Fréttablaðið - 03.04.2006, Page 2

Fréttablaðið - 03.04.2006, Page 2
2 3. apríl 2006 MÁNUDAGUR www.expressferdir.is Express Fer›ir, Grímsbæ, Efstalandi 26, sími 5 900 100 Nánar á www.expressferdir.is Fer›askrifstofa í eigu Iceland Express FÓTBOLTAVEISLA Í MANCHESTER 79.900 kr. INNIFALI‹: 21.–24. APRÍL Laugardaginn 22. apríl mætast Chelsea og Liverpool í undanúrslitum í ensku bikarkeppninni á Old Trafford í Manchester. Hvort liðið kemst í úrslitaleikinn í Cardiff? Ekki missa af þessum hörkuleik! Flug og flugvallaskattar, rútur til og frá Manchester, íslensk fararstjórn, 3 nætur á hóteli með morgunverði og miði á leik Chelsea og Liverpool. Miðað er við að tveir séu saman í herbergi. CHELSEA– LIVERPOOL FÓTBOLTAFERÐ TIL MANCHESTER LÍKAMSÁRÁS Maður um tvítugt slas- aðist á höfði eftir að maður sem hann hafði deilt við lamdi hann með kúbeini í höfuðið. Árásin var gerð eftir dansleik á Selfossi á laugardag. Árásarmaðurinn var í slagtogi við tvo aðra menn sem rifust við manninn sem ráðist var á, áður en kúbeinið var dregið fram. Lögreglan kom á vettvang um þrjú leytið í fyrrinótt og lá þá mað- urinn óvígur eftir fyrir framan skemmtistaðinn. Hann var fluttur á heilsugæslustöð en meiðsl hans virtust ekki vera alvarleg, þrátt fyrir nokkra áverka. Svanur Kristinsson, varðstjóri í lögreglunni á Selfossi, sagði árás- ina litna alvarlegum augum. „Það er mikil mildi að ekki fór verr að þessu sinni. Það er grafalvarlegt mál þegar ráðist er á mann með kúbeini og því hefði maðurinn sem varð fyrir árásinni getað slasast meira en hann gerði.“ Mennirnir þrír sem grunaðir eru um aðild að árásinni voru hand- teknir og gistu þeir í fangageymsl- um lögreglunnar á Selfossi i fyrri- nótt. Þeir voru yfirheyrðir í gær og þeim sleppt að því loknu. - mh Alvarleg líkamsárás eftir dansleik á Selfossi: Laminn í höfuð með kúbeini AF VETTVANGI ÁRÁSARINNAR Varðstjóri í lögreglunni á Selfossi segir árásina hafa verið alvar- lega, en mildi þykir að ekki fór verr. FRÉTTABLAÐIÐ/EGILL SKATTAMÁL Stærstu góðgerðarfélög hér á landi greiða milli tíu og tut- tugu milljónir króna á ári í virðis- aukaskatt af starfi sínu. Tæp tvö ár eru síðan Jónas Guð- mundsson hagfræðingur tók saman skýrslu um skattaumhverfi góð- gerðarsamtaka hér á landi og sýndi fram á að slíkum samtökum eru búnar þrengri skorður hér en víða í nágrannalöndum okkar. Hefur skattastaða félagasam- taka versnað undanfarin ár með slæmum afleiðingum að mati for- svarsmanna hinna ýmsu samtaka þrátt fyrir að svör ráðherra innan ríkisstjórnarinnar hafi verið jákvæð þegar óskað hefur verið eftir endurskoðun. Jónas Þórir Jónasson, fram- kvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkj- unnar, segir brýna þörf á breyting- um, en samtökin reiddu af hendi um fjórar milljónir króna í skatta á síðasta ári sem er sama upphæð og notuð er árlega til uppbyggingar- starfs í Úganda. „Til að setja hlut- ina í samhengi þá duga fjórar millj- ónir króna til að byggja tæplega 35 vatnsbrunna í Malaví og um þetta munar heilmikið. Ég vil sjá að fyrst stjórnvöld geta ekki veitt sérstakar skattaundanþágur vegna þeirra félaga sem safna fé til hjálpar nauðstöddum hvarvetna í heiminum þá verði virðisaukinn beinlínis endurgreiddur.“ Undir þetta taka forsvarsmenn annarra stórra hjálparsamtaka hér á landi en misjafnt er hversu mikið hver samtök greiða í formi virðis- auka. Gróft áætlað greiddi Barna- hjálp Sameinuðu þjóðanna hér á landi um eina milljón í þann skatt á liðnu ári. SOS Barnaþorp greiddu rúmlega tvær milljónir og bæði Barnaheill og ABC hjálparstarf nokkur hundruð þúsund krónur. Skatturinn er tekinn af því sem safnast í söfnunum félaganna. Eins og sjá má á meðfylgjandi töflu úr skýrslu Jónasar eru skatta- undanþágur mun víðtækari í þeim löndum sem Ísland er borið saman við. Þó er þetta ekki algilt. Í Svíþjóð búa þarlendar hjálparstofnanir við svipað skattaumhverfi og finnst hér. albert@frettabladid.is AÐGENGI AÐ VATNI Fyrir sömu upphæð og rennur til ríkisins af söfnunarfé vegna bág- staddra má byggja 150 vatnsbrunna í Afríku svo dæmi sé tekið. Forsvarsmenn góðgerð- arfélaga vilja sjá alla skatta fellda niður vegna starfseminnar ellegar fá peningana til baka sem beina styrki. Ríkissjóður hagnast á góðgerðarstarfi Landsmenn hafa verið örlátir í söfnunum hjálparsamtaka hin síðari ár og hver króna skiptir máli. Söfnunarféð fer að hluta beint til ríkisins í formi skatta. Framkvæmdastjóri Hjálparstafs kirkjunnar segir brýna þörf á breytingum. BÍLVELTA Karlmaður á fertugsaldri slasaðist nokkuð þegar jeppabif- reið hans valt út af veginum upp á Mýrdalsjökul um hádegi í gær. Ökumaðurinn missti stjórn á bíln- um í lausamöl með þeim afleiðing- um að bíllinn valt. Farþega bílsins tókst að komast út áður en bíllinn valt. Ökumaðurinn slasaðist nokkuð á höfði og var fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur. Meiðsl mannsins eru að sögn lögreglunnar í Vík ekki eins alvar- leg og þau litu út í fyrstu, en mað- urinn skarst töluvert í andliti. -mh Bíll valt við Vík í Mýrdal: Ökumaðurinn skarst í andliti JÓNAS ÞÓRIR JÓNASSON SKATTAUNDANÞÁGUR GÓÐGERÐARSAMTAKA Ísland Bandaríkin Bretland Danmörk Frádráttur vegna gjafa fyrirtækja að 0,5 % að 50% Já Já Undanþága frá virðisaukaskatti Nei Já Já Já Réttur til endurgreiðslu innskatts Nei Já Já Já Undanþága frá erfðafjárskatti Nei Já Já Já Undanþága frá fjármagnstekjuskatti Nei Já Já Já SPURNING DAGSINS KR-ingar, haldið þið ekki bara næsta herrakvöld á Goldfinger? Alveg örugglega. Guðjón Guðmundsson er formaður aðalstjórnar KR en nektardansmeyjar voru fengnar á herrakvöld KR sem haldið var á dögunum. FERMINGAR Landsþing ungs fólks fór fram á vegum Samfés í Frí- stundamiðstöðinni Miðbergi í Reykjavík á laugardaginn. Full- trúar á þinginu voru ungt fólk á aldrinum 13 til 16 ára úr félags- miðstöðvum af öllu landinu, valdir af ungmenna- og nemendaráðum. Meðal ályktana þingsins var sú að lagaumhverfið sem snýr að ungl- ingum þurfi að vera skýrara og fermingaraldurinn ætti að vera hærri en fjórtán ár. Stefán Þórsson, talsmaður þings- ins, segir að rætt hafi verið um allt milli himins og jarðar á þinginu, allt frá lagaumhverfi og trúar- bragðafræðslu til gúrkna og kúlu- penna. Komst þingið að þeirri nið- urstöðu að trúarbragðakennslu sé ábótavant í skólum landsins og kenna þyrfti betur fleiri trúarbrögð en kristni. Tók Stefán jafnvel svo djúpt í árinni að leggja þyrfti niður kristnifræði í núverandi mynd. Þingið vildi auka trúarbragða- vitund ungs fólk og sagði Stefán að liður í því væri að hækka ferm- ingaraldur. ,,Ungt fólk er að velja sér trú þrátt fyrir að vera ekki orðið sjálfráða og veit þar að auki lítið um önnur trúarbrögð.“ - sha Landsþing ung fólks á vegum Samfés: Vill hækka fermingaraldur FERMINGARALDUR Þarf að hækka sam- kvæmt ályktun Landsþings ungs fólks. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR NOREGUR Hvalveiðitímabilið í Nor- egi hefst með óvenjulega háum kvóta en ríkisstjórnin hefur gefið leyfi fyrir því að alls 1052 hvalir séu drepnir. Þetta er hæsti hval- veiðikvótinn í Noregi frá því að hvalveiðar voru teknar upp á ný árið 1993. Miklar gagnrýnisraddir beinast nú að Noregi, bæði frá dýraverndunarsinnum um allan heim og ríkisstjórnum nokkurra landa, þar á meðal Bandaríkjanna og Bretlands. Stjórnvöld í Noregi telja það hættulaust að hækka kvótann þetta mikið þar sem hval- veiðar hafi gengið illa sökum slæmra veðurskilyrða. - bg Hvalveiðar hafnar í Noregi: Hæsti kvótinn í þrettán ár FRÁ HVALSKURÐI Stjórnvöld í Noregi hafa heimilað veiðar á 1052 hvölum í ár. TYRKLAND, AP Tayyip Erdogan for- sætisráðherra Tyrklands hefur varað við því að börn og konur séu notuð sem leiksoppar hryðju- verkamanna. Tyrkneskir uppreisnarhópar hafa verið gagnrýndir fyrir að láta börn taka þátt í ofbeldisfullum mótmælaaðgerðum til að fá samúð. Þrjú börn á aldrinum þriggja til níu ára eru meðal átta sem hafa látist síðustu daga í átökum á milli Kúrda og tyrknesku lögreglunnar. Erdogan hvetur foreldra til að banna börnum sínum að taka þátt í mótmælum sem hófust eftir útför fjórtán uppreisnarseggja úr röðum Kúrda. - bg Tyrkneskir uppreisnarhópar: Nota börn í mótmælum RÓM, AP Tugir þúsunda söfnuðust saman í Rómarborg í gær í tilefni þess að ár var þá liðið frá dauða Jóhannesar Páls páfa annars. Benedikt páfi leiddi minningar- athöfn á torginu við Péturskirkj- una og ávarpaði mikinn manns- fjölda út um glugga íbúðarinnar þar sem Jóhannes páll páfi annar lést. „Jóhannes Páll annar dó eins og hann hafði alltaf lifað, í nafni trúarinnar,“ sagði Benedikt páfi. Einnig komu um átta þúsund manns saman í Póllandi til að minnast Jóhannesar. - bg Minningarathöfn í Róm: Tugir þúsunda minntust páfa RÓM Fjöldi fólks minntist Jóhannesar Páls páfa í gær. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES NAUÐLENDING Tveggja hreyfla flugvél þurfti að nauðlenda á Þing- vallaveginum í Mosfellsdal um hálf níu leytið í gærkvöldi vegna vélarbilunar. Engin slys urðu á fólki. Lögregla og sjúkrabíll voru fljótt kölluð til en í fyrstu var talið að fólk sem í flugvélinni var hefði slasast. Þegar Fréttablaðið fór í prent- un var lögreglan enn að störfum á vettvangi en flugvélin hafði ekki verið fjarlægð af veginum. -mh Nauðlending í Mosfellsdal: Nauðlenti vegna bilunar

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.