Fréttablaðið - 03.04.2006, Page 22
3. apríl 2006 MÁNUDAGUR
Það verður æ algengara að
fólk kjósi að koma upp heima-
varnakerfi til að vernda sig og
sína. Tvö stærstu fyrirtækin á
öryggismarkaðnum, Securitas
og Öryggismiðstöðin, bjóða
bæði upp á slíka þjónustu en
yfir 8.000 heimili njóta verndar
þeirra.
Í heimavörn felst uppsetning þjófa-
varnakerfis, hreyfi- og hurða-
skynjara, reykskynjara auk vatns-
og gasskynjara sé þess óskað.
Heimavörn er því ekki aðeins vörn
gegn innbrotum heldur einnig tjóni
af ýmsum völdum eins og til dæmis
elds og vatns. Trausti Harðarson,
forstöðumaður einstaklingssviðs
Securitas, segir að mikil vakning
eigi sér stað í þessum efnum. „Það
sem við sjáum er að fólk er ekki
lengur einungis að vernda plasma-
skjáinn og fínu málverkin,“ segir
Trausti. „Heimilið er heilagt og fólk
vill ekki að þar sé farið inn á skí-
tugum skónum.“
Þjóðfélagið hefur á síðustu árum
þróast í þá átt að heimili eru meira
og minna auð frá níu til fimm því
allir vinna úti eða eru í skóla. Stutt-
ar utanlandsferðir verða sífellt tíð-
ari og svo eru sumir sem búa meira
og minna erlendis. „Þetta er vissu-
lega ein af meginorsökum aukning-
ar í heimavörnum. Þrátt fyrir það
eru flestir þeir sem koma til okkar
þeir sem hafa upplifað þessa van-
helgun heimilisins sem innbrot er
eða séð hvaða áhrif innbrot eða tjón
hefur á vin, vinnufélaga eða skyld-
menni,“ segir Trausti.
Uppsetning heimavarnakerfis
fer þannig fram að viskiptavinur
hringir í öryggisfyrirtæki. Það
sendir fulltrúa sinn á staðinn til að
taka út húsnæðið og gefa góð ráð.
Það er enginn uppsetningarkostn-
aður fyrir kerfið, aðeins mánaðar-
leg greiðsla og sé þess óskað að
vörninni verði hætt er kerfið ein-
faldlega tekið niður aftur. Grunn-
pakki kostar um 5.000 krónur og
svo getur fólk bætt við því sem það
vill gegn gjaldi. Trausti segir að
jafnvel hafi Securitas sett upp
fingrafaraskanna svo fjölskyldu-
meðlimir þurfi aldrei að hafa
áhyggjur af því að gleyma lyklun-
um.
Auk þess að fá kerfið sjálft fá
viðskiptavinir aðgang að öllu við-
bragðskerfi viðkomandi öryggis-
fyrirtækis. Til að mynda hefur Sec-
uritas alla jafna tólf bíla á vakt, auk
fullkominnar stjórnstöðvar. Boð-
ferlið virkar á þann veg að ef kerf-
ið nemur einhverja hættu sendir
það boð til stjórnstöðvar. Þá er
öryggisvörður sendur af stað. Sem
betur fer eru flest þessara boða
falsboð, til að mynda reykskynjari
sem fer í gang er steikin brennur
við. Ef svo er ekki mætir öryggis-
vörðurinn á staðinn, kannar
ummerki og ákvarðar hvað hafi
gerst og hvert næsta skref sé í stöð-
unni. Fjölmörg dæmi eru um að
þeir hafi komið í veg fyrir bruna-
tjón og tjón af völdum vatns.
Spurðir hvort heimavarnakerfi
virki segja fulltrúar bæði Securitas
og Öryggismiðstöðvarinnar að svo
sé. Auk þess að koma í veg fyrir
vatns- og brunatjón er hægt að telja
á fingrum sér þau tilfelli sem brot-
ist hefur verið inn í hús með heima-
vörn í þau rúmu 10 ár sem upp á
hana hefur verið boðið.
tryggvi@frettabladid.is
Trausti Harðarson, forstöðumaður einstaklingssviðs Securitas.
Til varnar heimilinu
Staðalbúnaður í heimavörn Securitas er stjórnstöð og stjórnborð, hurðarnemi, reykskynjari,
sírena og tveir hreyfiskynjarar. FRETTABLAÐIÐ/GVA
PÁSKARNIR ERU HÁTÍÐ UPPRISU OG NÝS LÍFS.
ÞAÐ ER ÞVÍ EKKI ÚR VEGI AÐ FÆRA SMÁ LÍF INN Á
HEIMILIÐ.
Laufgaðar greinar eru fallegt
páskaskraut. Grænt er litur
lífsins og séu greinarnar
skreyttar með gulu ættu þær
að geta lífgað upp á hvert heimili.
Ilmurinn fyllir stofuna og minnir á
að vorið er á næsta leiti.
Núna er rétti tíminn til að
klippa birkigreinar og setja
í vatn. Geymdu greinarnar á
hlýjum sólríkum stað og þær ættu að
vera laufgaðar fyrir skírdag.
Páskagreinar
��������������������������������
������������������������������
���������������
�����������������������
����������������������
Evíta
Hárgreiðsla og gjafavörur
Starmýri 2, 108 Rvík, s. 553-1900 www.evita.is
Full búð af fallegum vörum
á betra verði.
Gefðu heimilinu fallega gjöf
Hárþjónusta á frábæru verði,
gerið svo vel að panta tíma. 550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Birkigreinar eru tilvaldar í páskaskrautið.