Tíminn - 09.10.1977, Blaðsíða 8

Tíminn - 09.10.1977, Blaðsíða 8
8 Sunnudagur 9. október 1977 Ingólfur Davíðsson: 192 Byggt og búið í gamla daga Hyggjum að húsinu Aðal- stræti 13 inni í „Fjörunni” á Akureyri. Þetta hús reisti Þórð- ur Thorarensen gullsmiður á uppfyllingu árið 1898. Hann fluttist til Akureyrar 1882 og rak gullsmiðaverkstæði þar um meira en hálfrar aldar skeið (d. 1944). Búið hafði hann einnig I húsinu. Oft hefur þar verið fjöl- mennt. Nú búa fjórar fjöl- skyldur i húsinu, þ.á.m. Jón Sveinbjörnsson og Lovisa Pét- ursdóttir frá Blómsturvöllum i Kræklingahlið. Hafa þau búið þarna i 26 ár. Skammt er héðan að Aðalstræti 24, húsi Páls Ár- dals skálds, reist 1903, sem áður hefur verið getið i þætti. Og ögn innar i Fjörunni, Aðalstræti 50 stendur sögufrægt hús, bæði kennt við prentverk og skáld- skap. Þetta hús reisti Björn Jónsson árið 1849 og bjó þar alla ævi. Stofnaði prentsmiðju i hús- inu 1952. Þar hóf Norðri, fyrsta blað á Akureyri, göngu sina i marz 1853. Yfirprentari Helgi Helgason, áður prentari i Viðey. Var prentsmiðjan i norðurenda hússins. Frá götunni séð mun húsið enn óbreytt að útliti, allt Norskt hús i Skipagötu Akureyri (9/9 1976) frá dögum Björns ritstjóra. En tvisvar hefur verið byggt við húsið vestanvert, i fyrra skiptið þegar Matthias Jochumsson prestur og skáld flutti þar inn árið 1887, og svo var aftur byggt við það á þessari öld. Matthias keypti húsið eftir andlát Björns ritstjóra 1886 og bjó þar með sina stóru fjölskyldu fram um aldamótin. Matthias reisti „Sigurhæðir” árið 1903 og bjó þar siðan til æviloka 1920. Hefur Matthias gert garðinn frægan á báðum þessum stöðum, inni i „Fjöru” og uppi á Sigurhæðum. Eftir Matthias bjó Kristján Nikulásson söðlasmiður og lög- regluþjónn, lengi með stórri fjölskyldu sinni i húsinu Aðal- stræti 50. Núverandi eigandi er Þórður Friðbjörnsson minjasafnsvörð- ur. Stór, gamall silfurreynir stendur við húsið, er hann frá dögum Matthiasar? Bregðum okkur sunnan úr „Fjöru”útimiðbæinnáeða upp af Torfunefi. Þar i þyrpingu húsa, margra stórra og nýlegra, stendur við Skipagötu litið rautt timburhús (sjá mynd), með bröttu, svörtu þaki. Heyrt hef ég að húsið sé norskt og hafi verið flutt i bæinn utan frá Dældum i Krossanesi fyrir alllöngu. Það er harla ólikt öðrum húsum i grenndinni. Aðalstræti 50 Akureyri (9/8 1977) Aðalstræti 13, Akureyri (8/8 1977) Hús Páls Árdals, Aðalstræti 24 Akureyri (8/8 1977)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.