Fréttablaðið - 03.04.2006, Page 67
MÁNUDAGUR 3. apríl 2006 23
Málarinn Atli Örn Jensen fagnar
81 árs afmæli sínu með yfirlits-
sýningu sem stendur yfir í Garða-
bergi, félagsheimili eldri borgara
við Garðatog, um þessar mundir
en sýningin er einnig tileinkuð
minningu eiginkonu hans sem lést
á síðasta ári. Atli Örn byrjaði að
fást við myndlist árið 1942 og
stundaði nám í Frístundamálara-
skólanum, lærði hjá Sigfúsi Hall-
dórssyni og var í bréfaskóla hjá
Handmenntaskólanum. Hann
málar pastelmyndir og olíuverk
en myndefnið er oftast landslag.
Sýningin stendur út aprílmán-
uð en hún er opin frá hálf eitt til
hálf fimm alla virka daga.
MÁLARINN ATLI ÖRN JENSEN Heldur sýningu á landslagsmyndum í Garðatorgi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ GVA
Listaháskóli Íslands heldur Kynja-
daga sem hefjast í dag og standa
til 7. apríl en dagskráin er helguð
kynjum, kynjaímyndum og femín-
isma. Kynjadagar eru haldnir að
frumkvæði jafnréttisnefndar
skólans en dagskráin er full af
gleði og öðruvísi uppákomum.
Nemendur, gestalistamenn og
fræðimenn standa að dagskránni
en allar deildir skólans leggja sitt
til málanna. Í dag munu nemendur
í leiklistardeild til dæmis sýna
brot úr dansverkinu „Hindarleik“
eftir Gunnlaug Egilsson kl. 12.15 í
húsnæði deildarinnar að Sölvhóls-
götu 13 og á morgun mun Sigríður
Pétursdóttir kvikmyndafræðing-
ur fjalla um karlmennsku í íslensk-
um kvikmyndum í Skipholti 1 en
fyrirlestur hennar hefst kl. 12.30.
Á Kynjadögum munu nemend-
ur í hönnunar- og arkitektúrdeild
einnig kynna verkefni sín um
kynjaímyndir í auglýsingum og
mun prófessor Guðmundur Oddur
Magnússon kafa í sögu íslenskra
karl- og kvenímynda í máli og
myndum á fimmtudaginn kl. 12.15.
Allir eru velkomnir á viðburði
Kynjadaga og er hægt að nálgast
dagskrá þeirra á heimasíðu Lista-
háskólans, www.lhi.is.
-khh
Komandi kynjadagar
GODDUR KAFAR Í KYNJAMYNDIR Kynjadagar fyrir alla í Listaháskólanum. FRÉTTABLAÐIÐ/ E.ÓL
Í nýútkominni ljóðabók Sigur-
bjarnar Þorkelssonar má finna 90
ljóð eða „smáskilaboð“ eins og
höfundurinn nefnir þau, af trúar-
legum toga. Í formála segir að ljóð
bókarinnar séu vitnisburður höf-
undar um lífið og óður hans til
þess en efnistök bókarinnar vísa
til lífsgæðakapphlaupsins og lífs-
viðhorfs nútímamannsins sem
berst gegn straumnum. Bókina
hyggst höfundur gefa á biðstofur
lækna, dekkjaverkstæða og rak-
arastofa sem og á sjúkrhús og
dvalarheimili og í skóla landsins
eftir „því sem upplag endist og
heilsa og kraftar leyfa“.
Bókina nefnir Sigurbjörn
Sítengingu en þetta er fjórtánda
bók höfundarins sem áður hefur
gefið út smásögur, ljóðabækur og
skáldsögu auk bænabóka og ann-
ars efnis trúarlegs eðlis.
-khh UPPÖRVANDI BOÐSKAPUR FYRIR LESENDUR
Ljóðræn skilaboð
Farsæll ferill málara