Tíminn - 22.07.1977, Page 11
Föstudagur 22. júll 1977.
lllHlttAH!'
11
Otgefandi Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn-
arfulltrúi: Jón Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur
Gislason. Ritstjórnarskrifstofur f Edduhúsinu við Lindar-
götu, simar 18300 — 18306. Skrifstofur f Sfðumúla 15 sfmi
86300. Verð i lausasölu ki. 70.00. Áskriftargjald kr. 1.300.00
á mánuði.
Blaðaprenth.f.
Bílasalar fá hjálp
Eins og áður hefur verið vikið að hér i blaðinu,
hefur Visir lagt mikið kapp á þá spádóma, að stór-
kostleg verðbólga muni hljótast af hinum nýju
kjarasamningum. Engu likara en að hér sé verið að
ýta undir nýtt kaupæði hjá almenningi, enda kæmi
það sér vel bilasölunum, sem gefa út Visi, þvi að
það myndi örva bílasöluna.
Þessi iðja Visis hefur ekki mælzt vel fyrir, enda
mönnum ljóst hvaða öflum er hér verið að þjóna.
Visir hefur þvi átt i nokkrum raunum af þessum
sökum. En hjálpin er oft næst, þegar neyðin er
stærst. Þjóðviljinn hefur gumað af þvi, að hann væri
ekki málgagn heildsalanna, en þó er það hann, sem
hér kemur Visi til liðsinnis. Hann tekur kröftuglega
undir með Visi og hallmælir bæði Timanum og
Morgunblaðinu fyrir viðvörunarskrif þeirra um
þessi mál.
Svo mikill er ákafi þeirra Þjóðviljamanna i þessu
hjálparstarfi, að þeir gæta þess ekki, að þeir eru
með þessu að gera sig ómerka orða sinna. Þjóðvilj-
inn hefur blaða mest haldið þvi fram, að hinir nýju
kjarasamningar þyrftu ekki að leiða til nýrrar óða-
verðbólgu. Þjóðviljinn má eiga það, að hann hefur
sagt sitthvað skynsamlegt i þessu sambandi.
Skyndilega tekur hann svo allt þetta aftur og
hleypur til liðs við Visi i þeim áróðri, að kjara-
samningarnir muni leiða til óðaverðbólgu. Svo
stjórnlaus er fjandskapur þeirra Þjóðviljamanna i
garð rikisstjórnarinnar, að þeir hika ekki við að
taka undir spádóma, sem stangast á við fyrri mál-
flutning þeirra, ef það gæti orðið til þess að gera
rikisstjórninni erfitt fyrir i glimunni við verðbólg-
una.
Vitanlega má margt finna að hinum nýju kjara-
samningum og þvi er ekki að neita, að þeir geta ýtt
undir verulega verðbólgu, ef ekki er sýnd fyllsta
gát. Hinir nýju kjarasamningar hafa þó þann mikla
kost, að þeir stefna mest að þvi að bæta hlut lág-
launafólks og auka launajöfnuð i landinu. Það er
góður vitnisburður fyrir núv. rikisstjórn að slik
launastefna skuli tekin upp i stjórnartið hennar og
þó beztur fyrir viðskiptamálaráðherra, sem studdi
kröfur verkalýðssamtakanna um lágmarkslaun.
Það áetti að vera sameiginlegt áhugamál þeirra,
sem vilja verja þennan ávinning láglaunafólksins,
að koma i veg fyrir, að hann verði eyðilagður með
spádómum, sem leiddu til sliks kaupaæðis að verð-
bólgan yrði óviðráðanleg. Áreiðanlega kemur það
mörgum liðsmanni Alþýðubandalagsins á óvart, að
Þjóðviljinn skuli hér samfylkja bilasalablaðinu.
Guðmundur
Hjartarson
í sambandi við vaxtahækkunina, sem nýlega
hefur verið ákveðin, hefur komið upp málamynda-
klofningur i Alþýðubandalaginu. Ragnar Arnalds
og Lúðvik Jósefsson hafa tekið eindregna afstöðu
gegn vaxtahækkuninni, en i bankastjórn Seðlabank-
ans greiðir Alþýðubandalagsmaðurinn Guðmundur
Hjartarson atkvæði með henni. Guðmundur
Hjartarson var á sinum tima tilnefndur af Alþýðu-
bandalaginu i bankastjórastöðu hjá Seðlabank-
anum vegna þess, að hann var talinn hæfasti fjár-
málamaður þess. Hann hafði þá og hefur enn mikil
áhrif innan forustusveitar þess. Efalaust er, að Al-
þýðubandalagið hefði fylgt stefnu hans, ef það hefði
verið i stjórn. Mótmæli þeirra Ragnars og Lúðviks
eru látalæti, sem eru sprottin af þvi einu, að þeir eru
i stjórnarandstöðu.
ERLENT YFIRLIT
Stefnuyfirlýsing
ítölsku flokkanna
Sex helztu flokkarnir taka höndum saman
ÞÓTT þaB þyki merkilegt aö
umræddir flokkar skuli geta
sameinazt um slíka stefnu-
yfirlýsingu, skiptir hitt vitan-
lega höfuömáli, hvort þeir
geta unnið saman aö fram-
kvæmd hennar. Fullvist er
taliö, aö fyrir kommúnistum
vaki, aö þetta veröi upphaf aö
stjórnarsamvinnu þeirra og
kristilegra demókrata eöa
allra þeirra flokka, sem
standa aö yfirlýsingunni. I
þingkosningunum, sem fóru
fram I júni i fyrra, var þaö
yfirlýst stefna kommúnista aö
vinna aö sliku samstarfi og
reyndist þeim þetta vænlegt til
kjörfylgis. Eftir kosningarnar
myndaöi Kristilegi flokkurinn
minnihlutastjórn sem hefur
fariö meö stjóm siöan með
hlutleysi og óbeinum stuöningi
kommúnista. Forsætisráö-
herra hennar, Giulio Andre-
otti, hefur þótt sýna mikla
lagni og þykir samþykkt áöur-
nefndrar yfirlýsingar vera
sönnuu þess. Innan flokks
hans er hins vegar mikil and-
staöa gegn nánara samstarfi
viö kommúnista. Þó er ekki
taliö útilokaö, aö flokkurinn
getisættsig viö aö teknir veröi
i stjórnina óháöir embættis-
menn, sem eru hlynntir
kommúnistum eöa fylgja
þeim, án þess aö vera flokks-
bundnir. Fyrir kommúnista
væri þetta ávinningur og all-
gott skref i þá átt, sem þeir
stefna. Fyrir leiötoga
kommúnista er aö veröa nauö-
synlegt aö geta sýnt einhvern
slíkan árangur, þvi aö órói er
aö byrja aö skapast i vinstra
armi þeirra, en hann er and-
vigur samstarfi viö kristilega
demókrata. Þaö hefur áhrif á
vinstri arminn, aö smáflokkar
vinstri manna, sem eru til
vinstri viö kommúnista, virö-
ast eiga vaxandi fylgi aö
fagna, einkum þó meöal stú-
denta. Óbreytt samstarf leiö-
toga kommúnista og Andre-
ottis getur þvi vart haldizt til
lengdar og þvi getur verið aö
vænta nýrra tiðinda I itölskum
stjórnmálum áöur en langur
timi liöur.
Þ.Þ.
SA ATBURÐUR geröist I
fulltrúadeild italska þingsins
siöastliöinn föstudag, aö sam-
þykkt var itarleg stefnuyfir-
lýsing, sem allir flokkar stóöu
aö, nema nýfasistar og rót-
tækir vinstri menn, sem eru til
vinstri viö kommúnista.
Flokkarnir, sem standa aö
stefnuyfirlýsingunni, voru
Kristilegi flokkurinn, Frjáls-
lyndi flokkurinn, Lýöveldis-
flokkurinn, Sósialdemókrata-
flokkurinn, Sósialistaflokkur-
inn og Kommúnistaflokkur-
inn. Þetta er i fyrsta sinn sem
Kommúnistaflokkurinn stend-
ur að slikri yfirlýsingu meö
borgaralegu flokkunum svo-
nefndu síöan hann var i rikis-
stjórn fyrst eftir lok siöari
heimsstyrjaldarinnar. Leyni-
leg atkvæöagreiösla fór fram
um stefnuyfirlýsinguna og var
hún samþykkt meö 442 at-
kvæöum gegn 87. Augljóst er
af þvi, að allmargir þingmenn
áðurnefndra flokka hafa greitt
atkvæöi gegn yfirlýsingunni
og er helzt gizkað á, aö það
hafi verið þingmenn úr kristi-
lega flokknum, sem eru and-
vigir samstarfi við kommún-
ista. Einnig eru sumir þing-
menn Frjálslynda flokksins
grunaöir um græsku.
YFIRLÝSING sú, sem hér
ræðir um, hafðiveriö nokkuö
lengi i undirbúningi. Andre-
otti, sem er forsætisráðherra
minnihlutastjórnar Kristilega
flokksins, haföi haft forgöngu
um hana, en málaleitun hans
fékk strax góöar undirtektir
kommúnista. Frjálslyndi
flokkurinn, sem er hægri
flokkur, haföi veriö einna
tregastur til aö fallast á hana.
Yfirlýsinginfjallar um lausnir
þeirra vandamála, sem nú eru
mest aðkallandi á Italiu. Þar
koma efnahagsmálin i fyrstu
röö, en atvinnuleysi er mikiö á
ttaliu samfara mikilli verð-
bólgu. Hermdarverkin koma i
næstu röö. Mannrán og margs
konar óeiröir hafa færzt
iskyggilega i vöxt að undan-
förnu I flestum helztu borgum
Italiu, en þó einkum I Rómar-
borg. Þar eru aö verki öfga-
sinnarbæði til hægri og vinstri
og verða kommúnistar litlu
minna fyrir baröinu á þeim en
fylgismenn borgaralegu
flokkanna. Þetta hefur þokaö
leiötogum kommúnista enn
Berlinguer
Andreotti greiöir atkvæöi.
meira en ella til samstarfs viö
borgaralegu flokkana. M.a.
stafarþaöaf þvi, aö kommún-
istar fara meö stjórn margra
borga, ýmist einir eöa meö
öðrum, og getur álit þeirra
fariö verulega eftir þvi, hvort
þeim tekst aö halda uppi röö
og reglu. Margir viröast ótt-
ast, að hreint stjórnleysi geti
skapazt á Italiu, ef ekki tekst
aö stööva hermdarverkin, en
þaö er vafalitiö tilgangur
hermdarverkamannanna aö
koma lýöræðislegri stjórn
landsins á kné meö þessum
hætti og skapa jaröveg fyrir
fasisma eöa róttækan
kommúnisma.
Auk þess, sem yfirlýsingin
fjallar um tvö framangreind
mál, sem eru nú stærstu
vandamál Italiu, fjallar hún
einnig um skólamál, aukið
vald héraösstjórna og sitthvaö
fleira.
Þ.Þ.