Tíminn - 26.08.1977, Síða 24
18-300
Auglýsingadeild
Tímans.
f íbsmmt
Marks og Spencer
HEIMSÞEKKT GÆÐAMERKI
YTRIFATNAÐUR
Nútima búskapur þarfnast
BHUBR
haugsugu
Guöbjörn
Guöjónsson
íslenzk
skákstig!
— sýningin
MÓL-Reykjavlk. Sýningin
Heimiliö ’77 veröur opnuö al-
mennum gestum idagkl.18, en
hún veröur sett kl 16 meö ávarpi
Ólafs Jóhannessonar, viöskipta-
málaráöherra, sem er verndari
sýningarinnar, aö viöstöddum
forsetahjónunum, ráöherrum
og öörum gestum.
1 gærdag var unnið af fullum
krafti við undirbúning sýn-
ingarinnar og þegar blm. Tim-
ans gekk um svæðið I gær fannst
honum að það myndi vera með
ólikindum, ef sýningin opnaði á
réttum tima. En forráðamenn
hennar eru meö öllu óhræddir,
hefst í dag
enda hafa þeir reynslu margra
sýninga að baki.
Það, sem hefur vakið einna
mestu athygli manna, er risa-
stóllinn, sem hefur verið komið
fyrir við Suðurlandsbrautina
gegnt Hótel Esju og ber hann
merki sýningarinnar. Þorkell
Guðmundsson, húsgagnaarki-
tekt, teiknaði hann og sá um
uppsetninguna. Þetta er áreið-
anlega stærsta húsgagn — ef
húsgagn skal nefna' —sem Þor-
kell hefur teiknað, enda hefur
fengizt staðfesting á þvi frá
heimsmetabók Guinnes, að
stærri stóll finnist ekki i þessum
heimi.en hann er 7,5 metra hár.
Þessa bráðskemmtilegu mynd tók ljósmyndari Tímans í gær. Maöurinn á myndinni er Þorkell
Guðmundsson, húsgagnaarkitekt og hefur hann aldrei setiö I stærri stól. Fyrir þvi höfum viö staö-
festingu frá heimsmetabók Guinnes,
HÆTTA Á AT-
VINNULEYSI
áþ-Reykjavik — 1 fyrrahaust
skipaöi félagsmálaráöherra
nefnd til aö fjalla um atvinnu-
horfur I Rangárvallasýslu og
koma með tillögur til úrbóta.
Ljóst er, aö mikill fjöldi fólks
mun veröa atvinnulaust i vetur I
sýslunni, en ástandiö kemur til
með aö versna til muna, þegar
Sigölduvirkjun er lokið. Til
stendur að ráðast I Hrauneyjar-
fossvirkjun, en eftir þaö liggja
engin stór verkefni fyrir.'Nefnd-
in hefur seiit út spurningabréf
til allra þeirra Rangæinga, sem
hafa unniö viö virkjunarfram-
kvæmdir á hálendinu og spurzt
fyrir um framtiöaráætlanir.
Einnig hefur hún haft samband
viö fyrirtæki i sýslunni, og at-
hugaö, hvaö er á dagskrá hjá
þeim. A ári hverju koma um 60
manns út á atvinnumarkaðinn i
Rangárvallasýslu og viö virkj-
unarframkvæmdirnar starfa
286 manns úr sýslunni.
— Þessi stóri vinnumarkaður
á hálendinu tekur enda fyrr eða
siðar. Það er búið að ákveða að
fara I virkjun Hrauneyjarfoss,
en milli þess og Sigöldu er eyða.
Eftir þá fyrrnefndu liggur ekk-
ert fyrir, sagði Siguröur
Óskarsson framkvæmdastjóri
verkalýðsfélaganna I Rangár-
vallasýslu. — Við byrjuðum á
þvi að senda öllum Rangæing-
um, sem unnið hafa i Sigöldu,
spurningarlista. Þar var m.a.
spurzt fyrir um fyrirætlanir
þeirra og hugsanlegan vinnu-
stað eftir að vinnu yrði hætt.
Núna er verið að vinna aðgengi-
legar niðurstöður úr þessum
skýrslum, en mér virðist, að
þær staðfesti það, sem við vor-
um í raun og veru farmr að ótt-
ast. Meginhluti þess fólks, sem
var i Sigöldu sumariö 1976,
verður annað hvort aö búa við
ótryggl atvinnuástand,,atvinnu-
leysi eða þá að sækja vinnu út
fyrir héraðið.
1976 störfuðu í Sigöldu, sam-
kvæmt launaskýrslum lands-
virkjunar og verktaka við
Sigöldu, 216 karlar og 70 konur
úr Rangárvallasýslu. Nú hefur
verið mikill samdráttur mann-
afla i sumar. Hins vegar hafa
verkalýðsfélögin ekki ýkja
miklar áhyggjur af atvinnu-
ástandinu i dag, þar sem von er
á Hrauneyjarfossvirkjun, og
fæst þvi timi til að undirbúa
komu fólksins á atvinnumark-
aðinn, er þeirri virkjun likur.
Þvi var það, að nefndin sendi
öllum fyrirtækjum i sýslunni
spurningalista. Þar var óskað
eftir upplýsingum um, hverjar
væru áætlanir fyrirtæljanna um
aukningu, hvort þau hefðu i
hyggju að ráðast i nýjar fram-
kvæmdir, hvað fyrirætlanir
þeirra gætu skapað mörgum
vinnu, hvað þau þyrftu aö fá
mikið fjármagn og hvernig þau
ætluðu að fjármagna sinar áætl-
Framhald á bls. 23.
Friðrik
lang-
hæstur
MÓL-Reykjavik. Friðrik Ólafs-
son, stórmeistari, er I sérflokki
hvað varðar skákstig, en þau
islenzku voru reiknuð nú i mán-
uöinum. Er hann með 2595 og
nálgast þvi óðum hið merkilega
mark 2600 stig.
Næstur Friðrik er Guömund-
ur Sigurjónsson, stórmeistari,
með 2475, og á hælum hans
koma Helgi Ólafsson (2450) og
Jón L Arnason (2435). A eftir
ungu mönnunum kemur svo hin
gamalkunna kempa Jón
Kristinsson með 2415 stig, en
hann hefur sem kunnugt er litið
sinnt taflmennsku undanfarin
ár enda búsettur vestur á
Hólmavik. Ingvar Asmundsson
er með 2400 stig, en aðrir kom-
ust ekki yfir það mark.
Alls eru 466 skráðir með stig
og hafa þar af 66 bætzt viö á
þessu áril.
Hangárvallasýsla:°
EÐNÞING í MESTA
IÐNAÐARBÆNUM
áþ-Reykjavik. 37. Iönþing Islend-
inga var sett áAkureyri i gær I
Borgarbiói. I upphafi fluttiforseti
Landssambands. iönaöarmanna,
Siguröur Kristinsson, ræöu, en þá
ávarpaöi Gunnar Thoroddsen
iðn a öa rráöherra þingheim.
Meöal gesta á þinginu var bæjar-
stjórn Akureyrar, nokkrir
erlendir fulltrúar samtaka iön-
aöarmanna i Noregi, Danmörku
og Sviþjóö og innlendir forystu-
menn iðnaöarmála, auk þingfull-
trúa. Þingiö stendur þar til annaö
kvöld.
1 ræöu sinni fjallaði Sigurður
Kristinsson um þróun efnahags-
mála síöustu tvö árin en talaði
siðan um starfsemi landsam-
bandsins almennt. Siöan vék
hann að innri málefnum land-
sambandsins og sagði m.a.: „Viö
hljótum að gera okkur ljóst, að
þróun innlends iðnaðar á næstu
árum krefst mjög aukinnar
-tæknivæðingar, stöðlunar i hönn-
un, sérhæfingar og siðan og ekki
sizt aukinnar samvinnu fyrir-
tækja á ýmsum sviðum. Hvergi
er réttari og eölilegri grundvöllur
að vinna á að þessum málum en
einmitt innan stórra og frjálsra
samtaka eins og Landssambands
iðnaðarmanna. An virkrar þátt-
töku samtakanna á þessu sviði,
tel ég, aö þau standi vart undir
nafni sem hagsmunasamtök iðn-
aðarins”.
Gunnar Thoroddsen iðnaðar-
ráðherra gerði aö umtalsefni
fyrirhugaðar breytingar á iðnlög-
gjöfinni. Þá vék ráðherra að
byggingariðnaðinum og vakti
athygli á ibúöaspá 1975 til 1985,
sem framkvæmdastof nun ríkisins
hefur látið gera. 1 meginatrið-
um eru niðurstöðurnar þær, aí
þörf sé á 24 til 29 þúsund nýjum
ibúöum á þessu timabili, eða 2400
til 2800 ibúðum á ári að meöaltali.
Astæða er til að vekja athygli
byggingariðnaðarins á þessari
skýrslu og á hinum stórfelldu
verkefnum i byggingariðnaði á
komandi árum. Um málefni
skipaiðnaðarins sagði ráöherra
m.a. að iðnaðarráðuneytið hefði
beitt sér fyrir þvi að beina sem
mest af verkefnum i skipaiðnað-
inum til innlendra stöðva. Þá gat
ráðherra um viðamikla úttekt á
málefnum skipaiðnaðarins og
skipun nefndar á vegum ráðu-
neytisins, sem vinna á að til-
lögum um uppbyggingu skipaiðn-
aðarins.
Mjög hefur veriö vandað til alls
undirbúnings þessa þings og má
segja, að sá undirbúningur hafi
staðið frá þvi i marz á þessu ári,
en þá tóku til starfa fimm undir-
búningsnefndir Iðnþings. Eru
fundargögn mjög viðamikil, enda
tekin til afgreiöslu um 25 málefni.
Má bar nefna ályktanir um iðn-
aðarstefnu, og iðnþróun, ýmis
aðstöðumál iðnaðar.s.s. lánamál,
tollamál og tækniaðstoð fyrir iðn-
fyrirtæki og iðnmeistara.
Rétt til setu á þessu þingi eiga
fulltrúar frá félögum og félaga-
samböndum innan Landssam-
bands iðnaöarmanna, samtals
um 130 fulltrúar, sem skiptist
þannig, að frá Meistarasambandi
byggingarmanna eiga, rétt til
þingsetu 49 fulltrúar frá 14
félögum, frá Sambandi málm- og
skipasmiða 18 fulltrúar frá 4
félögum, frá rafiönaðinum 8 full-
trúar frá 2 félögum, frá hús-
gagna- og innréttingaiðnaöinum 7
fulltrúarfrá2 félögum, frá öðrum
iðngreinafélögum og fyrirtækjum
26 fulltrúar frá 11 félögum og
fyrirtækjum og frá 7 iönaðar-
mannafélögum á rétt til þingsetu
21 fulltrúi. Þingforseti var kosinn
Ingólfur Jónsson húsasmiða-
meistari frá Akuryeri.
Frá setningu Iönþingsins I Borgarbiói I gær. Timamynd: KS.