Fréttablaðið - 03.04.2006, Blaðsíða 63
MÁNUDAGUR 3. apríl 2006 19
FÆDDUST ÞENNAN DAG
1924 Marlon Brando
kvikmyndaleikari.
1913 Per Borten
forsætisráðherra Noregs.
1880 Otto Wieninger
heimspekingur.
1783 Washington Irving
rithöfundur.
1715 John Hanson stjórn-
málamaður í Bandaríkjunum.
1367 Hinrik fjórði konungur
Englands.
Fyrsti apríl er fyrir flestum dag-
urinn þegar má blekkja og gabba
vini og fjölskyldu. Í Íran eru hlut-
irnir þó ekki þannig því lygadag-
urinn þeirra er í dag, 3. apríl.
Dagurinn er kallaður „Sizdah
bedar“ sem útleggst „Þrettándi
utandyra“ upp á íslensku. 3. apríl
er nefnilega þrettándi dagur nýs
árs samkvæmt persneska dagatal-
inu og boðar talan þrettán líka
ógæfu þar í landi. Tilgangur
gabbsins er að aðstoða fólk við að
halda sig utandyra því þannig
getur ógæfan ekki náð þeim.
Íslendingarnir geta því gert sér
lítið fyrir, tileinkað sér íranska
menningu og gabbað sína nánustu
aftur í dag.
Íranir gabba
Þrjú fyrirtæki hafa skuldbundið
sig til að styðja við starfsemi
Heimilis og skóla næstu þrjú árin.
Sparisjóðirnir á Íslandi, Eymunds-
son og VÍS hafa skrifað undir sam-
starfssamning við félagið um sam-
starf við samtökin um að efla
foreldrafræðslu og forvarnir í
skólum og á heimilum með þátt-
töku í ýmsum fræðslu- og forvarn-
arverkefnum. Heimili og skóli eru
landssamtök foreldra á Íslandi
sem hafa það að meginmarkmiði
að efla foreldra og fjölskyldur í
uppeldishlutverki sínu, veita þeim
stuðning og hvatningu til virkrar
þátttöku í skólasamfélaginu og
vera málsvari þeirra gagnvart
stjórnvöldum í málefnum er varða
skólasamfélagið.
„Samningurinn markar tíma-
mót í okkar starfsemi. Heimili og
skóli hefur aldrei átt formlega
bakhjarla og skiptir máli að
tryggja starfsemina næstu þrjú
árin og fá hjálp fyrirtækjanna við
að gera hana enn öflugri,“ segir
Elín Thorarensen, framkvæmda-
stjóri Heimilis og skóla. Stuðning-
urinn fer í starfsemi félagsins og
þau verkefni sem það hefur unnið
undanfarið. „Við erum að efla for-
eldrasamtök og svæðasamtök for-
eldra víðs vegar á landsbyggðinni
og styrkurinn fer meðal annars í
það verkefni. Einnig erum við með
önnur verkefni sem snúa að því að
upplýsa foreldra um þessi félög.“
Elín segir að í styrknum felist
skýr skilaboð til samfélagsis um
að fyrirtækin láti sig varða hags-
muni foreldra og barna í landinu.
„Félagið verður fjórtán ára seinna
á árinu og við teljum að þetta sé
ákveðin viðurkenning á starfinu
undanfarin ár.“ ■
Fyrirtæki í samstarf við Heimili og skóla
HEIMILI OG SKÓLI Fær þrjú fyrirtæki í lið með sér sem styrkja starfsemi félagsins. FAGURLITAÐUR REGNBOGI Rís upp frá
marmaraleikvanginum í Aþenu þar sem
fyrstu ólympíuleikar nútímans voru
haldnir árið 1896. FRÉTTABLAÐIÐ/AP