Fréttablaðið - 03.04.2006, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 03.04.2006, Blaðsíða 6
6 3. apríl 2006 MÁNUDAGUR MENNTAMÁL Ein höfuðástæða þess að Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri eiga við viðvarandi fjár- hagsvanda að stríða er að áætlanir stjórnvalda um fjölgun nemenda eru úr öllum takti við raunveru- leikann. Þannig gera nýjustu áætl- anir ríkisins ráð fyrir fjögurra prósenta meðalfjölgun nemenda á háskólastiginu þegar raunin hefur verið að þeim hefur fjölgað um þrettán prósent. Tölurnar hefur Kjartan Ólafs- son, sérfræðingur við Rannsókn- arstofnun Háskólans á Akureyri, tekið saman en hann segir fjölgun nemenda meginástæðu fjárhags- örðugleika Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri. Eru þetta einu ríkisreknu háskólarnir sem ekki taka skólagjöld af nemendum sínum fyrir utan þá tvo skóla sem heyra undir Landbúnaðarráðu- neytið og njóta mun hærri tekna á hvern nemanda. Undantekningin er Kennaraháskólinn en ástæða þess að sá skóli þarf ekki viðbótar- fjárframlög er að framlag ríkisins á hvern nemanda þar er mun hærra en í HÍ eða HA. Kjartan segir óskiljanlegt af hverju ríkið vanáætli fjölda þeirra sem vilja mennta sig meira svo mikið sem raun ber vitni, en leita þarf aftur til ársins 1986 til að finna árgang þar sem fjölgun nem- enda var undir fjórum prósentum. „Þetta fellur tvímælalaust undir lélega áætlanagerð að mínu mati og er höfuðvandi skólanna. Mögu- lega gengur þetta sem langtíma- markmið en það hefur verið meiri vöxtur en fjögur prósent hvert ár síðan 1991 og stórir árgangar eru á leið úr framhaldsskólunum. Íslendingar eru þokkalega mennt- aðir í samanburði við aðrar þjóðir en flestir eru sammála um að sam- keppnishæfi þjóðanna ráðist af því hversu vel er búið að menntun í hverju landi fyrir sig. Háskóla- nám er fjárfesting til framtíðar alveg eins og vegir og virkjanir.“ albert@frettabladid.is MENNT ER MÁTTUR Framlag ríkis á hvern nemanda er hvað minnst til Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri og er talsvert undir því sem greitt er á hvern nemanda í Listaháskól- anum eða Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri. Vandi háskólanna er of mikill vöxtur Einkareknir háskólar hafa vaxið um tæp 16 prósent og ríkisreknir háskólar um tæp tíu prósent síðustu árin. Áætlanir stjórnvalda gerðu ráð fyrir fjögurra prósenta vexti. Sérfræðingur við Háskólann á Akureyri segir þetta höfuðvanda skólanna. KJARTAN ÓLAFSSON Stjórnvöld vanreikna áhuga á menntun meðal þegna sinna sem veldur því að skólarnir eru fjárvana ár eftir ár. VIÐSKIPTI Fjörutíu missa vinnuna við mjólkurpökkun í Reykjavík þegar stærsta mjólkurbú lands- ins, MS, verður flutt á Selfoss. Þar skapast tuttugu ný störf og segir forstjóri MS, Guðbrandur Sig- urðsson, breytingarnar gerðar í hagræðingarskyni. „Við leggjum mikla áherslu á að afla starfsmönnunum við mjólkurpökkunina annarra starfa innan félagsins,“ segir Guðbrand- ur: „Flutningurinn tekur langan tíma í framkvæmd og lýkur eftir fyrsta ársfjórðung 2008. Við erum að sækjast eftir hagræð- ingu, bæði náum við að nýta tæki, bíla og húsnæði betur og fækka starfsfólki. Þetta er mjög langur aðlögunartími þannig að ein- hverjir koma til með að hætta áður og fara í önnur störf. Það hjálpar okkur og svo getum við boðið fólkinu að starfa á Selfossi, ef það hentar því,“ segir Guð- brandur. Auk flutnings mjólkurpökkun- arinnar fer öll framleiðsla á desert-ostum fram í Búðardal frá næsta ári. Einnig á að endurskipu- leggja dreifingu hjá MS í Reykja- vík og grípa til almennra hagræð- ingaraðgerða á öllum framleiðslustöðum MS. Heildarhagræði af flutningn- um verður um 150 milljónir króna. Byggt verður við húsnæðið á Sel- fossi og það sem losnar í Reykja- vík verður leigt út. Flutnings- kostnaður í heild er metinn á 318 til 389 milljónir króna. - gag VIÐ MJÓLKURPÖKKUN Starfsmaður við vinnu sína í Mjólkursamsölunni áður en hún sam- einaðist Mjólkurbúi Flóamanna á síðasta ári. Fjörutíu missa vinnuna hjá MS í Reykjavík en tuttugu fá vinnu á Selfossi: Flytja og spara 150 milljónir ÍRAN, AP Íranar skutu nýrri sprengiflaug í tilraunaskyni um helgina, sem að sögn yfirmanns flughers Byltingarvarðarins, Hossein Salami, sést ekki á radar- skjám. Jafnframt getur þessi eld- flaug hitt nokkur skotmörk í einu, að hans sögn. Salami tilkynnti um skotið á ríkisrekinni sjónvarpsstöð, og sagði það fara eftir stærð sprengi- odds flaugarinnar hversu langt hún dregur í hvert sinn. Vesturveldin óttast mjög að Íranar séu að þróa kjarnavopn, og hefur Öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna gefið Íran þrjátíu daga frest til að hætta auðgun úrans á heima- velli, en auðgað úran má nota til kjarnorkuvopnaframleiðslu. - smk Íranar prófa sprengiflaug: Sést ekki á radar NOREGUR Norska ríkisstjórnin hefur ákveðið að takmarka olíuleit á norðurskautssvæðum sínum að minnsta kosti til ársins 2010 til að vernda fiskistofna og viðkvæma náttúru þar. Á sama tíma opnar hún fyrir leit í stórum hluta Barentshafsins, og enginn hluti hafsins nýtur verndar til fram- búðar. Þetta kemur fram á vefsíðu norska dagblaðsins Aften- posten, en Jens Stoltenberg for- sætisráðherra tilkynnti ofangreint á blaðamannfundi í Osló í gær. Norðmenn vonast til þess að leitarheimildin styrki stöðu landsins á alþjóðavettvangi, en friði jafnframt bæði umhverfis- verndarsinna og fiskimenn. - smk Olíuvinnsla í Barentshafi: Takmörkuð leit heimiluð JENS STOLTENBERG ÁRLEGUR MEÐALVÖXTUR SÍÐUSTU ÁRA: Háskóli Íslands 7% Kennaraháskóli Íslands 10% Listaháskóli Íslands 3% Landbúnaðarskólinn á Hvanneyri 30% Háskólinn á Akureyri 21% Háskólinn í Reykjavík 15% Viðskiptaháskólinn á Bifröst 21% Áætlun stjórnvalda: 4% KJÖRKASSINN Hljópstu apríl? Niðurstaða: Já 7% Nei 93% SPURNING DAGSINS Í DAG Hefur þú skipt um símafyrirtæki síðasta árið? Segðu þína skoðun á Vísir.is Vinnuslys á Hellisheiði Verkamaður slasaðist töluvert á handlegg þegar hann fékk ofan á sig 70 kílóa þungt stykki úr bor sem notaður er við framkvæmdirnar á Hellisheiði. Slysið varð um eittleytið í fyrrinótt og fluttu vinnufélagar mannsins hann á heilsugæslustöðina á Selfossi. LÖGREGLUFRÉTTIR SLAGSMÁL Mikil hópslagsmál brut- ust út á dansleik sem haldinn var í félagsheimilinu á Iðavöllum í fyrri- nótt, en dansleikurinn var haldinn í tengslum við snjósleðamót sem fór fram á Héraði um helgina. Einn maður var fluttur á heilsu- gæslustöðina á Egilsstöðum vegna áverka sem hann hlaut í slagsmál- unum en rúmlega tvö hundruð manns voru á dansleiknum. Dyraverðir í félagsheimilinu kölluðu lögregluna til vegna slagsmálanna og aðstoðaði hún dyraverðina við að róa mann- skapinn niður. Jón Þórarinsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Egilsstöðum, segir þetta ekki vera í fyrsta skipti sem mikil slagsmál brjót- ist út á snjósleðamóti á Héraði en snjósleðamót hafa verið haldin á þessu svæði með reglulegu milli- bili á undanförnum árum. „Snjósleðamenn hafa oft verið með ólæti á dansleikjum í gegn- um tíðina. Við höfum því alltaf töluverðan viðbúnað þegar þessi mót fara fram. Okkur gekk ágæt- lega að róa þá niður sem tóku þátt í slagsmálunum og sem betur fer slasaðist enginn alvarlega.“ Nokkur hundruð manns komu til Egilsstaða um helgina vegna mótsins og fór sjálft mótið vel fram. - mh Hópslagsmál brutust út á dansleik í félagsheimilinu á Iðavöllum: Sleðamenn slógust á Héraði FRÁ SNJÓSLEÐAMÓTINU Snjósleðamótið á Héraði fór að mestu vel fram. Mikil hópslagsmál brutust þó út á dansleik sem haldinn var í tengslum við mótið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI REYR Erill hjá slökkviliði Mikill erill var hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í gær. Samtals fór slökkviliðið í 25 útköll vegna sjúkraflutninga og þrettán vegna minniháttar sinubruna, auk sinubrunans á Kjalarnesi. Drukknaði í risaöldu Lögreglan á Bali í Indónesíu hefur beðið fólk um að hafa varan á í sjónum við strendur landsins þar sem einn sundmaður drukknaði þegar risastór alda skall á honum á miðvikudag. Aldan var þrír metrar á hæð en líklegt er talið að hún hafi myndast vegna hitabeltisstormsins Glendu sem geisað hefur á þessum slóðum. Hið vinsæla svæði við Kuta- strönd var lokað tímabundið vegna þessa. INDÓNESÍA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.