Tíminn - 28.09.1977, Page 2

Tíminn - 28.09.1977, Page 2
2 Miðvikudagur 28. september 1977 Gólfteppi auka hættu á of- næmissjúk- dómum — segja dönsk heilbrigðisyfirvöld, sem vilja útrýma þeim í opinberum stofnunum JH-Reykjavik — Forráðamenn teppaverksmiðja i Danmörku eru byrjaðir að segja fólki upp vinnu ■ sinni, og er búizt við, að þúsund manns til viðbótar missi vinnu sina. Orsökin er mjög sérstaks eðlis: Dönsk heilbrigðisyfirvöld hafa kveðið upp úr með það, að óráðlegt sé að teppaleggja gólf i skrifstofum og stofnunum, þar sem af þeim stafi hætta á ofnæmi. Heilbrigðisyfirvöldin geta ekki lagt fram óyggjandi visindalegar sannaniren telja þó,að teppunum fylgi þarflaus áhætta, og kennslu- málaráðuneytið danska hefur lit- ið svo á, að viðhorf heilbrigðis- yfirvaldanna jafngildi banni við notkun gólfteppa i þvi húsnæði, er reist er á vegum þess. Heilbrigðisyfirvöldin segjast byggja á rannsókn, sem gerð var árið 1976, ásamt margvislegum gögnum, sem þau hafi fengið frá Noregi og Sviþjóð um þessi efni. „Ahættan er sú, að eftir svo sem tiu ár fáum við kynslóð, sem haldin er ofnæmissjúkdómum umfram það, sem áður hefur verið, svo fremi sem alltaf bætist við meira og meira af teppum, sem ekki hafa verið fullkomlega hreinsuð efnum, sem geta valdið slikum sjúkdómum.” Þá segja þau, að hætta sé á, að alls konar svampar og bakteriur Interpolismótið í Hollandi: Friðrik tapaði fyrir Hubner 5St-Reykjavik —Fjórða umferð á Interpolismótinu i Hollandi vartefldi gær.og tapaði Friðrik fyrir Vestur-Þjóðverjanum Hiibner. Friðrik var kominn með ágæta stöðu, en lék illa af sérf 20. leik, og notfærði Húbner sér afleikinn og tókst að lokum að vinna skákina. Timman gerði jafntefli, Hort einnig, en Karpov á að öllum llkindum unna biðskák á móti Sosonko. Efstir og jafnir eftir fjórar um- ferðir eru þvl Timman og Hort með 2 1/2 vinning hvor, Karpov er næstur með tvo vinninga og biðskák. Friðrik er I ellefta sæti með 1 1/2 vinning. Fímmta umferðin verður tefld I dag, og mætir Friðrik þá Kavalek. taki sér bólfestu i teppum, og þar geti þetta lifað árum saman. Að sjálfsögðu safni teppin einnig i sig hvers konar ryki, og þess vegna sé ryk miklu meira i ibúðum og öðrum húsakynnum, þar sem teppi eru notuð, heldur en áður var, á meðan gólfdúkur var látinn duga. 1 Noregiog Svfþjóð hafa áður verið uppi raddirum það, að gólf- teppi skuli ekki notuð á stöðum, þar sem fólk getur ekki sjálft ákveðið, hvort teppi eru á gólfum eða ekki, svo sem i skrifstofum, skólum, sjúkrahúsum og mörgum öðrum almannastofnunum. Það, sem ofnæmi veldur, má að visu fjarlægja en engar likur eru til þess, að fólk vilji fórna þeim tima og þeirri orku, sem til þess þarf að gera það á viðhlítandi hátt. Hreppsnefndarfundur nr. 1000 Nýlega var haldinn 1000. hreppsnefndarfundurinn I Borgarneshreppi. Sæti I hreppsnefnd eiga eftir- taldir menn, Jón Eggertsson, ólafur Sverrisson, Húnbogi Þorsteinsson sveitarstjóri, Guðmundur Ingimundarson oddviti, Sveinn Hálfdánarson, örn Simonarson, Björn Arason og Halldór Brynjúlfs- son. Síldarsöltun hafin í Vestmannaeyjum SJ-Reykjavik A mánudag hófst sildarsöltun I Vestmannaeyjum eftir að samningar höfðu tekizt milli söltunarfólks og vinnuveit- enda um kaup og fyrirkomulag. Að sögn Sigurgeirs Kristjánsson- ar fréttaritara Timans hefur enn aðeins lítils háttar borizt af síld á land, en mcnn vona að söltun og frysting komist senn I fullan gang. Saltað verður i fjórum fisk- verkunarstöðvum. Töluverðu af loðnu hefur verið landað i Eyjum að undanförnu og dálitlu af spærlingi. Sigurður hef- ur komið hvað eftir annað með fullfermi af loðnu og hefur þetta haldið dampinum uppi hjá sildar- eru hjá Eyjum og verksmíðjunum. Rekstrarörðugleikar fiskvinnslustöðvum i bankaviðskipti stirð. Mikið hefur verið unnið á veg- um bæjarins i Vestmannaeyja- kaupstað — við lagningu hitaveitu i hluta bæjarins úr nýja hrauninu og við skolpleiðslur. Skatt- stofu- fólká nám- skeið Bændur kauplausir, ef búvöruverð stæði í stað Miðstjórn Alþýðusambandsins sendi frá sér ályktun, sem hún hafði samþykkt vegna siðustu verðhækkana á landbúnaðaraf- urðum. i upphafi ályktunarinnar er varað mjög alvarlega við þeirri þróun, sem nú er að mark- ast i verðlagsmálum landbúnað- arins. Upplýsingaþjónusta land- búnaðarins bað Gunnar Guð- bjartsson formann Stéttarsam- bands bænda, að svara nokkrum spurningum i tilefni þessarar samþykktar miðstjórnarinnar. — Er þróun i verðlagsmálum landbúnaðarins eitthvað frábrugðin þvi sem hún hefur verið undanfarin ár? — Nei, búvöruverðið er ákveð- ið með sama hætti og oftast undanfarin ár. Teknar voru til greina hækkanir á rekstrarkostn- aði og launum, en engar breyt- ingar gerðar á magntölum, hvorki tekna né gjaldamegin. Hækkanir voru allmiklar, einkum á kaupgjaldsliðnum. Kemur það fram bæði i verðlagsgrundvellin- um sjálfum og i vinnslu og dreif- ingarkostnaði. Slátur- og heild- sölukostnaður kjöts hækkar mjög mikið af þessum sökum. — Er verð á landbúnaðaraf- urðum hærra nú, miðað við tima- kaup verkamanna, heldur en það var fyrir ári eða svo? — Ég held að það sé ekki hærra, sé borið saman hvað hafnarverkamaður gat keypt fyrir timakaupið I marz 1977, og nú kemur i ljós að hann getur keypt verulega meira magn búvöru nú en þá. — Ef samdráttur verður I framleiðslu landbúnaðarafurða, lækka þá ekki tekjur bænda? — Jú, það er næstum því beint samhengi þar á milli. Þó getur það breytzt eitthvað, ef útflutn- ingsbætur þrýtur og ekki er hægt að greiða fullt verð af þeim sök- um. ör verðbólguþróun hér veld- ur þar mestu um, hvort þær duga eða ekki. — Er það kappsmál Stéttar- sambandsins að viðhalda núver- andi verðlagskerfi landbúnaðar- ins? — Stéttarsambandið v i 11 gjarna fá samningsaðstöðu við rikisstjórnina, en leggur áherzlu á að halda kaupviðmiðuninni og útflutningsbótunum. Það telur hins vegar að niðurgreiðslum þurfi að breyta. — Hver ber ábyrgð á verðlagn- ingu landbúnaðarafurða? — Sexmannanefndin á grund- velli gildandi laga. — 1 ályktun miðstjórnar Al- þýðusambandsins segir á einum stað, að rikisstjórnin beri ábyrgð á verðiagningunni i held, þar sem hún hefur neitunarvald, sem hún hliðrar sér hjá að nota, þótt ærin tilefni séu til. Hvað hefði gerzt ef rikisstjórnin hefði neitað að sam- þykkja hækkun á búvöruverðinu? — Bændur hefðu orðið kaup- lausir og gætu ekki keypt mat og klæði né hitað upp hús sin. Elleg- ar þeir kæmust i greiðsluþrot við sina viðskiptaaðila og lánastofn- anir. Þar með væri stórfelld hætta á byggðaeyðingu i landinu, ekki aðeins i sveitunum, heldur einnig I öllum þéttbýlisstöðum, sem lifa á þjónustu við landbún- aðinn og úrvinnslu landbúnaðar- afurða. Starfsfólk á skattstofum á nú að sækja námskeið, sem efnt er til á vegum fjármálaráðuneytisins og embættis rikisskattstjóra. Er gert ráð fyrir þremur námsstig- um, og verða tvö námskeið til- einkuö hverju námsstigi. Fyrsta námskeiðið mun fjalla um framtöl einstaklinga, annað um endurskoðun rekstrarreikn- inga og efnahagsreikninga, fylgi- skjala og bókhalds fyrirtæk'ja i eigu einstaklinga og fyrirtækja og hið þriðja frekara fram- haldsnám. Auk þess er stefnt að þvi að koma á sérnámi fyrir hvern þátttakanda eftir þvi aðal- verkefni, sem hann hefur með höndum. Þessum námskeiðum á að ljúka með prófum, og þeir, sem stand- ast þau, munu hækka i kaupi um launaflokk og öðlast rétt til að þess að taka þátt I næsta nám- skeiði fyrir ofan. Fyrra námskeið fyrsta stigs mun væntanlega hefjast i byrjun nóvembermánaðar, ætlað starfs- fólki, er nú fær laun samkvæmt 11. launaflokki eða minna, en fyrra námskeið annars stigs hefst trúlega i janúarmánuði. Fjórtán menn geta tekið þátt i hvoru námskeiði. Alþj óðahaf rannsóknarfundurinn: Allir færustu fiski- fræðingarnir KEJ-Reykjavik — óhætt er að segja að flestir færustu haf- og fiskifræðingar viö norðanvert Atlantshaf séu nú staddir hér á landi, vegna ársfundar Alþjóða- hafrannsóknaráðsins, en fuli- trúar á þvi munu vera um 300. Að sögn Jóns Jónssonar, for- stööumanns Hafrannsókna- stofnunarinnar, starfar ráðið á lokuðum fundum, og er þvi skipt niður i þrettán nefndir, sem m.a. starfa við að taka afstöðu til vinnuskýrslna og rannsókna, semeru misjafnlega langt á veg komnar. Fimm hundruð rit- gerðir hafa verið lagðar fram, og nánast ógjörningur, sagði Jón, að greina frá gangi mála fyrr en að ráðstefnunni lokinni. t gær voru t.d. til umræðu ýmis „innanrikismál” ráðsins, almenn samvinna visinda- manna af hinum ýmsu þjóöern- um, og fleira i þeim dúr. Vis- indaritgerðir, sem lagðar hafa verið fram, eru eins og dður greinir um 500 og byggjast á misjafnlega áreiðanlegum rannsóknum. Þegar er búið að draga nokkrar þeirra til baka. Þá sagði Jón Jónsson, að ráð- stefnugestir hefðu látið i ljós mikla ánægju með undirbúning og aðstöðu á ráöstefnustaö, sem er Hótel Loftleiðir. Þar starfa m.a. tiu starfsmenn frá aðal- stöðvum ráðsins i Kaupmanna- höfn, og starfsmenn Hafrann- sóknastofnunarinnar islenzku. Þetta er i fyrsta sinn sem ráðið heldur ársfund sinn hér á landi, en hann er haldinn annað hvert ár IKaupmannahöfn og hittárið hjá einhverju aðildarríkja ráðs- ins. Eins og áður hefur komið fram i fréttum, á ráðið 75 ára afmæli á þessu ári.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.