Fréttablaðið - 16.03.2006, Side 62

Fréttablaðið - 16.03.2006, Side 62
Stjórn á blóðþrýstingi LH inniheldur náttúruleg lífvirk peptíð sem geta hjálpað til við stjórn á blóðþrýstingi LH-drykkurinn er gerður úr undanrennu og er því fitulaus. Auk peptíðanna inniheldur hann í ríkum mæli kalk, kalíum og magníum en rannsóknir benda til að þessi steinefni hafi einnig jákvæð áhrif á blóðþrýsting. F restur hjá popparanum Michael Jackson til að borga starfsfólki sínu á Neverland-búgarð- inum rann út í gær. Starfsfólkið á inni vangoldin laun upp á rúmar tuttugu milljónir og geti Jackson ekki borgað á hann yfir höfði sér enn eina málssóknina. ��������� ���������������� �������������������������� ������������� �� ����������������� ��� ������� ���������� H rin gb ro t ���������������� Shadow of the Colossus er frá sömu aðilum og gerðu ICO, leik sem margir hörðustu spilarar telja ein- hvern besta leik sem komið hefur út á PlayStation 2. Sá leikur fékk þó ekki þá athygli sem hann átti skilið og í raun fór hann framhjá flestum þannig að væntingarnar mínar voru gríðarlegar og spennan eftir því þegar ég horfði á eftir Shadow of the Colossus-disknum hverfa inn í vélina. Að því búnu var ekkert annað að gera en að koma sér vel fyrir þar sem magnað myndskeið þaut áfram á skjánum til þess að koma manni í stemningu fyrir leik- inn. Myndbrotinu lýkur á því að aðal- persóna leikjarins ber stúlku upp á eins konar altari, leggur hana frá sér og fær tilskipanir frá drunga- legri röddu að hann þurfi að sigra nokkrar illar verur til þess að vekja stúlkuna aftur til lífs. Þetta hljómar eins og söguþráður í öðrum hverj- um ævintýraleik og því er mjög mikilvægt að slagkrafturinn í framsetningunni sé mikill og mögn- uð stemning náist upp. Það tekst heldur betur í þessu tilfelli enda gerist leikurinn í stórbrotnu lands- lagi þar sem aðalsöguhetjan geysist um á fögrum fáki í leit að þessum illu verum sem hann þarf að sigrast á. Allar þessar illu vættir eiga það sameiginlegt að vera gríðarstórar og er litlu púðri eytt í einhverja smákalla sem eiga að stöðva mann í leitinni að þeim. Leikurinn er því í raun uppfullur af aðal vonduköll- um eða „endaköllum“ eins og þeir nefnast í daglegu tali. Verurnar eru allar það stórar að hetjan þarf að finna ýmsar leiðir til að ráða nið- urlögum þeirra og oftar en ekki hangir hetjan á þeim í örvæntingu og bíður eftir tækifæri til þess að reka sverðið á bólakaf, hvort sem það er í höfuð, bak eða hvað annað sem þarf til þess að sigra. Þetta finnst mér heppnast gríð- arlega vel og spennan magnast verulega þegar verið er að klára kvikindi sem er svo stórt að maður sér það sjaldnast í heilu lagi og varla þá helminginn af því. Grafíkin í leiknum er öll til fyrir- myndar og nokkuð ljóst að hún er ein sú flottasta sem sést hefur á PlayStation 2. Í raun er leikurinn frábær í alla staði og fátt hægt að setja út á hann nema kannski að hann á til að verða svolítið auðveld- ur þegar á líður en þó aldrei svo auðveldur að það verði óþolandi. Sumsé er hér á ferðinni magnaður leikur fyrir alla þá sem vott af ævintýraþrá og kunna að höndla stýripinnann. Sverrir Bergmann Ævintýralega góður risaleikur SHADOW OF THE COLOSSUS Vélbúnaður: PLAYSTATION 2 Heildareinkunn: 9.5. Niðurstaða Frábær leikur í alla staði og fátt sem hægt er að setja út á. Grafíkin er með því flottasta sem sést hefur en hann verður þó full auðveldur á köflum. Daniel Craig þarf engu að kvíða þegar kemur að stuðningi frá leikstjóranum Martin Campbell en hann lýsti því yfir í viðtali að Craig væri betri Bond en Conn- ery, Moore og Brosnan. „Daniel Craig er einfaldlega besti James Bond allra tíma,“ sagði Camp- bell við blaðamenn á dögunum en hann ætti að hafa reynsluna því Campbell var við stjórnvöl- inn í fyrstu mynd Brosnans, Goldeneye. „Bond mun þjást bæði líkamlega og andlega en við hefðum ekki getað gert slíka hluti með Pierce,“ hélt Campbell áfram og Craig hlýtur að vera honum ævinlega þakklátur fyrir þennan opinbera stuðning enda orðið fyrir miklu aðkasti undan- farið. „Hann berst með hnefun- um en ekki einhverjum tölvu- gerðum hlutum,“ bætti Campbell við og vísaði á bug þeim fregn- um að Craig kynni ekki að keyra sjálfskiptan bíl. „Tökudagarnir verða honum líkamlega erfiðir,“ sagði hann. ■ Besti Bond sögunnar? DANIEL CRAIG Nýtur stuðnings hjá leikstjór- anum Martin Campbell, sem segir hann besta Bond allra tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES FRÉTTIR AF FÓLKI SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu BIG MOMMA’S HOUSE 2 kl. 8 og 10 RENT kl. 10 B.I. 14 ÁRA YOURS, MINE & OURS kl. 8 PINK PANTHER kl. 6 BROKEBACK MOUNTAIN kl. 5.40 B.I. 12 ÁRA BIG MOMMA’S HOUSE 2 kl. 6.50, 9 og 11.10 RENT kl. 5.20, 8 og 10.40 B.I. 14 ÁRA CAPOTE kl. 5.30 og 8 B.I. 16 ÁRA BROKEBACK MOUNTAIN kl. 5.20 og 10 B.I. 12 ÁRA CONTANT GARDENER kl. 10.20 B.I. 16 ÁRA BANGSALINGUR kl. 8 HINSEGIN BÍÓDAGAR BIG MOMMA’S HOUSE 2 kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.15 BIG SÝND Í Í LÚXUS kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.45 B.I. 14 ÁRA RENT kl. 8 og 10.45 B.I. 14 ÁRA YOURS MINE AND OURS kl. 4 og 6 PINK PANTHER kl. 3.45, 5.50 og 10.10 NANNY MCPHEE kl. 3.40 og 5.50 WALK THE LINE kl. 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA TÖFRANDI ÆVINTÝRAMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA BANGSALINGUR SÝND KL. 8 SKEMMTU ÞÉR VEL Á FRÁBÆRRI FJÖLSKYLDUMYND! UPPLIFÐU MAGNAÐAN SÖNGLEIKINN!! STÚTFULL AF STÓRKOSTLEGRI TÓNLIST! 2 FYRIR 1 FYRIR VIÐSKIPTAVINI GULLVILDAR ÓSKARS- VERÐLAUNIN sem besta leik- kona í aðalhlut- verki - Reese Witherspoon ÓSKARSVERÐLAUNIN Besta leikkona í aukahlutverki Rachel Wisz 8 KRAKKAR. FORELDRARNIR. ÞAÐ GETUR ALLT FARIÐ ÚRSKEIÐIS. - DÖJ, kvikmyndir.com ÓSKARSVERÐLAUNIN sem besti leikari í aðalhlutverki STEVE MARTIN KEVIN KLINE JEAN RENO BEYONCÉ KNOWLES VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG! Pink Panther demanturinn er horfinn og heimsins frægasta rannsóknarlögregla gerir allt til þess að klúðra málinu... Mamma allra grínmynda er mætt aftur í bíó! Fór beint á toppin í Bandaríkjnum Í REGNBOGANUM - SV MBL.IS WWW.XY.IS 200 kr. afsláttur fyrir XY félaga

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.