Tíminn - 26.08.1977, Blaðsíða 21
Föstudagur 26. ágúst 1977
21
íþróttir
íslandsmeistaratitillinn upp á Skaga
Víkingar gerðu draum
Valsmanna að engu...
— á Laugardalsvellinum í
gærkvöldi. Valsmenn máttu
sætta sig við jafntefli (3:3) gegn
baráttuglöðum Víkingum
Draumur Valsmanna um að endurheimta Islandsmeistaratitilinn i
knattspyrnu, varð að engu i gærkvöldi á Laugardalsvellinum, þar sem
þeir þurftu að sætta sig við jafntefli (3:3) gegn Vikingum i geysilega
skemmtilegum og spennandi leik. Valsmenn náðu aldrei tökunt á bar-
áttuglöðum Vikingum, sem höfðu ávallt frumkvæðið i leiknunt. Vals-
menn þurftu þvi að sjá á eftir islandsmeistaratitlinum upp á Skaga.
Leikurinn bauð upp á allt, sem
getur sézt i knattspyrnu — mörk,
markatækifæri, gleði og sorg. Já,
knattspyrnan getur oft verið mis-
kunnarfaus. Það voru Vikingar
sem hófu leikinn á miklum krafti
— byrjuðu strax á sóknarleik,
sem gaf mark eftir aðeins 10
minútur. Gunnlaugur Kristfinns-
son átti þá skot af 35 m færi, sem
Kirby
fagnar
— heima hjá
sér í
Englandi
GEOKGE KIRBY, hinn snjalli
þjálfari Skagantanna, hafði
það rólegt i gærkvöldi — hann
sat heima i stofunni hjá sér i
Englandi, þegar hann fékk
skeyti um það, að Akurnes-
ingar hefðu endurheimt ts-
landsmeistaratitilinn, sent
þeir unnu síðast undir hans
stjórn 1974 og 1975.
Kirby hélt til Englands i
gærmorgun, þar sem hann
ætlaði að dveljast um viku
tima, en þá kemur hann aftur
til landsins, til að ganga frá
sinum málum. Kirby hefur
eflaust fagnað meistaratitl-
inum, með bjórglas i hendi.
Honum hefur tekizt það, sem
hann ætlaði sér, þegar hann
kom aftur til Skagamanna i
haust — að endurheimta Is-
landsmeistaratitilinn.
— SOS
skall á samskeytum marksVals-
manna — þaðan barst knötturinn
til Gunnars Arnar Kristjáns-
sonar, sem skoraði með föstu
skoti af 25 m færi — knötturinn fór
fram hjá Sigurði Dagssyni,
markverði Vals, sem var illa á
verði. Eftir þetta skiptust liðin á
að sækja, en Valsmenn ná smátt
og smátt tökum á leiknum og ná
að jafna á 35. min., þegar Albert
Guðmundsson skorar gullfallegt
mark með þrumuskoti Ur vita-
teig, eftir að Guðmundur Þor-
björnsson hafði rennt knettinum
Ut til hans.
Vikingar voru ekki á þeim
buxum að gefast upp — þeir ná
forystunni aftur á 45. min., þegar
Hannes Lárusson lék fyrrum
félaga sina Ur Val grátt. Hannes
lék skemmtilega á þá Grim Sæ-
mundsson og Dýra Guðmundsson
Ut viðendamörk og sendi knöttinn
fyrir mark Valsmanna, þar sem
Eirikur Þorsteinsson var vel
staðsettur við nær stöngina —
hann skoraði með kollspyrnu,
með þvi að sneiða knöttinn.
Valsmenn jafna aftur metin á 5.
min. siðari hálfleiksins, þegar
Albert Guðmundsson sendi
stungubolta fram til Inga Bjarnar
Albertssonar, sem tók laglega við
knettinum og vippaði honum yfir
Diðrik Ólafsson, markvörð Vik-
ings, sem var kominn Ut Ur mark-
inum. Adam var ekki lengi i
Paradis hjá Valsmönnum, þvi að
aðeins tveimur min. siðar skora
Vikingar 3:2, eftir ljót varnar-
mistök Valsmanna. Jóhannes
Bárðarson tók þá aukaspyrnu og
sendi góða sendingu inn i vitateig
Vals, þar sem Eirikur Þorsteins-
son stóð einn og óvaldaður —
hann skallaði knöttinn i þverslá,
en þaðan hrökk hann Ut til Kára
Kaaber, sem var eins og Eirikur,
á auðum sjó — Kári skallaði
knöttinn i mannlaust mark Vals-
manna.
Þegar hér var komið við sögu,
VALSMENN FAGNA MARKI.... Albert (9) hefur skorað fyrsta niark Vals. Ingi Björn fyrir ofan Diðrik,
markvörð, en Guðmundur Þorbjörnsson út á velli. (Tfmamynd Róbert)
gerðu Valsmenn breytingar á liði
sinu — Hörður Hilmarsson var
tekinn Ut af, en Jón Einarsson var
settur inn á. Valsmenn bættu
einum leikmanni i sóknina á
kostnað miðvallarspilsins, sem
varð litið semekkert hjá þeim
eftir það. — Ég tel að þarna hafi
Valsmenn gert mistök, þvi að það
var miklu auðveldara að spila á
miðjunni, eftir þessa breytingu,
sagði Gunnar örn, miðvallar-
spilari Vikings, eftsir leikinn.
Valsmenn léku þannig eftir
breytinguna, að varnarmennirnir
reyndu mikið af langspyrnum
fram á hina fljótu sóknarleik-
menn Valsliðsins, og reyndu
þannig að sundra vörn Vikings.
En Vikingsvörnin, með þrjá mið-
verði, var sterk fyrir og náði hUn
að stöðva fjóra sóknarleikmenn
Vals, sem voru oft allir i hnapp.
Valsmenn sóttu stift undir lokin
og reyndu þeir að gera Ut um leik-
inn. Þeim tókst að jafna — 3:3.
þegar Ingi Björn Albertsson skor-
aði Ur vitaspyrnu á 85 min., sem
var dæmd á Ragnar Gislason,
bakvörð Vikings, sem stöðvaði
skallabolta frá Inga Birni á linu —
með brjóstkassanum, en knöttur-
inn fór i hendina á honum. Ekki
tókst Valsmönnum að knýja fram
sigur — og þar með var draumur
þeirra um aukaleik gegn Skaga-
mönnum, Ur sögunni.
Eins og fyrr segir þá var leikur-
inn mjög skemmtilegur og spenn-
andi. Vikingar mættu ákveðnir til
leiksog léku þeir sinn bezta leik á
keppnistimabilinu. Eirikur Þor-
steinsson var mjög góður sem
miðherji. Þá voru miðvallar-
spilararnir Gunnlaugur, Gunnar
örn og Jóhannes mjög hreyfan-
legir — þeir náðu oft góðum tök-
um i miðjunni, þannig að Vals-
menn komust ekki til að byggja
upp sóknarlotur. MagnUs Þor-
valdsson átti góðan leik i vörn
Vikings, —hann sýndi að hann er
einn okkar allra sterkasti bak-
vörður, þegar hann nær sér á
strik.
Valsliðið lék ekki eins og svo oft
áður i sumar — samvinna á milli
varnar og sóknar var ekki nógu
góð. Þeir sýndu oft góða spretti i
sókn, en miðvallarspilið vantaði
algjörlega, til að gera sóknar-
þungann meiri. Vörnin var ekki
nógu traust i leiknum.
MAÐUR LEIKSINS.- Eirikur
Þorsteinsson.
Guðmundur Haraldsson dæmdi
leikinn og skilaði hann hlutverki
sinu vel af hendi. —SOS
„Lengstu
mínútur á
ævi minni”
— sagðiJón
Gunnlaugsson,
miðvörður
Skagamanna
— Auðvitað er ég i sjöunda
himni — lokamfnútur leiksins
voru þær lengstu, sem maöur
hefur lilað, sagði Jón Gunn-
laugsson, miðvörður ís-
landsmeistara Akranes.
el'tir ieik Vikings og Vals i
gærkvöldi.
— Við eigum Islandsmeist-
aratitilinn fyllilega skilið, þar
sem við höfum verið i stöðugri
sókn að undanförnu á sama
tima og Valsmenn hafa verið á
niðurleið. Valsliðið er ekki
nærri þvi eins sterkt og það
var um mitt keppnistimabilið
— pressan hefur verið þeim
erfið, sagði Jón. _
*
Oánægja hjá
dómurum...
— sem skila inn dómaraskírteinum
VITASPYRNAN.
sem tók þessa m
... Ragnar stöövar knöttinn á slöustu stundu, meö hendi sagöi Róbert, ljósmyndari,
ynd.
Gifurleg óánægja er nú hjá knatt-
spyrnudómurum og hafa nokkrir
af þeim dómurum, sem dæma
leiki I 1. deildarkeppninni, skilaö
inn dómaraskirteinum sinum.
Ástæöan fyrir þessari óánægju
er, að Vali Benediktssyni, hefur
verið raðað niður á Evrópuleik,
sem linuvörður, en Valur hefur
ekki náð þeim prófum, sem FIFA
hefur krafizt að dómarar stand-
ist, til að þeir séu taldir fullgildir
dómarar eða linuverðir.
Islenzkir dómarar munu dæma
tvo leiki i Evrópukeppninni.
MagnUs V. Pétursson mun dæma
leik n-irska liðsins Coleraine gegn
Lokomotive Leipzig frá A-Þýzka-
landi i N-lrlandi 14. september i
Evrópukeppni lbikarmeistara.
Linuverðir með honum verða þeir
Valur og Eystunn Guðmundsson.
Guömundur Haraldsson mun
dæma leik Newcastle gegn irska
liðinu Bohemian i UEFA-bikar-
keppninni i Newcastle 28.
september Linuverðir með hon-
um verða Rafn Hjaltalin og
Hreiðar Jónsson.
—SOS