Fréttablaðið - 03.04.2006, Blaðsíða 12
3. apríl 2006 MÁNUDAGUR12
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
NISSAN PATROL
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mán – fös kl. 9-18 og lau kl. 12-16
Rúmgóður og áreiðanlegur vinnuþjarkur sem hefur sýnt og sannað
að hann á heima á Íslandi. Nissan Patrol er einfaldlega alvöru jeppi
fyrir alvöru fólk!
Líttu inn og sjáðu alvöru jeppa!
Verðið á Nissan Patrol er frá 4.170.000 kr.
ENDIST
ENDALAUST
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
0
6
4
7
VETRARRÍKI Á HÉRAÐI Kannski Ísland sé aldrei jafn fagurt og í sönnum vetrarbúningi
sínum. Myndirnar voru teknar í Fljótdalshéraði á dögunum. MYND/HARALDUR BJARNASON
Sigríður Dóra Sverrisdótt-
ir menningarfrömuður á
Vopnafirði brá sér á sex
leiksýningar í fimm daga
leikhúsferð til Reykjavíkur.
Met hennar - tíu sýningar á
sjö dögum - stendur óhaggað.
Leikhúsið er ást og yndi Sigríðar
Dóru. Henni finnst fátt skemmti-
legra en að horfa á góða leiksýn-
ingu og leggur talsvert á sig til að
sjá þær sem flestar. Reglulega fer
hún í ferðalög til höfuðborgarinnar
og gerir þá helst ekki annað en að
fara í leikhús og sofa. Leikhús-
ferðin nú hófst á miðvikudags-
kvöldið með skólasýningu Mennta-
skólans við Hamrahlíð og lauk í
gærkvöldi á sýningu Þjóðleikhúss-
ins á Átta konum. Raunar fór gær-
dagurinn gjörvallur í leikhús því
klukkan hálf tvö sá hún Hafið bláa
og svo Pétur Gaut klukkan fimm. Á
laugardag sá hún Forðist okkur og
föstudagskvöldinu varði hún í
Íslensku óperunni á óperettu
Söngskólanema. Á fimmtudags-
kvöldið fór hún á kaffihús því þá
var ekkert á fjölunum sem hún
hafði ekki séð.
„Ég veit ekki almennilega
hvernig stendur á þessum leikhús-
áhuga mínum. Kannski hann sé
eitthvað dulinn,“ segir Sigríður
Dóra. „Ég tók þátt í skólasýningum
sem barn í Oddeyrarskóla á Akur-
eyri en hef í seinni tíð ekki haft
áhuga eða þörf á að standa sjálf á
sviði.“ Hún hefur reyndar mjög
almennan menningaráhuga, til
dæmis á mynd- og tónlist, og telur
hugsanlegt að þar sem svo margt
sameinist í leiklistinni heilli hún
jafn mikið og raun ber vitni.
Þó að Sigríður Dóra hafi séð sex
sýningar í þessu kastinu stendur
met hennar frá því fyrir þremur
árum óhaggað. „Þá sá ég tíu sýn-
ingar á sjö dögum,“ segir hún og
ljómar við endurminninguna. Og
þótt hún hafi séð heila 21 sýningu á
þessu leikári er útlit fyrir að met
hennar frá síðasta leikári standi
líka óhaggað. „Þá sá ég 27 sýningar.
Ég fer reyndar á Litlu hryllings-
búðina á Akureyri 21. apríl og verð
þá komin upp í 22 sýningar á leik-
árinu. Ég efast því um að ég setji
nýtt persónulegt met en það er
aldrei að vita,“ segir hún og brosir.
Þegar Sigríður Dóra er beðin um
að nefna eftirminnilega leiksýningu
koma þrjár upp í hugann. „Dagur
vonar eftir Birgi Sigurðsson var
tímamótaverk. Það fjallaði um kyn-
ferðislegt ofbeldi sem maður vissi
ekki hvað var á þeim tíma. Það var
auðvitað til en ekkert um það rætt.“
Hún nefnir líka Veisluna sem að
hennar sögn var afburðasýning og
Þetta er allt að koma.
Ólíkt sumum leikhúsgestum
hefur Sigríður Dóra aldrei nokkurn
tíma fundið hjá sér þörf fyrir að
ganga út af miðri sýningu. „Kannski
ég sé bara svona vitlaus eða
óþroskuð að ég geri ekki meiri
kröfur,“ segir hún hlæjandi, sæl og
glöð. bjorn@frettabladid.is
Fór á þrjár leik-
sýningar í gær
SIGRÍÐUR DÓRA SVERRISDÓTTIR Hefur mest séð 27 leiksýningar á einu leikári. Flest bendir
til að hún sjái „aðeins“ 22 sýningar á þessu leikári. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
HAFIÐ BLÁA Ein þeirra þriggja leiksýninga sem Sigríður Dóra sá í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Lýðræðisflokkurinn Nýtt afl er vin-
sælasti stjórnmálaflokkur lands-
ins, ef marka má skoðanakönnun á
vefsetri
Útvarps Sögu.
Nýtt afl nýtur
stuðnings 43
prósenta þátt-
takenda, en
þátttaka í könn-
uninni er öllum
frjáls og geta
menn greitt
jafn mörg
atkvæði og
þeir vilja og
nenna. Samfylkingin og Sjálfstæðis-
flokkur koma næst með 17 og 15
prósenta fylgi, vinstri grænir hafa
um 10 prósent en Framsókn og
frjálslyndir minna.
Jón Magnússon lögmaður er for-
maður Nýs afls en hann stjórnar
jafnframt morgunútvarpi Sögu tvo
daga í viku. - bþs
Nýtt afl sterk-
ast allra flokka
JÓN MAGNÚSSON lög-
maður, útvarpsmaður
og stjórnmálamaður.
Besta hugmynd
helgarinnar
„Hvernig væri að hætta að
tönnlast sífellt á nafninu
Landspítali - háskólasjúkra-
hús. Er ekki gamla góða
nafnið Landspítali nógu
gott?“
MAGNÚS SKÚLASON ARKITEKT Í
LOK GREINAR Í MORGUNBLAÐINU
UM SKIPULAGSMÁL.
Enda við Bandaríkja-
menn að eiga
„Það virðist ekki hvarfla að
íslenskum stjórnvöldum að
hafa frumkvæði að lausn
þessa máls.“
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON,
FORMAÐUR VG, UM VARNARMÁLA-
VIÐRÆÐURNAR. FRÉTTABLAÐIÐ.
„Ég er ansi upptekinn af mínu starfi við Tónlistar-
húsið þessa stundina,“ segir Stefán Hermanns-
son, framkvæmdastjóri Austurhafnar-TR, sem gaf
sér þó tíma til þess að fara í fermingarveislu í
gær. Nú er einmitt fermingavertíð ársins nýhafin
og segist Stefán að hann muni fara í þrjár til
fjórar slíkar veislur í þessum mánuði enda eru
langflestar fermingarveislur ársins haldnar í
kringum páskahátíðina sem nú fer brátt í hönd.
Aðspurður segist Stefán hafa ágætlega gaman af
fermingarveislum og hafði að minnsta kosti náð
að belgja sig nokkuð út af mat í þessari ákveðnu
veislu.
Strangir vinnudagar eru hins vegar fram undan
hjá Stefáni. „Á morgun byrja vinnufundir með
útvöldum arkitektum og verkfræðingum. Annað
sem er einnig á döfinni er aðalfundur hjá
Austurhöfn-TR á miðvikudaginn. Þannig að það
er nokkuð þétt dagskrá næstu daganna.“ Stefán
segist ánægður með samninga síðasta mánaðar
og er gríðarlega sáttur með að allir séu loks
farnir að róa í sömu áttina en í byrjun síðasta
mánaðar náðust loks samningar um byggingu og
fjármögnun tónlistar- og ráðstefnuhús í Reykja-
vík. Í vikunni voru einnig birtar niðurstöður
könnunar Fréttablaðsins þess efnis að 83
prósent þeirra Reykvíkinga sem tóku afstöðu
telja að tónlistar- og ráðstefnuhúsið muni
efla miðborg Reykjavíkur.
Stefán segir að eftir mikla vinnu í vetur fari
hlutirnir aðeins að róast hjá honum. „Ein-
hvern tíma í sumar vonast ég til þess að geta
tekið mér frí, sem ég gerði ekki í fyrra,“ segir
Stefán að lokum en áætlað er að byggingu
hins stórglæsilega tónlistar- og ráðstefnu-
húss ljúki árið 2009 en samtengt húsinu
verður einnig reist 250 herbergja hótel.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? STEFÁN HERMANNSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI AUSTURHAFNAR-TR
Fermingarvertíðin hafin
Stefán Hermanns-
son verkfræðingur