Tíminn - 14.09.1977, Blaðsíða 16
16
Wimvrn
Miðvikudagur 14. september 1977.
Billy Brenmer í sviðsljósinu í Bretlandi:
„Gefdu okkur
vítaspyrnu...
Eitt ensku sunnudags-
blaðanna birti s.l. sunnu-
dag grein sem án efa á
eftir að verða umræðuefni
manna í Bretlandi og víðar
næstu mánuðina. Greinin
birtist á forsíðu og f jallar
um tilraun Billy Bremners,
fyrrum fyrirliða Leeds
liðsins, til að múta einum
leikmanna, Wolves, Danny
Hegan, í leik liðanna árið
1972.
Leeds þurfti jafntefli í þessum
leik til að veröa meistari, en tap
þýddi að Derby varö meistari.
Leikmenn Leeds áttu að fá 7.000
pund hver ef liðið næði meistara-
titli, þannig að til mikils var að
vinna fyrir þá. Þegar langt var
liðið á umræddan leik var staöan
2-1 fyrir Wolves og þá á Bremner
að hafa snúið sér að Hegan og
sagtviðhann: „Gefðu okkur vita-
spyrnu og viö munum gefa þér
þúsund pund”. Hegan segist hafa
oröið mjög hissa, en samt sem
áöur hafi Bill McGarry varaö
leikmenn við fyrir leikinn aö þeim
yrðu kannski boðnir peningar.
Annar leikmaður Wolves á
þessum tima, David Wagstaffe,
hefur staðfest það að sifellt hafi
DANNY HEGAN...Skotinn hjá
Úlfunum.
veriö kallað til hans frá vara-
mannabekk Leeds eitthvaö i þá
átt, aö ef hann tæki lifinu með ró
gæti hann unniö sér inn væna
peningafúlgu. Hann sagði að
þessi köil hafi frekar æst sig og
hann hafi sjaldan spilað betur en
einmitt þetta kvöld.
Nú þegar er farið að rannsaka
— og við
munum gefa
þér þúsund
pund”
Bremner
reyndi að
múta
leikmanni
Úlfanna
1972
þetta mál nánar og ef þessar
ásakanir reynast réttar gæti það
haft alvarlegar afleiðingar fyrir
lið Leeds United.
ó.O.
BILLY BREMNER...Skotinn umdeildi, og fyrrum fyrirliöi
Leeds-liðsins.
Norsku blöðin segja, að Akranes
Verði í hlutverki
músarinnar
— gegn kettinum í Bergen í kvöld.
Skagamenn eru ekki á sama máli
SOS-Reykjavik. —Norötnenn eru
mjög bjartsýnir á leikinn gegn
okkur og það mátti sjá I norsku
blööunum, að Norðmenn telji
leikinn — leik kattarins að mús-
inni, sagði Gunnar Sigurðsson,
fararstjóri •slandsmcistaranna
frá Akranesi, þegar viö ræddum
viö hann i gær i Bergen. — Það
mun koma i ljós, þegar ieikurinn
hefst, hvor aðilinn verður i hlut-
verki kattarins og hvor músar-
innar, sagði Gunnar.
Gunnar sagöi að feröin til
Bergen hefði gengið mjög vel —
andinn væri mjög góður hjá
strákunum. Þegar við ræddum
við Gunnar i gær, voru Skaga-
menn nýkomnir af æfingu og voru
þeir þá að fara að borða góðan
mat og halda þannig upp á afmæli
Kristins Björnssonar, sem varð
22 ára i gær.
Skagamenn æföu á Brann-leik-
vanginum i morgun, en i kvöld
leika þeir gegn Brann i Evrópu-
keppni bikarhafa. Gunnar sagði
að George Kirby, þjálfari, myndi
tilkynna liöið, sem léki i dag. Það
verður aö öllunvllkindum skipað
þannig: Jón Þorbjörnsson, Björn
Lárusson, Guðjón Þóröarson, Jón
Gunnlaugsson, Jóhannes Guð-
jónsson, Árni Sveinsson, Jón
Alfreðsson, Karl Þórðarson,
Kristinn Björnsson, Pétur
Pétursson og Hörður Jóhannes-
son.
„Eg vara við
of mikilli
bjartsýni”
— segir Stewart, framkvæmda
stjóri Glens, mótherja Vals
1 Evrópukeppninni
— Ég vara við of mikilli
bjartsýni. Ég vil minna á,
hvernig fór fyrir n-irska
landsliðinu þegar það heim-
sótti ísland. Leikmenn liðsins
voru þá of öruggir með sig,
þegar þeir fóru en komu til
baka niðurbrotnir. Þetta sagði
Arthur Stewart, fram-
kvæmdastjóri Glentoran,
mótherja Vals i Evrópukeppni
meistaraiiða I biaðaviðtali um
sl. helgi.
Þvi hefur verið slegiö föstu i
N-lrlandi að Glentoran sé.eina
liðið frá N-lrlandi, sem eigi
möguleika á aö komast áfram
i 2. umferð i Evrópukeppninni.
En Stewart varar við of mikilli
bjartsýni. — „Islendingar eru
erfiöir heim að sækja. Vitandi
það höldum við til Reykja-
vikur”, sagði Stewart.
Glentorán, eða Glents, eins og
liðið er kallaö, mætir Vals-
mönnum i Evrópukeppninni á
Laugardalsvellinum annað
kvöld. —SOS
Á' • ^
• Arm
ekki til
Svíþjóðar
— til að kanna
aðstæður hjá
Jönköping
Arni Sveinsson iandsliðs-
maður I knattspyrnu frá Akra-
nesi, mun ekki fara tii Svi-
þjóðar eftir leik Skagamanna
gegn Brann. Fyrirhugað var
að Arni færi til Sviþjóöar og
kannaði aöstöðuna hjá Jön-
köping, iiðinu sem Teitur
Þórðarson leikur með. Arni
hefur hætt við þetta, enda
hefur hann takmarkaðan
áhuga á að leika I Sviþjóð.
—SOS
ÍSLANDSMEISTARARNIR FRA AKRANESI...veröa I sviösljósinu I Bergen I kvöld, þegar þeir mæta Brann-Iiðinu f fljóöljósum.