Tíminn - 28.09.1977, Síða 15
Miövikudagur 28. september 1977
15
Hulda M. Indriðadóttir
Þegar við kveðjum kæra skóla-
systur, þá fyrstu úr hópnum, sem
flyzt yfir landamærin miklu,
þyrpast minningarnar fram i
hugann og f er ekki h já, að þær eru
meira og minna tengdar henni.
Haustdag einn mildan og fagr-
an fyrir rúmum þrem áratugum
mættum við væntanlegir nem-
endur i Húsmæðraskólanum að
Laugalandi i Eyjafirði. Ætlunin
var að dvelja þar vetrarlangt,
nema þar kvenleg fræði, hús-
stjórn og heimilishald, vefnað og
hannyrðir ásamt fleiru.
Sumar höfðu yfirgefið æsku-
heimili sin i fyrsta sinn og full-
ljóst var, að eftirvænting rikti og
spurning um, hvað biði okkar.
Skuggi styrjaldaráranna grúfði
enn yfir, en sem titt er um ungt
fólk litum við framtiðina björtum
augum. Við komum viðsvegar að
af landinu, höfðum alizt upp við
ólik skilyrði og misjöfn lifskjör og
nú átti norðlenzk sveit og norð-
lenzkur vetur með fegurð sinni og
reisn, hriðum og kulda að vera
umgjörð lifs okkar þennan tima.
Smám saman hófust kynnin. A
hefðbundinn hátt drógum við okk-
ur saman i smá vinnuhópa og
skiptum með okkur verkum. Það
var spennandi að vita hverjar
yrðu saman. Jú, þrjár urðum við i
númer 4 i eldhúsi til að byrja
með, tveir Norðlendingar og ein
úr gróðursælli sunnlenzkri sveit
og var það Hulda. Hún hafði ekki
kynnztnorðlenzkum vetri og vissi
þvi ekki, hvernig hin ytri umgjörð
var.
Strax urðum við þrjár mjög
samrýndar og i gamni töldum við
að i' okkar númer hefði valizt bezt
saman. t okkar litla samfélagi
riktioftmikilkæti og græskulaust
gaman, Hulda átti sinn þátt i þvi.
Kimni átti hún góða og enn i dag
munum viö skólasysturnar marg-
ar hnittnar setningar og athafnir
hennar.
Mér er mjög minnisstætt
hvernig hún gekk að öllum sfnum
verkum, ósérhlifin, velvirk og
samvizkusöm. Aldrei ætlaði hún
öðrum aðvinna þau verk, er hún
taldi sig sjálfa eiga að leysa af
hendi.
A miðjum vetri skiptum við um
verksvið og kom þá enn betur i
ljós hver völundur Hulda var i
höndunum. Hún vann muni, sem
bera vitni um hreint listahand-
bragð.
Veturinn leið við nám og leik.
Hin svokölluðu unglingavanda-
mál þekktust ekki á þessum stað.
Við virtum kennara okkar og
urðum þeirra trausts og hand-
leiðslu aðnjótandi. Eftir lær-
dómsrikan og ánægjulegan sam-
verutima urðu leiðir að skilja og
vist er um það, að heldur var
dapurlegur dagurinn sem við
skildum og kvöddum skólann
okkar,enþað heit, aðhalda kynn-
um áfram, höfum við efnt.
Hópurinn allur varð sem ein vin-
áttukeðja sem haldizt hefur heil æ
siðan. Hulda var sterkur hlekkur i
þessari keðju. Hún stuðlaði alltaf
að samfundum okkar, sem orðnir
voru æði margir þrátt fyrir bú-
setu viðs vegar um landið.
Þegar Hulda var með okkur
siðast var hún orðin alvarlega
veik, en að vanda lét hún ekki á
þvi bera. Hún vildi ekki, að sinir
erfiðleikar skyggðu á gleði
annara. Já, þannig var hún.
Hulda settist að i Reykjavik og
vann lengi við saumaskap, lærði
þar dömuklæðskeraiðn. Hún gift-
ist Einari Kvaran og eignuðust
þau eina dóttur, Bryndisi sem
verið hefur móður sinni mjög kær
og reynzt henni hlý og nærgætin
erfiðan tima. Þau hjón slitu sam-
vistum eftirfárra ára sambúð. Sú
ráðstöfun mun hafa verið Huldu
viðkvæmt mál, sem hún ræddi
ekki við aðra. Hún bjó sér og dótt-
ur sinni yndislegt heimili, og um
tima vann hún heima að iðn sinni.
A þann hátt hugði hún þær mæðg-
ur dvelja meira saman. Ekki
urðu stór fjárhagsleg uppgrip af
starfi hennar þá, til þess var
Hulda of greiðug og gestrisin.
Seinustu árin vann hún i
kápuverzlun og reyndist þar
góður starfskraftur.
Hulda var dóttir hjónanna
Theódóru Asmundsdóttur og Ind-
riða Guðmundssonar i Arnarholti
i Biskupstungum, sem bæði eru
látin. Mjög kært var með Huldu
og systkinum hennar einkum þó
systrunum er bjuggu i grennd við
þær mæðgur. Heimili þeirra stóðu
þeim ávallt opin. Einnig hafa þær
sýnt frábæra umhyggju og hjálp-
semi i löngum og erfiðum
veikindum hennar.
Fyrir rúmlega tveim árum
veiktist Hulda af ólæknandi sjúk-
dómi. Siðan hefur hún að mestu
dvalið á sjúkrahúsi. Hún syndi
einstaka ró og stillingu þráttfyrir
mikla vanliðan og vitneskju um
aðekki yrði um bata að ræða. Að
fyrra bragði ræddi hún ekki um
sina liðan, en spurði allajafna um
þáaðra erhún vissi að áttu við er-
fiðleika að striða og hvað mætti
þeim til hjálpar verða.
Þakklæti var henni efst
i huga fyrir þá nærgætni og frá-
bæru umönnun sem henni var
sýnd. Hún vonaði að eitthvað
mætti læra af sinum sjúkdómi og
hegðun hans, öðrum til góðs. Um
þessi komandi vistaskipti ræddi
hún af raunsæi, róleg og æöru-
laus. Úr þvi sem komið var þráði
hún aðeinshvild. Hún var þakklát
fyrir það lif sem henni var lánað
og þvi skilaði hún með sæmd.
Ég vil efna það heit að bera
skólasystrunum kveðjur hennar
með þökk fyrir góð kynni sem
voru henni mikils virði. Einnig
var henni umhugað um, að aftur
tengdist okkar kveðja þrátt fyrir
högg hins mikla máttar er braut
fyrsta hlekkinn og sem við að
endingu verðum öll að lúta. Þá
ekki siður viljum við skóla-
systurnar þakka Huldu einstaka
og lærdómsrika samfylgd, allt frá
fyrstu kynnum. Hjálpsemi henn-
ar og greiðvirkni áttu sér engin
takmörk, það höfum við margar
reynt.
Bryndisi, Asthildi litlu og
systkinum Huldu vottum við
dýpstu samúð.
Hulda var ljóssins barn, unni
voriog gróanda. Hennióskum við
fararheilla til himneskra landa
þar sem sólin gengur aldrei til
viðar.
f.h. skólasystranna
Margrét Hallsdóttir
Styrktarfélag vangef-
inna með mikla fjáröflun
KEXVE RKSMIÐJAN FRÓN
^Við þörfnumst
Söfnun stofnfélaga er í fullum gangi.
Undirskriftarlistar liggja frammi á cftirtöldum stöðum:
ÁRBÆJARAPÓTEK, Hraunbæ 102
BLÓM og ÁVEXTIR, Bankastræti 11
BLÓM og ÁVEXTIR, Hafnarstræti 3
GARÐS APÓTEK, Sogavegi 108
HÁALEITIS APÓTEK, Háaleitisbraut 68
HÓLAKOT, Lóuhólum 4-6
LAUGARNESAPÓTEK, Kirkjuteig 21
LYFJABÚÐ BREIÐHOLTS, Aniarbakka 4-6
PLÖTUPORTÍÐ, Vcrzlanahöllinni, Laugavegi 26
Snyrtivöruvcrzlunin NANA, Völvufclli 15
TÝLl lif., Austurstræti 7
Íídi' dt' SAMTÖK áhugafólks
l^LLTX um áfengisvandamálið
SKRIFSTOFA: FRAKKASTÍG 14B - SlMI 12802
Bifreiðaeftirlit
ríkissins tilkynnir:
Vegna aðsetursskipta.verður bifreiðaeftirlitið i Reykjavik
lokað mánudaginn 3. og þriðjudaginn 4. okt. n.k.
Miðvikudaginn 5. okt. verður opnað á ný að Bildshöfða 8.
Afgreiðslan er opin frá kl. 8.00 til 16.00 alla virka daga,
nema laugardaga.
Reykjavik, 28. september 1977
Bifreiöaeftirlit rikisins
Þessa dagana er Styrktarfélag
vangefinna að senda út happ-
drættismiða i hinu árlega bilnúm-
erahappdrætti félagsins. Happ-
drættið er að þessu sinni óvenju-
lega glæsilegt, en heildarverð-
mætivinninga er rúmar 14 millj.
Aðalvinningurinn er Plymouth
Volare-bifreið að verðmæti 3.3
millj.,en 9 vinningareru bifreiðir
að eigin vali, hver að upphæð kr.
1.2 millj. Vinningarnir eru skatt-
frjálsir.
úllum ágóða happdrættisins
verður varið til styrktar málefn-
um vangefinna sem og öðrum
tekjum félagsins. Stærsta fram-
kvæmd félagsins nú sem stendur
er bygging afþreyingarheimilis
fyrir vangefna við Stjörnugróf 1
Reykjavik, en bygging þess hófst
s.l. vor.
Stofnfé byggingarinnar var
söfnunarfé er safnaðist á árinu
1976 i sambandi við fórnarviku
kirkjunnar. Einnig hefur félagið
fengið fé úr Styrktarsjóði vangef-
inna til byggingarinnar.
Afþreyingarheimilið verður um
650 fm. og mun rúma 24 vistmenn.
Þvi verður þriskipt, þ.e. aðstaða
verður til likamsræktar og þjálf-
unar, til vinnu og föndurs og til
hvildar. Mun það fullbúið bæta úr
mjög brýnni þörf, en stöðugt er
mikil eftirspurn eftir vistun á
dagheimili félagsins, sem öll eru
fullsetin. Aætlaður kostnaður við
húsið fokheltog frágengið að utan
er um 45 millj., þannig að um
mjög kostnaðarsama fram-
kvæmd er hér að ræða.
Um leið og Styrktarfélag van-
gefinna þakkar landsmönnum
góðan stuðning á liðnum árum við
málefni vangefinna, heitir það á
alla að styrkja þetta málefni með
kaupum á happdrættismiðum fé-
lagsins og stuðla með þvi að bætt-
um hag þess fólks i þjóðfélaginu,
sem minnst má sin. Þvi miður
vantar enn mikið á að þviséu bú-
inþau skilyrði i þjóðfélagi okkar,
sem beztgerasthjá þeimþjóðum,
semvið viljum gjarna bera okkur
saman við. Bygging afþreyingar-
heimilisins er einn þátturinn i
bættum hag þess hér á landi.
Píanó óskast
til kaups.
Upplýsingar í síma 8-60-40
Fósturheimili
Óskum eftir að komast i samband við
fjölskyldur, sem geta tekið að sér
heimilislausa unglinga á aldrinum 12-16
ára.
Upplýsingar i sima 25500 kl. 10-12 ár-
degis virka daga.
Felagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
W Vonarstræti 4 sími 25500