Tíminn - 26.08.1977, Side 8
8
Föstudagur 26. ágúst 1977
Tölva hugsar ekki
— sem betur fer
Þótt íslendingar séu
úti að aka á flestum
sviðum, og geti ekki
talizt i hópi forystu-
þjóða — ekki einu sinni
i fiskveiðum, þá eru
þeir býsna fljótir að til-
einka sér vissar tækni-
nýjungar.
Þó munu þeir hafa
verið fremur seinir að
meta kosti tölvunnar.
Veldur þvi stööugt stagl um
lögmálið iskölum landsins, þeir
þurfa að skilja alla skapaða
hluti.
Sagt er, að þegar fysrtu rit-
vélarnar komu til landsins hafi
orðiö ágreiningur um það hvort
gilt ætti að taka vélrituð skjöl
eins og afsöl og skuldabréf, þótt
undirituð væru, og starfsmenn
veðdeildarinnar munu hafa bor-
ið saman frumrit og afrit af
stakri kostgæfni.
NU er öldin önnur, innistæður
manna i bönkunum eru teknar
upp á segulbönd, og gamlir
nurlarar og aðrir alvörumenn
snúa sér við i gröfinni.
Þótt hið gamla viðhorf, að
menn verði að skilja alla skap-
aða hluti út i æsar, til þess að
geta notfærtsér þá , sé að mestu
úr sögunni, þá búum við enn yfir
vissri varúð gagnvart sumum
tæknibrögðum. Menn taka tölv-
um af varúð og oft með dálitilli
tortryggni. A yfirborðinu er allt
rólegt, og menn láta eins og
ekkert sé.
Sá timi er liðinn, að menn
reyni að senda beljur með sim-
skeyti, svo og annan varning.
Eg er ekki frá þvi, að rétt hafi
verið nú að reyna að hreinsa
svolitið andrúmsloftið gagnvart
tölvunni. Tölvur eru góðar i
reikningi, — það vissum við fyr-
ir, en þær er ekki húsbóndi
mannsins i' einu eða neinu, og
það er þaðsem skiptir öllu máli.
Hvað er tölva?
Nýlega kom út bók eftir
Gunnar M. Hannesson.'sem ber
heitið Hvað er tölva? Útgefandi
eru öm og örlygur.
Þar er gert grein fyrir tölv-
unni á alþýðlegan og ljósan hátt.
Höfundur skiptir bók sinni á
niu kafla, sem slðan eru brotnir
niður i fleiri sjálfstæöa hluta. t
inngangi segir höfundur á þessa
leið:
„Við lifum upphaf tölvualdar-
innar. A þeim tæpum þremur
áratugum sem liðnir er siðan
timabil sjálfvirkrar gagna-
vinnsluer talið hafa hafizt, hef-
ur þáttur tölvunnar I daglegu lifi
okkar farið mjög vaxandi.
Hvort sem hún er notuð til þess
aö reikna út rafmagnsnotkun
okkar, til þess að aðstoða veður-
fræingana við gerð veðurspáa
eða til þess að færa bankareikn-
inga okkar, hefur tölvan meiri
og minni áhrif á daglega lífið. Á
tslandi hefur notkunin aukizt
hvað mest siðust 10 árin bæði i
atvinnulffinu og hjá hinu opin-
bera.
Margar „þjóðsögur” ganga
um tölvur, þjóösögur sem aðal-
lega fá byr undir
vængi vegnaónógrar þekkingar
fólks á þeim. Fólk litur oft á
tölvur sem eins komar töfratæki
og heldur að það geti aldrei skil-
ið þær. En sem betur fer er það
rangt. Tölvan er aöeins raf-
eindatæki eins og t.d. sjónvarpið
heima hjá okkur.
Tilgangur þessarar bókar er
að reyna að svipta hulunni af og
kynna þér á sem einfaldastan
hátt svið tölvutækninnar.”
Siðan koma kaflarnir, og
fjallað er um gagnavinnslu,
hvað stýrir tölvu, hvernig möt-
um við tölvuna á gögnum, forrit
og svo framvegis.
Við lestur bökarinnar, þá
verður margt ljóst, sem annars
virtist ofvaxið venjulegum
manni.
Þar kemur i ljós að maðurinn
er mesti aumingi til reiknings,
— miðað við tölvur, en hér fer
sem oft áður, að sá heimskari
ræður, sumsé maðurinn. Það er
alla vega uppörvandi aö lesa
það, sem stendur á bls. 50.
„Þegar tölva reiknar út laun
eða ákveöur stefnu tunglflaugar
viröist hún hafa skilað mjög
snúnu verkefni. Raunverulega
hefur hún aðeins framkvæmt —
i ákveðinni röð — mikinn fjölda
tiltölulega auðveldara aðgerða,
semstjórnað er af röð af fyrir-
skipunum sem kallast forrit.
Tölvan hugsar ekki. Hún gerir
aðeins það sem henni hefur ver-
ið sagt að gera.
A upphafsárum tölvutima-
bilsins þurfti að breyta víra-
tenginum inni i tölvunni, þegar
hún átti að vinna nýtt verk. 1
næstu tölvukynslóð voru að-
gerðirnar innbyggðar þannig,
að allar viratengingar voru úr
sögunni.
Tölvur framkvæma nú marg-
vfslega hluti samtimis. Þvi er
mjög mikilvægt að stýriforrit
þau, sem tölvuframleiðendur
láta notendum i té, séu sem best
úr garði gerð.”
Nýyrði og tölvur
Það er dálitið rikt i fólki, sem
fær simareikninga, að tor-
tryggja fr'amsetningu kerfisins,
sem kemur i flóknu dulmáli.
Höfundur bókarinnar kemur
viða viðog eyðir talsveröu rúmi
til þess að greina frá þeim
tungumálum, er tölvan talar,
eða öllu heldur skilur.
Fljótlega varð til sérstakt
„vélamál”, en það hafði tvo
stafi 1 og 0, sett fram i fernum.
Forrit voru sett fram i tvítölu-
formi.
Eftir miðjan sjötta tug þess-
arar aldar voru tákn látin koma
i staðinn fyrir hluta af vélamál-
inu, sem varð til mikils hagræð-
is. Smám saman liktust formin
skipunum á ensku, segir höf-
undur. Sérstakt þýðingarforrit
(i tölvunni) breytti forriti þvi,
sem forritarinn hafði skrifað á
vélamáli.
FORTRAN var eitt af fyrstu
æöri forritunarmálum.
„FOTRAN var fyrst og
fremst ætlað að leysa stærð-
fræðileg verkefni. Annaö mál á
þessu sviði er ALGOL. Siðan
komu forritunarmál sérstak-
lega sniðin fyrir verkefni við-
skiptalegs eðlis, t.d. RPG,
BASIC og COBOL. Algengasta
málið hér á landi er RPG.
Reynt hefur verið að búa til
forritunarmál, sem bæöi hentar
á stærðfræði- og viðskiptasvið-
inu. Sem dæmi má nefna PL/1
BASIC er auðvelt að læra og er
talsvert útbreitt. Minnir þaö þó
nokkuð á FORTRAN. Annað
auðvelt en öflugt forritunarmál
er APL. Það er mjög frábrugðið
FORTRAN og BASIC og hentar
afar vel á stærðfræðisviðinu”.
Ennfremur kemur f ljós að Is-
lenzkan hefur eignast fjölda
nýrra orða, vegna tilkomu tölv-
unnar, og skulu nokkur talin
hér:
Blokkrit
Disklingur
• Fjarvinnsla
Gagnamiðlar
Hugbúnaður
Pökkuð tala
Táknstika
Lokaorð
I bókarlok kemur svolitil
predikun frá höfundi, sem á
raunar ekkert erindi við þessa
bók. Siðan segir:
„Það sýnist óhjákvæmilegt,
að tölvan muni valda róttækum
breytingum og ef til vill hefur
ekki enn verið litið á þær sumar
hverjar sem hugsanlegt vanda-
mál. Vissulega er það ekki tak-
markiö aö skapa fullkomnari
tölvuheim, heldur að heimurinn
verði manninum betri dvalar-
staður. Það kann að reynast
vandi að halda jafnvægi með
„framförum” og „menningu”,
en þegar fram i sækir má sam-
félagið sjálfu sér um' kenna, ef
tölvurnar fá að skapa fleiri
vandamál en þær leysa.
Iðnbyltingin hafði margvis-
lega tæknifræðilega þróun í för
með sér, er hafði þau félagslegu
áhrif, sem margar kynslóðir
þurfti til að samhæfast, áður en
þau urðu eðlilegur þáttur í lífi
okkar. A þeim tæplega þrem
áratugum, sem liðnir eru siðan
tölvurnar komu til sögunnar,
hafa mikilvægar breytingar átt
sér stað. Svo kann þó að fara, að
það þurfi að liða nokkrar kyn-
slóðir áður en menn gera sér
fulla grein fyrir félagslegum og
menningarlegum áhrifum tölv-
unnar.
Hvað um heim morgundags-
ins? Það er fullvist, að tölvur
verða ódýrari, tölvuvinnsla
sömuleiðis, að þær verði auð-
veldari meðferðar og almenn-
ingur eigi eftir að fá viðtækari
aðgang að þeim. Það hlýtur að
hafa áhrif á lif okkar sem ein-
staklinga og á samfélagið, sem
við lifum i. Athöfn manna og
viðleitni á mörgum sviðum mun
verða stöðugt háðari tölvunum
og óhjákvæmilega opnar það við
sjónarsvið, sem enginn getur
imyndað sér i dag”.
Það liggur ekki ljóst fyrir að
hve miklu leyti höfundur hefur
„tekið saman” þessa bók, eða
samið hana frá grunni. Vafa-
laust hefur þó verið stuðzt við
sambærilegar kennslubækur,
erlendar. Heimilda er þó ekki
getið.
Hvað um það. Bókin bætir úr
brýnni þörf og höfundur hefur
unnið gott verk.
Dæmi eru ljós t.d. saman-
burður við manninn, þvottavél-
ina, perurnar og morse — staf-
rófið, svo eitthvað sé nefnt.
Þessa bók hljóta allir að skilja.
Það er til hjálpar, að varað er
við köflum, sem ekki snerta
sjálft efnið beinlinis, sumsé
spurninguna um það: Hvað er
tölva?
Um framtið tölvunnar er
betra að vera fáorður.
Óskar heitinn Halldórsson
stofnaði eitt sinn fyrirtæki með
manni. Þegar öllu var lokið,
sagði maðurinn:
— Svo skulum viðhafa gottog
vandað bókhald?
Óskar mun hafa orðið hvert
við og spurt:
— Hver hefur orðið rlkur á
bókhaldi?
Siðan þetta gerðist eru liðin
mörg ár. Margt hefur breytzt,
meðal annars það, að snjöllum
og stórum fyrirtækjum er yfir-
leitt stýrt með tölvum, sem
vaka yfir rekstri og áran allri.
Nú verða menn rikir á bók-
haldi — á tölvum.
Jónas Guðmundsson
Fáein orð um nýja bók