Tíminn - 26.08.1977, Síða 11
Fostudagur 26. ágúst 1977
11
WmémM
Útgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Kitstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn-
arfulltrúi: Jón Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrlmur
Gislason. Kitstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og
auglýsingar Siðumúla 15. Simi 86300. Verð I lausasölu kr.
70.00. Askriftargjald kr. 1.300 á mánuði.
Blaðaprent h.f.
Flokksblöðin
Af hálfu fjáraflamanna þeirra, sem standa að
útgáfu siðdegisblaðanna i Reykjavik hefur verið
hafinn mikill áróður fyrir þvi að blöð, sem eru
gefin út af flokkum, eigi engan rétt á sér, þvi að
þau túlki ákveðnar skoðanir og séu ekki nægilega
frjáls. Þetta gegni öðru máli um blöð, sem eru
gefin út af fjáraflamönnum og telji sig ekki fylgja
neinum ákveðnum flokki. Þau séu frjáls og óháð
og þeim megi þvi treysta.
Áróður þessi er byggður á þeirri stórfelldu
blekkingu, að blöð fjáraflamanna séu frjáls og
óháð. Undantekningarlitið styðja þessi blöð þá
flokka, sem vinna að þeirri þjóðfélagsskipan, er
hentar fjáraflamönnum bezt. Þessi blöð styðja
þvi ihaldsstefnu i þjóðmálum og vinna gegn um-
bótaflokkum. Umbótaflokkarnir hafa þvi neyðzt
til að hefjast handa um blaðaútgáfu til þess að
geta mætt áróðri blaðanna, sem fjárafla-
mennirnir gefa út. Ljósasta dæmið um þetta er
blaðaútgáfa sósialdemókrata á Norðurlöndunum
og i Vestur-Þýzkalandi. Áður en útgáfa þeirra
hófst, voru blöðin lokuð fyrir kenningum sósial-
demókrata. Það gildir undantekningarlitið enn,
að þau blöð, sem eru gefin út af fjáraflamönnum,
eru andvig sósialdemókrötum og halda fram
kenningum, sem eru andstæðar þeim.
Ljóst dæmi um þetta eru siðdegisblöðin, sem
eru gefin út af fjáraflamönnum i Reykjavik. Þau
túlka stefnu hægri afla i Sjálfstæðisflokknum og
fjandskapast gegn öllu þvi, sem fjáraflamönnum
þykir miður. Það breytir ekki neitt þessari stað-
reynd, þótt þau endrum og eins birti greinar, sem
eru annarrar skoðunar, og reyni þannig að villa á
sér heimildir. Þau þjóna hagsmunum fjárafla-
manna fyrst og fremst, enda gefin út i þeim til-
gangi.
Af þessum ástæðum er nauðsynlegt, ef fullt
málfrelsi á að rikja, að umbótaflokkar eða
umbótahreyfingar eigi sin eigin málgögn. Það er
nauðsynlegt til að tryggja sem fyllst ritfrelsi.
Annars ráða fjáraflamenn mestuum það, sem al-
menningur fær að sjá og heyra, eins og á sér allt-
of mikið stað i mörgum kapitalisku landanna.
Ræðismennirnir
© Nýlega er lokið ráðstefnu, sem utanrikisráðu-
neytið hélt fyrir ræðismenn íslands erlendis, en
þeir eru nú 190 að tölu. Um 100 þeirra tóku þátt i
ráðstefnunni. Meðan ræðismennirnir dvöldu hér,
greiddi utanrikisráðuneytið uppihald þeirra, en
þeir greiddu sjálfir ferðina hingað. Ráðstefnan
var sett af Einari Ágústssyni utanrikisráðherra,
en nokkrir starfsmenn utanrikisráðuneytisins
héldu erindi um starf og hlutverk ræðismanna.
Þá fengu ræðismennirnir tækifæri til að kynnast
sjónarmiðum þeirra aðila, sem annast útflutning
og samgöngur við útlönd. Þá gafst ræðismönnun-
um tækifæri til að heimsækja Akureyri og ná-
grannabyggðir.
Það er tvimælalaust, að slik ráðstefna gegnir
mikilvægu hlutverki. Ræðismennirnir sem starfa
kauplaust, vinna að þvi að greiða fyrir íslending-
um erlendis og margir þeirra greiða fyrir sölu is-
lenzkra afurða. Það er þvi þýðingarmikið, að þeir
kynnist islenzkum aðstæðum og sjónarmiðum
sem bezt og að sem bezt tengsli geti myndazt
milli þeirra og utanrikisráðuneytisins og fulltrúa
islenzkra atvinnuvega.
ERLENT YFIRLIT
Fangelsanir haf nar á
fylgismönnum Indiru
Sækir aftur í sama farið í Indlandi?
SENN er liðiö hálftár síðan
Janata-flokkurinn i Indlandi
vannsiguri þingkosningum og
Moraji Desai tók við stjórnar-
forustu af Indiru Gandhi.
Kongress-flokkurinn, sem
hafði þá stjórnað Indlandi um
þrjátiuára skeið, beið mikinn
ósigurog var mest kennt um,
að Indira hafði þá um 19
mánaða skeið látið eins konar
herlög gilda i landinu og beitt
ýmsa andstæðinga sina hand-
tökum ogöðru harðræði. Þetta
leiddi til þess, að andstæðing-
ar hennar sameinuðust allir
gegn Kongressflokknum, en
hann hafði áður notið þess, að
þeir höfðu gengið klofnir til
kosninga og hann þvi fengið
meirihluta á þingi, þótt hann
hefði minnihluta kjósenda að
baki sér. Indira Gandhi hefði
sennilega ekki efnt svo fljótt
til kosninganna, ef hún hefði
átt von á þessari samstöðu
andstæðinganna. Þeir notuðu
sér ákaft það hálfgerða ein-
ræðisvald sem hún hafði tekið
sér og áður er vikið að. Eink-
um héldu þeir þvi fram að hún
og Sanjay sonur hennar
myndu taka sér einræðisvald,
ef Kongressflokkurinn ynni
kosningarnar. Þetta bar til-
ætlaðan árangur. Hvorki
Indira eða Gandhi náðu kosn-
ingu og Kongressflokkurinn
beið mikinn ósigur. Al-
menningur virtist fagna sigri
andstæðinga hennar og þó
einkum þvi^að aftur yrðu telöi-
ir upp frjálslegri stjórnar-
hættir i landinu meö afnámi
þeirra einræðislegu ráðstaf-
ana, sem Indira hafði gripið
til.
AF framangreindum ástæð-
um fagnaði almenningur hinni
nýju stjórn. Nú er hins vegar
komið að þvi, að hveitibrauðs-
dagarnir séu liönir. Menn
væntu meira af hinni nýju
stjórn en að hún tæki upp
frjálslegri stjórnarhætti. Aðr-
ar meiriháttar stjórnarað-
gerðir hafa hins vegar dregizt
á langinn. Aðalástæðan er sú,
að Janata-flokkurinn er mjög
ósamstæður. I upphafi var
hann reyndar ekki annað en
ósamstæðir flokkar, sem
geröu með sér bandalag um að
fella Indiru. Þeir áttu fátt
annað sameiginlegt. Eftir
sigurinn i kosningunum var
þetta bandalag sameinað i
einn flokk, Janataflokkinn. Al-
menningur vill að hinn nýi
flokkur fari að sýna hvers
hann er megnugur. Hingaö til
hefur árangurinn veriö meira
en lítill. Verðbólgan sem hafði
Sanjay Gandhi
haldizt i skefjum meðan
neyðarástandið rikti, hefur
magnazt að nýju. Mikil verk-
föll hafa aftur komið til sög-
unnar en verkföll höfðu nær
engin verið meðan Indira
beitti neyöarástandsakvæði
stjórnarskrárinnar. Ýmsir
virðast aftur vera farnir að
þrá sterka stjórn i likingu við
þá.sem var siðustu stjórnarár
Indiru. Helzt styrkir það nú
stjórnina, að uppskeruhorfur
eru sæmilegar. Það eitt nægir
hins vegar ekki til lengdar, ef
stjórnin á aö halda vinsældum
sinum. Stjórnin lifir ekki lengi
á þvi einu, að hún hafi aukið
stjórnmálafrelsi að nýju, þvi
að fólk krefst margs annars.
Nú eru ýmsir lika farnir að
elta vöngum yfir þvi, hvort
þetta frelsi verði varanlegt.
Margt virðist benda til að
stjórnin hafi i undirbúningi
mikil málaferli, sem beinast
aðnánustu samverkamönnum
Indiru.
FYRSTA merkið um þetta
þykir það að fjórir nánir sam-
verkamenn hennar voru
fangelsaðir i siðustu viku og
var þeim gefið að sök, að þeir
hefðu bæði ráðstafað opinberu
fé illa og dregið sér það per-
sónulega. Meðal þessara
manna var einkaritari Indiru
siðustu misserin, sem hún var
forsætisráðherra R.K.
Dhawan. Annar hafði verið
ráðherra i stjórn hennar og
þriðji var þingmaður sem var
talinn hafa verið sérstakur
pólitiskur ráðunautur hennar.
Hinn fjórði hafði gegnt valda-
miklu embætti i verzlunar-
ráðuneytinu.
Siðasti. þriðjudag var svo
Bansi Lal, sem var varnar-
málaráðherra i stjórn Indiru
hnepptur i fangelsi en hann
var talinn einn af þremur
áhrifamestu mönnum stjórn-
arinnar. Allir höfðu þessir
menn verið mjög handgengnir
Sanjay Gandhi og telja sumir
að málaferlunum gegn þess-
um mönnum sé raunverulega
beint gegn honum. Enn hefur
ekki verið höfðað mál gegn
honum, en honum hefur verið
bannað að fara úr landi og
spáð er þvi, að bráðlega verði
höfðað mál gegn honum og a 11-
mörgum samverkamönnum
hans sem unnið hafa við bfla-
verksmiöju sem hann veitti
forustu um skeið og reyndist
mjög misheppnuð. Meðal al-
mennings virðist það ekki
mælast illa fyrir, að beina
spjótum gegn Sanjay, þvi að
hann hafði unnið sér miklar
óvinsældir vegna baráttu
sinnar fyrir þvi að dregið yrði
úr mannfjölguninni á þann
hátt að gera menn ófrjóa.
Sumir telja að raunar hafi þaö
verið þessi barátta hans,
ásamt áberandi einræðis-
hneigð sem hafi orðið Indiru
mest að falli. Indira gerir sér
bersýnilega ljóst að i undir-
búningi er mikil herferð gegn
henni og fyrri samverka-
mönnum hennar. Hún er þvi
byrjuð að nýju að láta að sér
kveða og hefur að undanförnu
ferðazt um þau héröð landsins
þar sem hún á mest fylgi og
haldið þar vel sótta fundi.
Leiðtogar Kongressflokksins
virðast hins vegar litið hrifnir
af þvi og reyna auðsjáanlega
að koma i veg fyrir að hún nái
aftur forustu i flokknum en
hún missti hana, þegar hún
féll i þingkosningunum. Samt
vilja ýmsir þeir fréttaskýr-
endur sem bezt þekkja til i
Indlandi engan veginn telja
það útilokað að hún eigi eftir
að koma til skjalanna aftur.
Það veltur að sjálfsögðu mjög
á þvi hvernig rikisstjórn
Janatg-flokksins tekst. Takist
henni illa kann þeim að fjölga
sem vilja fá hina sterku stjórn
Bansi Lal
Indiru aftur.
Þ.Þ.
Þ.Þ.