Tíminn - 26.08.1977, Side 5
Föstudagur 26. ágúst 1977
á víðavangi
Atvinnu-
reksturinn
ber sína
ábyrgð
Vestfirzkir sjálfstæöismenn
gefa út blaðið Vesturland. í
siðasta hefti þess birtist for-
ystugrein sem heitir „Burt
með pilsfaldakapitalismann”,
og munu menn sennilega hafa
vænzt þess að lesa slika fyrir-
sögn i Þ jóðviljanum fremur en
málgögnum sjálfstæðis-
manna. Tilefni þessarar for-
ystugreinar eru þær fréttir
sem borizt hafa nýlega af
vandræðum frystihúsanna og
þá einkum frystihúsanna á
Suður- og Suðvesturlandi.
Margt er réttilega sagt i þess-
um leiðara Vesturlands, en
eins og löngum vill verða i
skrifum og ræðum sjálfstæðis-
manna er furðu skammt yfir i
öfgarnar.
Vesturland segir m.a. i
þessari forystugrein:
„Óneitanlega er það undar-
legt að aðalat vinnugrein
þjóðarinnar sé rekin með
halla á stórum landssvæðum.
Og óvist er að varla getur það
talizt björgulegt að svo sé búið
að þessum atvinnuvegi að
hann þurfi að leita á náðir
rikisvaldsins til þess að verða
ekki gjaldþrota. Þessi aðstaða
sem fyrirtæki á Suður- og Suð-
vesturlandi eru komin i er þó
ekki neitt stundarfyrirbrigði,
og ekki heldur er hægt að
kenna um einhverjum nýleg-
um aðgerðum stjórnvalda.
Þetta er einungis spegilmynd
þeirrar aðstöðu sem fslenzk
fyrirtæki hafa búið við um
áratugaskeið. Eigið fjármagn
islenzkra fyrirtækja af hvaða
tegund sem er, er af afar
skornum skammti og þau þvi
illa búin undir áföll. Hvenær
sem f yrirtæki þurfa að ráðast i
stórframkvæmdir þurfa þau
að leita á náðir sjóða sem
jafnvel eru ekki i umsjá hags-
munaaðila. Af þessum sökum
hefur islenzkum fyrirtækjum
alltaf verið skorinn þröngur
stakkur við fjármögnun fram-
kvæmda sinna”.
Að svo mæltu hefur Vestur-
land upp sönginn um einka-
framtakið heittelskaða sem
rikisvaldið á alltaf að vera að
hundelta, væntanlega að til-
hlutan þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins að einhverju leyti
a.m.k.
Eitt af ein
kennunum
Sannleikurinn er sá, að það
er mikið til i orðum Vestur-
lands ef það er tekið fram að
þessi orð eiga við um allan at-
vinnurekstur i landinu, hvort
sem er einkafyrirtæki, sam-
vinnurekstur eða fyrirtæki i
eigu opinberra aðila. Það er
alveg úr lausu lofti gripið að
einungis sé hert að kosti
einkarekstrarins, þvi að fyrir-
tækin eiga i svipuðum vanda-
málum að þessu leyti hvert
sem rekstrarformið annars
er. í öðru lagi verður ekki séð
að þetta ástand hafi til komið
fyrir tilverknað neins eins að-
ila öðrum fremur, heldur er
hér um að ræða eitt af ein-
kennum efnahagsþróunarinn-
ar á siðari árum.
Skýringarinnar virðist
m.ö.o. annars staðar að leita.
Ástæðan til þess hve rekstrar-
fjárskortur háir fyrirtækjun-
um oft virðist vera sú að i við-
varandi verðbólgu hafa fyrir-
tækin alla tilhneigingu til þess
að liggja aldrei með reiðufé,
heldur koma þvi fyrir i
„föstu” þegar i stað, er það
skapast. Á sama hátt hafa þau
alla tilhneigingu til þess að
kaupa fyrst og greiða svo, rétt
eins og einstaklingarnir gera
þegar þeir kaupa sér ibúö eða
byggja. Þess eru mörg dæmin
að fyrirtæki leika þennan
verðbólguleik mjög opinskátt,
eins og t.d. þegar þau eru með
vissu árabili að by ggja yfir sig
og flytja eftir að búið er að af-
skrifa fyrra húsnæði nægilega
að mati forráða manna þeirra.
Það er ljóst að islenzkt efna-
hagslíf er eitthvert algerasta
lánsfjárhagskerfi sem sögur
fara af. Það er i öðru lagi Ijóst
að eini lánardrottinninn sem
kveður aði hagkerfinu er rikið
og bankar og sjóðir þess. Það
er i þriðja lagi ljóst, að i þessu
hagkerfi er verðbólgan orðin
að inngrónu fyrirbæri, svo
samgrónu efnahagsstarfsem-
inni að sjálft hagkerfið og
brautir ákvarðana og breytni
innan þess taka afdráttarlaust
mið af áframhaldandi verð-
bólgu.
Atvinnu-
rekendur í
víta-
hringnum
Við þessar aðstæður tjóir at-
vinnurekstrinum ekki að böl-
sótast yfir þvi að hann eigi við
rekstrarfjárskort að striða al-
mennt. Atvinnureksturinn
verður að sjálfsögðu að taka á
sig sinn hluta ábyrgðarinnar
af áframhaldandi óðaverð-
bólgu. Um það þarf t.d. alls
ekki að efast, að ef forráða-
menn atvinnurekstrarins i
landinu tækju sig saman um
aðhaldssemi i eyðslu, fjárfest-
ingu og framlögum umfram
sjálfan reksturinn i þröngri
merkingu orðsins — og ef
slíkri samþykkt yrði fram-
fylgt i reynd um nokkurra
mánaða skeið, þá myndi veru-
lega draga úr verðbólgunni i
landinu. Slikrar ákvörðunar
myndi og mjög gæta i fjár-
munaráðstöfun i hagkerfinu
að öðru leyti, t.d. af hálfu ein-
staklinganna og fjölskyldn-
anna i landinu. Ef atvinnu-
reksturinn hefði samtimis i
frammi raunverulega tilburði
til sparnaðar i meðferð vinnu-
afls á ekki að vera hætta á þvi
að til nokkurs atvinnuleysis
kæmi.
Það er alveg rétt að at-
vinnureksturinn á við sin
vandamál að striða, og um
þessar mundir beinast augu
manna að frystiiðnaðinum
vegna þeirra frétta sem af
honum hafa borizt. Það er hins
vegar alveg i hafsauga ef at-
vinnurekendur ætla að halda
þvi fram að almennur rekstr-
arfjárskortur sé til kominn
einfaldlega fyrir aðgerðir og
framkomu fjandsamlegs rik-
isvalds. Þessi rekstrarfjár-
skortur er til kominn vegna
þess fyrst og fremst að I land-
inu er óðaverðbólga og allir,
þ.á.m. fyrirtækin, leggja á-
herzlu á að koma lausafé sinu i
eitthvað „fast” og það sem
allra fyrst áður en verðgildi
þess fellur. En þessu fylgir
það, að atvinnureksturinn ber
sinn hluta ábyrgðarinnar á á-
framhaldandi verðbólgu i
landinu,
verðbólgu sem er vitahringur
vegna þess að hún er orðin
einn meginráður efnahags-
legra ákvarðana í hagkerfinu.
JS
5
SKiPAUTCiCRÐ RIKISINS
AA.s. Baldur
fer frá Reykjavik þriðjudag-
inn '30. ágúst til Breiðafjarð-
arhafna.
Vörumóttaka:
mánudag og til hádegis
þriðjudag.
AA.s. Esja
fer frá Reykjavfk fimmtu-
daginn 1. september vestur
um land i hringferð.
Vörumóttaka:
fiistudag, mánudag og
þriðjudag til Vestfjarða-
hafna, Norðurfjarðar, Siglu-
fjarðar, ólafsfjaröar, Akur-
eyrar, Húsavikur, Raufar-
hafnar, Þórshafnar og
Vopnafjarðar.____
'tK.aupfélag ^Zangseinga
auglýsir:
Höfum til sölu Massey-Ferguson 165 ár-
gerð 1974. Með Multi-Power búnaði og
húsklæðningu. Einnig nokkrar eldri drátt-
arvélar.
Upplýsingar gefur Bjarni Helgason, sim-
ar (99) 5121 og (99)5225.
Til sölu
Fyrsta kálfskvigur, haustbærar. Upplýs-
ingar hjá Sigurði Jónssyni Eystra-Selja-
landi. Simi um Seljaland.
ALK3LVSWQA0Elt.DIN/ LJÓSM STUDtO 28
Skólapeysur
Tugir tegunda. Allar stæröir. Margir litir.
995.- krónur - Eitt verð
Aðeins í f imm da?a
s