Tíminn - 14.09.1977, Blaðsíða 1
Fyrir 0»
vörubils1
Sturíu-
grintíur
Siurtu
dælur
Sturtu—
dritsköf
áþ — Reykjavlk. t þeim náttúru-
hamförum sem hafa átt sér staö
við Kröflu, hafa margir velt
vöngum yfir þvi hvernig trygg-
ingum á mannvirkjum væri hátt-
að. Samkvæmt þeim upplýsing-
um sem blaðiö hefur aflað(sér er
stöðvarhúsið i Kröflu tryggt fyrir
rétt rúman einn milljarð króna og
er viölagatrygging innifalin.
Starfsmannahúsin eru tryggð
fyrir 50.6 milljónir króna. Endur-
tryggingar eru á vegum Við-
lagatryggingar islands. Ofan-
greindar tryggingar eru aliar á
vegum Samvinnutrygginga.
Brunabótafélagið tryggði vélar
og tæki frá fyrsta júli á síðasta ári
i 16 rhánuði, en trygging þessi
(Montasje trygging) hefur veriö
framlengd til næstu áramóta. A-
ætlað verðmæti var 2.500.000.000
kr, á meðan á uppsetningu stend-
ur og þriggja vikna reynslu timi
aðauki.Tjónbætastvegna bruna,
storms, vatnstjóns, jarðskjálfta,
reynslukeyrslu ogmistaka við
uppsetningu. Hjá umboðsskrif-
stofu félagsins á Akureyri voru
vinnubúðir á Kröflusvæðinu
brunatryggðar fyrir 211 milljónir Anderson (t.v.) og Albruzzo að Hótel Loftleiöum i gær. Timamynd: Ró-
króna. bert.
Miklar endurbætur í fangelsismálum á næstu misserum:
Gæzluvaröhaldsfangelsi á
Tunguhálsi, einangrunardeild
og sjúkrastofa aö Litla-Hrauni
ólafur Jóhannesson dómsmála-
ráðherra
Haust-
slátrun
hafin
— sjá baksíðu
Norksu
kosning-
unum
lauk
meö
jafntefli
JH-Reykjavik. — Það er nokkuð margt á döfinni i
fangelsismálum hjá okkur i dómsmálaráðuneyt-
inu um þessar mundir, sagði Eirikur Tómasson
aðstoðarmaður dómsmálaráðherra er Timinn
leitaði frétta hjá honum i gær. Meðal þeirra endur-
bóta sem nú eru skammt undan, er bygging gæzlu-
varðhaldsfangelsis á Tunguhálsi i Reykjavík,
bygging einangrunardeildar og sjúkrastofu að
Litla-Hrauni, fangaklefar við lögreglustöðina á
Akureyri og samhæfing á fangelsisfullnustu i
landinu.
— Það er aö forgöngu dóms-
málaráðherrans Ólafs Jóhannes-
sonar að þessi mál hafa verið tek-
in svo föstum tökum sem raun ber
vitni sagði Eirikur enn fremur,
enda brýn þörf á að gera myndar-
legt átak á þessu sviði.
Um gæzluvarðhaldsfangelsið á
Tunguhálsi sagði Eirikur, að
teikningar væru til reiðu og
hugsanlegt að bygging þess hæf-
ist strax i haust, en að öðrum
kosti næsta vor.
Einangrunardeild og sjúkra-
stofuna að Litla-Hrauni yrði
væntanlega byrjað að byggja
næsta vor. Einangrunardeildin
væri ætluð erfiðum föngum, sem
talsvert væri orðið af i landinu i
seinni tið og væri gert ráð fyrir að
unnt væri að hafa þar tiu menn I
einangrun samtimis.
Framkvæmdirnar á Akureyri
eru við það miðaðar að unnt sé að
láta menn afplána þar stutta
fangelsisdóma og ætti það að geta
hafizt um áramót.
Loks er að geta breytinga
þeirra sem gerðar verða á
fangelsisfullnustu i landinu.
Hingað til hefur það verið háð
ákvörðunum sýslumanna og
bæjarfógeta og sakadómarans i
Reykjavik hvenær menn tækju út
refsingu, sem þeir hafa verið
dæmdir i. Nú á að koma meira
samræmi á þessar ákvarðanir
með þvi að láta taka þær allar á
einum og sama stað liklega i
dómsmálaráðuneytinu og á sú
skipan að geta komizt á um næstu
áramót.
Lentu innan
12 mílnanna
K,Okkur tókst það”
' — segir Mr. Albruzzo aft flii'itru lnflhiild vfir Aflanfchaf fvrririaíJ rpvnrill hpir KalSan i’ fríi
KEJ — Reykjavik — Ef ísland
telst til Evrópu, þá hefur okkur
tekizt það sem við ætluðum okk-
ur, að fljúga loftbelg yfirAtlants-
haf og lenda honum i Evrópu,
sagði Ben L. Abruzzo, annar loft-
belgsfaranna, I samtali við Tim-
ann I gær. Hann spuröi jafnframt
hvort island væri ekki örugglega I
Evrópu, og hvort það væri ekki
alþjóðlega viðurkennt. Blaða-
maður Timans þóttist vita aö svo
væri, og Albruzzo áleit þá engan
vafa leika á um það að fimmtándi
leiöangurinn hefði heppnazt og
þeir hefðu oröið fyrstir manna til
Þáu eru glæsileg stöðvarhúsin i Kröfiu — og tryggð fyrir rúman milljarö.
að fljúga loftbelg yfir Atlantshaf
til Evrópu. Tilraunir til sliks hafa
nú þegar kostað fimm manns Hf-
ið.
Þegar Timinn talaði viö Al-
bruzzo i gær lá hann I rúmi sinu á
Hótel Loftleiðum, litillega kalinn
á fótum og einum fingri. Siminn
þagnaði varla hjá honum i allan
gærdag, og einkum voru að er-
lendir fréttamenn, sem
aldrei fengu sig fullsadda á feröa
sögunni. Ekki verður heldur ann-
að sagt en hún sé tilkomumikil og
ævintýraleg. Viö spurðum Al-
bruzzo, hvort hann væri alvarlega
kalinn.
— Nei, ekki held ég það. Kuld-
inn var náttúrlega óskaplegur, og
á þessari einu nótt yfir Norð-
ur-Atlantshafinu fengum við á
okkur öll hugsanleg veður, rok,
rigningu, snjókomu, frost o.s.frv.
Kalið má þó einkum kenna þvi að
eftir fyrstu 12 tfmana á flugi
blotnuðum við, og vorum blautir
þaðan i frá, nær fjóra sólar-
hringa.
Þá spurðum við Albruzzo nánar
út i lendinguna, og hvort þeir
hefðu alls ekki séð sér fært aö
lenda á landi. Albruzzo kvað það
vera misskilning, að þeir hefðu
ekki getað lent á landi, og eins og
stóð i skeytinu sem þeir sendu
flugstjórninni um þrjúleytið i
fyrridag, reyndu þeir þaöan i frá
aðlendaásjó. — Að lenda i fjöll-
óttu landslagi eins og þarna er, i
30 hnúta vindi, hefði ekki kostað
okkur neitt annað en lffið, sagði
Albruzzo. Þess vegna reyndu þeir
að lenda á sjónum þar sem hann
var nógu lygn þvi þar voru meiri
likur á að báturinn kæmi heill niö-
ur og þeir kæmust lifs af. Sjórinn
var hættulegur, sagði Albruzzo,
en fjöllin lifshættuleg.
Við spurðum Albruzzo hvað
lægi næst fyrir. — 1 fyrramáliö
fljúgum við til London að hitta
eiginkonur okkar og vini, sagöi
hann. — Trúirðu þvi, að þau hefðu
þurft að biða i tvo daga til að
komast hingað? Það eru svo
þröngt setnar vélarnar ykkar. Af
þeirri ástæðu, og þar eð þeir Al-
bruzzo og Anderson gátu fengið
sæti til London i dag, hættu þeir
við að staðnæmast hér. Þá sagði
Albruzzo, að um næstu helgi
myndu þeir verða viðstaddir
heimsmeistarakeppni i lofbelgs-
flugi einhvers staðar i Englandi,
og einnig það ætti sinn þátt i þess-
ari ákvörðun.
Að svo búnu kvaddi Albruzzo
Timamenn og kvað reynslu und-
anfarinna daga seint gleymast,
en ekki vildi hann endurtaka
þetta ferðalag. — En okkur tókst
það bætti hann við að lokum og
sjálfsagt hefur hann rétt fyrir sér.
Stöðvarhúsið við Kröflu:
Tryggt á rúm-
an milljarð