Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.03.2006, Qupperneq 70

Fréttablaðið - 16.03.2006, Qupperneq 70
 16. mars 2006 FIMMTUDAGUR54 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 opið alla laugardaga 10-14 Gómsætir fiskréttir í sparifötum LÁRÉTT: 2 magi 6 píla 8 planta 9 andmæli 11 gelt 12 gera kunnugt 14 hvæsa 16 guð 17 hækkar 18 tímabils 20 ónefndur 21 köttur. LÓÐRÉTT: 1 tónlistartegund 3 mannþvaga 4 vöruhús 5 augnhár 7 sakamálasaga 10 utan 13 nálægar 15 kjáni 16 rönd 19 vörumerki. LAUSN: LÁRÉTT: 2 vömb, 6 ör, 8 sar, 9 nei, 11 gá, 12 kynna, 14 fnæsa, 16 ra, 17 rís, 18 árs, 20 nn, 21 kisi. LÓÐRÉTT: 1 fönk, 3 ös, 4 magasín, 5 brá, 7 reyfari, 10 inn, 13 nær, 15 asni, 16 rák, 19 ss. Teiknimyndahöfundurinn og skáld- ið Hugleikur Dagsson hefur nóg fyrir stafni þessa dagana. Í lok mánaðarins kemur út bókin Fermið okkur en auk þess situr Hugleikur nú sveittur uppi í Svarfaðardal og skrifar söngleik fyrir Þjóðleikhúsið. Einnig lauk Hugleikur nýverið gerð auglýsingar fyrir slúður- tímaritið Séð & Heyrt sem þegar hefur birst á skjánum við nokkra hrifningu áhorfenda en þar syngja þjóðþekktir einstaklingar um drauminn að birtast í blaðinu og svífur kímni Hugleiks yfir vötn- um. Höfundurinn var reyndar að ná sér eftir flensuskot þegar Frétta- blaðið náði tali af honum en hann taldi sig óðum vera að braggast. „Fermið okkur fjallar um að full- orðnast,“ svarar Hugleikur þegar hann er spurður út í nýjasta afkvæmið sitt. „Hún er í sama stíl og hinar „Okkur“ bækurnar nema Fermið okkur er línuleg saga í stað margra stuttra,“ bætir hann við. Hugleikur segir það vera allt öðruvísi að skrifa eina samfellda sögu en margar litlar og að ein- hverju leyti auðveldara. „Ég spái aðeins meira í bygginguna þegar sagan er svona samfelld en um leið og hún er tilbúin flýtur þetta áfram,“ útskýrir Hugleikur. Hann gerði nemendur Menntaskólans á Akureyri að tilraunadýrum á föstu- daginn og las fyrir þá söguna með skjávarpasýningu. „Þeim fannst hún nokkuð góð,“ segir Hugleikur en bókin er stútfull af einstökum húmor skáldsins. Járnin eru mörg hjá Hugleiki og hann er í óða önn að leggja lokahönd á söngleikinn Þungun sem Davíð Þór Jónsson semur tón- listina við en samstarf þeirra bar góðan ávöxt í sýningu Nemenda- leikhússins á myndasögum hans. „Söngleikurinn fjallar um stúlku sem verður ólétt og þarf að ákveða sig hvort hún vilji fara í fóstur- eyðingu eða ekki,“ segir Hugleik- ur en upphaflega bar söngleikur- inn nafnið Abortion. „Ég reifst við Ilmi leikmyndahönnuð um nafnið, fór loks á google og uppgötvaði að það er annað leikrit sem ber sama nafn en það gengur náttúrlega ekki,“ útskýrir Hugleikur en ekki er enn ljóst hvenær verkið fer á fjalirnar. Margir hafa eflaust rekið upp stór augu þegar ný Séð & Heyrt auglýsing leit dagsins ljós og þótt- ust einhverjir kannast við hand- verk Hugleiks þar. Sjálfur segist hann þurfa að vinna fyrir sér og viðurkennir að hafa selt sálu sína. „Hver hefur annars ekki gert það?“ spyr Hugleikur. „Annars finnst mér Séð & Heyrt með flottar fyrirsagnir þótt ég hafi aldrei lesið það.“ freyrgigja@frettabladid.is HUGLEIKUR DAGSSON: SELDI SÁLU SÍNA TIL SÉÐ & HEYRT Söngleikur um óléttu HUGLEIKUR DAGSSON Hefur í nógu að snúast þessa dagana því ný bók er væntanleg í lok mánaðarins og hann er að leggja lokahönd á söngleikinn Þungun auk þess að hafa gert auglýsingu fyrir slúðurtímaritið Séð & Heyrt. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Í Fréttablaðinu á þriðjudaginn var umfjöllun um persónur og leikend- ur í Mýrinni sem senn verður kvik- mynduð. Þar var Elva Ósk sögð leika aðstoðarkonu Erlends, Elín- borgu, en mannabreytingar hafa átt sér stað í leikhópnum því Ólafía Hrönn Jónsdóttir hefur verið ráðin í hennar stað. Að sögn Baltasars Kormáks, leikstjóra myndarinnar, var þetta gert vegna þess að Elva Ósk var við tökur á annarri kvik- mynd fyrir norðan og engin leið til að samræma þessi tvö verkefni. „Þetta kemur hins vegar ekki að sök því Ólafía er engu síðri leik- kona en Elva,“ bætir Baltasar við og áréttar að þetta hafi allt verið gert í mesta bróðerni. Tökur hefjast á mánudaginn en þá mun tökuliðið leggja Norður- mýrina undir sig enda glæpur bókarinnar framinn þar. Baltasar og samstarfsmenn hans voru hins vegar að undirbúa tökur í Grinda- vík þegar Fréttablaðið náði tali af honum en mikil spenna ríkir innan herbúða Mýrarinnar. Aðdáendur bóka Arnaldar Ind- riðasonar bíða margir hverjir spenntir eftir því að sjá hvernig til tekst enda ófáir búnir að gera sér einhverja mynd af vinsælasta rannsóknarlögreglumanni þjóð- arinnar. Þeir sem vilja taka þátt í kvikmyndini geta haft samband við lisu@blueeyes.is og sent mynd og geta jafnvel átt von á því að enda sem lögreglumenn í mynd- inni.“ Annars starfar lögreglan í Reykjavík og rannsóknardeild hennar náið með okkur til að öll smáatriði séu rétt,“ segir Balta- sar. -fgg Ólafía verður Elínborg í Mýrinni ÓLAFÍA HRÖNN Hefur tekið við hlutverki Elínborgar af Elvu Ósk sem gat ekki tekið þátt vegna anna á öðrum vígstöðum. FRÉTTABLAÐIÐ / TEITUR FRÉTTIR AF FÓLKI S iv Friðleifsdóttir heldur úti skemmtilegri dagbók á vefnum þar sem forvitnast má um ferðir nýskipaðs heilbrigðisráðherra. Margt drífur á daga Sivjar en á þriðjudaginn mátti meðal annars sjá að rúm klukkustund fór í upptökur á þættinum Strákarnir sem sýndir eru á Stöð 2 við miklar vinsældir. „Stákarnir í „Strákunum“ eru með skondinn þátt þar sem maður svar- ar stórskrýtnum spurningum, fer flatt út úr öllu saman og endar upp í flatsæng,“ skrifar Siv í dagbók sína en áhorfendur mega eiga von á að sjá afrakst- urinn um miðja næstu viku. Einhverjir settu stórt spurningarmerki við fréttir þess efnis að Silvía Nótt væri að gera allt brjálað í Japan og töldu að hér væri bara um enn eina markaðsbrelluna að ræða hjá sjónvarps- stjörnunni. Á vef Mannlífs er því hins vegar haldið fram að stærra verkefni en Eurovision bíði þessarar sjónvarpsfígúru og að það eigi sér engin fordæmi. Vitað er að myndavélar hafa fylgt Silvíu við hvert fótmál en það er óstaðfest hvort Silvía: The Movie verði að raunveru- leika þegar tekur að hægjast um hjá drottningunni. Ljóst þykir þó að hamra eigi járnið á meðan það er heitt og því nokkuð gefið að einhverjar fréttir eigi eftir að berast úr herbúðum ,”nýstirn- isins”. Gaukur Úlfarsson, einn skapari dívunnar, var hins vegar þögull sem gröfin þegar Fréttablaðið náði í skottið á honum við fundarhöld og sagðist ekkert hafa í hendi, enn sem komið væri. Margir velta eflaust vöngum yfir því hvernig leikkonunni Ágústu Evu tekst að koma öllu í verk enda eru framundan tökur á Mýrinni þar sem hún fer með hlutverk Evu Lindar, ógæfu- dóttur Erlends rannsóknarlög- reglumanns. Gaukur upplýsti að hver einasta mínúta í lífi henn- ar væri skipulögð frá toppi til táar og gæfist henni því lítill tími til einkalífs. - fgg Morgunmaturinn: Keyptu bankabygg frá Móður jörð og útbúðu grautinn sem mælt er með aftan á pokan- um. Hann er stútfullur af næringarefnum, kanil, eplum og góðri orku inn í daginn. Afþreyingin: Sestu niður og skipuleggðu sumarfríið þitt. Farðu á bókasafn- ið og náðu þér í ferðabækur og gerðu upp hug þinn hvort það er Ameríka eða Akur- eyri sem heillar þig meira þessi misserin. Svo er alltaf notalegt að heimsækja Ítalíu. Hádegisverðurinn: Taktu fjölskyld- una í göngutúr niður Laugaveg- inn. Stoppaðu á veitingastaðnum Deli í Bankastræti og veldu þér pítsur eða pastasalöt ásamt drykkjar- föngum. Borðaðu nestið við Tjörnina og ímyndaðu þér að þú sért staddur í erlendri stórborg. Bíómyndin: Heimsóttu Hinsegin bíódaga sem byrja í Regnboganum í dag. Ef þú ert ekki búin/n að sjá Brokeback Mountain skaltu drífa þig að sjá hana en hún verður til sýninga í Regnboganum á meðan á hátíðinni stendur. Geisladiskurinn: Keyptu þér safndisk með Elton John og syngdu hástöfum með öllum lögunum. Ef þetta framkallar ekki gott skap þá máttu hundur heita. Skemmtun- in: Mars er partímánuður. Bjóddu í kokk- teil heim til þín og reyndu að vera svolítið hress. Ekki væri verra að tengja Singstar-græj- ur við magn- ara. Áður en þú veist af er ótrúlegasta fólk farið að raula. HELGIN OKKAR... [ VEISTU SVARIÐ ] 1 Talið er að álftin hafi orðið fyrir bíl. 2 Um fimm milljarða króna. 3 Gabriel Sargissian. HRÓSIÐ ...fá íslenskir húðlæknar fyrir að fara í herferð gegn ljósabekkjum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.