Fréttablaðið - 03.04.2006, Qupperneq 8
3. apríl 2006 MÁNUDAGUR
Framtíðarsjóður
Ber hæstu vexti almennra innlánsreikninga
Engin lágmarksinnborgun
Verðtryggður
Bundinn til 18 ára aldurs
Kjör haldast óbreytt þótt innstæða sé ekki
tekin út við 18 ára aldur
Vildarviðskiptavinur Sparisjóðsins sem gefur
fermingarbarni 5.000 króna gjafabréf í Framtíðar-
sjóð Sparisjóðsins eða meira fær 2.000 króna
viðbót við gjöfina frá Sparisjóðnum. Gefðu
gjöf sem stækkar í pakkanum!
Gjöfin vex í
pakkanum
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
1
6
7
1
3
5.000 kr. verða 7.000 kr.
Kíktu á spar.is og reiknaðu út ávöxtun á
sparnaði í Framtíðarsjóði Sparisjóðsins.
Ársfundur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna verður haldinn
mánudaginn 3. apríl 2006 kl. 17 í Hvammi á Grand Hótel.
Dagskrá fundarins:
1. Venjuleg ársfundarstörf.
2. Önnur mál.
Sjóðfélagar og lífeyrisþegar sjóðsins eiga rétt til setu á ársfundinum.
Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Reykjavík 3. mars 2006
Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
Sími: 580 4000 • Myndsendir: 580 4099 • Netfang: skrifstofa@live.is
Ársfundur 2006
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
20
56
4
VINNUMARKAÐUR Tímakaup
erlendra, ófaglærðra verkamanna
hefur lækkað um allt að 30 pró-
sent á einu ári. Fyrir ári var
algengt tímakaup á bilinu 800-
1.000 krónur. Í dag er það 650-680
krónur.
Þetta er mat Guðmundar Þ.
Jónssonar, varaformanns Efling-
ar, og byggist á launum sem gefin
eru upp í umsóknum um atvinnu-
leyfi sem berast Eflingu en
atvinnurekendur þurfa að sækja
um atvinnuleyfi til stéttarfélag-
anna.
Í byggingariðnaði og
verklegum framkvæmdum
er algengt að ráða erlenda
menn til landsins sem
verkamenn, þótt þeir hafi
iðnréttindi. Þeir ganga svo
oft í öll verk og starfa jafn-
vel í rauninni sem iðnaðar-
menn.
Lágmarkstaxtinn fyrir
almennan byggingaverka-
mann er um 640 krónur á
tímann og ófaglærðir verkamenn
fá um 659 krónur á tímann eftir
fimm ára starf. Þetta er
samkvæmt taxta. Menn sem
fá það tímakaup eru algjörir
byrjendur í starfi.
Menn, sem hafa iðnrétt-
indi á einhverju sviði í
heimalandinu, eiga í raun-
inni að vera á hærra taxta-
kaupi. Þá má líka benda á að
ófaglærðir Íslendingar hafa
verið með 800-1.000 krónur
á tímann en Guðmundur segir að
sú tala hafi líka farið lækkandi.
„Á einu og hálfu ári höfum við
fundið fyrir tilhneigingu til að
lækka tímakaupið. Það er tilfinn-
ing okkar að fyrirtæki sem hafa
borgað sæmilegt kaup séu farin að
elta þau sem borga lágt tímakaup
og lækka kaupið hjá sér. Þetta
segir okkur meðal annars það að
það er nóg framboð af fólki,“ segir
Guðmundur.
Atvinnurekendur sem ætla að
sækja um atvinnuleyfi fyrir ófag-
lærða verkamenn sækja um hjá
Eflingu stéttarfélagi. Guðmundur
segir að umsóknunum hafi fjölgað
töluvert síðustu misseri en hafi
verið að jafnaði um hundrað á
viku frá því snemma á síðasta ári.
Langflestar eru umsóknirnar
nýjar en þó eru nokkrar vegna
endurnýjunar og framlengingar
fyrir fólk sem þegar er starfandi
hér á landi. „Við teljum að fólk
hljóti að yfirgefa landið á móti.
Það er útilokað að þenslan sé svo
mikil að það sé hægt að bæta við
100 starfsmönnum á viku,“ segir
Guðmundur.
ghs@frettabladid.is
GUÐMUNDUR
Þ. JÓNSSON
Tímakaup ófaglærðra
hefur lækkað mikið
Kaup erlendra, ófaglærðra verkamanna hefur lækkað um allt að þriðjung á
einu ári. Fyrir ári var algengt tímakaup hátt í eitt þúsund krónur. Í dag nálgast
það óðfluga lágmarkstaxtann sem er 650 krónur.
VERKAMENN AÐ STÖRFUM Forystumenn
Eflingar hafa fundið fyrir tilhneigingu til
að lækka tímakaup ófaglærðara á síðustu
misserum.
DANMÖRK Naser Khader þingmað-
ur Róttæka flokksins á danska
þinginu stefnir á að verða ráð-
herra innflytjendamála.
Segist hann hafa sett sér þetta
markmið í kjölfar þeirra fjölda
dauðahótana sem honum hafa
borist. Einnig vógu ummæli
múslimaprestsins Ahmeds Akk-
ari um að sprengja þyrfti Khader
í loft upp verði hann innflytj-
endaráðherra þungt.
Þetta kom fram í viðtali Berl-
ingske tidende við þingmanninn í
gær. Khader, sem er múslimi
segir nauðsynlegt að múslimar
og aðrir innflytjendur aðlagist
betur dönsku samfélagi. Hann
telur stefnu ríkisstjórnarinnar í
málefnum innflytjenda ekki lík-
lega til árangurs enda einkennist
hún helst af gagnrýni í garð
þeirra.
Naser Khader hefur verið
áberandi í innflytjendaumræð-
unni í Danmörku síðustu ár og
beitti hann sér fyrir stofnun sam-
taka lýðræðissinnaðra múslima í
landinu fyrr á árinu. En samtökin
hafa gagnrýnt mótmæli trú-
bræðra sinna vegna Múhameðs-
teikninganna.
Fylgi við Róttæka, flokk Khad-
ers, hefur aukist töluvert sam-
kvæmt síðustu skoðanakönnun-
um í Danmörku. - ks
Danski þingmaðurinn og músliminn Naser Khader:
Dauðahótanir virka hvetjandi
NASER KHADER OG ANDERS FOGH RASM-
USSEN Khader vill verða ráðherra innflytj-
endamála þrátt fyrir morðhótanir.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP