Tíminn - 07.08.1977, Page 30

Tíminn - 07.08.1977, Page 30
30 Sunnudagur 7. ágúst 1977 Lokuð inni í 17 ár fyrir að hitta pilt uggra sannanna fyrir því að þetta væri rétt. Ef hún geröi það, gæti hún ekki framar vænzt þess að eiga friðsamlegt sam- starf við fólkið í hverfinu, vegna þessað það hatar lögregluna og vill engin samskipti við hana hafa. — Ég fór eins varlega og ég gat við að afla mér upplýsinga um Mary Hannigan. Ég heim- sóttikonurf nágrenninu, og þær sögðu mér allar það sama, að Mary Hannigan hefði vissulega verið þama, en ekki sézt árum saman. Sumar þeirra héldu að hún væri látin, og engin virtist hafa sérstakar áhyggjur af þvi, sagði Patricia. En svo sagði henni kona ein aö ef hún gæti haft uppi á stúlku að nafni Eithne O’Donoghue, sem hafði gengið i sama skóla og Mary árið 1959 og siðan gift sig og flutt burt, gæti hún ef til vill komizt að þvi rétta um afdrif Mary Hannigan. — Það tók mig þrjár vikur að finna Eithne, segir Patricia. — Vinur minn, Seamus McGrane, sen nemur félagsfræði með mér hjálpaði mér. Við leituðum bæði að Eithne, en það var erfitt og tafsamt verk. Fólk er svo leyndardómsfullthérna, það vill ekki gefa upplýsingar, ef mann- eskjan, sem leitað er að, er lika eftirlýst af lögreglunni. Við gæt- M um alltaf sagt frá..... Þegar félagsráðgjafinn Petr- icia Keogh heyrði sögusagnirn- ar fyrst, lagði hún engan trúnað á þær. Hún heyrði þær sömu á mörgum stöðum, og endirinn varö sá aö hún heimsótti 33 ára gamla konu, sem aö lokum sagði henni alla þessa óhugnan- legu sögu. Þá fann hún að hún yrði að rannsaka málið og kom- ast að þvi hvort sögurnar væru sannar eða ekki. Sögusagnirnar voru á þessa leið: 1 fátækrahverfum Dublin var ekkja nokkur^ sem bjó með karlmanni. HÚn hafði haldið dóttur sinni lokaðri inni i her- bergi einu I 17 ár, frá þvi i júli 1959, fram til þessa, sem var i september 1976. Patricia, sem er félagsfræði- nemi og starfar aðeins hluta Ur degi sem félagsráðgjafi, fór upprunalega i þennan bæjar- hluta til aö sjá með eigin aug- um, hvernig fólk gæti dregiö fram lifið á Irlandi, en þar er verðbólga með mesta móti i Evrópu. Hún hitti miðaldra konu, sem sagði við hana: — Ef þú vilt gera eitthvert gagn, þá faröu heim til Sheelag Duffy. Þar er eitthvað ekki eins og það áaðvera. Hún áttidóttur. Mary að nafni, en Mary hvarf i júli 1959. Enginn hefur séö henni bregða fyrir síðan. Patricia spurði, hvers Vegna lögreglan hefði ekki athugað málið. — Auðvitað höfum viö beðið lögregluna um það, en hún segir bara að þetta sé fjölskyldumál, sem komi henni ekki við, svar- aði konan. — En þú getur farið og komizt að þvi, hvað orðið hef- ur um stúlkuna. Annars kom- umst við vel af án þinnar hjálp- ar hérna. — Ég trúöi ekki aö slikt gæti gerzt og að lögreglan léti að af- skiptalaust, sagöi Patricia. — Mig langaöi að komast aö meira i sambandi við þetta og heim- sótti aðra konu i grenndinni. Hún sagði mér nákvæmlega sömu söguna um telpuna, sem hvarf árið 1959. Greinilegar sannanir. Það var ókleift fyrir Patriciu að fara til lögreglunnar án ör- gÉÉjj Ný spor — Loks fundum við foreldra Eithne. Þau bjuggu i úthverfi Þetta er móðir Mary. Hún gat ekki séð ao hún hefði gert neitt rangt. Dóttirin hafði óhlýðnazt!

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.