Fréttablaðið - 16.03.2006, Page 56
16. mars 2006 FIMMTUDAGUR40
bio@frettabladid.is
Pierce Brosnan fer með
aðalhlutverkið í kvikmynd-
inni The Matador en þar
leikur hann taugaveiklaða
útgáfu af þekktustu per-
sónu sinni, James Bond.
Danny Wright heldur til Mexíkó í
þeirri von að fá stórt verkefni og
bjarga ástríðulausu hjónabandi
sem stendur höllum fæti. Allt geng-
ur að óskum og Wright fagnar með
margarítudrykk í þeirri von að ein-
ungis sé formsatriði að ganga frá
samningum. Á hótelbarnum hittir
hann Julian Noble sem er frekar
ómannblendinn og fráhrindandi
náungi en þeir taka tal saman. Eftir
frekar stutt kynni hefur Wright
fengið ógeð á náunganum sem virð-
ist ljúga og svíkja án nokkurs til-
efnis. Tíminn líður og ekkert virð-
ist bóla á öruggum sigri Wrights en
til að stytta sér stundir vingast
hann við hinn stórfurðulega Noble
sem er ekki eins og fólk er flest.
Á nautaati trúir Noble honum
fyrir leyndarmáli; hann sé leigu-
morðinginn Matador og tilbreyt-
ingalaust líf hans tekur óvænta
beygju þegar Wright fær stutta
kennslustund í nákvæmum fræð-
um leigumorðingja. Spennan ber
hann nánast ofurliði en vinabönd-
in styrkjast til muna. Þegar leið-
ir skiljast vill Wright þó sem
minnst af þessum kynnum vita
enda lítur það illa út á pappírun-
um ef fréttist að hann eigi leigu-
morðingja sem vin.
Á meðan Wright gengur allt í
haginn heima fyrir fjarar smám
saman undan ferli Nobles. Öll
mistök eru dýrkeypt og þegar
morð á valdamiklum Indverja
mistekst hefja atvinnurekend-
urnir leit að Noble í þeim tilgangi
að láta hann hverfa af yfirborði
jarðar. Noble á aðeins einn vin
sem hann getur treyst en það er
Danny Wright. Þegar leigumorð-
inginn birtist óboðinn á heimili
Wright-hjónanna á eftir að draga
til tíðinda en leigumorðinginn
virðist eiga hönk upp í bakið á
vini sínum. Greg Kinnear leikur
Danny en margir kannast við
hann úr kvikmyndinni As Good as
it Gets þar sem Jack Nicholson
fór hamförum í hlutverki Melvin
Udall. Kinnear vakti fyrst athygli
fyrir leik í sjónvarpi en ferill
hans á hvíta tjaldinu tók mikinn
kipp þegar hann lék á móti Harri-
son Ford í Sabrinu.
Það vakti mikla athygli þegar
Pierce Brosnan hætti við að leika
James Bond og Daniel Craig var
ráðinn í hans stað. Brosnan hafði
tekist að koma enska leyniþjón-
ustumanninum aftur á þann stall
sem honum bar en eftir hrakfarir
Die Another Day var ljóst að ferskt
blóð þurfti. Hvort rétt var að skipta
Brosnan út skal ósagt látið en fjöl-
margir aðdáendur hans hafa látið
Craig finna fyrir óánægju sinni.
Leikarinn írski hefur sjálfur sagst
feginn að vera laus undan oki
Bond-veldisins og getað einbeitt
sér enn frekar að öðrum hlutverk-
um. -fgg
Taugaveiklaður Bond
Írski leikarinn Peter O‘Toole hefur
verið að í fimm áratugi og hefur þegar
hlotið heiðursverðlaun Óskarsaka-
demíunnar. Hann er þó hvergi nærri
hættur og er með tvær kvikmyndir í
burðarliðunum. Ekki er langt síðan
að O‘Toole lék við hlið Erics Bana og
Brads Pitt í Troy en „ungstirnin“ áttu
varla roð í aldna höfðingjann.
O‘Toole ætlaði sér alltaf að verða
blaðamaður og hóf störf sem slíkur.
Þegar leikarinn náði átján ára aldri átt-
aði hann sig á því að leiklistin heillaði
hann meira og ákvað að reyna fyrir sér
sem slíkur. Hann starfaði fyrst um sinn
sem útvarpsþulur en komst síðan að
hjá hinum Konunglega Leiklistarskóla
þar sem skólafélagar hans voru ekki
ómerkari menn en Richard Harris og Albert Finney.
Árið 1960 birtist leikarinn í fyrsta skipti á hvíta
tjaldinu með eftirminnilegum hætti í
kvikmyndinni The Day They Robbed
the Bank of England. Tveim árum síðar
réði David Lean hann til að leika Arab-
íu-Lawrence og stjarna leikarans reis
ógnarhratt enda hreppti hann Bafta-
verðlaunin fyrir frammistöðu sína.
Persónur O‘Toole hafa yfirleitt
mikla réttlætiskennd og sterka
sannfæringu. Leikur hans er oftar
en ekki óaðfinnanlegur þó mörgum
kunni að þykja O‘Toole tilgerðarlegur.
Sjö tilnefningar til Óskarsverðlauna
segja hins vegar alla söguna sem þarf
um gæði þessa mikla leikara þótt
stundum hafi kvikmyndagagnrýnend-
ur velt vöngum yfir hlutverkavali hans
og nægir þar að nefna Caligula sem
var heldur „vafasöm“ og jaðraði við klám að margra
mati.
PETER O‘TOOLE Hinn aldni
höfðingi sem nýtur mikillar
virðingar innan kvikmynda-
heimsins og mörgum leikur-
um þykir forréttindi að starfa
við hlið hans.
Lifandi goðsögn
Seinni heimsstyrjöldin fer illa
með námubæinn Yorkshire og
kröpp kjör Carraclough-fjölskyld-
unnar neyðir hana til að selja sína
heittelskuðu tík Lassie til hertog-
ans af Rudling. Þegar henni tekst
loks að sleppa úr búri sínu áttar
Lassie sig á því að hún er stödd á
Skotlandi í 250 kílómetra fjarlægð
frá eigendum sínum. Þrátt fyrir
það er tíkin harðákveðin í að kom-
ast aftur til síns heima og leggur
upp í mikla hættuför þar sem bæði
náttúran og mannfólkið reyna að
bregða fyrir hana fæti. Heimþráin
rekur hana þó miskunnarlaust
áfram og Lassie vonast til að koma
heim fyrir jólin.
Ellefu kvikmyndir hafa verið
gerðar um undrahundinn Lassie
en tíkin hefur heillað heimsbyggð-
ina frá árinu 1938 þegar sagan
birtist fyrst á prenti í The Satur-
day Evening Post. Fyrsta kvik-
myndin um tíkina var frumsýnd
árið 1943 en þá var sjálf Elisabeth
Taylor í aðalhlutverkinu auk Mick-
ey Rooney. Nokkrar framhalds-
myndir voru gerðar og lék stór-
leikarinn Jimmy Stewart meðal
annars í einni slíkri. Þá hafa verið
gerðir sjónvarpsþættir um þenn-
an loðna vin og hlutu þeir meðal
annars Emmy-verðlaunin tvö ár í
röð um miðjan sjötta áratuginn.
Að þessu sinni er það einvalalið
leikara sem aðstoðar Lassie en
það eru þau Samantha Morton og
Peter O‘Toole og leikstjóri er
Charles Sturridge. ■
Lassie snýr aftur
HINN ELSKAÐI HUNDUR Carraclough-fjölskyldan neyðist til að selja Lassie þegar hún lendir
í miklum fjárhagsörðugleikum.
Árið 2000 sló Martin Lawrence
eftirminnilega í gegn með kvik-
myndinni Big Momma‘s House
þegar FBI fulltrúinn Malcolm
Turner dulbjó sig sem stórbein-
ótta frænkan Hattie Mae Pierce
sem gætti mikilvægs vitnis og
klófesti hættulegan bankaræn-
ingja. Hollywood er aldrei lengi
að þefa uppi framhaldsmyndir
sem gætu hugsanlega malað gull
og sex árum síðar er Turner mætt-
ur aftur.
Að þessu sinni varðar málið
þjóðaröryggi en Turner kemst á
snoðir um vírus sem gæti sýkt
allar tölvur helstu öryggisstofn-
ana Bandaríkjanna. Til að koma
höggi á hönnuðinn Tom Fuller
neyðist FBI lögreglumaðurinn að
dulbúast sem barnapía fyrir fjöl-
skylduna en verður fljótlega ljóst
að stærsta vandamálið er ekki
Fuller heldur hin mjög svo van-
stillta fjölskylda. Warner leggur
þó ekki árar í bát heldur tekst á
við vandamálið eins og Big
Momma er einni lagið.
Martin Lawrence er einn af
vinsælustu gamanleikurum
Bandaríkjanna en hann komst á
allra varir þegar Bad Boys-mynd-
irnar tvær slógu í gegn. Hann er
þó viðriðinn fleira en kvikmynda-
leik því Lawrance er hugmynda-
smiðurinn á bak við sjónvarps-
þáttinn Def Comedy Jam og á
heiðurinn af ferli Chris Tucker og
Damon Wayans, svo einhverjir
séu nefndir. ■
HATTIE MAE PIERCE Lætur Fuller-fjölskyld-
una finna til tevatnsins enda er fjölskyldu-
faðirinn hönnuður að hættulegum vírus.
Endurkoma frænkunnar
„There may be honor
among thieves,
but there‘s none in
politicians.“
T.E. Lawrence, betur þekktur sem
Arabíu-Lawrence þekkti muninn
á þjófum og stjórnmálamönnum.
Peter O‘Toole lék þessa mögnuðu
frelsishetju með tilþrifum í Lawrence
of Arabia.
> Ekki missa af...
Syriana eftir Stephen Gaghan. Skuggaleg
lýsing á spillingu olíuiðnaðarins og
afleiðingum hans á daglegt líf ólíkra
manna. Spennandi mynd um eldfimt
efni í orðsins fyllstu merkingu.
NOBLE OG WRIGHT Koma úr
ólíkri átt en með þeim tekst
vinskapur sem á eftir að hafa
ófyrirsjáanlegar afleiðingar.
Vinningar verða afhentir hjá BT Smáralind. Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 149 kr/skeytið.
Aðalvinningur er:
Playstation2 + PSP+24 + The Godfather
Aukavinningar eru:
24 Tölvuleikir • The Godfather tölvuleikir
PS2 stýripinnar • Playstation minniskort
DVD myndir • Varningur tengdur PS2 og tölvuleikjum Fullt af öðrum tölvuleikjum • Pepsi kippur og margt fleira
Þú sendir SMS skeytið
BTC F24
á númerið 1900
Þú svarar spurningu
Þú gætir unnið.
12. hver vinnur.
Playstation 2