Tíminn - 10.09.1977, Page 17
Baráttan mikla í Laugardalnum!
Austurbæj arrisarnir
verða í eldlínunni Ht
Úrslitaleikurinn um
bikarinn fer fram
í Laugardalnum
á morgun
Bikarúrslitaleikurinn i knattspyrnu er framundan.
Það verða tvö Reykjavikurlið, sem ganga til leiks á
Laugardalsvellinum á morgun — tvö Austurbæjar-
lið, sem löngum hafa eldað grátt silfur á knatt-
spyrnusviðinu. Flestir eru á þeirri skoðun að úr-
slitabarátta þessara félaga verði mjög jöfn og mun
frekar ráða heppni en getumunur, hvort Valsmönn-
um tekst að verja bikarinn, eða hvort Framarar ná
að tryggja sér hinn eftirsótta grip.
Eins og kunnugt er, hafa viöur-
eignir þessara Austurbæjarfé-
laga verið gifurlega spennandi og
jafnar undanfarin ár. Þessi tvö lið
erumjögólik. Valsliðið er byggt
Hverjir
leika?
Hvernig verða lið Fram og
Vals skipuð ó morgun, þegar
þau mætast I bikarúrslitun-
um? Enn hafa nöfn leikmanna
ekki verið gefin upp, en miklar
likur eru á þvi, að liðin verði
skipuð þessum leikmönnum:
VALUR: — Sigurður Dags-
son, Bergsveinn Alfonsson,
Grimur Sæmundsen, Dýri
Guðmundsson, Magnús Bergs,
Albert Guðmundsson, Hörður
Hilmarsson, Ingi Björn Al-
bertsson, Atli Eövaldsson,
Guðmundur Þorbjörnsson og
Jón Einarsson.
FRAM: — Arni Stefánsson,
Agúst Guðmundsson, Simon
Kristjánsson, Sigurbergur
Sigsteinsson, Rafn Rafnsson,
Gunnar Guðmundsson, Asgeir
Eliasson, Rúnar Gislason,
Pétur Ormslev, Sumarliði
Guðbjartsson og Kristinn
Jörundsson.
i kringum „stjörnur”, og eru
máttarstólpar liðsins góður
markvörður, leiknir miðvallar-
spilarar og marksæknir fram-
linumenn, sem hafa skorað mikið
af mörkum. Framliðið er jafnt og
samvirkt lið, þar sem barátta og
kraftur, úthald og vinna ræður
rikjum. Þessir eiginleikar hafa
reynzt liðinu drjúgir og á góðum
degi eru léikmenn Fram óút-
reiknanlegir.
Eftir sterkan meðvind i byrjun
keppnistimabilsins, hefur Vals-
liðiö verið að slaka á aö undan-
förnu — leikmenn Vals misstu Is-
landsmeistaratitilinn úr höndum
sérá siöustu stundu, eins og menn
muna. Þrátt fyrir þetta er Vais-
liðið sigurstranglegra, en þó má
ekki afskrifa Fram-liðiö, þótt liö-
ið hafi misst Kristin Atlason.
Þeir sem óska Valsmönnum
sigurs, benda á sóknarleikmenn
Vals. Þeir telja að þeir Guðmund-
ur Þorbjörnsson, Ingi Björn Al-
bertsson og Atli Eðvaldsson eigi
eftir að gera varnarmönnum
Fram lifið leitt — og þeir veröi
Framvörninni þungir I skauti.
Þeir sem óska Fram sigurs,
benda á, aö Framarar hafi ávallt
staðið sig bezt, þegar mikiö hefur
legið við.
Baráttan
um miðjuna
Það er margt sem mun skipta
KNÖTTURINN I NETINU....Vonandi fá áhorfendur, sem leggja leið sína f Laugardaiinn á morgun, aft
sjá Valsmenn og Framara skora mörg mörk. Þessa mynd tók Gunnar Ijósmyndari Timans i hinum fjör-
uga leik Fram og Vals á dögunum, sem lauk með jafntefli 3:3. Það eru Framarar sem fagna þarna
marki.
miklu máli og aöalspurningin er
— Hvernig lyktar baráttunni um
miöjuna? Það er spá Tlmans, að
það liö, sem nær tökunum á miðj-
unni, fari meö sigur af hólmi. Ná
þeir Hörður Hilmarsson, Atli Eö-
valdsson og Albert Guðmundsson
völdum á miðjunni fyrir Val og fá
aö ráða miðvallarspilinu? Eöa
snýst þetta við og verður það I
verkahring Asgeirs Eliassonar,
Gunnars Guðmundssonar og
Rúnars Gislasonar að stjórna
spilinu á miðjunni? Crslitin i
þessari baráttu munu skipta
mestu máli — ekki sizt fyrir
sóknarleik liðanna.
Miðvallarspilið skiptir þó
meira máli fyrir Framara, sem
bv«'- nn leik upp á miðvallar-
sp u máli er að gegna meö
Valsliðið, sem hefur að undan-
förnu byggt sóknarleik sinn á
langspyrnum fram völlinn, þar
sem þeir binda vonir við hina
fljótu framlínumenn sina — að
þeir nái knettinum og prjóni sig I
gegn með hinum mikla hraða sin-
um.
Bikarstemmning
Það verður örugglega mikil
bikarstemmning á Laugardals-
vellinum kl. 2 á sunnudaginn,
þegar Austurbæjarliðin hlaupa
inn á. Fyrir nákvæmlega iOárum
leiddu þessi lið saman hesta sina
á Laugardalsvellinum - J)á I
aukaurslitaleik um tslánds-
meistaratitilinn. Sá leil®r var
gifurlega spennandi og komu 7
þús. áhorfendur til aö sjfi (fcann.
Valsmenn fóru þá með sigur af
hólmi — 2:0 i fjörugum qg mjög
vel leiknum leik. Leikwinn á
morgun verður örugglega eins
spennandi, enda siöasti deikur
keppnistimabilsins á milli Is-
lenzkra félagsliða — já, og bar-
áttan um sjálfan bikarinn, sem er
mjög eftirsóttur af knattspyrnu-
mönnum.
-SOS