Tíminn - 28.09.1977, Síða 11
Miövikudagur 28. september 1977
mmmm
11
Heimsókn Geirs til Sovétríkjanna:
Guðspeki-
félagið
byrjar
vetrarstarfið
Ánægju lýst með þró-
un samskipta landanna
Sigurður situr hér við verk sitt Linudans, en að baki honum eru mynd-
irnar Klipp klipp og Levnilegar kosningar.
Sigurður örlygsson heldur nú
sýningu i Galleri Sólon islandus,
Aðalstræti 8. Sýningin er opin
milli klukkan 2 og 22 dagana 24.
september til 9. október.
Myndirnar á sýningunni eru
klippimyndir og unnar á þessu
ári. Þær eru allar til sölu.
Guðspekifélagið mun hefja fyrir-
lestrastarf sitt á þessu hausti n.k.
föstudag, 30. sept., með þvi að
Geir Vilhjálmsson sálfræðingur
flyturerindi um Findhorn háskói-
ann i Skotlandi, og greinir frá
heildrænni afstöðu þeirra til
menningar, mannræktar og sam-
vinnu við náttúruna.
Fyrirlestrar munu verða I húsi
félagsins eftirleiðis alla föstu-
daga kl. 21, eins og venja er til, og
eru öllum opnir'.
Starf Guðspekifélagsins, sem
er alþjóölegur félagsskapur,
byggir á hugsana- og trúfrelsi og
miðar að fordómalausu bræðra-
lagi mannkynsins. Félagsmenn
eru hvattir til að leggja stund á
samanburö trúarbragða, heim-
speki og náttúruvisindi, og að
rannsaka óskilin náttúrulögmál
og öfl þau er leynast með mönn-
um.
Tíminner
peníngar
Auglýsitf
iTimanum:
svikja engan
Mjólk og mjólkurafuiðir- orkulind okkar og heilsugjaf i
Opinberri heimsókn Geirs Hall-
grimssonar forsætisráðherra til
Sovétrlkjanna lauk i gær, og var
þá gefin sameiginleg yfirlýsing
hans og Alexeis N. Kosygins, for-
sætisráðherra Sovétrikjanna, um
viðræður þær, er þeir höfðu átt.
1 þessari yfirlýsingu, sem utan-
rikisráðuneytið sendi fjölmiðlum
i gær, segir meðal annars:
„Viðræðurnar voru gagnlegar
og vinsamlegar, og var rætt um
margvisleg alþjóðleg vandamál,
sem e ru ofarlega á baugi, og m ál,
er snerta samskipti íslands og
Sovétrikjanna, og horfur varð-
andi þróun þeirra samskipta.
Báðir aðilar lögðu áherzlu á
nauðsyn þess aö leggja sitt af
mörkum til að draga úr spennu i
alþjóðamálum og stuöla að frið-
samlegri samvinnu i Evrópu og
hvarvetna I veröldinni. Þeir telja
að það sé sérstaklega mikilvægt
fyrir áframhaldandi slökun
spennu aö framkvæma til hlitar
öll ákvæði lokasamþykktar ráð-
stefnunnar um öryggi og sam-
vinnu f Evrópu og tryggja árang-
ursrikar niðurstöður fundanna i
Belgrad.
Sérstök áherzla var lögð á
nauðsyn þess að gera Sameinuðu
þjóðirnar virkari, svo að þær geti
á raunhæfan hátt verndað frið og
alþjóðlegt öryggi og stuðlað að
samskiptum rikja á milli á öllum
sviðum I fyllsta samræmi við
stofnskrá sina.
Rætt var um nauösyn þess, að
þriðja hafréttarráðstefna Sam-
einuðu þjóðanna lyki sem fyrst
störfum með heildarsamkomu-
lagi, er taki tillit til réttmætra
hagsmuna allra rikja.
Aðilar lögðu áherzlu á brýna
nauðsyn þess að gera ákveðnar
ráðstafanir til að stöðva vig-
búnaðarkapphlaupið og ná
árangri hvað snertir almenna og
algera afvopnun undir ströngu og
virku alþjóðlegu eftirliti”.
Þá segir ennfremur i fréttatil-
kynningunni:
„Nytsamlegar viðrasður fóru
fram um þróun verzlunarvið-
skipta. Aðilar létu i ljós ánægju
yfir hagstæðri þróun þeirra við-
skipta á grundvelli bókunarinnar
um gagnkvæmar vöruafgreiðslur
milli íslands og Sovétrikjanna á
timabilinu 1976-1980 og voru sam-
mála um að fyrir hendi séu góð
skilyrði til frekari þróunar gagn-
kvæmra verzlunarviðskipta.
Lögð var áherzla á þýðingu
samskipta beggja landanna á
sviði sjávarútvegs á alþjóðavett-
vangi og á tvihliða grundvelli,
eins og fram kemur i samningi
milli íslands og Sovétrikjanna,
sem gerður var i Reykjavik i
april á þessu ári um visinda- og
tæknisamvinnu og samráð á sviði
sjávarútvegs og rannsókna á lif-
andi auðæfum hafsins.
Aðilar lýstu ánægju yfir þróun
islenzk-sovézkra samskipta á
sviði kennslumála, visinda- og
menningarmála, sem eiga sér
stað innan ramma áætlunarinnar
um menningar- og visindasam-
vinnu á timabilinu 1975-1979, sem
gerð var á grundvelli samnings-
ins milli Islands og Sovétrikjanna
frá 1961 um menningar-, visinda-
og tæknisamvinnu”.
Mjólk er alhliða fæða, sem við fáum
beint úr ríki náttúrunnar. I mjólkinni
eru næstum öll næringarefni, sem
líkaminn þarfnast, s.s. prótín, nauðsynlegt
til vaxtar og viðhalds líkamanum og kalk
til myndunar og viðhalds tanna og
beina. Mjólkin er auðug af A-, Bi- og B:-
vítamínum og inniheldur auk þess nokkuð af
D- vítamíni.
Ur mjólk og rjóma eru framleiddar
fjölbreyttar afurðir. Súrmjólk, skyr,
ýmir, jógúrt, rjómaís, smjör og margar
tegundir osta eru meðal þeirra.
Mjólk og mjólkurafurðir eru hollar og
bragðgóðar- kjarnafæða sem svíkur engan.