Fréttablaðið - 16.03.2006, Page 66
16. mars 2006 FIMMTUDAGUR50
KÖRFUBOLTI Alls níu þjálfarar af tólf
tilnefndu Friðrik sem besta leik-
mann tímabilsins og undirstrikar
það hversu mikla yfirburði hann
hafði í kjörinu.
Þjálfararnir voru beðnir um að
tilnefna þrjá bestu leikmenn tíma-
bilsins að þeirra mati og voru gefin
fimm stig fyrir þann besta, þrjú
stig fyrir þann næstbesta og eitt
stig fyrir þann þriðja besta. Taka
skal fram að þjálfurum var ekki
heimilt að velja leikmann úr eigin
liði og því voru það í raun aðeins
tveir þjálfarar sem töldu einhvern
annan en Friðrik vera besta leik-
manninn í ár, en Einar Árni
Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur,
mátti ekki tilnefna Friðrik.
Friðrik hlaut alls 46 stig, rétt
rúmum þriðjungi meira en Ing-
valdur Magni Hafsteinsson úr
Snæfelli, sem varð í öðru sæti með
30 stig. Páll Axel Vilbergsson úr
Grindavík varð síðan þriðji í kjör-
inu með 14 stig.
Alls fengu sjö leikmenn atkvæði
í kjörinu en Magnús Gunnarsson,
leikmaður Keflavíkur, er fjórði
besti leikmaður deildarinnar að
mati þjálfara og Þorleifur Ólafsson
úr Grindavík sá fimmti. Félagarnir
úr Njarðvík, Jóhann Ólafsson og
Brenton Birmingham, lentu síðan í
6. og 7. sæti en Jóhann hlaut þrjú
stig og Brenton eitt.
Besta tímabilið á ferlinum
„Það hefur gengið mjög vel og ég
get varla sagt annað en að þetta
komi mér á óvart. Þetta er mjög
ánægjulegt og bætir kannski
aðeins upp fyrir vonbrigðin gegn
Keflavík í síðasta leiknum,“ sagði
Friðrik þegar Fréttablaðið færði
honum tíðindin.
Friðrik, sem verður brátt þrí-
tugur, hefur átt frábært tímabil
með Njarðvíkingum í ár og átt hvað
stærstan þátt í velgengni liðsins á
tímabilinu. Hann varð næststiga-
hæsti leikmaður liðsins á eftir Jeb
Ivey í vetur með 17,1 stig að meðal-
tali í leik auk þess sem hann hefur
hirti 11,3 fráköst að meðaltali í
leik. Hann hefur auk þess varið um
tvo skot í leik og gefið 3,3 stoðsend-
ingar að meðaltali. Skotnýting hans
er með besta móti, eða 54,2% sem
er fimmta besta nýting deildarinn-
ar og þá má ekki gleyma því að
Friðrik er maðurinn sem bindur
saman vörn Njarðvíkurliðsins, sem
samkvæmt tölfræðinni er sú besta
í deildinni.
„Mér finnst þetta hafa verið
besta tímabilið mitt á ferlinum. Ég
finn það alveg,“ segir Friðrik, sem
tekið hefur stórstígum framförum
í vetur þegar horft er til flestra af
mikilvægustu þáttum tölfræðinn-
ar. Hann hefur bætt stigaskorið frá
því í fyrra um rúm þrjú stig í leik
og einnig bætt sig verulega frá-
köstum og stoðsendingum. Friðrik
þakkar árangurinn þrotlausum
æfingum síðasta sumar.
„Ég var í þéttri dagskrá með
landsliðinu í sumar og síðan tók við
langt undirbúningstímabil hjá
Njarðvík. að er að skila sér í góðu
formi. Síðan er ég náttúrulega í frá-
bæru liði með frábærum leikmönn-
um og þeir eiga stærstan þátt í þess-
ari velgengni minni á tímabilinu,“
segir Friðrik, sem telur Njarðvíkur-
liðið eiga mikið inni fyrir úrslita-
keppnina. „Við höfum alls ekki
verið að spila okkar besta bolta eftir
jól og getum bætt okkur mikið. Von-
andi höfum við bara verið að spara
okkur fyrir úrslitakeppnina.“
Friðrik er á sömu línu og þjálf-
ararnir þegar hann er spurður um
hvern hann telji hafa staðið upp úr
í deildinni í vetur. „Magnús og Páll
Axel hafa átt frábært tímabil ef
horft er til sóknarleiksins en Magni
hefur hefur verið ótrúlega drjúgur
fyrir Snæfell í vetur, bæði í sókn
og vörn. Hann fengi líklega mitt
atkvæði.“ vignir@frettabladid.is
Friðrik bestur að mati þjálfara
Friðrik Stefánsson, miðherji Njarðvíkur, er besti leikmaður Intersport-deildarinnar í körfubolta í ár að mati
allra þjálfara deildarinnar. Friðrik hafði mikla yfirburði í kjörinu, sem allir þjálfarar deildarinnar tóku þátt í.
Ingvaldur Magni Hafsteinsson úr Snæfelli varð þriðji og Páll Axel Vilbergsson, Grindavík, þriðji.
MAGNI HAFSTEINSSON Hefur tekið að sér
hlutverk leiðtogans í liði Snæfells eftur að
Hlynur Bæringsson og Sigurður Þorvalds-
son hurfu á braut í sumar og spilað frábær-
lega í vetur, jafnt í sókn sem vörn.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FRIÐRIK STEFÁNSSON Segir sjálfur að tíma-
bilið í ár hafi verið hans besta á ferlinum.
Friðrik hefur bætt sig í langflestum þáttum
tölfræðinnar og verið einn af lykilmönnun-
um á bakvið velgengni Njarðvíkur-liðsins í
vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR
BESTI LEIKMAÐUR TÍMABILSINS
Stig
1. Friðrik Stefánsson, Njarðvík 46
2. Ingvaldur Magni Hafsteinsson. Snæfell 30
3. Páll Axel Vilbergsson, Grindavík 14
4. Magnús Gunnarsson - Keflavík 9
5. Þorleifur Ólafsson, Grindavík 5
6. Jóhann Ólafsson, Njarðvík 3
7. Brenton Birmingham, Njarðvík 1
STIGAHÆSTU LEIKMENN
1. A.J. Moey, Keflavík 28,9
2. Jeremiah Johnson, Grindavík 27,5
3. Clifton Cook, Hamar/Selfoss 27,3
4. Nemjana Sovic, Fjölnir 26,4
5. Jeb Ivey, Njarðvík 24,2
6. Theo Dixon, ÍR 24,0
7. Jovan Zdravevski, Skallagrímur 23,6
8. Eugene Christopher, Höttur 22,5
9. Páll Axel Vilbergsson, Grindavík 20,7
10. Nate Brown, Snæfelli 19,7
FLEST FRÁKÖST
1. George Byrd, Skallagrímur 16,5
2. Friðrik Stefánsson, Njarðvík 11,3
3. A.J. Moey, Keflavík 10,7
4. Ómar Örn Sævarsson, ÍR 10,1
5.-6. Igor Beljanski, Snæfelli 10,0
5.-6. Mario Myles, Þór Ak. 10,0
7. Svavar Páll Pálsson, Hamar/Selfoss 8,6
8.-9. Kristinn Jónasson, Haukar 8,4
8.-9. Páll Kristinsson, Grindavík 8,4
10. Clifton Cook, Hamar/Selfoss 7,9
FLESTAR STOÐSENDINGAR
1. Jeremiah Johnson, Grindavík 7,0
2. Sævar Ingi Haraldsson, Haukar 6,8
3. Nate Brown, Snæfelli 6,7
4. Jeb Ivey, Njarðvík 5,9
5. Dimitar Karadzovski, Skallagrímur 5,3
6. Arnar Freyr Jónsson, Keflavík 5,1
7. Lárus Jónsson, Fjölnir 4,7
8.-9. Clifton Cook, Hamar/Selfoss 4,4
8.-9. Mario Myles, Þór Ak. 4,4
10. Hörður A. Vilhjálmsson, Fjölnir 4,2
FLEST VARIN SKOT
1. Egill Jónasson, Njarðvík 3,62
2. George Byrd, Skallagrímur 2,63
3. Friðrik Stefánsson, Njarðvík 1,91
4. Peter Gecolovsky, Höttur 1,40
5. Þorsteinn Húnfjörð, Þór Ak. 1,36
6. Ingvaldur M. Hafsteinsson, Snæfell 1,27
7. Nedsad Biberovic, Grindavík 1,25
8. Ómar Örn Sævarsson, ÍR 1,18
9. Jón Nordal Hafsteinsson, Keflavík 1,11
10. AJ Moey, Keflavík 0,84
FLESTIR STOLNIR BOLTAR
1. Clifton Cook, Hamar 3,50
2. Sævar Ingi Haraldsson, Haukar 3,18
3. Jeremiah Johnson, Keflavík 3,16
4. Nate Brown, Snæfell 3,11
5. Brenton Birmingham, Njarðvík 3,09
6. Eugene Cristopher, Höttur 3,00
7. Theo Dixon, ÍR 2,27
8. Eiríkur Önundarson, ÍR 2,19
9. Helgi Reynir Guðmundsson, Snæfell 2,18
10. Mario Myles, Þór Ak. 2,00
BESTA VÍTANÝTING
1. Nemjana Sovic, Fjölni 86,4%
2. Jeb Ivey, Njarðvík 83,5%
3.-4. Þorleifur Ólafsson, Grindavík 82,9%
3.-4. Magnús Gunnarsson, Keflavík 82,9%
5. Jón Ólafur Jónsson, Snæfell 82,5%
6. Marvin Valdimarsson, Fjölni 82,0%
7. Sveinbjörn Claessen, ÍR 81,6%
8. Sigurður Þ. Einarsson, Haukar 80,8%
9. Pétur M. Sigurðss., Skallagrímur 80,4%
10. Mark Woodhouse, Þór Ak. 80,0%
BESTA 3-STIGA SKOTNÝTING
1. Brynjar Þór Björnsson, KR 43,9%
2. Jeb Ivey, Njarðvík 43,7%
3. Páll Axel Vilbergsson, Grindavík 43,3%
4. Guðlaugur Eyjólfsson, Grindavík 43,2%
5. Gunnar Einarsson, Keflavík 43,1%
6. Jovan Zadrevski, Skallagrímur 42,9%
7. Pétur M. Sigurðss., Skallagrímur 42,4%
8. Jeremiah Johnson, Grindavík 41,6%
9. Eugene Cristopher, Höttur 41,4%
10. Nemjana Sovic, Fjölnir 41,4%
BESTA 2-STIGA SKOTNÝTING
1. Brenton Birmingham, Njarðvík 64,1%
2. A.J. Moey, Keflavík 61,1%
3. Magnús Gunnarsson, Keflavík 60,6%
4. Jón N. Hafsteinsson Keflavík 60,3%
5. Jovan Zadrevski, Skallagrímur 58,4%
6. Nemjana Sovic, Fjölni 58,0%
7. George Byrd, Skallagrímur 58,0%
8. Níels Páll Dungal, KR 58,0%
9. Igor Beljanski, Snæfell 57,6%
10. Friðrik Stefánsson, Njarðvík 57,1%
BESTA SKOTNÝTING
1. Jón N. Hafsteinsson Keflavík 59,7%
2. A.J. Moey, Keflavík 58,9%
3. Ómar Örn Sævarsson, ÍR 54,8%
4. Nemjana Sovic, Fjölni 54,4%
5. Friðrik Stefánsson, Njarðvík 54,2%
6. Igor Beljanski, Snæfell 54,0%
7. George Byrd, Skallagrímur 53,6%
8. Jovan Zadrevski, Skallagrímur 52,4%
9. Páll Kristinsson, Grindavík 51,1%
10. Brenton Birmingham, Njarðvík 51,0%
*ATH. Aðeins þeir leikmenn sem spiluðu
a.m.k. helming leikja tímabilsins, eða 11
talsins, eru gjaldgengir á listana.
KÖRFUBOLTI Jeb Ivey úr Njarðvík,
A.J. Moey úr Keflavík og
Jeremiah Johnson úr Grindavík
hlutu allir fjögur atkvæði frá
þjálfurum landsins í kjöri á besta
erlenda leikmanni deildarinnar.
Þjálfararnir voru aðeins
beðnir um að velja einn erlendan
leikmann sem þeir töldu vera
þann besta á tímabilinu og var
ekki boðið upp á þann möguleika
að velja þá tvo sem koma þar á
eftir, líkt og gert var í valinu á
besta íslenska leikmanninum.
Fyrir vikið urðu niðurstöðurnar
ekki eins nákvæmar en þó má
segja að það sé vel við hæfi að
erlendu leikmennirnir í þremur
af allra bestu liðum deildarinnar
í vetur deili með sér titlinum.
- vig
Besti erlendi leikmaður Intersport-deildarinnar:
Suðurnesjamennirnir
fengu jafnmörg atkvæði
ÞRÍR BESTU A.J. Moey, Jeb Ivey og
Jeremiah Johnson eiga það sam-
eiginlegt að spila með liðunum á
Suðurnesjunum. Allir hafa þeir verið
frábærir í vetur.
BESTI ERLENDI LEIKMAÐURINN
Stig
1.-3. Jeb Ivey, Njarðvík 4
1.-3. A.J. Moey, Keflavík 4
1.-3. Jeremiah Johnson, Grindavík 4
TÖLFRÆÐIN Í VETUR
KÖRFUBOLTI Íslandsmeistarararnir
í Keflavík taka á móti Fjölni í átta
liða úrslitakeppni Iceland-
Express deildar karla í kvöld.
Benedikt Guðmundsson, þjálfari
Fjölnis, er hvergi banginn fyrir
leikina en Keflavík hefur unnið
alla þrjá leiki liðanna á tímabil-
inu.
„Við getum unnið Keflavík.
Það er ekkert lið í deildinni ósigr-
andi. Vissulega verður við ramm-
an reip að draga hjá okkur enda
er Keflavík með besta liðið í dag
samkvæmt töflunni. En við ætlum
að koma á óvart í úrslitakeppn-
inni og byrja strax,“ sagði Bene-
dikt, sem býst við spennandi
úrslitarimmu.
Keflavík hefur orðið Íslands-
meistari undanfarin þrjú ár og
hafa á reynslumiklu liði á að skipa.
„Þeir eru með toppleikmenn í
öllum stöðum og mikla breidd og
hafa sigurhefðina með sér. Þeir
kunna þetta allt saman á meðan
við erum enn að læra og því erum
við ekkert að ráðast á garðinn þar
sem hann er lægstur. En við erum
hvergi bangnir,“ sagði Benedikt.
Keflvíkingar hafa á frábæru
liði á að skipa en Benedikt telur
einn mann bera af í liðinu. „A.J.
Moey er frábær leikmaður sem
jaðrar við að vera snillingur. Hann
er ekki þessi leikmaður sem er
bara með tölur sjálfur heldur
gerir hann liðið betra. Hann er
gullmoli fyrir Keflavík.”
- hþh
Benedikt Guðmundsson, þjálfari Fjölnis:
Við ætlum okkur að koma
á óvart í úrslitakeppninniKÖRFUBOLTI Snæfell heimsækir KR í kvöld í átta liða úrslitum Iceland
Express-deildar karla í körfu-
knattleik. Snæfell hefur komist í
undanúrslit síðustu tvö ár en í
bæði skiptin hafa Keflvíkingar
orðið þeirra banabiti. „Máltækið
segir allt er þá þrennt er,“ sagði
Magni Hafsteinsson, fyrirliði
Snæfells, glaðbeittur en þjálfarar-
nir í deildinni kusu hann annan
besta leikmanninn í deildinni í
vetur.
„Við getum alveg farið alla leið.
fyrsta skrefið er að klára KR-inga,
sem verður ekki auðvelt því við
töpuðum báðum leikjunum gegn
þeim í vetur. KR er með gott lið,
sérstaklega varnarlega eins og
við. Liðin eru áþekk og enginn
einn leikmaður sem ber af í liðun-
um heldur skipta liðsheildirnar
meira máli,“ sagði Magni.
Liðin hafa mæst fjórum sinn-
um í vetur og alltaf hefur lítið
verið skorað en leikirnir þó æsi-
spennandi. Í Powerade-bikar-
keppninni unnu liðin sitt hvorn
leikinn en Í Iceland Express-deild-
inni vann KR svo báða leikina. Af
þessum tölum að dæma má því
eiga von á spennandi leikjum.
- hþh
Magni Hafsteinsson, fyrirliði Snæfells:
Allt er þá þrennt er
MAGNI HAFSTEINSSON Hefur átt frábært
tímabil í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KÖRFUBOLTI Eins og síðustu ár verð-
ur sjónvarpsstöðin Sýn með bein-
ar útsendingar frá fjölmörgum
leikjum í úrslitakeppni Intersport-
deildarinnar. Sú fyrsta verður í
kvöld þegar leikur KR og Snæfells
verður sýndur kl. 19.45.
Úrslitakeppni körfuboltans:
Í beinni á Sýn