Fréttablaðið - 03.04.2006, Side 75
MÁNUDAGUR 3. apríl 2006 31
Arnar Þór Viðarsson var í byrjunar-liði Twente sem tapaði 4-2 fyrir
Feyenoord í hollensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu í gær. Arnari Þór var skipt
af velli á 66.
mínútu en átti
ágætan leik fram
að því. Blaise
N‘Kufo kom
Twente yfir en
Salomon Kalou
jafnaði fyrir
Feyenoord áður
en Dirk Kuijt kom heimamönnum yfir.
Patrick Gerritsen jafnaði metin aftur en
tvö mörk í síðari hálfleik frá Kuijt og
Kalou tryggðu Feyenoord sigurinn.
Smálið Gretna mætir Hearts í bikarúr-slitunum í Skotlandi. Gretna leikur í
3. deild og mun að öllum líkindum fara
í UEFA-keppnina þar sem Hearts er lík-
legt til að keppa í Meistaradeild Evrópu
með því að ná öðru sætinu í skosku
deildinni þar sem Celtic á sigurinn vísan.
Gretna lagði Dundee í undanúrslitun-
um en Hearts bar sigur úr bítum gegn
Hibernian.
Freddy Shepard, stjórnarformaður Newcastle, hefur greint frá því að
stutt er í það að nýr knattspyrnustjóri
verði kynntur. Glenn
Roeder og Alan
Shearer stýra liðinu
nú tímabundið eftir
að Graeme Souness
var látinn taka pok-
ann sinn en margir
hafa verið orðaðir
við stjórastöðuna,
einna helst Martin
O´Neill. „Markmið
okkar er að vera komnir með stjórastöð-
una á hreint áður en tímabilið er búið,“
sagði Shepard í gær.
Óvíst er um þátttöku Cesc Fabregas og Emmanuel Eboue í síðari leik
Arsenal og Juventus í Meistaradeild
Evrópu. Fabregas stóð upp úr í fyrri
leik liðanna sem
Arsenal vann 2-0,
þar sem spænski
táningurinn skor-
aði eitt mark og
lagði upp annað
fyrir Thierry Henry,
fyrrum leikmann
Juventus. Bæði
Fabregas og
Eboue eru meiddir. „Fóturinn á Cesc
bólgnaði upp. Við bíðum enn eftir
niðurstöðum úr rannsóknum. Báðir eiga
40-60 möguleika á að geta spilað á
miðvikudaginn,“ sagði Arsene Wenger,
stjóri Arsenal.
Enski kylfingurinn Paul Broadhurst varði titilinn á Opna portúgalska
meistaramótinu á Algarve í golfi en
hann lék hringina fjóra á 17 höggum
undir pari vallar og var einu höggi betri
en Anthony Wall, sem er einnig enskur.
Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni
en Argentínumaðurinn Anders Romero
varð þriðji á 15 höggum undir pari.
Broadhurst lék lokahringinn á 5 höggum
undir pari, 67 höggum, en hann jafnaði
vallarmetið á fyrsta keppnisdeginum
þegar hann lék á 64 höggum en næstu
tvo hringi lék hann á 69 og 71 höggi.
Broadhurst þurfti að leika síðustu hol-
una á mótinu á fugli til þess að tryggja
sér sigur og tókst honum það en hann
lék 18. holu vallarsins á fugli alla fjóra
keppnisdagana.
ÚR SPORTINU
HREYSTI Það var Salaskóli úr Kópa-
vogi sem stóð uppi sem sigur-
vegari á Skólahreysti 2006 sem
lauk í gær með úrslitakeppni í
Laugardalshöll. 42 skólar af höfuð-
borgarsvæðinu hófu keppnina
fyrir nokkrum vikum en á undan-
úrslitakvöldum var skólunum
fækkað niður í tíu sem kepptu til
úrslita í gær.
„Krakkarnir sýndu frábær til-
þrif og þetta var einstaklega vel
heppnað. Það var gaman að sjá
hversu vel undirbúnir krakkarnir
komu til leiks og þeir voru búnir
að kynna sér þrautirnar út í ystu
æsar. Þar sem þau kunnu þraut-
irnar fengum við mjög skemmti-
lega og spennandi keppni,“ sagði
Andrés Guðmundsson sem skipu-
lagði mótið.
„Það hætti enginn nokkurs
staðar fyrr en öll orka var búin og
einbeitingin var til fyrirmyndar.
Þetta var eins og að horfa á
atvinnumenn keppa,“ sagði Andrés
en á næsta ári verður haldin
keppni þar sem allir skólar lands-
ins munu taka þátt.
Salaskóli hlaut 59 stig, Hlíða-
skóli 55,5 og Lindaskóli hreppti
þriðja sætið með 55 stig. Það voru
Arnar Rafn Óðinsson, Atli Örn
Egilsson, Hlín Arngrímsdóttir og
Alexandra P. Barkardóttir sem
skipuðu sigurlið Salaskóla sem
var vel að sigrinum kominn eftir
stórskemmtilega keppni. - hþh
Vel heppnuðu móti, Skólahreysti 2006, lauk með pomp og prakt með úrslitakeppni í Laugardalshöll í gær:
Salaskóli stóð uppi sem sigurvegari
SALASKÓLI Fögnuðu sigrinum vel og innilega í mótslok. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Á FLEYGIFERÐ Það var keppt í styrk og
tímaþrautum í gær og því var hraðinn í
fyrirrúmi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI