Tíminn - 05.08.1977, Page 8

Tíminn - 05.08.1977, Page 8
8 Wímbm Föstudagur 5. ágúst 1977 Umsjónarmenn:Pétur Einarsson r Omar Kristjónsson NCF og SUF Samband ungra framsóknarmanna hefur um árabil verið þátttakandi i samstarfi pólitiskra ung- hreyfingar á Norðurlöndum og viðar. Það var þó ekki fyrr en 1975 að samtökin gerðust fullgildur aðili að samstarfi af þessu tagi. Á SUF þingi sem haldið var á Húsavik það ár var samþykkt að fá fullgilda aðild að sambandi unghreyfinga miðflokka á Norðurlöndum (NCF) í þessu samstarfi taka þátt miðflokkar i Noregi, Sviþjóð, Finnlandi og íslandi. Jafnframt var ákveðið að halda áfram um sinn aukaaðild að sambandi unghreyfinga frjálslyndra og róttækra flokka á Norðurlöndum enn um sinn (NLRU) Margir ungir framsóknarmenn hafa spurt, hver ástæðan var til þess að gengið var til samstarfs við þessa aðila? Þvi er til að svara að stefnumál þess- ara flokka eru að mörgu leytiáþekkeða hin sömu og Framsóknarflokksins. Þessi samnorrænu samtök sóttu ennfremur fast á um, að fá SUF til liðs við sig. Þar gekk þeim það til að gera starfið yfirgrips- meira og fá fram fleiri sjónarmið og ekki má gleyma þvi að auðveldara er um styrki eftir þeim sem aðildarfélög eru fleiri i samtökum af þessu tagi. Hugmyndafræði þeirra flokka sem standa að NCF, er skyldari stefnu Framsóknarflokksins en stefnumið NLRU, en þau samtök standa nokkuð þétt til vinstri. NCF eru þó á engan hátt hægri sinn- uð samtök eða ihaldssöm heldur þvert á móti. Bar- átta þeirra fyrir jöfnuði, samvinnu og lýðræði fellur vel að stefnu SUF. Á nýloknum aðalfundi NCF hér á landi kom vel fram skyldleiki i málflutningi við sjónarmið ungra framsóknarmanna. Þar má til nefna skynsamlega nýtingu auðlindanna samfara umhverfisvernd, aukinn jöfnuður þjóða milli og innan þjóðfélaga þar sem stefnt er að þvi að gera þá fátækari vel sjálf- bjarga, en ekki þá rikari sifellt rikari. Ekki er úr vegi að spyrja hvað gefi þessu sam- starfi gildi fyrir SUF? Fyrst er til að nefna stórauk- in kynni við ungt og efnilegt fólk i áþekkum flokkum i nágrannalöndunum. Mörg vinartengsl hafa mynd- azt, sem stuðla að auknum skilningi sjónarmiðum manna af öðru þjóðerni og ungir framsóknarmenn hafa fengið tækifæri til þess að kynna islenzk mál- efni fyrir þessu fólki. Það hefur glatt okkur, að þetta fólk frá hinum Norðurlöndunum hefur reynt að setja sig inn i málefni Islands og getað rætt þau frá okkar sjónarhóli. Ef til vill hefur mikilvægasti ávinningurinn verið, að við höfum kynnzt nýjum starfsaðferðum öðrum en viðhafðar eru i stjórnmálabaráttu hér á landi og að við höfum nálgazt meir stjórnmálaumræðu eins og hún gerist i Evrópu þ.e. á meginlandinu. Hins vegar er það nauðsynleg ádrepa til ungra fram- sóknamanna og annarra íslendinga sem eiga i sam- starfi við útlendinga að við verðum ætið að hafa i huga sérkenni lands okkar og þjóðar og hafa fullan vara á þvi að apa of margt eftir útlendingum. Is- lendingar ættu ætið að vera sér þess vel meðvitandi, að þeir geta einnig kennt öðrum þjóðum marga hluti. PE Frá aðalfundi NCF í Reykjavík Ungir miðflokksmenn teknir t Eins og skýrt hefur veriö frá hér i blaðinu var aðalfundur Nordiska Centerungdomsför- bund haldinn i Reykjavik dag- ana 26. til 30. júli sl. N.C.F. er samband fimin stjórnmálafé- laga ungs fólks á Norðurlönd- um. Aðildarfélög Nordiska Centerungdomförbund eru Samband ungra miðflokks- manna i Finnlandi, Ungmenna- félag sænska þjóðarflokksins i Finnlandi, Samband ungra framsóknarmanna tslandi, Samband ungra miöflokks- manna i Noregi og Samband ungra miðflokksmanna i Sviþjóð. 1 þvi skyni að fræðast örlitið meira um erlendu sam- tökin,starfsemiþeirra og helztu viðfangsefni, tókum tali einn þátttakanda frá hverju aöildar- félagi N.C.F. Fyrst til að leysa úrspurning- um blaðamanns var Anna Kristine Jahr, 27 ára gömul, fulltrúi Senterungdom mens Landsförbund (S.U.L.) 1 Noregi. Anna hefur veriö félagii S.U.L. I 5 ár og verið aðalritari sam- bandsins i 1 ár. Við spuröum önnu fyrst að þvi, hvaða mál væru efst á baugi hjá hennar samtökum. bau mál, sem mest er fjallað um i samtökum okkar, eru orkumál, Inn i umræður um þau mál fléttast að sjálfsögðu stefna okkar varðandi oliuvinnsluna. Stefna Sambands ungra miöflokksmanna i Noregi i oh'u- málum er, að oliuvinnslan verði takmörkuð að magni, til þess að koma i veg fyrir byggðaröskun i Noregi. Við óttumst aö verði fjárfesting i oliuiðnaðinum veruleg muni það leiða til stór- felldra fólksflutninga frá dreif- býlinu til oliusvæöanna. Annað mál, sem ætið er ofarlega á dag- skrá hjá okkur, eru landbún- aðarmál, sem raunar tengjast stefnunni varðandi oliuvinnsl- una á ýmsan hátt. Landbúnað- urinn á nd i harðri samkeppni við oliuvinnslufyrirtækin um vinnukraft. Við viljum styrkja stöðu landbúnaðarins, gagnvart oliufélögunum, meö þvi að bæta hag bænda á beinan og óbeinan hátt með þvi að hækka laun þeirra og auka félagslega þjón- ustu og gera þeim kleift að taka sér fri eins og aörar starfsstétt- ir. — Hvað er helzt til tiðinda i landhelgismálum i Noregi? Noregur hefur nú tekiö sér 200 milna efnahagslögsögu. 1 sam- bandi við þá útfærslu eru ýmsir lausir endar. Til dæmis er ósamið við Sovétmenn um fisk- veiðimörkin á Barentshafi, en ráðgert er að drög að samningi við þá verði lögð fyrir Stór- þingiö i haust. — Arið 1972 var þjóðarat- kvæðagreiðsla um aðild Noregs að Efnahagsbandalagi Evrópu (E.B.E.) Rúmlega 52% Norðmanna voru andvigir aðild. Hefur afstaða Norðmanna til aðildar að Efnahagsbandalag- inu breytzt s.l. 5 ár? Fljótlega eftir þjóðarat- kvæðagreiðsluna 1972 gengu Norðmenn til samninga við E.B.E. um gagnkvæmar tollivilnanir. samningar þessir hafa þótt það hagstæðir, að enn fleiri Norðmenn en áður telja, aö engin þörf sé á að sækja um fulla aðild að bandalaginu. Samband ungra miöflokks- manna hefur ætið barizt gegn aðild Noregs að Efnahags- bandalaginu og á siöasta þingi okkar var samþykkt tillaga, sem felur i sér að skorið veröi á núverandi tengsl við E.B.E. — I september veröur gengið til þingkosninga i Noregi. Norski miðflokkurinn hefur lýst yfir aö nái hann meirihluta á þingi ásamt Vinstriflokknum, Kristilega þjóðarflokknum og Hægriflokknum muni hann ganga til samninga við þessa flokka með stjórnarsamstarf að markmiði. Hver er afstaða Sambands ungra miðflokks- manna til þessarar yfirlýsing- ar? Þessi yfirlýsing Miðflokksins á sér forsögu. Eftir þjóðarat- kvæðagreiðsluna um Efnahags- bandalagsmálið 1972, beiddist stjórn Verkamannaflokksins lausnar. Við stjórnvöldum tóku þeir flokkar, sem höfðu beitt sér gegn aðild að Efnahagsbanda- laginu, þ.e. Miðflokkurinn, Vinstri flokkurinn og Kristilegi þjóðarflokkurinn. Þessi stjórn starfaði i eitt ár. Á margan hátt þótti þetta stjórnarsamstarf takast vel. Afleiðing þessa var, að i april s.l. undirrituðu forystumenn Miðflokksins, Kristilega þjóðarflokksins og Hægriflokksins viljayfirlýsingu um stjórnarsamstarf þessara flokka. Vinstriflokkurinn stóð ekki að yfirlýsingunni vegna þess að hann er andvigur öllu samstarfi viö Hægriflokkinn. Hvað varðar samvinnu við Hægriflokkinn, þá er Samband ungra miðflokksmanna á sama báti og Vinstriflokkurinn. Við teljum ágreining Miðflokksins og Hægriflokksins i sambandi viö orku-og oliumál það mikinn, að stjórnarsamstarf þessara flokka komi ekki til greina. En endanleg ákvörðun um þetta efni verður tekin á flokksþingi, sem verður haldið að afstöðnum kosningum. — Hverju viltu spá um kosn- ingúrslitin? Ég er að sjálfsögðu mjög bjartsýn á, að við bætum okkar hlut frá þvi i siðustu kosningum, en þá fékk Miðflokkurinn 11.3% atkvæða. Þó er því ekki að neita, að andstæðingar okkar hafa notfært sér til hins itrasta þann skoðanamun sem óneitan- lega er uppi i flokknum um af- stöðuna til stjórnarsamstarfs við Hægriflokkinn. Næst lögöum við nokkrar spurningar fyrir Mikael Ing- berg, 26 ára. Mikael er formað- ur Svensk Ungdom (S.U.) í Finnlandi. Hann hefur verið fé- lagi i S.U. frá 17 ára aldri. — Hvað getur þú sagt okkur um Ungmennafélag sænska þjóðarflokksins? Það eru 10.000 félagar i S.U., en sænskumælandi Finnar eru 300.000. I U.ngmennafélaginu eru 65 flokksdeildir. Helztu verkefni okkar eru orkumál og þá sérstaklega baráttan gegn byggingu kjarnorkuvera i Finnlandi. Nú þegar er búið að reisa eittkjarnorkuver I Austur- Finnlandi og áætlað er, að byggja annað i vesturhluta landsins og og hið þriðja i ná- grenni Helsinki. Barátta okkar beinist einkum að þvi að koma i veg fyriraö tvö þau siðarnefndu verði byggð. — Hvernig hefur baráttunni gegn byggingu kjarnorkuver- anna verið háttað? Við höfum lagt mikla áherzlu á að gera almenningi ljósa ókosti og hættur, sem stafa af t.d. geislavirkum úrgangi frá þessum verum. Við teljum það einnig mjög varhugavert að Finnar reiði sig á orkufram- leiðslu, sem byggist á innflutt- um hráefnum, i þessu tilfelli úranium. Þá höfum við bent á aðra möguleika til að framleiða rafmagn t.d. meö þvi að nota mó sem eldsneyti. Rannsóknir hafa verið gerðar á hagkvæmni þess og eru niðurstöður þeirra jákvæðar. — Hver eru mest aðkallandi vandamál Finna um þessar mundir? Eins og mörg undanfarin ár, eru efnahagsmálin sigilt vanda- mál. Verðbólga hjá okkur er 10- 15%. Greiðslujöfnuður landsins er óhagstæður þótt nu horfi bet- ur en áður vegna strangra reglna, sem Finnlandsbanki hefur sett um útlán. Þessar reglur hafa haft slæm áhrif á at- vinnuástandið og eru 120 þúsund manns atvinnulausir eða 5% af vinnuaflinu. Þetta mikla at- vinnuleysi hefur stuðlað að flutningi Finna til Sviþjóðar og á fyrri helmingi þessa árs höfðu 8 þúsund manna flutzt yfir Kirjálabotninn. Hefur Ungmenna félag Sænska þjóðarflokksins tillögur til úrbóta i efnahagsmálum Finnlands? Við höfum verið andvigir þeirri stefnu sosialdemókrata að hafa framleiðslueiningarnar sem stærstar. Við teljum að sú stefna leiði af sér fleiri vanda- mál en henni er ætlað að leysa. Til dæmis hefur þessi stefna valdið þvi, að öll helztu iðnfyrit- æki hafa aðsetur sitt i Helsinki og nágrenni. Atvinnutækifæri eru þvi tiltölulega fleiri þar en annars staðar og þess vegna stöðugir fólksflutningar frá dreifbýlinu til höfuöborgarinn- ar. Aðflutningur fólks til Hels- inki veldur mikilli eftirspurn eftir húsnæði auk þess sem borgaryfirvöld dragast aftur úr með félagslega þjónustu. Stefna sósialdemókrata hefur einnig verið að skylda atvinnurekend- ur til að greiða ýmiss gjöld til hagsbóta fyrir launþega. Þetta hefur leitt til þess, að atvinnu- rekendur reyna aö spara við sig vinnukraft og hefur það aukið enn á atvinnuleysið. Okkar stefna er að létta þessum gjöld- um af atvinnurekendum, án þess þó að minnka félagslega þjónustu. Við viljum einungis ná fjármagninu til þeirra hluta á annanhátt, tildæmismeðþvi að hækka söluskatt, leggja á sér- stakan orkuskatt, sem myndi væntanlega stuöla aö betri orkunýtingu og orkusparnaði. — Fyrir nokkrum árum voru bankainnlán og útlán verð- tryggð i Finnlandi. Hvernig reyndist það fyrirkomulag? Reynsla okkar af verðtrygg- ingu var ekki góð. Min skoöun er sú, að verðbólga sé efnahags- sjúkdómur og aö sá sjúkdómur verði ekki læknaður með verð- tryggingu einni saman. Verð- trygging breytir aðeins sjúk- dómseinkennunum. Alla vega var það reynsla okkar. — Hvernig þótti þér N.C.F. ráðstefnan og aðalfundurinn takast? Éger mjög ánægður með þær umræður sem urðu á ráðstefn- unni. Ég er þó þeirrar skoðunar, að við þurfum að bæta vinnu- brögðin og vera ennþá duglegri ráðstefnustörfin. Einnig er ég mjög ánægður með allan undir- búning ráðstefnunnar, sem var nær eingöngu i höndum S.U.F., svo og með móttökur, sem hafa veriö einstaklega hlýlegar.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.