Tíminn - 22.07.1977, Blaðsíða 19
Föstudagur 22. júli 1977.
■y '
19
Einar Bragi
ÆJ^'
Páll Heiöar Jónsson
Sú farsæla stefna, að
loka sjónvarpinu einn
mánuð á ári, hefur
mælzt vel fyrir. Auð-
vitað misjafnlega, eins
og h já ýmsu eldra fólki,
sem litið kemst frá
heimilum sinum, þótt
sumar eigi að
heita.Það situr og rær i
gráðið fyrir framan
blint auga sjónvarps-
ins, heilan mánuð, og
hjá þvi eins og öðrum
fara nýjar stöðvar i
gang, semsé gamla
gufuradióið, sem nú er
eitt um hituna alla
daga.
útvarpið fer seint á
lappir
Þaö er fróðlegt að gæta að þvi
hversu útvarpinu tekst einleik-
urinn og þá að nota timann til
þess að koma á framfæri ein-
hverjum aöfinnslum.
Ef rætt er um fréttaþjónustu
útvarpsins sérstaklega, þá
virðist hún vera mjög góð.
ÚTVARP
í JÚLÍ
Einkum eru kvöldfréttirnar
góðar, þegar útvarpað er frétta-
aukum og þá oftkomið viöa viö.
Sér i lagi er fróðlegt, þegar
fréttamenn ferðast um landið,
t.d. Helgi Jónsson fréttamaður,
sem nýverið var á Vestfjöröum,
þar sem hann hljóðritaöi marga
viðtalsþætti við fólk, sem sjald-
an heyrist frá.
Þá eru erlend málefni oft góö,
þar sem heimsviðburðum eru
gerö skil. Nægir að minna á raf-
magnsleysið i New York, sem
útvarpið gerði góð skil.
Sérlega vel tókst útvarpinu
t.d. þegar samningaþófið var á
Hótel Loftleiðum, og er Kári
Jónasson nú einn merkasti
fréttamaður útvarpsins.
Gott dæmi um „gamaldags”
og varkára fréttamennsku út-
varpsins er það, hvernig út-
varpið gerði heimsókn Helmuts
Smits á dögunum.
Það sem hekt er að finna að
útvarpinu, er það hvað frétta-
menn þess eru seint á fótum.
Innlendar fréttir þyrftu að
koma strax i fyrstu útsendingu
útvarpsins að morgni. Morgun-
útvarpið er samt ágætt, en það
er heldur þunnt að fá einungis
fregnir frá Arabalöndum og frá
Bandarikjunum i fyrstu út-
sendingu. Það er varla meira að
rita innlendar fregnir en erlend-
ar á morgnana.
Útvarpið i sumar
Litið hefur verið um ný jungar
i dagskráútvarpsins á þessu
sumri. Ef júli er tekinn sérstak-
lega, þá ber hæst af af-
þreyingarefni lestur Einars
Braga á Dittu mannsbarni.
Þetta er áhrifamikil saga og vel
lesin, þótt lesari skrolli dálitið á
stundum. Þetta er einlægt verk
og lesið af djúpri innlifun.
Saga Þórarins Guðnasonar,
eða sagan sem hann les, fer ein-
hvern vegin fyrir ofan garð og
neðan.
Agæturvar rimnaþáttur, sem
Hallfreður Orn Eiriksson stóð
að. Svo stutt er i frumbyggjann
á Islandi aö unnt er enn að
hljóörita svona mannætusöngva
hér, — en án gamans, rimna-
kveöskap þyrfti meö einhverju
móti að endurvekja. Þetta eru
falleg lög og hafa einhvern alis-
lenzkan tón, sem ekki má glat-
ast. Kannski aö það megi bræða
rimnakveðskapinn saman viö
poppið og væri það veröugt
verkefni fyrir tónskáld og ljóð-
skáld nútimans.
Lesið var Ur ferðaminningum
Helgi H. Jónsson
Stefáns Filippussonar, leiðsögu-
manns, sem fór margar svaðil-
farir með rika útlendinga. Frá-
sögn Stefáns er rituð af Arna
Óla en það er Tómas Einarsson,
kennari sem les. Þetta er liðleg
frásögn og hin skemmtileg-
asta áheyrnar.
Af skemmtiþáttum er Allt i
grænum sjó liklega þaö frum-
legasta. Margt er vel gert i
þessum þáttum, en annað er
verra, eins og gengur, þegar
menn verða að vera skemmti-
legir einu sinni i viku i lægstu
launaþrepum metorðastigans.
Páll Heiöarer með þátt, sem
fer vel af staö. Páll er skinandi
útvarpsmaður, en stendur auö-
vitað og fellur i þessum þætti
meö þeim er hann fær til liös við
sig.
Svavar Gests er með lengsta
þáttinn, tvo þrjá tima i beit.
Hann kemur viöa við og stendur
vel fyrir sinu. Vonandi endist
dampurinn fram á haust.
Vond ráðgjöf um leik-
föng
Hroðalegur fannst mér aftur á
móti þáttur um daginn, þar sem
einhvert fólk vissi meira um
leikföng en börnin. Sálfræðing-
ar, eða uppeldisfræðingar eru
stórhættulegir á köflum. Full-
yrðingar þeirra um hvað við
hæfi barna, eru aöeins full-
yröingar.
Allir (aðrir) vita.að börn hafa
frá þvi að sögur hófust, leikið
sér með áhöld og störf hinna
fullorðnu. Börn til sveita meö
legg og skel, báta og búfé. Börn
veiðimanna þykjast fara á
veiðar og þvi er ekkert undar-
legt, þótt börnin á Islandi vilji
tryllitæki og vélknúin tæki, þot-
ur og byssur. Það kemur nú af
sjálfu sér.
Þegar litið er yfir dagskrá út-
varpsins, þá sést að sumir þætt-
ir verða langlifari en aðrir.
Fróðir menn segja mér að
þátturinn um Daginn og veginn
sé elzti dagskrárþáttur útvarps-
ins.
Þetta er lika ágætur þáttur,
en á auðvitað allt sitt undir
flytjendunum. Útvarpið þyrfti
að fá dálitið af reiðu fólki i þenn-
an þátt til þess að hann fái
nauðsynlega andlitslyftingu.
Helgi góður i islenzku
Þátturinn daglegt mál er
ágætur. Flytjandi eöa um-
sjónarmaður þáttarins Helgi J.
Halidórsson, magister er
snöfurlegur stjórnandi, sem
talar af valdi, kveöur upp dóma
og Urskurði, en snýr sig ekki á
loðinn hátt frá vandanum.
Helgi er fjölfróður bók-
menntamaður og læröur i sinni
tungu. Maður bara sér það á
honum á götu, hvað hann er
góður i islenzku, sagði gamall
skipstjóri einu sinni við mig —
og ég held að það sé rétt.
Sem blaðamaöur og rithöf-
undur hlusta ég ávallt á þætti
Helga J. Halldórssonar og tel
mig hafa mikið af honum lært.
Svo mun um fleiri.
Varla er unnt að hætta aö tala
um fasta þættián þess að minn-
ast á nýjan iþróttafréttamann
útvarpsins, sem er nú aldeilis
Kári Jónasson
frábær. Hermann Gunnarsson
heitir hann.
Sumir bændur og kaupfélags-
stjórartala af svo miklum unaði
um fé, t.d. Eirikur heitinn Þor-
steinsson alþingismaöur, að
malarbúar hlustuðu á alla orð-
ræðuna án þess að gripa fram i.
Guðmundur Arnlaugsson talar
áslikanháttumskák, aösá sem
litiö kann nema mannganginn,
hann fylgist með — og hlustar.
Hermann Gunnarsson talar
þannig um iþróttir, að þær
verða áhugaverðari en ella.
Hann talar oft I léttum tón, en
heldur sig þó innan hæfilegra
marka.
JG
Ný snyrti-
vöruverzlun
gébé-Reykjavik — Nýlega var
ný snyrtivöruverzlun opnuð að
Völvufelli 15 og nefnist NANA.
Eigendur hennar eru þær
Bryndis Friöþjófsdóttir og
Edda Sigurðsdóttir, snyrti-
fræðingur, og sjást þær á með-
fylgjandi Timamynd G.E.
Verzlunin, sem er hin vist-
iegasta, svo sem sjá má á
myndinni, hefur á boðstóium
allar hugsaniegar tegundir
snýrtivara bæði fyrir karla og
konur. Eigendur hugsa sér
einnig að koma þar upp
snyrtistofu i framtiðinni.