Tíminn - 28.09.1977, Page 19
Miðvikudagur 28. september 1977
19
flokksstarfið
Viðtalstímar
alþingismanna og
borgarfulltrúa
Framsóknarflokksins
Kristián Benediktsson, borgarfulltrUi verður til viðtals á skrif-
stofu Framsóknarflokksins, að Rauðarárstig 18, laugardaginn 1.
okt. kl: 10-12
„Opið hús" Flateyri
Framsóknarfélag önundarfjarðar verður með opið hús i sam-
komuhúsinu Flateyri á þriðjudagskvöldum kl. 20.30-23.30. Leikið
verður af plötum, spilað, teflt, myndasýningar.
Allir velkomnir.
LONDON
Fyrirhuguð er 5 daga ferð til Lundúna á vegum SUF i siðari
hluta nóvember ef næg þátttaka fæst.
Nánar auglýst siðar. S^F
Kópavogur
Fulltrúaráðsfundur framsóknarfélaganna i Kópavogi verður
haldinn að Neðstutröð 4 þriðjudaginn 27. sept. næstk. kl. 20.30.
Fundarefni: 1. FramboðsmálT Kosning framboðsnefndar. 2.
Vetrarstarfið. 3. önnur mál.
Stjórnin
Keflavík
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna I Keflavik heldur fund i
Framsóknarhúsinu fimmtudaginn 29. sept. og hefst kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Vetrarstarfið.
2. Umræður um prófkjör vegna bæjarstjórnarkosninga á kom-
andi vori.
Stjórnin.
sagði, að félagið Perla væri
undirbúningsfélag, en i næstu
viku verður gengiðfrá stofnun al-
mennings hlutafélags, og vonazt
er til að þátttaka verði góð. Til-
gangur félagsins er að halda
áfram þenslu perlusteins, en til-
raunir hafa verið gerðar i
Sementsverksmiðju rikisins á
Akranesi, og hugmyndin er að fá
ofninn, sem þar er, leigðan. Til-
raunir i Sementsverksmiðjunni
hafa gengið vel, en einnig var
perlusteinn sendur út til þenslu i
stærri ofnum. Menn frá
Iðnþróunarstofnun fóru utan til
að fylgjast með tilraunum þar, en
þær tókust prýðilega. Að félaginu
Perlu standa menn i byggingar-
iðnaði og áhugamenn, sem vilja
efla atvinnulif á Akranesi.
Göð samvinna hefur verið milli
Perlu, Prestahnjúks og Ylfells og
áætlanir samræmdar, svo ekki
væri eytt fjármunum til sömu at-
hugana hjá tveim aðilum.
Reynir sagði, að ætlunin væri
að félögin nemi steininn sam-
eiginlega, Perla standi fyrir
þenslunni, en siðan verði steinn-
inn unninn viða, á ýmsan hátt.
0 Flug
hefði talið, að flugumferðarstjór-
ar gætu jafnvel tekið að sér störf
loftskeytamanna i Gufunesi og
aðstoðarmanna i flugstjórn. Að
sögn flugmálastjóra var verið að
funda um þetta i gær, og niður-
stöður liggja þvi enn ekki fyrir.
Ljóst er, að þvi aðeins verður
flogið tilog frá íslandi I öðrum til-
vikum en neyðartilvikum, að
flugumferðarstjórar taki að sér
að vinna störf aðstoðarmanna
sinna og annast öll fjarskipti við
flugvélarnar, en slikt hefur hing-
að til að hluta verið unnið af loft-
skeytamönnum f Gufunesi.
Spurningu Timans um rétt
einnar starfsstéttar á vegum rik-
isins til að taka að sér að vinna
störfannarrari verkfalli, svaraði
Helgi V. Jónsson d þá leið, að það
væri ekki i verkahring nefndar-
innarað ákveða slikt, en sér væri
kunnugtum að nokkur deila stæði
um það, að hve miklu leyti yfir-
maður gæti tekið að sér að vinna
störf undirmanns si'ns. Mun
a.m.k. verafordæmi fyrir slfku I
verkfalli verkfræðinga hjá borg-
inni fyrir skömmu.
Þá kvað Helgi ljóst, að ef á
annað borð yrði flogið, þyrfti
nefndin að taka afstöðu til þess,
að hve miklu leyti tollgæzla
starfaði. Ekki taldi hann þó lik-
legt, að það færi út fyrir ramma
heilsugæzlu, en þess gætt, að ekki
verði flutt til landsins eiturlyf,
matvara eða annað, sem sýking
gæti stafað af. Að öðru leyti
reiknaði hann ekki með þvi að
tollgæzla færi fram, a.m.k. ekki
nema tollv. tækju það upp hjá
sjálfum sér t.d. að gera upptækt
umframmagn af áfengi og sliku.
Hitt kvað hann alveg vist, að eng-
in tollafgreiðsla færi fram, og
jafnvel þótt eitthvað yrði um
innflutning til landsins með skip-
um eða flugvélum, fengist það
ekki tollafgreitt, og kæmist þvi
ekki I verzlanir meðan á verkfalli
stæði.
Háskóla-
fyrirlestur
Fimmtudaginn 29. september
verður fluttur opinber háskóia-
fyrirlestur á vegum félagsvfs-
indadeildar Háskóla íslands I
stofu 101 i Lögbergi, hiisi laga-
deildar Háskóla íslands.
Fyrirlesturinn flytur Martin
Johnson prófessor frá háskólan-
um i Utrecht i Hollandi.
Martin Johnson, sem skipar
annað tveggja prófessorsem-
bætta i dulsálarfræði i Evrópu,
nefnir fyrirlestur sinn „Factors
that seem to influence paranor-
mal performance.”
Fyrirlesturinn, sem fram fer á
ensku, er öllum opin og hefst
klukkan 20.30.
Ráðstefna KFUM og K
um kristna trú
Dagana 14. — 16. október n.k.
verður haldin ráðstefna i húsi
K.F.U.M. & K. að Amtmannsstig
2B i Reykjavík. Á þessari ráð-
stefnu verður rætt um nokkur
grundvallaratriði kristinnar trú-
ar og yfirskrift hennar er
„Grundvöliurinn er Kristur”. Að
þessari ráðstefnu standa nokkur
frjáls kristileg félagasamtök,
sem starfa á hinum evangelisk-
lútherska kenningagrundvclli fs-
lenzku þjóðkirkjunnar:
K.F.U.M., K.F.U.K., Samband
islenzkra kristniboðsfélaga,
Kristileg skólasamtök og Kristi-
legt stúdentafélag.
Meginástæður þessa ráðstefnu-
halds eru þær, að félögin vilja
leggja áherzlu á að skýra nokkur
höfuðatriði kristins boðskapar
samkvæmt evangeliskri-lút-
O íþróttir
— og var það hálfgert gjafamark.
Helgi Kuseth skaut lausu skoti af
stuttu færi sem Guðmundur Bald-
ursson, markvörður Fram missti
knöttinn undir sig. Norðmennirn-
ir bættu siðan öðru marki við á 66.
min., en þá skoraði Odd Magne
Olsen með góðu skoti. Knötturinn
hafnaði i þverslánni, og þeyttist
þaðan i mark Framara.
Framarar fengu aðeins eitt
gott marktækifæri i leiknum og
kom það, þegar 5 min. voru til
leiksloka. Þá klúðraði Kristinn
Jörundsson góðu færi, er hann
stóð fyrir opnu marki.
Eins og fyrr segir, þá var leik-
urinn afspyrnu lélegur og leiðin-
legur fyrir áhorfendur. Ahuga-
leysið og getuleysi leikmanna
Fram réð rikjum i leiknum.
Fram liðiðhefur átt marga lélega
leiki i sumar en engan sem jafn-
ast á við þennan leik — leikmenn-
irnir gátu hreinlega ekki neitt.
— SOS
herskri kenningu. Við lifum á
timum mikilla breytinga f is-
lenzku þjóðfélagi, þegar ýmsir
taka að efast um margt það, sem
áður þótti sjálfsagt. Þetta kemur
g'löggt fram á sviði trúmála.
Margir spyrja um kristna kenn-
ingu og grundvöll hennar. Ýmsir
telja, að kominn sétimi til þess að
breyta sumu þvi, sem kennt hefur
verið i' þeim efnum og snúa sér að
öðrum kenningum, kirkjudeild-
um eða trúarbrögðum. Seinustu
ár hafa ýmsar hreyfingar og
stefnur borizt hingað til lands,
sem standa á öðrum kenninga-
grundvelli en hinum evangelisk-
lútherska. Er þar bæði um að
ræða fylgjendur annarra kirkju-
deilda og ýmsa aðra trúflokka,
sem sumir hverjirgeta ekki talizt
kristnir, þar sem þeir afneita
ýmsum þeim meginatriðum, sem
flestar kirkjudeildireru sammála
um.
Flestir munu þvi geta verið
sammála um, að þörf sé að gjöra
almenna grein fyrir evangelisk-
lútherskum kenningagrundvelli,
sem islenzk kristni hefur viljað
starfa á. Þess vegna vonast áður-
nefnd félagasamtök til þess, að
fólk noti tækifærið til þess að
kynna sér þessi efni með þvi að
sækja ráðstefnuna. Hún er opin
öllum, sem óska eftir að taka þátt
ihenni, en fólk verðurað tilkynna
þátttöku sina fyrir 3. október n.k.
til skrifstofunnar i húsi K.F.U.M.
að Amtmannsstig 2B. Aðeins
skráðir þátttakendur geta tekið
þátt i störfum ráðstefnunnar.
Astæða er til þess að hvetja alla
þá, sem láta sér annt um kristi-
legt starf á Islandi, að sækja ráð-
stefnuna. Þátttökugjald er innan
við kr. 1000. Eru innifaldir i þvi
kaffiveitingar á laugardag og
sunnudag. 1 sambandi við ráð-
stefnuna verða haldnar almennar
samkomur i Dómkirkjunni föstu-
dags-, laugardags- og sunnudags-
kvöld, þar sem öllum er heimill
aðgangur, þótt þeir taki ekki þátt
i sjálfri ráðstefnunni. Verða sam-
komurnar miðaðar við efni ráð-
stefnunnar.
‘ ' jy’1
Þróunarstofnun Reykjavikurborgar óskar 1
aö ráða i
skrifstofustarf
nú þegar, i starfinu felst m.a. vélritun og
simavarsla.
Umsóknir sendist til Þróunarstofnunar
Reykjavikurborgar, Þverholti 15.
UU;
A*,-
W
&
i
■ • y :-\ • ••■■ «5 • v •** -; ( 'i'i/t • ' • ’~v --*•*'. v*v.1*'V'
Víkureldhús eru íslenzk vinna og vönduð. Fjölbreytni i gerð o<
útliti. Hagræðing og skipulag er nauðsynlegt fyrir húsmóðurim
Greiðsluskilmólar og staðgreiðsluafslóttur.
Sendum litprentaða bæklinga T tttst tf> r'T rvT ttV t tt
hvert á land sem er. VIKXJR ELDHUS HI
n ... _j . . Súðavogi 44 - Sími 31360
Postsendum hvert sem er, (Gengið inn frá Kænuvogi)
fljótt og vel.
Fjöldi möguleika