn Rögnu
K. Marinósdóttur, sem er
framkvæmdastjóri Um-
hyggju, munu mörg börn
grípa tækifærið með fegins-
hendi til að bregða á leik en
bæta sér um leið upp fjar-
veru úr skóla vegna veik-
inda sinna.
Á myndinni afhendir
Friðrik S. Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri viðskipta-
bankasviðs KB banka, Rögnu
tölvudiskana við hátíðlega
athöfn. Með þeim á mynd-
inni eru Valdís Guðlaugs-
dóttir frá markaðsdeild KB
banka og Ágúst Hrafnkels-
son, formaður Umhyggju. ■
Tívolítölur gefnar börnum
MERKISATBURÐIR
1657 Miklir jarðskjálftar skekja
Sunnlendinga og þá sér-
staklega í Fljótshlíð þar sem
mörg hús féllu.
1942 Hiti skapast á götum
Siglufjarðar þegar slær í
brýnu milli heimamanna og
breskra hermanna.
1926 Fyrsta eldflaugin, knúin
með fljótandi eldsneyti,
tekst á loft í Bandaríkjunum
og flýgur í tvær og hálfa
sekúndu.
1976 Harold Wilson, forsætis-
ráðherra Bretlands, segir
skyndilega af sér eftir
næstum átta ára setu.
1991 Bandaríska blaðamannin-
um Terry Anderson er rænt
í Beirút af liðsmönnum
Hezbollah-samtakanna.
Honum var sleppt 2.455
dögum síðar.
UMHYGGJA Tekur við tölvuleikjum.
AFMÆLI
Páll M Stefánsson læknir er
57 ára.
Unnur Dís Skaptadóttir dósent
er 47 ára.
Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistar-
maður er 36 ára.
Rannveig Pálsdóttir læknir er
54 ára.
Elskulegur faðir okkar,
Sólon Lárusson
járnsmiður og fyrrverandi kennari,
andaðist 9. mars á Hrafnistu í Reykjavík.
Jarðarförin auglýst síðar.
Ragnar
Gísli Grétar
Nella
Einar
Theodór Sólonsbörn.
Elskulegur maðurinn minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og sonur,
Smári Hlíðar Baldvinsson
Borg, Reykhólahreppi,
sem lést aðfaranótt 10. mars, verður jarðsunginn frá
Reykhólakirkju laugardaginn 18. mars kl. 14.00.
Margrét H. Brynjólfsdóttir
og fjölskylda.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför elskulegs
eiginmanns míns og föður okkar,
Guðmundar Guðmundssonar
Hlíf II, Ísafirði.
Guð blessi ykkur öll.
Fyrir hönd annarra vandamanna,
Rebekka Jónsdóttir og börn.