Fréttablaðið - 03.04.2006, Side 16

Fréttablaðið - 03.04.2006, Side 16
 3. apríl 2006 MÁNUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRI: Arndís Þorgeirsdóttir VARAFRÉTTASTJÓRI: Trausti Hafliðason RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871��������������������������������������������������������������������� ������������� ������������ ������������ ������������������������������������������������������������������ ������ ������� ����� �� ������ � ������ ��� Mest lesna viðskiptablaðið AUGLÝSINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLAÐINU ALLA MIÐVIKUDAGA Sa m kv æ m t fj ö lm ið la kö n n u n G al lu p o kt ó b er 2 00 5. Samsæri og sannleikur Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, vinnur nú að því að fá á hreint hvort svæsin samsæris- kenning sem honum barst til eyrna fái staðist. Snýst hún um að vínbúðinni í Breiðholti hafi verið fundinn nýr staður í leiguhúsnæði sem fólk tengt forsæt- isráðherra á og fyrir því eru vafasamar forsendur. Vínbúðin var um árabil í eigin húsnæði í verslanakjarnanum Mjódd en var nýverið flutt um nokkur hundruð metra, í leigu- pláss í verslun- inni Garðheimum. Eig- endur Garðheima eru mágur og svilkona for- sætisráðherra. Sigurjón spurði forkólfa ÁTVR út í ástæður flutningsins og fékk meðal annars þau svör að húsnæðið í Mjódd hafi bæði þótt óhentugt og óþarflega stórt. Sigurjón spurði líka um hve háa húsaleigu greiða þarf fyrir plássið í Garðheimum en fékk ekki svör við því. Hefur hann því beint nokkrum spurn- ingum til fjármálaráðherra um málið og þurfa embættismenn ráðuneytisins meðal annars að grennslast fyrir um veltu vínbúðarinnar í Mjódd frá árinu 2000 til ársins 2005. Áhugamenn um stjórnmál og samsæriskenningar fylgj- ast vafalaust spenntir með framhaldi málsins enda ljótt ef satt reynist að sjálfur forsætisráðherra þjóðarinnar hafi skarað eld að köku mágs síns og svilkonu. Perla höfuðstaðarins Margt hefur verið sagt og skrifað um Reykjavíkur- flugvöll og hvort rétt sé að hann verði áfram í Vatnsmýrinni. Ýmis rök, með og á móti, hafa verið sett fram í umræð- unni sem staðið hefur með hléum í mörg ár. Halldór Jónsson verkfræðingur, sem oft skrifar um þjóðfélagsmál í Morgunblaðið, lætur sína skoðun í ljós í blaðinu á laugardag. Það er bjargföst skoðun Halldórs að völlurinn eigi að vera á sínum stað og gengur hann lengra en áður hefur verið gert til að styðja þá skoðun rökum. Segir hann Reykjavíkurflugvöll eitt það besta sem Reykjavíkurborg hefur eignast síðan öndvegissúlur Ingólfs flutu þar á land. „Reykjavíkurflugvöllur er og verður perla höfuðstaðarins,“ segir Halldór Jóns- son og ljær þar með orðinu perla alveg nýja merkingu. bjorn@frettabladid.is Karl einn fór til kirkju einu sinni sem oftar. Þegar hann kemur heim spyr kerling hvað presturinn hafi talað um. Hann talaði um syndina, segir karl. Og hvað sagði hann nú um syndina? segir kerling. Hann var á móti henni, segir karl. Gömul íslensk fyndni gengur furðu oft út á kalla og kellinga að segja eitthvað um eða við presta og þessi skrýtla ¿ sem faðir minn segir mér stundum ¿ er þar engin undantekning. Hún er eiginlega um svona pistla. Hún er áminning um það sem situr eftir hjá viðtak- endum þegar pistlahöfundar þrástagast á sömu vandlætingar- efnunum ár eftir ár með sömu orðum og sömu dæmum og gæta þess ekki að láta hugann reika þegar þeir skrifa. Fyrirsegjanleik- inn er svona dálki hættulegastur. Hvað var hann Guðmundur Andri að skrifa um í dag? Herinn. Og hvað sagði hann um herinn? Hann var á móti honum. Þegar maður heldur úti svona pistlum þarf maður að vera óhræddur við að endurnýja sig. Maður þarf að hugsa hugsanir sem maður hefur ekki hugsað áður. Maður þarf að nálgast mál- efni sífellt úr nýrri átt. Maður þarf að láta hugann reika ¿ en maður má ekki láta hugann reka. Maður þarf að vera virkur í hugs- unum sínum. Og maður þarf að gæta þess að skrifa ekki eins og prestur að flytja nítjánhundruð- ustu stólræðuna um syndina örgu. Sumt fólk vill þannig pistla. Til er fólk sem vill fá afhenta snotur- lega innpakkaða skoðun dagsins til að staðfesta það sem því var kennt í æsku. Og dæmin sanna að til er fólk sem heldur að lífið sé nokkurs konar gettu-betur-keppni þar sem eitt rétt svar er við álita- efnunum. Skrípamyndamálið danska er afar gott dæmi um mál þar sem takast á í manni sjálfum nánast ósættanleg sjónarmið ¿ eins og ég reyndi að sýna fram á með tveimur greinum þar sem komist var að tveimur ólíkum nið- urstöðum. Í rauninni var helsti óvinurinn í því máli sjálfur ósveigjanleikinn í báðum herbúð- um, þráin eftir „hinu rétta svari“; rasistanna hjá Jótlandspóstinum sem lögðu sig í líma við að erta múslima til að þjóna stereótýp- ískri mynd af „þessu fólki“ og klerkanna sem gengu beint í gildr- una með yfirgengilega heimsku- legum og pavlovískum viðbrögð- um. Og fórnarlömbin voru venjulegt fólk Við lifum á ískyggilegum tímum, þar sem við erum krafin um ein- falda afstöðu til flókinna mála. En þegar við reynum að bregðast við tíðindum heimsins þá hljótum við alltaf að vega það og meta hvernig reynir á grundvallarhugsjónir á borð við tjáningarfrelsi og kær- leiksboðorð Krists: ég vona að nið- urstaðan úr þessum tveimur grein- um mínum hafi verið sú að þetta verði að fylgjast að og að okkur beri að amast við því þegar fjöl- miðlar eru notaðir til að særa fólk blaðamönnum til skemmtunar eða svölunar annarra kennda, um leið og við hömrum á grundvallarrétti manna til að tjá sig. Bubbamálið: þar var ekki tekist á um rétt blaða- manna til að segja sannleikann um Bubba heldur til að segja ósatt um Bubba ¿ undir rós að vísu, iðandi af pöddum. Þar var tekist á um rétt blaðamanns til að nota blað ¿ opinberan vettvang ¿ til að jafna einhverjar gamlar prívatsakir við nafntogaðan mann, sem engum koma við. Þar var tekist á um það hvort fólk geti haft mannorð og mannhelgi þótt það spili betur á gítar og syngi betur en aðrir menn. Stundum finnst mér eins og ég hafi ekki skoðanir ¿ heldur að skoðanir hafi mig. Þegar hugsað er um dægurmálin og pólitíkina þá er maður óðara kominn ofan í hjólför sem leiða mann á fyrir- fram ákveðna áfangastaði þar sem öðrum megin stendur Hannes Hólmsteinn og veifar manni ákaf- ur en á hinum endanum bíður Sverrir Jakobsson réttsýnn á svip. Ég hylli ekki skoðanaleysið ¿ en ég vil biðja fólk um að vara sig á skoðanafestunni. Hún jafngildir nefnilega óbreyttu ástandi. Maður bara spólar. Svona pistlar eiga ekki að fylla huga lesenda af skoðunum ¿ held- ur að tæma huga lesenda af klisj- um. Svona pistlar eiga að taka til skoðunar það sem ráðamenn ríkj- andi viðhorfa segja ¿ til hægri og vinstri, upp og niður, út og suður. Þannig er nú það. Og það heldur nú hann ég. Í þrjú ár hef ég vaknað á sunnu- dagsmorgnum og skrifað pistilinn, svolítið eins og prestur að skrifa stólræðu dagsins. Þetta er orðið ágætt. Ég þarf að fara að pikka eitt- hvað annað á tölvuna ¿ ég ætla með Davíð Oddssyni í skoðanabindindi. Ætli við hittumst ekki á O.A.-fund- Svona pistlar Í DAG KVEÐJUPISTILL GUÐMUNDUR ANDRI THORSSON Stundum finnst mér eins og ég hafi ekki skoðanir – heldur að skoðanir hafi mig. Í síðustu viku voru afhentir styrkir úr Háskólasjóði Eimskipa-félagsins. Samtals var þar um að ræða sextíu milljónir króna. Styrkirnir eru veittir ungum vísindamönnm í doktorsnámi við Háskóla Íslands. Viðburður af þessu tagi er vissulega að formi um margt keimlíkur ýmsum öðrum. En hvað sem ytra umbúnaði líður búa þar að baki ýmsar athyglisverðar staðreynd- ir. Vert er að veita eftirtekt í því samhengi að á þessu sviði er Háskólasjóður Eimskipafélagsins jafnoki ríkissjóðs. Þannig veitir Rannsóknanámssjóður jafnhárri upphæð í styrki til dokt- orsnáms. Sá samanburður segir fyrst og fremst þá sögu að íslenskt atvinnulíf er með margvíslegu móti að láta til sín taka með afli sem um munar á sviði menntunar og rannsókna. Þetta eru ekki alveg ný sannindi. En hitt er ljóst að atvinnulífið er smám saman að stíga stærri skref í þessum efnum en áður hafa þekkst. Háskólasjóður Eimskipafélagsins var á sínum tíma stofnaður af Vestur-Íslendingum. Markmið hans var að stuðla að viðgangi Háskóla Íslands og styrkja efnilega nemendur hans. Ný forysta sjóðsins hefur vakið hann til nýs lífs. Á síðasta ári ávaxtaðist pund hans um 1,2 milljarða króna. Heildareignir hans eru þre- föld sú upphæð. Styrkveitingin á dögunum var ekki eins skiptis aðgerð. Þess er þannig að vænta að Háskólinn eigi eftir að njóta ávaxta úr þessum garði um langa framtíð. Að baki býr langtíma skuldbinding. Formaður stjórnar sjóðsins, Björgólfur Guðmundsson, segir í viðtali við Fréttablaðið liðinn laugardag: „Að hámarka arðinn er spurning um tíma. Það þarf ekki að hámarka hann á einu ári. Þeir sem hljóta styrki koma til með að skila meiri hagsæld inn í þjóðfélagið og það skilar sér aftur inn í fyrirtækin. Svona stuðn- ingur er fjárfesting til framtíðar.“ Hann bætti síðan við: „Þetta er ekki góðgerðarstarf. Við erum að efla íslenskt samfélag, okkur og öðrum til góða.“ Þau viðhorf sem hér er lýst lúta að grundvallaratriðum varð- andi framtíð þjóðfélagsins. Engin fjárfesting skilar að öðru jöfnu þeim arði sem vænta má af aukinni menntun og þekkingu. Hér duga að vísu ekki hefðbundnar mælistikur. Það er helst að menn geti lesið árangurinn út úr langtímayfirlitum um hagvöxt. Kostnaður við menntun og rannsóknir er ekki góðgerð eða eyðsla á fjármunum. Hann er fjárfesting. Ársuppgjör eru hefðbundinn mælikvarði á árangur í rekstri fyrirtækja. Því er mikilvægt að jafnhliða mati á ársreikningum hafi forystumenn atvinnulífsins í huga þann arð sem langtíma- fjárfesting í þekkingu skapar. Höfuðskyldurnar í þessu efni hvíla eigi að síður á ríkisvaldinu. En skynsamleg fjárfesting á þessu sviði er hins vegar miklu meiri en svo að skattborgararnir ráði einir við hana. Fyrir þá sök er sú hugsun sem Björgólfur Guðmundsson hefur gefið sem skýringu á endurlífgun Háskóla- sjóðs Eimskipafélagsins nauðsynleg næring viðvarandi vaxtar og hagnaðar í atvinnulífinu. Brýnt er að vaxandi tilfinning atvinnulífsins fyrir mikilvægi þessarar fjárfestingar dragi ekki úr skilningi stjórnmálamanna á þeim grundvallarskyldum sem á þeim hvíla í þessum efnum. Og það er lofsvert að útgjöld til menntamála hafa aukist umfram flest önnur svið. En þau segja þó ekki alla söguna. Í raun réttri er það öfugsnúið að menntamál skuli ekki vera uppistaðan eða að minnsta kosti ívafið í vef almennrar stjórn- málaumræðu. Þar á mætti verða breyting. SJÓNARMIÐ ÞORSTEINN PÁLSSON Eimskipafélagssjóður og ríkissjóður Fjárfesting en ekki góðgerð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.