Fréttablaðið - 16.03.2006, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 16.03.2006, Blaðsíða 64
48 16. mars 2006 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? MARS 13 14 15 16 17 18 19 Fimmtudagur ■ ■ LEIKIR  19.15 Keflavík og Fjölnir mætast í úrslitakeppni Iceland Express-deild- arinnar í körfubolta í Keflavík.  20.00 KR og Snæfell mætast í úrslitakeppni Iceland Express-deild- arinnar í körfubolta í DHL-höllinni. ■ ■ SJÓNVARP  19.10 Gillette World Cup á Sýn. Öll liðin á HM eru tekin ítarlega fyrir.  19.45 Iceland Express-deildin á Sýn. Bein útsendnding frá leik KR og Snæfells.  21.40 HM í Þýskalandi 2006 á Sýn. Upphitunarþáttur fyrir þetta stærsta fótboltamót í heimi.  22.10 A1Grand Prix á Sýn. Fréttaþáttur um kappaksturinn. Handboltamaðurinn Bjarni Fritszon er búinn að koma sér vel fyrir hjá franska úrvalsdeildarliðinu Créteil, en þangað fór hann í sumar eftir að hafa leikið með ÍR síðustu ár. Créteil er rétt utan við höfuðborgina París og hefur Bjarna líkað vistin afar vel það sem af er, en hann og Ragnar Óskarsson eru einu fulltrúar Íslands í frönsku úrvalsdeild- inni í handbolta. „Þetta hefur tekið smá tíma en mér líður mjög vel hérna í Frakklandi,“ sagði Bjarni við Fréttablaðið. „Fyrst eftir að ég kom var ég að basla við að klára sál- fræðina í fjarnámi frá Íslandi og það tók sinn toll. Ég gerði mér í raun ekki grein fyrir því hvað það var mikilvægt að komast inn í tungumálið og menninguna hér. En eftir að ég lauk náminu hefur þetta gengið mun betur og núna eftir áramót hef ég verið að spila mjög mikið,“ segir Bjarni, sem er nú orðinn fyrsti kostur í hægra hornið hjá Créteil. Liðið er um miðja deild í Frakklandi og hefur ekki staðið undir væntingum í heima- landinu en í Evrópukeppninni hefur gengið mun betur og er liðið komið í undanúrslit í EHF-keppninni þar sem andstæðingurinn er lið Göppingen í Þýskalandi. „Hópurinn samanstendur að miklu leyti af leikmönnum sem hafa spilað lengi saman og það virðist sem það vanti aðeins upp á metnaðinn fyrir að standa sig vel í deildinni. Við erum miklu betri í Evrópu- keppninni og það er eins og menn leggi sig einhvern veginn miklu frekar fram þar,“ segir Bjarni og bætir því við að liðið stefni að sjálfsögðu að komast í úrslitin í EHF-keppninni. Bjarni kveðst hafa bætt sig töluvert sem leikmaður, enda varla annað hægt í jafn sterkri deild og sú franska er. „Deildin er sterkari en ég átti von á og liðin hér æfa gríðarlega mikið, allt að tíu sinnum í viku fyrir utan sjálfa leikina,“ segir Bjarni, sem spilar eingöngu í horn- inu en ekki neitt í skyttustöðunni eins og hann gerði jafnan hjá ÍR í fyrra. „Ég hef ekkert að gera í skyttuna í þessum alþjóðlega bolta. Ég er allt of lítill.“ HANDBOLTAMAÐURINN BJARNI FRITZSON: HEFUR KOMIÐ SÉR VEL FYRIR Í FRAKKLANDI Er allt of lítill til að spila í skyttustöðunni > Ísland fellur um eitt sæti Íslenska landsliðið í knattspyrnu er í 97. sæti á styrkleikalista alþjóða knatt- spyrnusambandsins, FIFA, sem gefinn var út í gær. Liðið hefur fallið um eitt sæti frá því í febrúar og tvö sæti frá því á sama tíma í fyrra. Frá því að síðasti listi var gefinn út hefur landsliðið leikið einn leik, vináttu- leik gegn Trínidad og Tóbagó í London sem tapaðist, 2-0. Brasilíumenn er sem fyrr í efsta sæti listans en Tékkar eru í öðru sæti og Hollendingar í því þriðja. Þá eru Bandaríkjamenn komnir upp í fimmta sæti listans. Lacetti Bílabúð Benna - Tangarhöfða 8-12 Sími 590 2000 - www.benni.is Opnunartilboð! DVD ferðaspilari fylgir öllum nýjum Chevrolet bílum Chevrolet gæði - frábært verð ! FÓTBOLTI Enski miðjumaðurinn Ian Jeffs, sem leikið hefur með ÍBV síðustu þrjú ár, fór nýlega á reynslu til sænska úrvalsdeildar- liðsins Örebro og var þar í fjóra daga. Jeffs lék tvo æfingaleiki með liðinu á þeim tíma og að því er fram kemur á heimasíðu félags- ins stóð Jeffs sig mjög vel, en hann er samningsbundinn Eyjamönn- um út næsta sumar. Þess má geta að Hlynur Stefánsson, fyrrum leikmaður ÍBV, lék með Örebro á sínum tíma. Að sögn Viðars Elíassonar, for- manns knattspyrnudeildar ÍBV, hafði félagið ekkert heyrt í for- ráðamönnum Örebro og því var málið í biðstöðu. „En við viljum alls ekki missa Jeffs. Hann er algjör lykilmaður hjá okkur,“ sagði Viðar, en Jeffs hefur leikið 48 leiki með liði ÍBV í Landsbanka- deildinni síðustu þrjú ár og skorað í þeim átta mörk. - vig Ian Jeffs fór á reynslu til Örebro í Svíþjóð: Viljum ekki missa hann IAN JEFFS Hefur verið einn albesti leikmað- ur ÍBV síðustu ár og má liðið illa við því að missa hann. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Halldór í tveggja leikja bann Halldór Karlsson, fyrirliði Njarðvíkur, var í gær dæmdur í tveggja leikja bann af aganefnd KKÍ í kjölfar brottrekstursvillu sem hann hlaut í leik gegn Keflavík í Iceland Express-deildinni sl. fimmtudag. Halldór var kærður fyrir óhófleg mót- mæli við dómara en þetta er í annað sinn sem hann er kærður til aganefndar í vetur. HANDBOLTI Bæði Arnóri og Sigfúsi Sigurðssyni var tjáð á dögunum af hálfu Magdeburg að þjónustu þeirra væri ekki óskað lengur en fram á næsta sumar. Arnór er samningsbundinn Magdeburg fram á sumar 2007 en eðli málsins samkvæmt vill hann ekki vera lengur hjá félagi sem vill ekki nýta krafta hans og því er hann farinn að líta alvarlega í kringum sig en Magdeburg mun ekki standa i vegi fyrir brottför hans finni hann sér nýtt félag. „Það eru tvö þýsk úrvalsdeild- arfélög búin að setja sig í samband við mig og ég funda væntanlega með þeim í næstu viku,“ sagði Arnór en það er ekki eingöngu áhugi frá Þýskalandi á skyttunni öflugu frá Akureyri. „Ég hef feng- ið fyrirspurnir frá liðum í Dan- mörku, Svíþjóð og Frakklandi en hef ýtt þeim til hliðar á meðan ég skoða mín mál í Þýskalandi því hér vil ég helst vera. Þýskaland er klárlega minn besti kostur.“ Arnór vildi ekki tala um hvaða lið það væru sem hefðu áhuga á honum en sagði þau bæði sigla frekar lygnan sjó í úrvalsdeildinni og ekki líkleg til að falla. „Þetta gæti verið fínn kostur fyrir mig enda fengi ég örugglega að spila meira hjá þessum liðum en ég hef fengið hjá Magdeburg og ég þarf klárlega á því að halda að spila meira á meðal þeirra bestu ef ég á að bæta minn leik,“ sagði Arnór. henry@frettabladid.is Áhugi frá Þýskalandi og víðar Arnór Atlason þarf ekki að kvíða framtíðinni þótt þýska liðið Magdeburg vilji ekki nýta krafta hans áfram. Tvö þýsk úrvalsdeildarfélög hafa sýnt honum áhuga, sem og lið frá Danmörku, Svíþjóð og Frakklandi. ARNÓR ATLASON Mun ræða við tvö þýsk félög fljótlega en Magdeburg hefur ekki áhuga á að nýta krafta hans lengur. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA FÓTBOLTI Margir stuðningsmenn Liverpool stukku hæð sína í loft upp í gær þegar Sky-fréttastofan greindi frá því að knattspyrnu- stjóri félagsins, Rafael Benitez, hefði framlengt samning sinn við félagið. Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð spænska stjór- ans síðustu vikur en fullvíst var talið að spænska stórliðið Real Madrid myndi freista hans veru- lega. Af því verður augljóslega ekki eftir þessi tíðindi. Í frétt Sky kemur einnig fram að Benitez hefði framlengt samn- ing sinn við félagið um eitt ár. Samningur hans nær því til árs- ins 2010. - hbg Gleðifréttir fyrir stuðningsmenn Liverpool: Benitez búinn að framlengja RAFAEL BENITEZ Er ekki búinn að ljúka ætlunarverki sínu hjá Liverpool. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.